Morgunblaðið - 17.03.2018, Síða 26
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Sænski arkitektinn Andreas Martin-
Löf sagði frá verðlaunahönnun sinni
á fjölbýliseiningahúsunum Snabba
Hus, eða hraðhúsum í lauslegri þýð-
ingu, á fundi um skipulag og arkitekt-
úr í höfuðstöðvum Arion banka í
Borgartúni í gær. Íbúðirnar, sem eru
33 fermetra stúdíóíbúðir, eru fullklár-
aðar með innréttingum og öllu á
verkstæði úti í bæ og svo raðað sam-
an í grind á byggingarstað, rétt eins
og þegar vínflöskum er raðað í vín-
rekka, eins og arkitektinn komst
sjálfur að orði á fundinum. Martin-
Löf segir aðspurður að aðilar hér á
landi hafi komið að máli við sig síðan
hann kom til landsins fyrir tveimur
dögum og lýst yfir áhuga á lausninni.
Hann væri opinn fyrir slíku sam-
starfi, hvort sem íbúðareiningar yrðu
fluttar tilbúnar milli landa, eða
byggðar hér. „Margir hafa talað við
mig síðan ég kom hingað og svo virð-
ist sem sama vandamálið sé hér og í
Svíþjóð, að það vanti sífellt fleiri og
fleiri litlar íbúðir á markaðinn. Það
yrði mjög áhugavert að sjá hvað væri
hægt að gera hér í þessum efnum,“
segir Martin-Löf í samtali við Morg-
unblaðið.
Í kynningu á Fésbókarsíðu Arion
banka segir að hönnun Martin-Löf á
þessum litlu, framúrstefnulegu og
ódýru einingaíbúðum sé margverð-
launuð og hafi meðal annars tryggt
honum The Nordic Architecture Fair
Award á dögunum.
Vantar skammtímalausn
„Vandamálið sem við í Svíþjóð
stöndum frammi fyrir er að við þurf-
um ekki eingöngu að hugsa fyrir
langtímalausnum í uppbyggingu á
íbúðamarkaði, heldur einnig skamm-
tímalausnum. Stokkhólmur er til
dæmis sú borg í
Evrópu sem vex
hvað hraðast,“
segir Martin-Löf.
Hann segir til
frekari útskýring-
ar að fólksfjölgun-
in í borginni sé á
við það að tveir
strætisvagnar
fullir af nýju fólki
komi inn í borgina
á hverjum degi. Því sé þörfin fyrir
skammtímalausn á húsnæðismarkað-
inum augljós og knýjandi.
„Við erum með þetta uppbygging-
arverkefni sem við köllum Snabba
Hus sem er hannað upphaflega af
sænska byggingarfélaginu Junior
Living í samstarfi við mig og fyrir-
tæki mitt Andreas Martin-Löf Arki-
tekter. Þetta eru eins herbergis íbúð-
ir með stórum glugga í endanum, sem
hægt er að renna til hliðar, og svölum.
Einingin er framleidd í verksmiðju,
og allar íbúðirnar eru nákvæmlega
eins, með nákvæmlega eins innrétt-
ingum. Við framleiðum tvær svona
íbúðir á dag í verksmiðjunni, með öllu
inniföldu. Það eina sem þarf að gera
þegar komið er með íbúðina á staðinn
er að tengja hana við lagna- og raf-
kerfið. Loftræstingin er sjálfstæð í
hverri íbúð.“
Martin-Löf segir að húseininga-
kerfi sé í sjálfu sér ekki nýtt af nál-
inni, en munurinn á þessu kerfi og
öðrum sé að ekki séu færðar saman
margar einingar til að gera hverja
íbúð, heldur er hver íbúð ein eining,
og því sé það eina sem þarf að gera að
„stinga henni í samband“.
Nú þegar er búið að hrinda tveim-
ur Snabba Hus-verkefnum af stað.
Einu rétt fyrir utan Svíþjóð og öðru
fyrir utan Uppsali. Í vor hefst annað
verkefni í Snabba Hus-hugmynda-
fræðinni í Stokkhólmi og 400 íbúðir
verða þar tilbúnar haustið 2019. „Þá
verðum við samtals komin með 700
íbúðir, og markmiðið er að klára 1.000
íbúðir í Stokkhólmi undir merki
Snabba Hus.“
Þekktur fyrir endurhugsun
Martin-Löf segir spurður að því af
hverju Junior Living hafi leitað til
hans upphaflega, að hann hafi verið
búinn að skapa sér nafn fyrir það á
sænska markaðnum fyrir fimm árum
að hafa endurhugsað það hvað íbúð
væri og ætti að vera. Hann hafði þá
mikið unnið að hönnun lúxusíbúða
m.a. þar sem hönnunarþátturinn var
áberandi sem og andrúmsloftið.
„Þannig að það sem við gerum í
Snabba Hus er að nota þær hug-
myndir, en með hagkvæmnina að
leiðarljósi. Að gefa íbúðaverkefninu
sterkan persónuleika og yfirbragð.
Mörg íbúðaverkefni skortir skýra
hugmyndafræði. Ég tel að við þurfum
að hafa skýrari hugmyndir, og fylgja
þeim eftir með góðri framkvæmd.“
Martin-Löf talaði í erindi sínu um
að oft færu arkitektar af stað með
einhverja fyrirframgefna mynd í koll-
inum, og reyni svo að laga það sem á
eftir kemur að þeirri hugmynd. „Það
sem ég reyni að gera er að þróa kerfi.
