Morgunblaðið - 15.02.2018, Qupperneq 1
Skilyrt eignarhald
» Íslandsbanki á 63,5% í
kortafyrirtækinu Borgun.
» Á grundvelli sáttar við Sam-
keppniseftirlitið þurfa allir
stjórnarmenn sem bankinn til-
nefnir að vera óháðir honum.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Mikil gremja er komin upp í hlut-
hafahópi greiðslukortafyrirtækisins
Borgunar vegna afskipta Birnu Ein-
arsdóttur, bankastjóra Íslandsbanka,
af því hver myndi taka við stöðu for-
stjóra í Borgun þegar ljóst var að
Haukur Oddsson, þáverandi forstjóri
fyrirtækisins, myndi láta af störfum.
Þannig mun Birna hafa sett sig í
samband við stjórnarmenn í fyrirtæk-
inu, sem er að meirihluta í eigu bank-
ans, og þrýst á að Katrín Olga Jó-
hannesdóttir, formaður Viðskiptaráðs
Íslands, yrði ráðin í starfið. Sú beiðni
gekk þvert á þann vilja stjórnarinnar
að ráða Sæmund Sæmundsson til
starfa. Varð niðurstaðan sú að Sæ-
mundur var ráðinn, þrátt fyrir að Ís-
landsbanki tilnefni þrjá stjórnarmenn
af fimm hjá Borgun. Örfáum vikum
eftir að tilkynnt var um ráðningu nýs
forstjóra var stjórnarformanni Borg-
unar og einum meðstjórnanda, en þau
eru bæði tilnefnd af Íslandsbanka til
starfans, tilkynnt að ekki yrði óskað
eftir áframhaldandi aðkomu þeirra að
stjórnarstarfinu að loknum aðalfundi
um miðjan marsmánuð.
Stokkar upp í stjórninni
Bankastjóri Íslandsbanka skákar tveimur stjórnarmönnum út úr stjórn Borgunar
Ákvörðunin sögð tengjast ráðningarferli nýs forstjóra til fyrirtækisins í byrjun árs
MViðskiptaMogginn
F I M M T U D A G U R 1 5. F E B R Ú A R 2 0 1 8
Stofnað 1913 39. tölublað 106. árgangur
ENGIN ÞRÓUN
Í MENNTUN
STJÓRNENDA
FJÖGUR TILNEFND ÆVINTÝRA-
VERÖLD Í BAK-
GARÐINUM ÍSLENSKU
MYNDLISTAR-
VERÐLAUNIN 38 STYTTUR HREINS 13VIÐSKIPTAMOGGINN
Magnús Heimir Jónasson
Jóhann Ólafsson
Sautján manns hið minnsta létust
og fjölmargir særðust í skotárás í
Flórída í gær. Skotárásin átti sér
stað í Marjory Stoneman Douglas
High School í Parkland í Flórída,
um áttaleytið að íslenskum tíma.
Árásarmaðurinn var handsamaður
skammt frá skólanum og hnepptur í
varðhald. Á blaðamannafundi í gær-
kvöldi staðfesti Scott Israel, lög-
reglustjóri í Broward-sýslu, þar sem
árásin átti sér stað, að sá grunaði
væri Nikolaus Cruz. Mun hann vera
19 ára gamall fyrrverandi nemandi
framhaldsskólans. Meðal fórnar-
lamba í árásinni eru bæði nemendur
og starfsfólk skólans. Mun árásar-
maðurinn hafa verið vopnaður hálf-
sjálfvirkum riffli af gerðinni AR-15.
Samkvæmt breska ríkisútvarpinu
leið meira en klukkustund frá því að
árásin hófst þar til tilkynnt var um
að maðurinn væri í haldi.
Haft er eftir nemanda við Mar-
jory Stoneman Douglas framhalds-
skólann í bandarískum fjölmiðlum
að allir hafi búist við því að mað-
urinn sem hóf skothríð í skólanum
myndi gera eitthvað þessu líkt. „Í
hreinskilni sagt þá sögðu allir að
hann væri fær um að gera eitthvað
svona og allir krakkarnir í skólanum
grínuðust með að hann myndi
skjóta skólann í tætlur,“ sagði nem-
andinn.
Að minnsta kosti 17 látnir og fjölmargir særðir eftir skotárás í framhaldsskóla
í Bandaríkjunum Árásarmaðurinn er 19 ára gamall fyrrverandi nemandi skólans
Skotárás Nemendur Marjory Stoneman Douglas skólans yfirgefa skólann skelfingu lostnir eftir skotárásin í gær.
AFP
SKOTÁRÁS Í FLÓRÍDA
Hinrik Dana-
prins, eigin-
maður Mar-
grétar Þórhildar
Danadrottn-
ingar, lést í
fyrradag, 83 ára
að aldri. Vigdís
Finnbogadóttir,
fyrrverandi for-
seti Íslands,
minnist Hinriks með virðingu og
hlýju, en með þeim tókust góð
kynni. Hún segir prinsinn hafa ver-
ið afar viðræðugóðan og skemmti-
legan mann. „Hann var afar fransk-
ur Fransmaður, en líka heims-
maður. Ef það væri til gott orð á
íslensku fyrir að vera „sjarmer-
andi“, þá myndi ég nota það orð,“
segir Vigdís. »18
Vigdís minnist
Hinriks með hlýju
Hinrik Danaprins.
Þrjú íslensk tæknifyrirtæki hafa
samið um byggingu á fullkomnu
uppsjávarfrystihúsi á eyjunni Shi-
kotan, sem er ein Kúrileyja austast í
Rússlandi. Fyrirtækin eru Skaginn
3X, Kæli-
smiðjan Frost
og Rafeyri og á
nýja verk-
smiðjan fullbúin
að afkasta um
900 tonnum af
frystum afurð-
um á sólar-
hring. Hvert
stórverkefnið
tekur við af
öðru hjá fyr-
irtækjunum,
sem nú vinna að byggingu stórs upp-
sjávarfrystihúss í Færeyjum.
Í sumar er ráðgert að um 50
starfsmenn íslensku fyrirtækjanna
verði í senn á Shikotan austur við
Kyrrahaf. Allt að viku gæti tekið
fyrir starfsmennina að ferðast fram
og til baka. Áætlað er að búnaðurinn
verði fluttur í um 90 gámum til Shi-
kotan, flestir þeirra frá Íslandi, og
gæti tekið um 70 daga að koma
farminum frá Íslandi á áfangastað.
Ingólfur Árnason, framkvæmda-
stjóri Skagans 3X, segir að ef vel
takist til geti margvísleg tækifæri
falist í Rússlandi. »14-15
Tæknifyrir-
tæki í útrás á
Kúrileyjum
Byggja uppsjávar-
frystihús á Shikotan
Kúrileyjar
» Eru 56 tals-
ins á milli
Kyrrahafs og
Okhotsk-hafs.
» Teygja sig
frá suðurodda
Kamtsjatka
að Hokkaídó.
MJÚKA DEILDIN ÍSLENSK HÖNNUN SJÚKRAÞJÁLFARI AÐSTOÐAR
SÆNGUR-
FATNAÐUR
SÆNGUROG
KODDAR
HEILSURÚM
ALLARSTÆRÐIR
FUSSENEGGER
Kristín Gísladóttir
sjúkraþjálfari aðstoðar
við val á rúmdýnum.
Í DAG 16-18 Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504