Morgunblaðið - 17.03.2018, Síða 60
LAUGARDAGUR 17. MARS 76. DAGUR ÁRSINS 2018
Í LAUSASÖLU 1.050 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Sigur Rós búin að endurgreiða …
2. Vanessa Trump sækir um skilnað
3. 122% hækkun á einum mánuði
4. Féll út um neyðarútgang og lést
Þorsteins frá Hamri verður minnst
í Iðnó á morgun kl. 15. Eiríkur Guð-
mundsson, Elísabet Þorgeirsdóttir,
Guðrún Nordal, Lilja Sigurðardóttir,
Njörður P. Njarðvík og Vésteinn Óla-
son fjalla um skáldið frá ýmsum sjón-
arhornum og lesið verður úr ljóðum
Þorsteins. Kolbeinn, sonur skáldsins,
les úr óbirtum minningabrotum föður
síns, Tímar takast í hendur.
Morgunblaðið/Einar Falur
Þorsteins frá Hamri
minnst í Iðnó
Vinafélag Njáls-
göturólós stendur
fyrir danspartíi á
elsta leikvelli
Reykjavíkur,
Njálsgöturóló í
Norðurmýri, í dag
milli kl. 14 og 16.
„Tónlistin verður í fjölskylduvænu
bíti og stuðið í fyrirrúmi. Rapparinn
Góði úlfurinn treður upp, dansarar
frá Dansi Brynju Péturs sýna sitt
grúv og DJ Sigrún Skafta heldur fólki
við efnið. Viðburðurinn er opinn öll-
um, en foreldrar skulu mæta í fylgd
barna og öfugt,“ segir í tilkynningu.
Krakkareif á róló
Í sjónmáli nefnist einkasýning sem
Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir opnar í
Menningarhúsinu Hofi á Akureyri í
dag kl. 14. Sýningin samanstendur af
stórri vegginnsetningu auk minni
málverka sem spila á mörk hins tví-
víða og þrívíða. Með efnisvalinu vísa
verkin á mismunandi hátt í stöðu
sína sem málverk. Áhorf-
endur eru gerðir með-
vitaðir um líkama sinn í
rýminu og afstöðu til
verkanna, sem breytist
eftir sjónarhorni hvers og
eins.
Ingunn Fjóla sýnir
Í sjónmáli í Hofi
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hægur vindur og rigning með köflum S-til en áfram bjart N-til. Hiti
3 til 10 stig, en víða næturfrost í innsveitum.
Á sunnudag Suðlæg átt, 8-15 m/s og lítilsháttar rigning, hvassast á norðanverðu Snæ-
fellsnesi, en hægari og bjart NA-til. Hiti 2 til 8 stig, en vægt næturfrost í innsveitum.
Á mánudag Suðlæg átt, 5-13 m/s, skýjað með köflum og þurrt að kalla, en bjart N- og A-
lands. Heldur svalara og víða næturfrost inn til landsins.
Tindastóll og Haukar unnu heimaleiki
sína í fyrstu umferð úrslitakeppni
karla í körfuknattleik í gærkvöld.
Tindastóll lagði Grindavík í æsi-
spennandi og framlengdum leik á
Sauðárkróki en Haukar unnu frekar
öruggan sigur á Keflvíkingum. Bene-
dikt Guðmundsson fjallar um byrjun
úrslitakeppninnar í opnu íþrótta-
blaðsins. » 2-3
Tindastóll og Haukar
unnu á heimavöllum
Ef ekkert óvænt kemur upp á
er 21 af þeim 29 leikmönnum
sem Heimir Hallgrímsson
valdi í gær á leið á HM í Rúss-
landi. Landsliðsþjálfarinn til-
kynnti þá hvaða leikmenn
færu með til Bandaríkjanna í
síðustu tvo vináttulandsleiki
íslenska karlalandsliðsins í
knattspyrnu áður en sjálfur
HM-hópurinn verður valinn.
Átta sem voru valdir munu
því sitja eftir. »1
Átta valdir sem
ekki fara á HM
Fljótasti maður Íslandssögunnar
stendur frammi fyrir stórri ákvörðun.
Trompetleikarinn Ari Bragi Kárason
hefur bætt Íslandsmetið í 100 metra
hlaupi tvö síðustu sumur en sex
vikna æfingatörn í byrjun árs með
mörgu af allra besta frjálsíþróttafólki
heims, úrvals-
hópnum Altis í
Phoenix í Ari-
zona, skýrði bet-
ur hve miklu
hann þarf enn
að kosta til
svo að
draumurinn
um Ólymp-
íuleikana í
Tókýó 2020
rætist. »4
Trompetleikarinn fljóti
æfði með þeim bestu
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við byrjum á matnum og stefnum á
að opna veitingastaðinn fyrir páska.
