Morgunblaðið - 25.04.2018, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 25.04.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2018 Margfalda á húsnæði fyrir fjöl- skyldur og ungt fólk í úthverfum borgarinnar og skipuleggja nýtt svæði fyrir þjóðarsjúkrahús að Keld- um. Þetta er meðal þess sem Mið- flokkurinn hyggst beita sér fyrir í Reykjavík á komandi kjörtímabili, en helstu stefnumál flokksins fyrir borgarstjórnarkosningar í næsta mánuði voru kynnt í gær. „Við ætl- um að forgangsraða fjármunum borgarinnar til grunnþjónustu og stefnumál okkar eru að fullu fjár- mögnuð,“ segir Vigdís Hauksdóttir, oddviti listans. Af öðrum stefnumálum má nefna að Miðflokkurinn vill að boðið verði upp á ókeypis mat í grunnskólum borgarinnar, fjölga kennslustundum í verk-, tækni-, og listgreinum á sama skólastigi og stórefla starfsemi Vinnuskóla Reykjavíkur. Einnig að tvöfalda upphæð Frístundakortsins, það er í 100 þúsund krónur. Þá eru samgöngumál ofarlega á baugi hjá Miðflokknum sem vill standa vörð um að flugvöllurinn verði áfram í höfuðborginni, bæta gatnakerfið og stytta ferðatímann fyrir fjölskyldu- bílinn og bjóða öllum Reykvíkingum upp á gjaldfrjálsan strætó. „Við ætlum að uppskera ríkulega og fá 4-6 borgarfulltrúa,“ segir Vig- dís Hauksdóttir. „Við hyggjumst skilgreina lögbundið hlutverk borg- arinnar, setja á ráðningarstopp og minnka kerfið. Eftir tvö ár ættum við svo að geta lækkað útsvarið sem Reykvíkingar greiða en í dag er það í hámarki.“ sbs@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kynning Vigdís Hauksdóttir, oddviti framboðslista Miðflokksins í Reykja- vík, og að baki stendur Sveinn Hjörtur Hjartason sem skipar 3. sæti listans. Forgangsraða og minnka kerfið  Miðflokkurinn kynnir stefnumálin Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is Hrafnar voru farnir að tína sprek og glys í laup ofan á stalli á þríbýlishúsi í Vogahverfinu í Reykjavík, beint fyrir ofan svalir einnar íbúðarinnar, en Morgunblaðinu barst ábending þess efnis með mynd. „Hrafnar hafa orpið á mannvirkj- um nokkuð lengi, en oftast á mann- lausum mannvirkjum. Það geta verið óþrif og læti af því að vera með laup nálægt heimili sínu. En þetta er bara viðhorf, sumum finnst gaman að hafa hann í návígi og fylgjast með fuglun- um en öðrum finnst það óþægilegt,“ segir Kristinn Haukur Skarphéðins- son, dýravistfræðingur hjá Náttúru- fræðistofnun Íslands. Hann segir æ algengara að hrafnar komi sér fyrir í byggð, á mannvirkjum og í trjákrónum, en öruggum náttúru- legum varpstöðum þeirra hafi fækkað og kjörlendi þeirra sé að færast í byggðina þar sem oft sé meira æti. Aðspurður segir Kristinn Haukur laupum ekki fylgja samskonar óværa og t.d. starrahreiðrum, flær séu í laupum eins og öðrum fuglahreiðrum, en þær haldi sig í honum en herji ekki út fyrir hann eins og starraflær. Ekki sé hætta á að fá flær nema maður fari að gramsa og róta í honum. Um það hvort steypa megi undan hröfnum segir Kristinn Haukur að almenna reglan sé að fuglar og hreiður þeirra séu friðuð, sérstaklega á varptíman- um. Hrafninn sé þó ein örfárra fugla- tegunda sem séu ekki friðaðar. Ófriðaðir fuglar tímaskekkja Kristinn Haukur segir ófriðun hrafna árið um kring tímaskekkju, en Ísland sé skuldbundið til að friða alla fugla. Hrafninn ásamt svartbak, silf- urmáf og sílamáf séu ófriðaðir allt árið með undanþágu í lögum og í reglu- gerð, þó þeim fari fækkandi. Svartbak hafi t.d. fækkað um 90% á síðastliðn- um árum og hrafnar verði æ sjaldgæf- ari í heiminum. „Að drepa hrafna er veiði, og veiði fylgir að eiga veiðiréttinn og vera með veiðileyfi. Það gæti verið álitamál hvort einstaklingar í borg megi steypa undan hrafni á húsinu hjá sér án þess að hafa til þess leyfi.“ Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur vill ekki kannast við að þurfa að aðstoða fólk í tilfellum sem þessum. Veiði- stjórnunarsvið Umhverfisstofnunar telur að húseigendum sé leyfilegt að steypa laupnum, jafnvel þótt hrafninn sé orpinn, þar sem hann sé ófriðaður allt árið og þar með á varptímanum. Jafnvel megi drepa ungana, en gæta verði þess að gera það á snöggan og sársaukalausan hátt, eins og t.d. með því að snúa þá úr hálslið. Skv. heimildum Morgunblaðsins var hrafninn enn ekki orpinn, en örlög laupsins urðu að vera steypt í ruslið af íbúum hússins. Hefðu þeir að öðrum kosti getað setið uppi með hrafnapar- ið næstu tuttugu árin, hafi verið um ungt par að ræða. Íbúar í Vogahverfi steyptu laup af húsi  Hrafninn ein fjögurra fuglateg- unda sem eru ófriðaðar allt árið Ljósmynd/Aðsend Laupur í smíðum Hrafnar tíndu sprek og glitrandi rusl í laupinn, sem getur orðið ferleg smíð. Staðarvalið féll þó ekki í kramið hjá nágrönnunum. BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is GE bílar Reykjanesbæ www.gebilar.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 * V ið m ið u n a rt ö lu r fr a m le ið a n d a u m e ld s n e y ti s n o tk u n í b lö n d u ð u m a k s tr i. B ú n a ð u r b íl s á m y n d e r fr á b ru g ð in n a u g lý s tu v e rð i E N N E M M / S ÍA / N M 8 7 1 1 1 Í FJÖLSKYLDUNNI NISSAN SJÁLFSKIPTUR / 3.350.000KR. ARINNJUKEACENTA 117 HESTÖFL / EYÐSLA 6,0 L/100 KM*

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.