Morgunblaðið - 17.03.2018, Blaðsíða 44
44 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2018
Pálmi Ásmunds-
son, Strandamaður,
húsasmíðameistari,
skólabróðir af Reykjaskóla og vin-
ur, lést 17. febrúar sl. Andlát hans
var óvænt, ótímabært og mikil
sorg að missa þennan góða dreng.
Daginn áður, föstudaginn hinn
16., hringdi Pálmi í mig og boðaði
okkur nokkra skólabræður frá
Reykjaskóla til hittings. Við hitt-
umst samt á boðuðum degi og rifj-
uðum upp samveru okkar.
Við félagarnir stofnuðum skóla-
hljómsveit Reykjaskóla 1963.
Pálmi var ágætis nikkari og þandi
nikkuna til hins ýtrasta með mikl-
um dýfum og krafti. Þessi hljóm-
sveit hélt uppi stuðinu á böllum í
skólanum og átti miklum vinsæld-
um að fagna. En Pálmi var ekki
síðri íþróttamaður en tónlistar-
maður og var m.a. methafi skólans
í limbói og mikill fimleikamaður.
Pálmi átti auðvelt með að eign-
ast félaga og hélst vel á félögum
sínum. Hann var traustur félagi
og alltaf til í að fá menn til að
ganga í takti, vera vinir og gera
gott úr ágreiningi og vera ekki
með vesen og vitleysu. Hann gat
samt verið harður í horn að taka ef
Pálmi Ásmundsson
✝ Pálmi Ás-mundsson
fæddist 13. sept-
ember 1947. Hann
lést 17. febrúar
2018.
Útför Pálma fór
fram 27. febrúar
2018.
menn urðu uppi-
vöðslusamir. Því
verður seint gleymt,
þegar einn félaginn
fór eitthvað út af
sporinu. Þá var
kauði bara settur í
skottið á Lettanum.
Sumarið 1966 út-
vegaði Pálmi mér
vinnu á Volkswagen-
verkstæði sem
Snorri, bróðir hans,
var nýbúinn að stofna. Andrúms-
loftið þar var létt og menn létu
ýmislegt flakka eins og þegar
skrúfur gengu af eftir viðgerð. Þá
var sagt: „Hentu þessu í smur-
opið, þá fer það á sinn stað.“ Öðru
sinni fékk verkstæðið voffa í við-
gerð sem hafði verið gert við á
öðru verkstæði. Voru fjórir gírar
afturábak og einn áfram. Það var
náð í bílinn og var löggan í Foss-
vogi nærri búin að snúa sig úr
hálsliðnum þegar honum var
bakkað fram hjá þeim á fullri ferð.
Oft fórum við félagarnir um helg-
ar í ferðalög. Við vorum vel bílaðir
að þeirra tíma hætti. Pálmi átti
Chevrolet 1959-módel með vængj-
um, ég átti nýlegan eldsprækan
VW ’63 og Snorri var á Ford Fair-
lane, módel ’55, tvennra dyra
hardtop V8.
Einu sinni var ákveðið að fara í
veiðiferð. Þótt við hefðum ekki
jeppa til að stóla á var samt lagt í
hann á Fordinum og VW. Þetta
var auðvitað fífldirfska því þá voru
engir farsímar og við höfðum enga
talstöð. Þegar komið var að Sandá
syðri var komin nótt og sjatnað í
ánni. Lagt var í ána eftir rannsókn
á vaðinu. Yfir komumst við og allir
glaðir. Brunað var upp á Kjöl, net-
in lögð og veiðin var góð. Ákveðið
var að fara byggð heim því hljóð-
kúturinn var farinn undan Ford-
inum og svo vel drundi í honum að
hross fældust og kýr sperrtu upp
halann.
Einu sinni kom ég að Pálma
þegar hann var að gera við Lett-
ann. Framlega var orðin rúm á
nafinu. Vinurinn dó ekki ráðalaus;
kjörnaði í nafið, setti álpappír
undir leguna og smellti henni svo
upp á. Engin vandamál, bara
lausnir. Þannig vann Pálmi, ein-
staklega úrræðagóður, mikill
handverksmaður og vandaður í
alla staði.
Við Inga Þórunn sendum Ás-
dísi, Lindu Rós og Pálma Þór
samúðarkveðjur vegna fráfalls
eiginmanns og föður og biðjum
Guð að styrkja þau á komandi tím-
um. Hvíl í friði gamli vinur og
skólabróðir.
Þorsteinn H. Gunnarsson.
17. febrúar. Fallegur dagur
rennur upp. Sólin skín og varpar
geislum sínum yfir fannhvíta jörð.
Frá heimili sínu í Þverárseli fara
þau hjónin, Pálmi bróðir minn og
Ásdís, í göngutúr eins og þau
gerðu svo oft. Dugleg að rækta
líkama og sál. Á þessum fallega
degi er bróðir minn hrifinn burt
frá okkur á örskammri stundu.
Maður sem kenndi sér einskis
meins, hraustur og hélt sér vel.
