Morgunblaðið - 17.03.2018, Blaðsíða 42
42 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2018
✝ RagnheiðurEster Guð-
mundsdóttir fædd-
ist á Hólmavík 9.
janúar 1927. Hún
lést á Hjúkrunar-
og dvalarheimilinu
Lundi, Hellu, 28.
febrúar 2018.
Foreldrar henn-
ar voru Guðmund-
ur Meldal Krist-
mundsson og
Elínbjörg Sigurðardóttir. Hálf-
bróðir Esterar, sammæðra, var
Ingi Karl Jóhannesson, þýðandi
í Reykjavík, f. 11. september
1928, d. 25. mars 2001.
Árið 1952 giftist Ester Þor-
keli Bjarnasyni á Laugarvatni, f.
22. maí 1929, d. 24. maí 2006.
Ester og Þorkell bjuggu allan
sinn búskap á Laugarvatni.
Ragnheiður Ester lauk lands-
prófi frá Héraðsskólanum á
Laugarvatni vorið 1948. Hún
sinnti húsmóðurstörfum og
barnauppeldi meginhluta æv-
innar, auk þess að taka virkan
þátt í bústörfum. Þá er ótalið að
Ester hafði yndi af góðum hest-
um. Eftir að börnin voru farin
að heiman starfaði hún við
mötuneyti Menntaskólans um
árabil.
Ester var stofnfélagi í Kven-
félagi Laugdæla og starfaði þar
alla tíð meðan kraftar leyfðu.
Um tíma sat hún í stjórn félags-
ins og gegndi formennsku.
Einnig léði hún Söngkór Mið-
dalskirkju rödd sína um langt
skeið.
Síðustu ár ævinnar dvaldi
hún á Hjúkrunar- og dvalar-
heimilinu Lundi.
Útförin fer fram frá Skál-
holtskirkju í dag, 17. mars 2018,
og hefst athöfnin klukkan 14.
Þeim varð sjö
barna auðið og þau
eru: Hulda Björk, f.
21. desember 1948,
maki Hörður Ragn-
arsson, Guðmundur
Birkir, f. 21. desem-
ber 1948, maki
Bryndís Guðlaugs-
dóttir, Bjarni, f. 31.
júlí 1954, maki
Margrét Hafliða-
dóttir, Þorbjörg, f.
26. nóvember 1955, Þorkell, f.
25. janúar 1957, maki Sigríður
Eiríksdóttir, Hreinn, f. 23. júlí
1959, maki Auður Rafnsdóttir,
og Gylfi, f. 24. maí 1961, maki
Anna María Óladóttir.
Barnabörnin eru átján og
barnabarnabörnin fimmtán.
Elsku amma Ester hefur fengið
hvíldina sem hún í nokkurn tíma
hafði óskað eftir. Amma náði með
sínu hlýja og umhyggjusama við-
móti að sá fræjum til framtíðar.
Okkur er minnisstætt hversu inni-
lega hún tók á móti okkur eftir
löng ferðalög landshluta á milli.
Það var svo gott að koma inn um
dyrnar á Þröm og sjá ömmu efst í
tröppunum með sitt fallega, ein-
læga bros og opna hlýja faðminn
sinn. Kærleikinn og umhyggjan
leyndi sér ekki. Samverustundirn-
ar og samtölin við eldhúsborðið í
Þröm voru einnig eftirminnileg.
Oft var frekar fjölmennt við borð-
ið og endalausar veitingar. Amma
stóð í eldhúskróknum og tók undir
samræður en vildi þó fyrst og
fremst sjá til þess að enginn færi
svangur frá borði. Amma vildi öll-
um það besta og var í raun hin
skýrasta mynd af Pollyönnu sem
við nefnum af og til þegar sópa
þarf vandamálum til hliðar og
horfa á kosti, fremur en ókosti í líf-
inu. Hún gladdist iðulega yfir
samverustundum með sínum nán-
ustu. „Ertu komin að finna ömmu
gömlu,“ sagði hún iðulega þegar
maður birtist í dyrunum og í
seinni tíð á Lundi. Ef hún var
spurð um líðan var hún þó alltaf
fljót til svars að hún hefði það nú
gott. Hún vildi aldrei að nokkur
maður hefði áhyggjur af sér.
