Morgunblaðið - 15.02.2018, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2018
Sími 775 1832 | Happie furniture - húsgögn
Sérsmíðuð húsgögn
fyrir heimili og fyrirtæki
Happie furniture
Draumasmíði
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Allar Norðurlandaþjóðirnar utan Ís-
land hafa nú heimildir til að krefjast
svokallaðra viðbótartrygginga vegna
innflutnings fuglakjöts til landsins til
að tryggja að ekki sé salmonella í
innfluttu kjöti. Danmörk bættist í
hóp ríkjanna í byrjun þessa mánaðar
en um er að ræða vottun á landsáætl-
unum ríkjanna um eftirlit með salm-
onellusmiti á alifuglabúum og viður-
kenningu á góðri sjúkdómastöðu.
Ólafur Stephensen, framkvæmda-
stjóri Félags atvinnurekenda, segir
löngu tímabært að íslensk stjórnvöld
sæki um sambærilega heimild til að
krefjast viðbótartrygginga vegna
innflutnings líkt og hinar Norður-
landaþjóðirnar hafa gert.
„Íslenskum neytendum er ítrekað
sagt að sjúkdómastaða íslenskra ali-
fugla hvað varðar salmonellu sé betri
en nokkurs staðar annars staðar á
byggðu bóli,“ segir Ólafur. „Ég get
því ekki ímyndað mér að þetta ætti
að vera mikið mál fyrir íslensk
stjórnvöld,“ segir hann.
Íslensk stjórnvöld hafa einhliða
krafist salmonelluvottorða af inn-
flytjendum frosins fuglakjöts þar
sem Ísland hefur ekki fengið heimild
hjá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA)
fyrir viðbótartryggingum vegna
salmonellu.
Ólafur segir að í dómi EFTA sem
féll í nóvember síðastliðnum hafi
komið fram að Ísland hafi lagt fyrir
ESA landsbundna eftirlitsáætlun en
ekki sótt um viðurkenningu til jafns
við þá sem var samþykkt annars
staðar á Norðurlöndunum. Komst
dómstóllinn þess vegna að þeirri nið-
urstöðu að Íslandi væri ekki heimilt
að fara fram á salmonelluvottorð við
innflutning á alifuglakjöti hingað til
lands. Bann Íslands við innflutningi
á fersku kjöti, eggjum og vörum úr
ógerilsneyddri mjólk annarra EES-
ríkja var dæmt andstætt EES-
samningnum.
Ólafur segir í samtali við Morgun-
blaðið viðbótartryggingarnar vera
mikið hagsmunamál neytenda og
hvetur landbúnaðarráðherra til að
sækja um vottunina.
Vill aukið eftirlit á Íslandi
Allar Norðurlandaþjóðirnar utan Ísland hafa heimildir til
að krefjast salmonellutrygginga við innflutning á fuglakjöti
Heimsmeistaramótið í knattspyrnu nálgast
með hverjum deginum og margvíslegur und-
irbúningur er í gangi. Eftir kynningarfund
rússneska knattspyrnusambandsins í Moskvu í
gær, þangað sem fulltrúum frá sendiráðum
allra þáttökuríkja var boðið, var Berglind Ás-
geirsdóttir, sendiherra Íslands, sérstaklega
beðin að tala við blaðamenn. Blaðamanna-
fundurinn var með þeim hætti að fyrst töluðu
íþróttamálaráðherra Rússlands og formaður
undirbúningsnefndarinnar í Rússlandi. Fjórir
sendiherrar ræddu síðan við fjölmiðla, hver í
sínu lagi, og var Berglind fyrst í röðinni.
„Ég hafði þarna tækifæri til að segja frá
knattspyrnunni á Íslandi og var síðan spurð
nokkurra spurninga. Mestur tíminn fór í
spurningar Rússanna um það hvernig hægt
væri að ná svona ótrúlegum árangri. Fund-
urinn var á afskaplega jákvæðum nótum og
greinilegt að íslenska liðið þykir áhugavert
fyrir margra hluta sakir,“ sagði Berglind í
gær, en hún sést á myndinni í fullum her-
klæðum innan um blaðamenn, aðstoðarmenn
og lukkudýr.
Ísland í brennidepli á HM-fundi í Moskvu
Miðflokkurinn
mun bjóða fram
til bæjarstjórnar
í Garðabæ í
sveitarstjórnar-
kosningum í vor.
