Morgunblaðið - 17.03.2018, Page 31
31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2018
Í nýju starfi mínu sem fram-
kvæmdastjóri Sinnum heimaþjón-
ustu verð ég vör við síaukna þörf
fyrir aðstoð við athafnir daglegs
lífs bæði hjá eldri borgurum og
langveikum sem enginn vill greiða
fyrir. Oft er þetta þörf á tímabund-
inni þjónustu eða úrræðum vegna
veikinda eða heilsubrests. Við-
komandi er ekki nægilega veikur
til að leggjast inná stofnun en ekki
nægilega hraustur til að sinna
sjálfum sér, maki, börn og að-
standendur eru aðframkomnir og niðurstaðan
er að allir þjást. Jafnframt voru nýlega birtar
sláandi niðurstöður rannsóknar næringarfræð-
ings á vannæringu aldraðra í sjálfstæðri búsetu.
Því miður erum við að sjá fram á að vanda-
málið stækkar og stækkar án þess að tekið sé á
því heildstætt.
Það er staðreynd að íslenska
þjóðin er að eldast og á næstu
áratugum mun verða gríðarmikil
fjölgun í hópi eldri borgara.
Áherslur ríkisins miðast við að
ekki verði fjölgað hjúkrunar-
rýmum heldur fólki gert kleift að
búa sem lengst heima. Til þess að
svo megi verða verður þjónustan
heim að vera í samræmi við þarfir
einstaklinga hverju sinni. Það er
líka ljóst að það er langhagkvæm-
asti kosturinn fyrir samfélagið að
hver og einn geti verið áfram
heima. Kostnaður við hvert rými
á hjúkrunarheimili er um ein
milljón króna á mánuði og sjúkrahúsdvöl tvöfalt
dýrari. Einnig má segja að bráðaþjónusta
sjúkrahúsanna henti ekki öldruðum með lang-
varandi heilsufarsvandamál. Við sjáum í fjöl-
miðlum síendurteknar fréttir af óviðunandi
ástandi á Landspítala. Við þurfum að leysa hlut-
ina á annan hátt heldur en hefur verið gert
hingað til, að mínu mati. Að óbreyttu stefnir í
enn meira óefni en þegar er.
Aðrar þjóðir hafa glímt við og glíma við svip-
aðan vanda og hefur verið horft til breytinga á
áherslum hjá þeim. Það er óþarfi fyrir okkur að
finna upp hjólið heldur ættum við hiklaust að
geta stuðst við þau módel sem hafa verið þróuð
þar. Toronto-módelið er allrar athygli vert. Þar
er lagt upp með þverfaglega nálgun með vitj-
unum fagfólks í heimahús þar sem ein-
staklingnum er mætt á eigin forsendum og
reynt að lágmarka eins og kostur er dvöl á
stofnun. Viðkomandi fær aðstoð, hvort sem hún
er fólgin í félagslegri liðveislu, aðstoð við at-
hafnir daglegs lífs, lyfjagjöf, lækningu eða
sjúkraþjálfun. Aðstoðin er einstaklingsmiðuð
og mannleg og stofnanavist er síðasta úrræðið.
Ætti slíkt módel heima hér? Svokallað
Heimavitjana-módel sem yrði á ábyrgð ríkisins
eingöngu eða sveitarfélaganna eingöngu þar
sem núningi vegna skilgreininga á heilbrigðis-
þjónustu og félagslegri þjónustu væri eytt ein-
staklingnum í vil. Módelið þarf að innihalda
kröfur um þjónustu, gæðavísa og markmið og
eftirlit. Við getum hiklaust nýtt samtakamátt
einkarekstrar og opinbers rekstrar í þessum til-
gangi. Sinnum er tíu ára velferðarþjónustu-
fyrirtæki með góða þekkingu og reynslu af
samstarfi við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæð-
inu.