Amma var þakklát og æðrulaus.
Mögnuð á svo margan hátt.
Minningarnar lifa um ókomna
tíð.
Elsku amma Ester, takk fyrir
allt. Við erum þakklátar þér. Í
huganum beið afi á hvítum hesti
með annan í taumi tileinkuðum
þér, sem tölta mjúkt með ykkur
inn í eilífðina.
Elfa Birkisdóttir,
Brynja Elín Birkisdóttir.
Þegar horft er til baka á árin
sem við systur bjuggum á Laug-
arvatni, þá eru allmargar minn-
ingar sem koma upp í hugann
tengdar bæði ömmu og afa í Þröm.
Að skóla loknum á daginn þegar
við vorum farnar að finna fyrir
hungri þá lá leiðin oft í Þröm því
við vissum að amma tæki á móti
okkur efst í tröppunum, brosandi
með opinn faðminn og gæfi okkur
að borða, alveg sama hvernig stóð
á hjá henni. Ef það var ekki jóla-
kaka eða vínarbrauð úr búrinu
sem boðið var upp á þá var hrært í
pönnsur eins og ekkert væri sjálf-
sagðara. Á meðan vorum við
spurðar spjörunum úr á meðan
hún hlustaði af gaumgæfni og ein-
stökum áhuga. Oftar en ekki var
húsið hjá ömmu og afa fullt af
börnum og aldrei fundum við fyrir
því að við værum of mörg eða með
of mikil læti, amma brosti bara og
bakaði enn stærri stafla af pönnu-
kökum handa okkur. Stundirnar
sem maður átti með ömmu, hvort
sem það var úti í garði að dytta að
blómunum, göngutúrarnir, spila-
kennslan eða ferðirnar í berjamó
eru ómetanlegar og eins sögurnar
sem hún sagði okkur á seinni ár-
um um æsku sína og ævintýri.
Þessar minningar verða vel varð-
veittar og ylja þegar hugsað er til
baka. Femíníska eðlið var sterkt
og hún fullvissaði okkur um það að
við gætum að sjálfsögðu gert allt
eins og karlmenn og lagði sér-
staka áherslu á allt sem fól í sér
tækifæri til menntunar, því það að
geta ekki eitthvað var ekki til í
hennar orðaforða. Amma okkar
var hlý, einstaklega þolinmóð og
alltaf tilbúin að bjóða faðmlag og
öryggi. Hún var fyrirmynd okkar
systra í mörgu og lærðum við mik-
ið af henni hvernig á að koma fram
við fólk, því hún tók öllum eins og
þeir voru og aldrei voru viðhöfð
neikvæð orð um aðra.
Elsku amma okkar, takk fyrir
að vera alltaf til staðar, takk fyrir
fallega brosið þitt og hlýja faðm-
inn. Við kveðjum þig með þakk-
læti og söknuði en vitum að þú ert
komin til afa (og þið farin að bralla
eitthvað saman).
Hvíl í friði, elsku amma okkar,
Freyja og Hrönn Þorkels-
dætur.
Amma Ester hefur kvatt þenn-
an heim.
Hún fæddist á Hólmavík og
eyddi fyrstu árum sínum þar með
móður sinni. Fjögurra ára gömul
var hún send til föður síns, sem
hún hafði aldrei séð, í heiðarkotið
Þröm í Blöndudal í Austur-Húna-
vatnssýslu. Móður sína hitti hún
ekki aftur fyrr en átta árum síðar.
Amma var feimin og óörugg í
fyrstu við þennan bláókunnuga
mann en það breyttist fljótt.
Amma bjó næstu árin í torfbæ hjá
föður sínum og fóstru sem jafn-
framt var móðursystir hennar.
Amma varð strax mjög hænd að
föður sínum og varð samband
þeirra afar náið. Hún kunni fátt
skemmtilegra en að vera með hon-
um í náttúrunni, við að veiða fisk,
smala, heyja og gera allt það sem
gert var í sveitinni. Hún var alla
tíð mikið náttúrbarn, þekkti allar
plöntur landsins og einnig alla
fugla og fjárglögg var hún með
eindæmum.
16 ára gömul flutti hún á mölina
í þeim tilgangi að vinna sér inn
peninga til að geta menntað sig.
Vann hún m.a. í fæðingarbæ mín-
um, Keflavík. Leiðin lá svo í Hér-
aðsskólann að Laugarvatni þaðan
sem hún lauk landsprófi 1948, með
láði, þá ófrísk að tvíburunum. Á
þessum námsárum sínum á Laug-
arvatni kynntist hún ástinni sinni,
Þorkeli Bjarnasyni.
Að námi loknu fluttist hún til
móður sinnar í Reykjavík. Leiðin
lá svo aftur til Þorkels og Laug-
arvatns og þau gengu í hjónaband
1952. Bjó unga fjölskyldan fyrst í
Garði en 1970 fluttu þau svo í sitt
eigið húsnæði sem nefnt var
Þröm.
Amma átti sér þann draum
heitastan að mennta sig en örlögin
höguðu því þannig að sá draumur
rættist ekki. Hún lagði þess vegna
mikla áherslu á að börnin hennar
og barnabörnin menntuðu sig. Nú
tók við móður- og húsfreyjuhlut-
verkið. Sjö börn á 13 árum var ær-
inn starfi og fjölskyldufaðirinn
mikið í burtu starfs síns vegna.
Hún átti samt sín áhugamál sem
hún náði að sinna. Hún hafði m.a.
þann háttinn á að eftir að hún var
búin að koma börnunum í háttinn
á kvöldin þá skellti hún sér á hest-
bak, oftar en ekki á sínum uppá-
haldshesti, Funa.
Amma var bráðgreind, mikill
ljóða- og vísnavinur. Hún var dug-
leg að lesa fyrir börn sín og syngja
þau í svefn með undurfagurri
söngrödd.
Amma var hörð af sér og bar
harm sinn í hljóði, ákveðin og með
sterkar skoðanir. Amma bar hag
þeirra fyrir brjósti sem minnst
máttu sín í samfélaginu, var rauð-
sokka, jafnréttissinni og jafnaðar-
maður. Hún var mikill friðarsinni
og hafði óbeit á öllu hernaðar-
brölti. Hún gerði allt vel sem hún
tók sér fyrir hendur og til marks
um það hafði hún ekkert sérstak-
lega gaman af að elda mat en það
breytti því þó ekki að allt sem hún
reiddi fram var algert lostæti.
Amma ræddi lítið um sín örlög
og síns fólks: „Þýðir ekkert að tala
um það, svona var þetta bara,“ var
hennar lífsspeki.
Amma Ester var yndisleg. Ég
er svo heppinn að hafa verið mikið
hjá henni og afa á Laugarvatni og
bý að því alla tíð. Ég er gríðarlega
þakklátur fyrir allt sem hún gaf
mér. Mínar allra skemmtilegustu
stundir voru hjá þeim í sveitinni í
því undursamlega umhverfi sem
Laugarvatn er.
Ömmu verður sárt saknað en
hún kveður södd lífdaga. Hvíl í
friði, elsku besta amma mín.
Brynjar Huldu Harðarson.
Mágkona mín, Ragnheiður
Ester Guðmundsdóttir, er látin.
Mig langar til þess að þakka henni
fyrir ógleymanlegar samveru-
stundir og allt það góða sem hún
lét frá sér fara. Við fórum á hest-
baki frá Laugarvatni til Þingvalla
og var sú ferð svolítið eftirminni-
leg vegna þess að knapinn fékk
ekki að ráða. Hún var ættuð úr
sveit og þurfti því að sýna hvað
hún kunni, til dæmis hvað hún
hefði gott lag á hestunum. Það var
hennar yndi að fara á hestbak og
oft var farið í lok dags með Olla í
reiðtúr á gæðingunum þar sem
hleypt var á skeið. Minning lifir
um ferðir í berjabrekkurnar þar
sem hún lét ekki deigan síga við að
fylla föturnar. Margs er að minn-
ast og verkefnin mörg er árin liðu.
Hjartans þakkir fyrir allt.
Védís Bjarnadóttir.
Að ala upp sjö börn er ærið
verkefni. Það eru engar orður
veittar fyrir slíkt eða gull-, silfur-
eða bronsmerki. Af hverju veit ég
ekki en mikið væri það viðeigandi
og verðskuldað. Að taka svo að sér
unglingsstelpu inn á heimilið, rétt
þegar fór að fækka í hópnum og
þau elstu voru flutt að heiman, það
var nákvæmlega það sem Ester
og Olli móðurbróðir minn gerðu
og þvílíkar móttökur. Þröm var
mitt heimili á menntaskólaárun-
um á Laugarvatni og þar var hús-
móðirin í aðalhlutverki. Að fá að
vera hluti af fjölskyldunni á þess-
um árum var ómetanlegt, líf og
fjör alla daga og enginn maður
með mönnum nema hann hefði
þekkingu á hestum og körfubolta.
Á þessum árum var Olli mikið í
burtu vegna vinnu sinnar sem
hrossaræktarráðunautur en hann
vissi að heimilið var í góðum hönd-
um. Þegar litið er til baka er
hreint aðdáunarvert hve þessi
ljúfa og yndislega kona, hún
Ragnheiður Ester, lét allt ganga,
hljóðlaust og rólega en afköstin
meiri en nokkur gerði sér grein
fyrir. Mestu ljúfmenni geta haft
miklar og sterkar skoðanir sem
betur fer og Ester var föst fyrir og
stóð á sínu þegar þörf var á eða
þegar rætt var um pólitík. Þá var
gaman og sú kona gæti verið stolt
af sjálfri sér sem hefði verið jafn
mælsk og sannfærandi og hún vin-
kona mín, húsmóðirin í Þröm. Það
eru yndislegar minningar sem lifa
um árin á Laugarvatni, mennta-
skólaárin, sumarfríin með fjöl-
skyldunni þegar keyrt var frá
Húsavík á Laugarvatn til að hitta
frændfólkið og allar góðu sam-
verustundirnar. Minningar um
Pink Floyd hljóma í stofunni á
hæsta styrk og húsmóðurina láta
sem ekkert sé, þar þurfti taugar
til. Henni var skemmt þegar ég
unga, fríska stelpan, nennti ekki
að ganga í kaupfélagið og fékk
gamla traktorinn í lánaðan. Kom
svo gangandi heim því það var
hvergi hægt að geyma mjólkur-
pokana í traktornum. Þá var hleg-
ið og er enn hlegið þegar rifjað er
upp. Minningin um okkur frænd-
systkinin á leið í skólann kemur
upp í hugann en það var erfitt að
fylgja eftir stóru skrefunum hans
Gylfa. Það verður aldrei fullþakk-
að, sú einstaka hlýja sem mér var
sýnd alla tíð þegar komið var á
Laugarvatn og nú síðast í Lund á
Hellu. Við Ester mynduðum
snemma sterk vináttubönd og
traust og góð vinátta ríkti milli
okkar. Ég skynjaði oft að lífið
hafði ekki alltaf verið auðvelt og
fékk stundum sögur frá erfiðum
tíma í barnæsku hennar en það
sem stóð upp úr, var alltaf gleðin
yfir litlu hlutunum, væntumþykja
og stolt gagnvart fjölskyldunni
sinni sem stækkaði á hverju ári og
listin að kunna að meta það sem
er.
Elsku hjartans vinkona mín,
guð geymi þig. Takk fyrir allt.
Anna Karólína
Vilhjálmsdóttir.
Nú hefur Ragnheiður Ester
Guðmundsdóttir skipt um svið og
er komin til hans Þorkels síns og
annarra vina og ættingja. Hún er
trúlega hvíldinni fegin eftir langan
og farsælan ævidag. Eftir stendur
hér stór og myndarlegur barna-
og afkomendahópur.
Það gefur augaleið að vinnu-
dagur hennar á heimilinu var ekki
bara frá níu til fimm. Þorkell mað-
ur hennar var hrossaræktarráðu-
nautur um árabil og þurfti starfs
síns vegna að vera mikið að heim-
an. Ester studdi hann í starfi og
fjölskyldan fylgdist að í að rækta
góðan hrossastofn og njóta hans
saman.
Ég kynntist Ester fyrst á
Laugarvatni árið 1970. Hún og
Þorkell voru þá virkir og traustir
félagar í Söngkór Miðdalskirkju.
Einnig var hún í Kvenfélagi Laug-
dæla og munaði þar aldeilis um
framlag hennar. Þegar um hægð-
ist á heimilinu hjá Ester kom hún
til starfa í mötuneyti Menntaskól-
ans að Laugarvatni. Þar naut sín
vel hennar létta lund, hlýja og
móðurlega umhyggja sem hún
sýndi nemendum og öllu sam-
ferðafólki. Fyrir þessa samfylgd
er ég henni innilega þakklát og
kveð Ester með virðingu og þökk.
Eftirlifandi ástvinum hennar óska
ég blessunar Guðs.
Rannveig Pálsdóttir.
Ragnheiður Ester
GuðmundsdóttirÁstkær sambýliskona, móðir, systir og
amma,
BIRNA JÓNSDÓTTIR,
lést á Landspítalanum föstudaginn 9. mars.
Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju
miðvikudaginn 21. mars klukkan 13.
Stefán Ólafsson
Ómar Úlfur Eyþórsson Bára Jónsdóttir
Sigurður Jónsson Guðbjörg Jóna Jónsdóttir
Erla Jónsdóttir
Hrefna Jónsdóttir Jón Leósson
Ómar Gaukur Jónsson Ágústa Gunnlaugsdóttir
barnabörn og frændsystkini
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
HELGA GUÐBJÖRG
BRYNJÓLFSDÓTTIR,
Víðilundi 10 b, Akureyri,
lést á sjúkrahúsinu á Akureyri þriðjudaginn
6. mars.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 22. mars
klukkan 13.30.
Laufey Einarsdóttir Guðmundur Sigurðsson
Hulda Einarsdóttir Jóhann Steinar Jónsson
Hallfríður Einarsdóttir Jónas Sigurjónsson
Birgir Einarsson Ragnheiður Steingrímsdóttir
Anna Einarsdóttir Arinbjörn Kúld
ömmubörn, langömmubörn
og langalangömmubarn
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
INGIBJÖRG KR. INGADÓTTIR,
Byggðarhorni,
er látin.
Hún lést á gjörgæsludeild Landspítalans
8. mars í faðmi fjölskyldunnar.
Útförin fer fram frá Selfosskirkju föstudaginn 23. mars
klukkan 14. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en
þeim sem vilja minnast hennar er bent á að styrkja Einstök
börn.
Gísli Geirsson
Baldvin Ingi Gíslason Jóhanna Þorvaldsdóttir
Bára Kristbjörg Gísladóttir Ágúst Ármann Sæmundsson
Sigurjón Ingi Gíslason Erna Sólveig Júlíusdóttir
Ingi Magnús Gíslason Bergþóra Björk Guðmundsd.
Sigríður Ruth Gísladóttir Kristján Magnússon
barnabörn og barnabarnabarn
Elsku pabbi okkar, sonur og bróðir,
BJÖRGÚLFUR ÓLAFSSON
rithöfundur og leiðsögumaður,
sem lést á Landspítalanum 9. mars, verður
jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík
20. mars klukkan 15.
Margrét Birta Björgúlfsdóttir
Ólafur Björgúlfsson
Teitur Björgúlfsson
Ólafur Björgúlfsson
Kristín Ólafsdóttir Örn Svavarsson
Bergljót Ólafsdóttir Arnar Stefánsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
sonur, tengdasonur, tengdafaðir, bróðir
og mágur,
VALTÝR GEORGSSON,
Foldahrauni 1,
Vestmannaeyjum,
lést aðfaranótt laugardagsins 10. mars.
Útför hans fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum
laugardaginn 24. mars klukkan 11 f.h.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en vilji fólk minnast
hans vinsamlega látið líknarfélög í Vestmannaeyjum njóta þess.
Sigríður Guðbrandsdóttir
Sindri Valtýsson Bryndís Jónsdóttir
Reynir Valtýsson
Georg Sigurðsson
Sigurfinna Pálmarsdóttir
Sigurður Georgsson Elínborg Óskarsdóttir
Guðni Georgsson Vigdís Rafnsdóttir
Jóhann Brandur Georgsson Ragna Birgisdóttir
og aðrir aðstandendur