Morgunblaðið - 15.02.2018, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2018
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Velferðarráð Reykjavíkurborgar
mun á næstunni taka yfir heimsend-
ingu á mat. Borgarráð hefur sam-
þykkt þessa breytingu. Gert er ráð
fyrir kaupum á þremur bifreiðum,
þar af tveimur rafmagnsbílum og að
ráðnir verði starfsmenn til verksins.
Frá upphafi hefur matnum verið
ekið í heimahús samdægurs. Ekki
stendur til að breyta því fyrirkomu-
lagi að svo stöddu.
Fram kemur í
minnisblaði að
reynslan hafi sýnt
að það henti ekki
að hafa afhend-
ingu matarins í
höndum utan-
aðkomandi aðila
því að um við-
kvæma þjónustu
sé að ræða sem
krefjist stöðugrar árvekni og nær-
gætni.
Núgildandi samningur um akstur
á mat, þ.e. dreifing frá framleiðslu-
eldhúsi á Lindargötu 59 í heimahús
og móttökueldhús félagsmiðstöðva
velferðarsviðs víðsvegar um borgina,
var gerður í mars 2016. Mögulegt er
á að segja honum upp með þriggja
mánaða fyrirvara.
„Matarþjónusta er mikilvæg þjón-
usta fyrir aldrað og fatlað fólk sem
ekki getur eldað sjálft. Gæta þarf
ýtrustu nærgætni við alla þætti í
þjónustukeðjunni, líka afhendingu
máltíða,“ segir í greinargerð velferð-
arráðs.
Á árinu 2017 voru sendir út 98.085
matarbakkar og fjöldi notenda var
851 talsins. Samkvæmt samningi eru
greiddar kr. 367 með vsk. á einingu
af hverjum heimsendum matar-
bakka. Auk þess er sendur matur í
14 móttökueldhús félagsmiðstöðva.
Heildarkostnaður ársins 2017
vegna aksturs var um 46,6 milljónir
króna eða 3,9 milljónir á mánuði.
Verulegur sparnaður felst í því að
velferðasvið sjái um alla þjónustu-
keðjuna að mati borgarinnar. Eftir
að stofnkostnaður hefur verið
greiddur er áætluð hagræðing af
breyttu fyrirkomulagi um 19,3 millj-
ónir á ári.
„Með því að hafa alla þjónustu-
keðjuna á hendi framleiðslueldhúss-
ins verða betri möguleikar á eftirliti,
auðveldara verður að bregðast við
athugasemdum notenda og sjá til
þess að afhending matarins gangi
snurðulaust. Einnig ætti yfirsýn yfir
reksturinn að verða betri þar sem
allt ferlið verður undir stjórn stjórn-
enda eldhússins,“ segir í minnis-
blaðinu.
Sendu út 100 þúsund matarbakka
Velferðarráð Reykjavíkurborgar tekur yfir heimsendingu á mat Þrír bílar keyptir og fólk ráðið
Lamb Vinsæll og
þjóðlegur réttur.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra tók á móti fyrstu köku ársins
frá formanni Landssambands bak-
arameistara, Jóhannesi Felixsyni,
höfundi kökunnar, Sigurði Má Guð-
jónssyni, og framkvæmdastjóra
Samtaka iðnaðarins, Sigurði Hann-
essyni, í Bernhöftsbakaríi í gær-
morgun.
Landssamband bakarameistara,
LABAK, efndi nýlega til árlegrar
keppni um köku ársins. Keppnin fór
þannig fram að keppendur skiluðu
inn tilbúnum kökum sem dómarar
mátu og völdu úr þá sem þótti sam-
eina þá kosti að vera bragðgóð, fal-
leg og líkleg til að falla sem flestum í
geð, segir í tilkynningu LABAK.
Keppnin var haldin í samstarfi við
sælgætisgerðina Kólus og voru
gerðar kröfur um að kakan inni-
héldi Sambó Þrist. Sigurkakan hlaut
nafnbótina „Kaka ársins 2018“ og er
höfundur hennar Sigurður Már Guð-
jónsson, bakarameistari og eigandi
Bernhöftsbakarís.
Sala á kökunni hefst í bakaríum
félagsmanna LABAK um allt land í
dag, fimmtudag.
Katrín
fékk fyrstu
köku ársins
Kaka Katrín Jakobsdóttir fékk í gær
fyrsta eintakið af Köku ársins 2018.
Bakarar hefja
sölu á kökunni í dag
Reykjavíkurborg mun á þessu ári
bjóða út framkvæmdir við endurgerð
og ýmsar lagfæringar á lóðum við
leik- og grunnskóla borgarinnar.
Áætlaður kostnaður við framkvæmd-
irnar er 425 milljónir króna. Fram-
kvæmdatími er maí til ágúst.
Framkvæmdir verða á eftirtöldum
lóðum.
Leikskólalóðir: Hlíð/Sólhlíð,
Kvistaborg og Seljaborg.
Grunnskólalóðir: Grandaskóli,
Hagaskóli, Háaleitisskóli og Hvassa-
leitisskóli.
Auk þess verður ráðist í smærri
verkefni á lóðum 10 skóla. Meðal ann-
ars verður sett gervigras á leiksvæði í
stað öryggismalar og leiktækjum
skipt út. Það er stefna borgarinnar að
hætta að nota öryggismöl sem fall-
vörn á leikskólasvæðum. sisi@mbl.is
Laga lóðir
við skóla
í borginni