Sameiginlegt markmið okkar verður að vera
að einfalda leiðina í gegnum völundarhús heil-
brigðiskerfisins og félagslega kerfisins með til-
heyrandi töfum á greiningu, meðferð og endur-
hæfingu og skerðingu á lífsgæðum svo
mánuðum eða árum skiptir.
Eftir Sigrúnu Björk
Jakobsdóttur » Við þurfum að leysa hlutina
á annan hátt heldur en hef-
ur verið gert hingað til, að
mínu mati. Að óbreyttu stefnir
í enn meira óefni en þegar er.
Sigrún Björk
Jakobsdóttir
Höfundur er framkvæmdastjóri.
Einföldum leiðina í gegnum völundarhús kerfisins
Allar kynslóðir Fjöldi fólks mætti í Hörpu í gær á hina árlegu og alþjóðlegu dansbyltingu gegn kynbundnu ofbeldi, Milljarður rís. Dansað var samtímis á mörgum stöðum á Íslandi og í heiminum.
Kristinn Magnússon
Við stöndum á tímamótum. Efna-
hagsleg endurreisn Íslands hefur
gengið vonum framar og er raunar
lokið. Nú þarf að byggja upp til
framtíðar þar sem stærsta verk-
efnið er að móta atvinnustefnu.
Samtök iðnaðarins beita sér sér-
staklega fyrir umbótum í fjórum
málaflokkum: menntun, nýsköpun,
innviðum og starfsumhverfi. Með
umbótum í þessum fjórum mála-
flokkum eflist samkeppnishæfni,
verðmæti aukast og lífskjör batna.
Í flestum ríkjum heims vinna stjórnvöld að
því með markvissri stefnumótun að bæta stöðu
síns lands í samkeppni við önnur ríki. Skýr sýn,
fumlaus framkvæmd og markviss eftirfylgni
leiðir til raunverulegra umbóta og leggur grunn
að auknum lífsgæðum. Ísland hefur að sumu
leyti dregist aftur úr og verður því að sækja
fram til að gera landið að enn eftirsóttari stað til
atvinnureksturs og búsetu.
Áræði, ný hugsun og djörf framtíðarsýn
Atvinnustefna er samhæfing aðgerða til þess
að skapa aukin verðmæti, auka framleiðni og
efla samkeppnishæfni. Þannig aukast lífsgæði á
Íslandi.
Ríkisstjórnin hefur metnaðarfull áform og
hvetja Samtök iðnaðarins hana til dáða. Í
stjórnarsáttmálanum er snert á mikilvægum
málum: Lögð er áhersla á uppbyggingu innviða,
ekki síst samgönguinnviða, og ný samgöngu-
Eftir Sigurð Hannesson » Það þarf gott samstarf stjórn-
valda, atvinnulífs og annarra
til að ráðast í þetta mikilvæga
verkefni sem mótun atvinnu-
stefnu er og leiða það til lykta.
Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
Mótum atvinnustefnu
áætlun mun líta dagsins ljós í
haust.
Boðuð er stórsókn í mennta-
málum og efla á iðn-, verk- og
starfsnám auk þess að styrkja
háskólastigið.
Orkustefna verður sett á kjör-
tímabilinu.
Byggðamál eiga sinn sess í
sáttmálanum.
Á síðasta ári kom út skýrsla
um framtíðarsýn stjórnvalda í
utanríkisviðskiptum og hvernig
standa skuli vörð um hagsmuni
Íslands alþjóðlega.
Hugtakið „nýsköpun“ kemur 18 sinnum fyrir
í stjórnarsáttmálanum, þar sem því er heitið að
móta heildstæða nýsköpunarstefnu fyrir Ísland.
Starfsumhverfið á að vera stöðugt, skilvirkt
og hagkvæmt.
Allt er þetta nefnt í stjórnarsáttmálanum og
vinna við marga þessara þátta er þegar hafin.
