Morgunblaðið - 15.02.2018, Page 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2018
TUDOR rafgeymar
TUDOR TUDOR
Er snjósleðinn tilbúinn
fyrir vetrarkuldann?
Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is
Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta
Veldu
öruggt
start með
TUDOR
Sigurður Þórir Þorsteinsson, íþróttakennari og knattspyrnuþjálf-ari, á 50 ára afmæli í dag. Hann hefur kennt við Borgarholts-skóla frá 1999 og kennir einnig lífsleikni, er í félagsmála- og
forvarnateyminu og er trúnaðarmaður kennara. Hann er yfirþjálfari
yngri flokka ÍR og kennir á þjálfaranámskeiðum hjá Knattspyrnu-
sambandi Íslands (KSÍ), er því þjálfari þjálfaranna, og situr í fræðslu-
nefnd KSÍ. Hann er jafnframt formaður Knattspyrnuþjálfarafélags
Íslands (KÞÍ) og hefur verið í fjölmörg ár.
„Þetta er hagsmunafélag okkar þjálfara og við vinnum að samn-
ingamálum og gætum þess að þau séu í góðu horfi. Svo vinnum við að
ýmsum fræðslumálum í samvinnu við KSÍ.“
Sigurður er enn fremur varaforseti Knattspyrnuþjálfarafélags
Evrópu (AEFCA). „Ég var kosinn í stjórn fyrir tveimur árum. Hafði
það ekki í hyggju en var hvattur til þess, komst inn og skaut mörgum
ref fyrir rass í kjörinu. Flestar Evrópuþjóðir eru meðlimir og þurfa
því nú að hlusta á litla Ísland.“
Enn fremur er Sigurður varaformaður sóknarnefndar Árbæjar-
kirkju. Það er því von að spurt sé hvort hann hafi tíma fyrir einhver
áhugamál. „Ég hef gaman af því að vera með fjölskyldunni. Það vill
svo skemmtilega til að konan mín ákvað að bjóða mér til New York í
tilefni dagsins og við förum þangað á næstunni.“
Eiginkona Sigurðar er Hildur Hrönn Oddsdóttir, sérfræðingur hjá
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, og börn þeirra eru Erna Þórey 13 ára
og Eiður Þorsteinn 11 ára.
Hjónin Sigurður og Hildur Hrönn við Jökulsárlón síðastliðið sumar.
Þjálfari þjálfaranna
Sigurður Þórir Þorsteinsson er fimmtugur
B
jarni Ólafsson fæddist á
Kirkjubæjarklaustri
15.2. 1943 en flutti með
foreldrum sínum í Kópa-
voginn 1944 og ólst þar
upp. Hann var flest sumur í sveit á
Mýrum í Hornafirði, hjá skyldmenn-
um, var í barnaskóla í Kópavogi, tvo
vetur á Skógaskóla og lauk þar lands-
prófi 1959. Hann stundaði síðan nám
við MR og tók stúdentspróf 1963.
Bjarni vann algenga vinnu á sumrin
á menntaskólaárunum, lengst af á síld-
veiðum fyrir norðan og austan. Hann
sótti síðan nám í íslenskum fræðum
við HÍ, sinnti jafnframt stundakennslu
í framhaldsskólum og var styrkþegi á
Árnastofnun síðustu árin í námi. Auk
þess var hann einn vetur við Háskól-
ann í Zürich við málfræði- og bók-
menntanám, 1965-66 og lauk
cand.mag.-prófi frá HÍ vorið 1972.
Bjarni hóf íslenskukennslu við MH
haustið 1972 og kenndi þar til 2013.
Veturinn 1988-89 fékk hann náms-
orlof og lagði stund á ritunarkennslu
við Kennaraháskólann í Kaupmanna-
höfn. Að því loknu kenndi hann
kennslufræði íslensku við fé-
lagsvísindadeild Háskóla Íslands,
kenndi þar í hlutastarfi í níu ár og
hafði jafnframt umsjón með vett-
vangsnámi framhaldsskólakennara í
sinni grein í nokkra vetur.
Síðustu 20 starfsárin hélt hann fjöl-
mörg námskeið hjá Endurmenntun
Háskóla Íslands í að skrifa íslensku
og fór í fyrirtæki og stofnanir og hélt
þar sérhæfð námskeið í hagnýtum
skrifum.
Bjarni hefur tekið saman nokkrar
kennslubækur, oftast með öðrum
kennurum. Þær tengjast allar ís-
lenskunámi í málfræði, bókmenntum
eða ritun. Auk þess er ein fræðileg út-
gáfa, Katrínar saga, sem hann stóð
Bjarni Ólafsson framhaldsskólakennari – 75 ára
Lestrarkennsla Bjarni kennir ungri telpu að lesa. Yngri systirin hefur hins vegar augljóslega um annað að hugsa.
Kenndi móðurmálið
allan sinn starfsferil
Afmælisbarnið Bjarni Ólafsson.
Hveragerði Aron
Kristian Marisson
fæddist 15. febrúar
kl. 15.15. 2017.
Hann vó 3605 g og
var 50 cm langur.
Foreldrar hans eru
Marija Tverjan-
ovica og Maris
Simanovs.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is