Morgunblaðið - 25.04.2018, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.04.2018, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 5. A P R Í L 2 0 1 8 Stofnað 1913  96. tölublað  106. árgangur  SÝNIR STEIN- ÞRYKKSVERK Í EKKISENS SJÁLFBOÐALIÐI Á KAFFIBÝLI Í KOSTA RÍKA ALLT UM SÖNG- KEPPNI FRAM- HALDSSKÓLANNA HRAFNHILDUR AGNARSDÓTTIR 12 24 SÍÐNA SÉRBLAÐNÍNA ÓSKARSDÓTTIR 30 Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Þekkingu hefur verið ýtt til hliðar í bæði menntastefnu Reykjavíkurborgar og aðalnáms- skrá grunnskólanna að mati Jóns Péturs Zim- sen, skólastjóra Réttarholtsskóla í Reykjavík. Jón Pétur hættir sem skólastjóri í vor eftir tutt- ugu ára starf í Réttarholtsskóla. Skeytingarleysi Reykjavíkurborgar í garð skólanna á meðal ann- ars sinn þátt í því að hann tók þá ákvörðun að stíga frá skólamálunum í bili a.m.k. Nú er verið að leggja lokahönd á mennta- stefnu borgarinnar. Jón Pétur segir vinnu við hana hafa þurft miklu meiri tíma og umræðu þeirra sem hafa þekkingu til og að hún hefði átt að byggjast á gagnreyndum rannsóknum frekar en ábendingum í gegnum Betri Reykjavík. „Menntastefnan er í raun bara endurómur úr aðalnámskránni sem var aldrei innleidd nema í skötulíki. Þarna hafði borg- in gullið tækifæri til að fylla í eyðurnar þar sem skórinn kreppir í námskránni, nemendum til hagsbóta. Því tækifæri var glutrað niður. Sem dæmi um kjarnahugtak í skólastarfi, sem varla er minnst á, hvorki í námsskrá né mennta- stefnu, er þekking. A.m.k. er engin trygging fyrir að öruggt sé að allir nemendur öðlist ákveðna grunnþekkingu. Án þekkingar er hugsun afar takmörkuð.“ Jón Pétur gagnrýnir hversu lítið eftirlit er með því sem gerist í skólunum og segir yfirvöld hafa af- ar takmarkaðan áhuga á menntamálum. „Þau segjast treysta skólunum og firra sig þar með ábyrgðinni á þessum mikilvæga málflokki þar sem 20% nemenda geta ekki lesið sér til gagns, sem skapar mikla ógn við lýðræðið.“ »14 Lítill áhugi á menntamálum  Skeytingarleysi Reykjavíkur í skólamálum á m.a. þátt í að skólastjóri hættir Jón Pétur Zimsen Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út á þriðja tím- anum í gær eftir að eldur kviknaði í klæðningu á hitaveitutanki við Perl- una. Slökkviliðsmenn áttu í erfiðleikum með að komast að eldinum vegna járnklæðningar og af þeim sökum var óskað eftir frekari mannskap. Birgir Finnsson, aðstoðarslökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir að vel hafi gengið að rýma húsið og enginn hafi slasast. Það tók hins vegar slökkvilið- ið töluverðan tíma að komast að eldinum því hann var ekki sjáanlegur. Eldsupptök eru talin vera af völdum iðnaðarmanna sem voru að störfum í hitaveitutankinum. Töluverður reykur barst úr klæðningunni og undan út- sýnispalli Perlunnar þegar blaðamaður Morgunblaðsis kom á vettvang. Fjölmennt lið slökkviliðsmanna barðist við eldinn á mörgum vígstöðvum og voru menn ofan á tankinum, fyrir utan og innan. Áhersla var lögð á að berjast við eldinn innan frá til að forðast að hann dreifði sér frekar inn í Perluna. Slökkviliðið var með fjórar hitamynda- vélar sér til aðstoðar til að sjá betur hvar eldurinn logaði þ. á m. hita- myndavél á dróna sérsveitarinnar. Að sögn Birgis varð töluvert tjón á Perlunni, ekki síst vegna vatnsskemmda. »4 Morgunblaðið/Valli Eldsvoði olli töluverðu tjóni í Perlunni Eldur í Perlunni í Öskjuhlíð Morgunblaðið/Valli Baldur Arnarson baldura@mbl.is Meðallaun þjóðkjörinna fulltrúa hækkuðu um tæp 27% milli ára 2016 og 2017. Þá hækkuðu laun presta um tæpt 21%. Þetta er meðal þess sem má lesa úr nýjum tölum á vef Stjórnarráðs- ins en þar eru reglulega birtar upp- lýsingar um meðallaun ýmissa hópa ríkisstarfsmanna. Sé litið til meginfélaga, sem ýmsir hópar og stéttarfélög eiga aðild að, kemur í ljós að meðallaun þeirra sem heyra undir kjararáð hækkuðu um 9,6% milli ára 2016 og 2017. Næst komu félagsmenn í BSRB en meðallaun þeirra hækkuðu um 9,3% milli ára. Sé launaþróunin skoðuð frá árs- byrjun 2014 til ársloka 2017 kemur í ljós að meðallaun þjóðkjörinna full- trúa hafa hækkað um 55,8% og laun presta um 41,5%. Báðir hópar heyra undir kjararáð. Sé litið til meginhópa ríkisstarfs- manna hækkuðu laun mest hjá kjararáði á tímabilinu 2014 til 2017, eða um 35,8%. Næst kom Kenn- arasamband Íslands en þar hækk- uðu laun að meðaltali um 34,3%. Launin enn á uppleið  Þjóðkjörnir hafa leitt launahækkanir MLaunaskrið hefur haldið … »6 Dæmi um launahækkanir í fyrra Hækkun meðallauna milli 2016 og 2017 Heimild: Stjórnarráðið 9,3% 9,6% 20,9% 26,6% BSRB Kjararáð Prestar Þjóðkjörnir fulltrúar  „Starfsmaðurinn vann sína vinnu í sam- ræmi við reglur og gerði engan grein- armun á því hvort viðkomandi væri þing- maður eða ekki. Öryggisleit gengur best þegar góð samvinna er á milli flugörygg- isvarða og farþega,“ ritar Björn Óli Hauks- son, forstjóri Isavia, m.a. í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Þar er Björn Óli að svara grein sem birt- ist nýverið í blaðinu eftir Jan-Erik Mess- mann, danskan þingmann, þar sem hann lýsir óánægju með framkomu starfsmanns í öryggisleit í sinn garð. Messmann var þá á leið frá Keflavík til Danmerkur, að loknum fundi Norðurlandaráðs hér á landi. Björn Óli segir Isavia taka allar svona ábendingar farþega alvarlega og mál þingmannsins sé þar engin undantekning. »20 Enginn greinarmunur gerður á farþegum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.