Rauða þráðinn í þessa stefnumótun vantar en
það er atvinnustefna. Þrátt fyrir mikilvægi ein-
stakra málaflokka hér að framan er mótun at-
vinnustefnunnar sjálfrar stærsta verkefnið.
Atvinnustefna er skipulag
Hugmyndir um atvinnustefnu hafa breyst í
tímans rás. Í eina tíð þótti eðlilegt að ríkið væri
umsvifamikill þátttakandi í atvinnulífinu. Síðar
tók ríkið sér það hlutverk að velja sigurvegara,
hampa eða styðja við ákveðnar greinar. Eftir
það tók við tímabil einkavæðingar. Nútímaleg
atvinnustefna snýst um að samhæfa aðgerðir og
nýta fjármagn sem best til markvissrar upp-
byggingar á samfélaginu í heild sinni.
Aðrir skipuleggja sig
Önnur ríki hafa mótað atvinnustefnu, oftar en
ekki í kjölfar áfalla eða annarra stórra breyt-
inga. Í Suður-Kóreu og Finnlandi var atvinnu-
stefna mótuð á sínum tíma í kjölfar efnahags-
áfalla. Bretar móta nú atvinnustefnu sem miðar
að uppbyggingu menntakerfis og innviða, auk-
inni nýsköpun og einföldun regluverks. Lögð er
áhersla á þróun sem tengist fjórðu iðnbylting-
unni. Nýlega kölluðu hin evrópsku samtök at-
vinnulífsins, Business Europe, eftir mótun at-
vinnustefnu í Evrópu til að standa betur að vígi í
samkeppni við Asíu og Bandaríkin.
Skipuleggjum okkur
Samkeppnishæfni þarf að auka þannig að Ís-
land verði í fremstu röð.
Í nýlegri rannsókn á vegum Alþjóðabankans
var bent á að þeir fjórir þættir sem helst
ákvarða breytileika í framleiðni á milli landa séu
efnislegir innviðir, menntun, nýsköpun og skil-
virkni markaða ásamt stofnanainnviðum. Þetta
undirstrikar mikilvægi þeirra fjögurra málefna
sem Samtök iðnaðarins leggja áherslu á til að
auka framleiðni og samkeppnishæfni landsins.
Þannig eykst velsæld. Umbætur í þessum fjór-
um mikilvægu málaflokkum gagnast því ekki
eingöngu iðnaði heldur samfélaginu í heild.
Markmiðið er skýrt: Að búa núverandi grein-
um betra umhverfi en um leið að skapa sem best
skilyrði fyrir þær til að vaxa og dafna. Þannig
fjölgum við stoðunum í íslensku efnahagslífi og
drögum úr sveiflum sem eru meiri hér en í
samanburðarlöndum.
Hugvit verður drifkraftur framfara á Íslandi
á 21. öldinni rétt eins og hagkvæm nýting nátt-
úruauðlinda var grundvöllur vaxtar á 20. öld-
inni. Náttúruauðlindir eru takmarkaðar og
staðbundnar en hugvitið er óþrjótandi og án
landamæra. Til að raungera þessa sýn þarf
samþætta stefnumótun í helstu málaflokkum –
skýra atvinnustefnu – enda er fjölbreyttur iðn-
aður og atvinnulíf forsendan fyrir traustu hag-
kerfi.
Vinnum saman
Tíminn er núna. Við eigum að hefjast handa
og leggja á næstu mánuðum grunninn að at-
vinnustefnu. Það þarf gott samstarf stjórn-
valda, atvinnulífs og annarra til að ráðast í þetta
mikilvæga verkefni sem mótun atvinnustefnu er
og leiða það til lykta. Samtök iðnaðarins eru
tilbúin til samstarfs við að byggja upp til fram-
tíðar, efla samkeppnishæfni Íslands og gera
landið að eftirsóttum stað til atvinnureksturs og
búsetu þannig að Ísland verði í fremstu röð.
Sigurður Hannesson