Morgunblaðið - 25.04.2018, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 25.04.2018, Blaðsíða 13
sitt með sér þegar hún fór þaðan til höfuðborgarinnar San Jose. „Ég lét það liggja og sótti það þegar ég kom til baka, áður en ég flaug heim til Íslands,“ segir Hrafn- hildur sem gisti eina nótt í San Jose hjá fjölskyldu á vegum sjálfboða- samtakanna, áður en hún hélt til fjalla. „Þau töluðu ekki stakt orð í ensku, og þótt ég sé með svolítinn orðaforða í spænsku þá reyndi þetta mjög á samskiptin. Ég þurfti að fara með heimilisföðurnum í verslunarferð til að græja mig upp fyrir sjálfboðastarfið því það er töluvert kaldara uppi í fjöllunum. Þetta var sannarlega ögrandi verk- efni með miklu handapati, en ég bjargaði mér.“ Leiðin með rútunni frá San Jose til fjallaþorpsins Monteverde var malarvegur og engin vegrið í miklum halla. „Mér leist ekkert á blikuna. En ég hefði ekki viljað missa af þessu, því á þessari leið er ein mesta náttúrufegurð sem ég hef augum litið.“ Aldur verður afstæður Þegar Hrafnhildur kom á leiðarenda á kaffibýlið reyndust að- eins vera fjórar konur í sjálfboða- starfinu, hún sjálf, tvær kanadískar konur á sjötugsaldri og ein átján ára stelpa. „Konurnar sem voru rúmlega sextugar reyndust vera frábærir starfsmenn og gáfu öðrum ekk- ert eftir. Ég vann með þeim fyrri vikuna og það var ynd- islegur tími og gaman að kynnast þeim og þeirra lífi. Aldur verður afstæður á svona ferðalagi,“ segir Hrafnhildur og bætir við að seinni vikuna hennar á kaffibýlinu hafi kom- ið fjórtán sjálfboða- liðar til viðbótar til starfa. Sjálfboðastarfið segir hún á stundum hafa verið lík- amlega erfitt og þó nokkra áskorun. „Við vorum með sveðjur að höggva niður tré til að ryðja land. Kaffi- framleiðsluferlið er 52 skref, frá því að fræinu er plantað og þar til kaffi er komið í bolla. Við kynntumst ólíkustu störfum í þessu ferli og stundum var þetta létt og fólst í að reyta illgresi eða sortera kaffibaun- ir. Þær voru ljósgráar þegar við fengum þær til flokkunar, en þá er búið að þurrka þær. Við þurftum að taka svörtu baunirnar úr og henda þeim, því þær eru ónýtar. Síðan eru heilu baunirnar settar í vél sem tek- ur skelina utan af þeim og eftir það eru þær ristaðar. Þetta er algerlega lífrænt kaffi og mikil gæðavara. Núna á ég erfitt með að drekka vont kaffi, ég er kannski ekki orðin kaffisnobb, en ég læt ekki hvað sem er ofan í mig,“ segir Hrafnhildur og hlær. Engin vinnuþrælkun „Kaffibóndinn og hans stórfjölskylda reiða sig á sjálfboðaliða, enda krefst það mikils mannafla að handtína baunirnar. En þetta var engin vinnuþrælk- un, við unnum aðeins í fjóra tíma á dag. Öll vinnuaðstaða var mjög frumstæð og þarna stund- ar fólk sjálfs- þurftarbúskap, er með sínar hænur og nýtir ávextina sem vaxa á trjánum. Maturinn hjá þeim var al- veg rosalega góður, enda allt hrá- efni svo ferskt,“ segir Hrafnhildur og bætir við að kaffibýlið hafi verið frekar afskekkt, en í nokkurra kíló- metra fjarlægð var þorp. „Ég labbaði stundum í bæinn, enda afar falleg leið. Ég notaði minn frítíma til að lesa uppi í hengi- rúmi og skoða náttúruna, þarna voru kýr og kindur allt í kring, engu