Þannig að kerfið sé til staðar að það
sé úthugsað, og aðlaðandi. Ég legg
mikla áherslu á innanhúshönnunina,
en þegar hannað er með hagkvæmn-
ina að leiðarljósi, þá þarf að sýna alúð
í útfærslum og hönnun, til að verk-
efnið í heild sinni gangi upp. Það eru
mörg dæmi til í sögunni um það þeg-
ar illa fer í gerð fjölbýlishúsa.“
Martin-Löf segir að ekki megi
byggja of mikið heldur. „Við ætlum
að byggja 1.000 Snabba Hus-íbúðir í
Svíþjóð. Við byggjum þær allar á
tímabundnu byggingarleyfi. Bygg-
ingarnar gætu í versta falli verið rifn-
ar niður eftir 15-20 ár, því við notum
tímabundið landrými sem Stokk-
hólmur gæti ráðstafað með öðrum
hætti eftir einhver ár. Þetta er ekki
töfralausn endilega, en þetta er ein af
lausnunum.“
60 þúsund króna leiga
Íbúðirnar í Snabba Hus eru allt
leiguíbúðir, og leigan er 4.900 sænsk-
ar krónur á mánuði, að sögn Martin-
Löf, jafnvirði 60 þúsund íslenskra
króna. Hann segir að leigjendur séu
af ýmsum toga, fólk sem hefur átt erf-
itt með að finna leiguhúsnæði, meðal
annars margt ungt fólk. Hann segir
að umsækjendur um fyrstu 280 íbúð-
irnar hafi verið um 8.000 talsins.
„Sumir höfðu þá beðið í 10 ár eftir
leiguíbúð. Ástandið á íbúðamarkaði
er verulega slæmt í Svíþjóð.“
Áhugi á hraðhúsum hérlendis
Eining Inni í Snabba Hus-íbúðunum er áhersla lögð á góða hönnun.
Ætla að byggja 1.000 einingar í Svíþjóð Eins og að raða í vínrekka Klára tvær íbúðir á dag
Andreas
Martin-löf
26 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2018
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
fyrir heimilið
Æðisleg húsgögn frá Recor í háglans og eik
Fást í mörgum stærðum
Veggfastir skápar: Verð frá 149.000 kr.
Sjónvarpsskenkur: Verð frá 153.700 kr.
Fallegar vörur
17. mars 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 99.33 99.81 99.57
Sterlingspund 138.42 139.1 138.76
Kanadadalur 76.55 76.99 76.77
Dönsk króna 16.478 16.574 16.526
Norsk króna 12.901 12.977 12.939
Sænsk króna 12.148 12.22 12.184
Svissn. franki 105.05 105.63 105.34
Japanskt jen 0.9376 0.943 0.9403
SDR 144.32 145.18 144.75
Evra 122.76 123.44 123.1
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 148.7851
Hrávöruverð
Gull 1320.05 ($/únsa)
Ál 2062.0 ($/tonn) LME
Hráolía 64.9 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Andreas Martin-Löf er einnig
þekktur fyrir að hafa hannað
dýrustu íbúð Svíþjóðar, íbúð
sem hinn 33 ára gamli auðjöfur
og stofnandi úrafyrirtækisins
David Wellington, Filip
Tysander, borgaði 1,3 milljarða
íslenskra króna fyrir.
Íbúðin er á efstu hæð í bygg-
ingu miðsvæðis í Stokkhólmi.
Hún er 420 fermetrar að stærð
og í henni er m.a. 16,3 metra
löng sundlaug, uppi á 19. hæð.
„Þannig að þetta var mjög flók-
in framkvæmd. Þetta varð um-
talað í Svíþjóð út af verðmið-
anum,“ segir Martin-Löf.
Sundlaug
á 19. hæð
GERÐI DÝRUSTU ÍBÚÐ SEM
SELST HEFUR Í SVÍÞJÓÐ
● Arion banki hef-
ur framselt stóran
hluta af atkvæð-
isrétti sínum í VÍS
til fjárfestinga-
félagsins Óska-
beins fyrir aðalfund
tryggingafélagsins
á fimmtudaginn.
Eftir framsalið er
Óskabein þriðji stærsti hluthafi VÍS
miðað við hluthafalista. Þetta kemur
fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.
Arion banki veitir Óskabeini umboð
til þess að fara með atkvæðisrétt að
4,05% hlut í tryggingafélaginu. Fram-
salið felur í sér að Óskabein ræður yfir
6,08% hlut en Arion banki heldur eftir
um 1,13%. Umboðið fellur niður að
fundi loknum.
Óskabein er í eigu Andra Gunnars-
sonar, Engilberts Hafsteinssonar, Fann-
ars Ólafssonar, Gests Breiðfjörð Gests-
sonar og Sigurðar Gísla Björnssonar.
Óskabein fær aukinn
atkvæðarétt frá Arion
STUTT
● Gengi Kviku hækkaði um 11% í 7,9 í
Kauphöllinni í gær. Um var að ræða
fyrsta daginn sem viðskipti hófust með
bréf bankans á First North-hliðarmark-
aðnum. Veltan nam 220 milljónum
króna.
Markaðsvirði bankans var í lok dags
14,5 milljarðar króna. Til samanburðar
er markaðsvirði minnstu félaganna á
Aðallista 11,4 milljarðar í tilviki Origo og
14,6 milljarðar hjá Skeljungi. Umtals-
verð viðskipti hafa verið með bréf Kviku
á undanförnum misserum. Fram hefur
komið í fjölmiðlum að gengi í viðskipt-
unum hafi verið 6,3 til 6,6. Bréfin hafa
því hækkað um 25% miðað við lægra
gengið.
Kvika er fyrsti bankinn sem er skráð-
ur á markað á Íslandi frá fjármálakrepp-
unni.
Markaðsvirði Kviku svipað og Skeljungs í Kauphöll