Við ólumst upp í Snartartungu í
Bitrufirði. Pálmi var yngstur í
systkinahópnum og var það
gaman fyrir mig að eiga þennan
fallega, ljúfa litla bróður.
Mér er ljúft að minnast æsku-
áranna okkar í sveitinni við leik og
störf.
Við Pálmi bróðir höfum alltaf
verið dugleg að hafa samband og
eftir að við hjónin fluttum í Kópa-
voginn var stutt að fá sér göngu-
túr yfir í Þverárselið til Pálma og
Dísu. Þar var ávallt tekið vel á
móti manni með hlýju, vinskap og
góðu spjalli. Einnig voru það
gleðistundir þegar þau bönkuðu
upp á hjá okkur hjónunum. Eins á
ég góðar minningar frá heimsókn
minni til þeirra í fallega húsið
þeirra í Orlando. Þar stjönuðu þau
bæði við mig og alltaf var bróðir
minn tilbúinn að keyra okkur,
hvort sem það var í verslunarleið-
angur, skoðunarferðir eða eitt-
hvað annað skemmtilegt.
Einnig var það mikil upplifun
fyrir mig að fá að fara með þeim
hjónum á golfvellina þarna úti og
fylgjast með þeim spila golf, sem
var þeirra áhugamál.
Elsku bróðir, það er erfitt að
kveðja en minning þín lifir og veit-
ir mér styrk.
Elsku Dísa, Linda Rós og
Pálmi Þór, megi Guð og englarnir
gefa ykkur styrk á þessum erfiða
tíma.
Vel sé þér vinur
þótt víkirðu skjótt
Frónbúum frá
í fegri heima.
Ljós var leið þín
og lífsfögnuður,
æðra, eilífan
þú öðlast nú.
Hvíl í friði. Þín systir
Hrefna.
Nú er veröldin
breytt! Amma Soffía
er fallin.
Okkur langar að kveðja hana
með nokkrum orðum, eða eins og
ég og við sáum hana. Hún amma
okkar var jaxl af Guðs náð og
margt og mikið til lista lagt. Hún
hélt stórt heimili á árum áður með
afa mínum og nafna fyrst í Laug-
arneskampinum, en lengst af í Ás-
garði 15 ásamt níu börnum og
mér. Ég var þarna og Soffía systir
svo líka með mömmu þar til við
fluttum í Snælandið, þegar
mamma og pabbi fóru að búa, en
ég var alltaf með annan fótinn hjá
ömmu og afa svona eins og grár
köttur.
Amma var mér alltaf góð og
okkur systkinunum, já og bara öll-
um, nema þegar hún gaf mér
hræring. Amma var lagin í hönd-
unum og afkastamikil, saumaði
föt, gardínur og allt annað sem
þurfti og gerði við allt sem þurfti
nál og tvinna við. Hún var nú
sjaldan verklaus. Kerlingin prjón-
aði eins og tími var til á barna-
börnin og sérstaklega á seinni ár-
um þegar barnabarna- og
barnabarnabörnin komu í heim-
inn eitt af öðru og þurftu að fá fal-
lega fyrstu flík. Svo vann amma
líka úti með þessu öllu, hún var
t.d. önnur af tveimur fyrstu póst-
freyjunum í Reykjavík, borginni
sem hún fæddist í. Svo vann hún
líka í Ofnasmiðjunni við Háteigs-
veg og ýmislegt fleira, matráðs-
kona í vegavinnuflokki Bjarna
tengdaföður síns, þá bæði við
vegagerð um Selvog og svo í
Kömbunum.
Hún amma var sein til við bíl-
prófið, tók það seint eða upp úr
fertugu og lærðum við hjá sama
Soffía
Sigurjónsdóttir
✝ Soffía Sigur-jónsdóttir
fæddist 7. sept-
ember 1925. Hún
lést 12. febrúar
2018.
Útför Soffíu fór
fram 27. febrúar
2018.
ökukennara, ég
reyndar svolítið
seinna. Það má orða
það sem svo að þeg-
ar hún keyrði var
bensínpedallinn
hafður í alveg lá-
réttri stöðu og
bremsur ekki notað-
ar fyrr en á síðustu
stundu og þá all-
hressilega. En svona
var bara hún amma,
allt gert með trukki og dýfu. Hún
amma var tvígift, fyrst afa Eiði, en
hann dó 1982, og svo afa Bjössa,
en hann dó 2006. Amma var nú
frekar lífsglöð kona og leiddist að
vera ein, hún hafði gaman af því
að spila, bæði vist og kana og fékk
eiginlega aldrei nóg af því og of-
urlítið í tána með. Hún hafði líka
gaman af því að hlusta á okkur af-
komendurna syngja á góðum
stundum, en það var eitt af því fáa
sem amma gat ekki gert sjálf þó
að hún reyndi nú stundum t.d. lag-
ið við gengum tvö, en hún sagði nú
alltaf við sitjum tvö, orðin ellimóð
kerlingin, sögðum við þá en feng-
um gjarnan einhver blótsyrði sem
svar. Eitt af því síðasta sem við
systkinin gerðum fyrir ömmu var
að syngja fyrir hana, og þótti okk-
ur notalegt að hún gaf okkur
merki um að hún meðtók sönginn
með því að kreista á okkur hend-
urnar.