María Grétars-
dóttir, sem hefur
verið bæjar-
fulltrúi í Garða-
bæ frá 2013 fyrir
M-lista Fólksins
í bænum, mun leiða listann. María
var á árunum 1998-2006
varabæjarfulltrúi í Garðabæ fyrir
Sjálfstæðisflokkinn, en sagði sig úr
flokknum árið 2008 og gekk tveim-
ur árum síðar til liðs við M-lista
Fólksins í bænum.
Að sögn Maríu var ákveðið á að-
alfundi Fólksins í bænum í lok jan-
úar sl. að leggja framboðið niður,
en hún var eini bæjarfulltrúi
M-listans.
María er fædd 1964 og er við-
skiptafræðingur að mennt, með
meistarapróf í stjórnun og stefnu-
mótun. Á starfstíma sínum í Garða-
bæ hefur María m.a. verið formað-
ur fjölskylduráðs og barnaverndar-
nefndar og formaður leikskóla-
nefndar bæjarins, auk þess að eiga
sæti í íþrótta- og tómstundaráði.
Miðflokkurinn tekur á móti
framboðstilkynningum áhugasamra
einstaklinga til 26. febrúar nk.
Kynna á lista flokksins í Garðabæ
fyrir 15. mars næstkomandi.
bjb@mbl.is
María leiðir
Miðflokkinn
í Garðabæ
María
Grétarsdóttir
Fólkið í bænum
var lagt niður
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Annar höfunda Íslandsbankahúss-
ins á Kirkjusandi, eins og það
stendur í núverandi mynd, er ósátt-
ur við framferði Dags B. Eggerts-
sonar borgarstjóra sem hafði ekk-
ert samráð við hönnuði hússins
áður en hann lét teikna hugmyndir
að endurgerð hússins í upp-
runalegri mynd en hugmyndirnar
kynnti Dagur á íbúafundi í Laug-
ardal í síðustu viku.
Í samtali við Morgunblaðið segir
Örnólfur Hall arkitekt ekkert sam-
ráð hafa verið haft við sig eða Orm-
ar Þór Guðmundsson sem hönnuðu
breytingar sem gerðar voru á hús-
inu fyrir Samband íslenskra sam-
vinnufélaga árið 1988. Þeir Örnólfur
og Ormar teiknuðu þá nýbyggingu,
hækkun og nýja klæðningu á húsið.
Fjöldi arkitekta hefur komið að
hönnun hússins frá upphafi auk
þeirra Örnólfs og Ormars en frum-
hönnuður þess var Sigurður Pjet-
ursson, arkitekt og byggingar-
fulltrúi, árið 1955. Árin eftir að
húsið var byggt voru gerðar breyt-
ingar á því með reglulegu millibili
og komu þá ýmsir arkitektar að
borðum. Þá voru aftur gerðar smá-
vægilegar breytingar á húsinu eftir
að Glitnir eignaðist það.
Íslandsbanki flutti á síðasta ári
höfuðstöðvar sínar í Norðurturn við
Smáralind í Kópavogi en húsið við
Kirkjusand er mikið skemmt. Í
samtali við Morgunblaðið fyrr í vik-
unni sagði Edda Hermannsdóttir,
samskiptastjóri Íslandsbanka, að
framtíð hússins á Kirkjusandi væri
óráðin og verið væri að skoða alla
möguleika í stöðunni.
Framtíð hússins er óráðin
Örnólfur kveðst hafa fengið þau
skilaboð frá bankanum að engin
áform séu uppi um að rífa húsið
eins og staðan er í dag og jafnvel
komi til greina af hálfu bankans að
ráðast í viðgerðir á því.
„Borgin og borgarstjóri hafa eng-
an rétt til að ráðskast svona með
húsið án samráðs við bankann,“
segir Örnólfur, sem vandar borgar-
stjóra og arkitektum stofunnar
Kurt og Pí sannarlega ekki kveðj-
urnar.
Hann segir það óvönduð vinnu-
brögð af þeirra hálfu að taka
ákvörðun um breytingu sem þessa,
ráða hönnuði til að vinna tillögur að
breytingunni og loks kynna tillög-
urnar án þess að hafa rætt málið
við fyrri hönnuði hússins.
„Þetta lyktar af einhverri pólitík.
Okkur finnst þetta svakalegur
dónaskapur bæði hjá borgarstjóra
og hjá þessum drengjum hjá Kurt
og Pí,“ segir hann.
„Þetta lyktar af einhverri pólitík“
Annar arkitekta Íslandsbankahússins í núverandi mynd mjög ósáttur við framferði borgarstjóra
Morgunblaðið/Ómar
Íslandsbankahúsið Umdeild end-
urgerð eða niðurrif er fyrirhuguð.