líkt. Ég náði gríðarlegri slök- un, sem var einmitt það sem ég þurfti. Ég fór ekki í þessa ferð til að djamma og ég vildi ekki vera í ein- hverjum lúxus, ég vildi hafa þetta hrátt og frumstætt. Ég er af þeirri kynslóð þar sem samfélagsmiðlar stjórna lífi manns og mig langaði til að kúpla mig út úr því. Netsamband var sem betur fer takmarkað þarna svo ég lagðist í bóklestur, hafði loksins tíma til að lesa bækur sem mig hafði lengi langað að lesa, en aldrei gefið mér tíma. Ég byrjaði líka að hugleiða og tókst að njóta þess að vera í núinu.“ Við Íslendingar höldum að við þurfum að vera best í öllu Í Hondúras dvaldi Hrafnhildur á eyjunni Roatan, sem hún segir vera paradís fyrir kafara, með kóralrifi og fjölbreyttu lífríki neðan- sjávar. „Frænka mín hálfíslensk sem býr þarna ætlaði aðeins að vera í þrjá mánuði við köfun, en hún er ekki enn komin heim, tíu árum síð- ar. Það er auðvelt að ílengjast þarna, þó svo að rafmagnið detti út tvisvar á dag. Frænka mín rekur þarna sitt eigið fyrirtæki og ég var farin að velta því fyrir mér að flytja bara til þessarar eyju. Ég er vissu- lega búin að ákveða að fara í meist- aranám, en ég get líka alveg frestað því, ég er ung og barnlaus. Þær skyldur sem ég hef sett sjálfri mér hefur samfélagið ákveðið fyrir mig, og kannski henta þær mér ekki núna. Ég hafði það gott þarna, var með eigin íbúð og kynntist fullt af fólki, fór út á bátum og var að kafa. Þarna er enginn að flýta sér, fólk rólegt og vinalegt. Þegar fólk spyr mig hvað ég hafi verið að gera í Hondúras segi ég: Ekkert. Nema slaka á og njóta lífsins. Þetta ferða- lag setti hlutina í samhengi fyrir mig, hvað við Íslendingar og vest- rænar þjóðir erum drifin áfram af hugmynd um árangur. Við Íslend- ingar höldum að við þurfum að vera best í öllu, best í íþróttum, eiga mestan pening og svo framvegis. En á sama tíma erum við heims- meistarar í að nota þunglyndislyf, allar að farast úr kvíða og stressi. Við þurfum að læra að slaka á kröf- unum. Ég á vini sem fara í lögfræði eða viðskiptafræði í háskólanum til að fara í eitthvað. Ég segi: Slakið á, það er allt í lagi að bíða og fara í nám seinna þegar maður veit hvað maður vill.“ Kafað Hrafnhildur í hafdjúpunum, en hún segir köfunina hjá kóralrifinu í Hondúras og fjölskrúðugt dýralífið neðansjávar eitt af því eftirminnilegasta úr ferðalaginu. Hún hitti meðal annars risastórar sæskjaldbökur. Kaffivinnsla Hjónin Erci og Oldemar, en þeirra tekjulind er einfaldlega kaffi.Sjálfboðaliði að störfum Hrafnhildur á leið til vinnu með haka á öxl. Heimasíða sjálfboðasamtak- anna IVHQ: www.volunteerhq.orgHrafnhildur með letidýri. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2018 Ísfell ehf, Óseyrarbraut 28 220 Hafnarfjörður, Sími 5200 500 www.isfell.is, isfell@isfell.is Höfum á lager mikið úrval af alskyns vinnufatnaði, hífi- og festingabúnaði, krönum og talíum, snjókeðjum, pökkunarlausnum og fallvarnarbúnaði. Í vörulistanum á www.isfell.is er að finna ítarlegar upplýsingar um allar vörur. Vinnufatnaður Hífilausnir Kranar og talíur Snjókeðjur Pökkunarlausnir Fallvarnarbúnaður Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.