Það er alla vega draumurinn. Svo
opnum við brugghúsið í beinu fram-
haldi svona mánuði síðar,“ segir
Sveinn Sigurðsson, einn eigenda
Smiðjunnar brugghúss, sem verður
opnuð í Vík í Mýrdal á næstunni.
Mikill straumur ferðamanna fer
um Vík og er staðurinn fyrir löngu
hættur að anna eftirspurn um veit-
ingasölu og gistingu. Það má því víst
telja að Smiðjan brugghús komi sem
ferskur andvari inn í vorið þarna um
slóðir.
„Það hefur verið mikil fjölgun á
amerískum ferðamönnum hér. Við
höfum heyrt frá starfsfólki í Vínbúð-
inni að þeir eru að spyrja eftir bæði
handverksbjór og lókal bjór. Við
heyrum það reyndar víða að það sé
eftirspurn eftir lókal bjór,“ segir
Sveinn.
Fyrst um sinn ræður þó maturinn
ríkjum og segir Sveinn að matseðill-
inn verði einfaldur. Boðið verði upp
á gæðahamborgara og smárétti, til
að mynda bjórpylsur úr þurrkuðu
ærkjöti frá bónda í sveitinni. Reynd-
ar er stefnt að því að sem mest af
hráefninu komi úr nágrenni veit-
ingastaðarins.
„Svo verðum við með paranir,
mælum með rétta bjórnum með
hverjum rétti. Þá er hugmyndin að
nýta maltið sem fellur til úr bjór-
gerðinni sem fæðu fyrir nautgripi í
sveitinni. Það býr til smá hringrás í
þessu.“
Á sér langan aðdraganda
Um tilurð Smiðjunnar segir
Sveinn að hann og Þórey, kærasta
hans, hafi lengi stefnt að því að opna
brugghús. Hann hafi farið í við-
skiptafræðinám og látið flestöll
verkefnin snúast um handverksbjór.
Þegar þau bjuggu í Danmörku árið
2014 og hann var í meistaranámi í
vörumerkjastjórnun fékk hann
skilaboð frá Vigfúsi Þór, sem hafði
fengið bjórbók í jólagjöf og spurði
hvort þau ættu ekki að stofna brugg-
hús í Vík.
„Ég var þá einmitt að vinna við-
skiptaáætlun fyrir brugghús á Fjóni
og sagði honum í gríni að ég myndi
þýða hana á íslensku. Tveimur dög-
um síðar sendi hann okkur
teikningar að brugghúsi sem
hann var búinn að gera og við
föttuðum að þetta væri ekkert
grín. Seinna bættist svo Vigfús
Páll í hópinn.“
Alls verða tíu bjórtegundir á
krana á Smiðjunni, bæði bjór
sem bruggaður verður á staðnum
og líka úrval af því besta sem önn-
ur íslensk handverksbrugghús
hafa að bjóða.
Handverksbjór og hamborgarar
Smiðjan brugg-
hús verður opnuð
í Vík í Mýrdal
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Í Smiðjunni Þórey Richardt Úlfarsdóttir, Sveinn Sigurðsson og Vigfús Þór Hróbjartsson leggja nú lokahönd á und-
irbúning Smiðjunnar brugghúss. Stefnt er að opnun veitingastaðarins fyrir páska og brugghússins mánuði síðar.
Ferðamannastraumurinn á Suður-
landi er flestum kunnur og víst er
að Smiðjan brugghús verður góð
viðbót við veitingahúsin í Vík í Mýr-
dal. Það sést ágætlega á því að að-
standendurnir hafa orðið varir við
áhuga á staðnum, þótt enn sé eitt-
hvað í að hann verði opnaður.
„Við ætlum að bjóða upp á
brugghúsheimsóknir. Það er greini-
lega komin mikil stemning fyrir
þeim. Við erum þegar byrjuð að fá
bókanir og mikið af tölvupóstum
með fyrirspurnum. Það ætlar til
dæmis að koma maður frá Abu
Dhabi með 50 manna hóp í
heimsókn til okkar. Hann
kemur nokkrar ferðir á ári
hingað. Það kemur manni
eiginlega á óvart hvað það
er mikill áhugi á svæðinu,“
segir Sveinn Sigurðsson.
Hægt er að fylgjast með
Smiðjunni brugghúsi á
Facebook, Snapchat og
Instagram.
Heimsókn frá Abu Dhabi
MIKILL ÁHUGI ÞÓTT EKKI SÉ BÚIÐ AÐ OPNA