Amma vildi ekki fara á elli-
heimili því það var bara fyrir gam-
alt fólk, heldur bjó hún ein í sinni
íbúð, sat og stóð eins og hún sjálf
vildi alveg framundir það síðasta
en þá með aðstoð. Hún var nú allt-
af frekar sjálfstæð kona og dríf-
andi, hafði skoðanir á mörgu, var
berorð og stundum um of en þá
þurfti maður bara að svara í sömu
mynt og byrja spjallið aftur. Við
kveðjum ömmu Soffíu með þakk-
læti í hjarta og fallegar minningar
um frábæra konu.
Sjáumst síðar, elsku amma.
Kveðja frá
Eiði Ottó, Soffíu, Sesselju
(Settu) og Elfu Björk
Bjargarbörnum.
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
SIGRÍÐAR HELGU ÍVARSDÓTTUR,
Hátúni 8.
Sérstakar þakkir til starfsfólks 3. hæðar á Skjóli fyrir sérstaka
umönnun og hlýju.
Guðrún S. Guðjónsdóttir Sigurður V. Gunnarsson
Sólrún Ása Guðjónsdóttir Rúnar Friðgeirsson
Vignir Guðjónsson Guðný Atladóttir Hraunfjörð
Guðjón Guðjónsson Margrét Grétarsdóttir
barnabörn og langömmubörn
Innilegar þakkir fyrir hlýhug vegna andláts
ástkærs eiginmanns míns, föður,
tengdaföður og afa,
HREINS JÓNASSONAR
rafmagnstæknifræðings.
Sigríður Halblaub
Jónína Hreinsdóttir Jóhannes Guðmundsson
Jónas Pétur Hreinsson
Anna Katrín Hreinsdóttir Eiríkur Magnússon
og barnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
DÝRLEIF JÓNSDÓTTIR,
áður til heimilis að Lindasíðu 2,
Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Hlíð mánudaginn 5. mars.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
María Daníelsdóttir
Númi Friðriksson
Oddný Friðriksdóttir Sverrir Pálmason
Sæmundur Friðriksson Hulda Friðjónsdóttir
Magnea Friðriksdóttir
Þórey Friðriksdóttir Gunnar Torfason
og fjölskyldur
Ástkær móðir okkar,
INGA JÓELSDÓTTIR,
Ægisíðu 66,
er látin. Jarðarförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þökkum sýndan vinarhug og sérstakar
þakkir til starfsfólks á Grund.
Sigrún Björk Björnsdóttir
Guðrún Gerður Björnsdóttir
Guðjón Jóel Björnsson
Ásgeir Björnsson
og fjölskyldur
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
KRISTINN SIGURÐUR GUNNARSSON,
Djúpavogi 18, Reykjanesbæ,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
14. mars.
Útförin fer fram frá Innri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn
23. mars klukkan 13.
Sólveig Jónsdóttir
Ingibjörg Jóna Kristinsdóttir Þórarinn Ægir Guðmundsson
Jón Gunnar Kristinsson
Kristín Ásta Kristinsdóttir Colby Fitzgerald
Soffía Ósk Kristinsdóttir Gunnar Ingi Þorsteinsson
og afabörnin
Elsku mamma okkar, tengdamamma,
amma og langamma,
HELGA SVANA BJÖRNSDÓTTIR,
Hrafnistu, Boðaþingi,
áður Fellsmúla 14,
lést að heimili sínu 11. mars.
Útför hennar fer fram frá Breiðholtskirkju
föstudaginn 23. mars klukkan 13.
Starfsfólki Spóalundar, Boðaþingi, þökkum
við umhyggju og alúð á liðnum árum.
Hólmfríður Ingvarsdóttir
Stefán Vagnsson Guðveig S. Búadóttir
Hreinn Vagnsson Guðrún Sverrisdóttir
Birgir Vagnsson Kristín Kristinsdóttir
Gunnar Vagnsson Elísabet Sigurbjörnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri faðir, afi og langafi,
LARS EIRÍKUR BJÖRK
ljósmyndari,
lést mánudaginn 5. mars á Vífilsstöðum.
Kveðjuathöfn fer fram frá Áskirkju
miðvikudaginn 21. mars klukkan 13.
Einar Ívar Eiríksson Björk Þorsteinsdóttir
Astrid Björk Eiríksdóttir Einar Jónasson
afabörn og langafabörn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GÍSLI STEINAR JÓHANNESSON
skipstjóri,
frá Gaukstöðum í Garði,
sem lést sunnudaginn 11. mars, verður
jarðsunginn frá Neskirkju miðvikudaginn 21. mars klukkan 13.
Sigríður Skúladóttir
Helga Gísladóttir Eiríkur Sigurðsson
Gísli Steinar Gíslason Inga Rós Aðalheiðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn