Morgunblaðið - 25.04.2018, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 25.04.2018, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2018 ✝ Percy B. Stef-ánsson fæddist í Stokkhólmi 21. sept- ember 1947. Hann lést í Reykjavík 14. apríl 2018. Foreldrar Percy voru hjónin Sig- tryggur Benedikt Stefánsson bygging- arfulltrúi, f. 1925, d. 1991, og Maj-Britt Bülow Stefánsson hús- móðir, f. 1928, d. 2005. Hann átti tvö systkini, Gunnar Friðrik Stef- ánsson, f. 1955, d. 1960, og Stefán Birgi Sigtryggsson, raftækni- fræðing og kennara, f. 1950. Syst- kinabörn Percy eru: Arnar Stef- ánsson, f. 1970, Alex B. Bülow Stefánsson, f. 1986, Sigtryggur B. Stefánsson, f. 1990, Stefanía Rós Stefánsdóttir, f. 1993, og Maj- Britt Anna Bjarkardóttir, f. 1996. Auk þess átti Percy kjörfjölskyldu að eigin sögn. Þau voru Kjartan Pálmason f. 1973 og Halla Thor- oddsen f. 1977. Dætur þeirra eru Þórhildur Bríet f. 2007 og Karólína Helga f. 2013 sem Percy gekk í afastað. Percy útskrifaðist sem tæknifræðingur frá STI Stockholms Tekniska Institut ár- ið 1980. Hann vann hjá Húsnæðisstofnun rík- isins í 18 ár sem for- stöðumaður Bygg- ingarsjóðs verkamanna, seinna félagslega kerfinu. Frá 1998 starfaði hann í þrjú ár sem áfeng- is- og vímuefnaráðgjafi á Teigi Landspítala. Síðustu ár tók Percy þátt í stofnun Lausnarinnar – fjöl- skyldumiðstöðvar varðandi með- virkni og vann þar sem ráðgjafi til starfsloka. Hann var einnig tengdur mannréttindabaráttu Samtakanna 7́8 í mörg ár, að- allega í stjórn frá 1990-1996 og sem formaður árið 1997. Útför Percy fór fram frá Hall- grímskirkju 24. apríl 2018. Elsku besti Percy. Byrjum á upphafinu. Við kynntumst fyrst um aldamótin og strax þá varstu mikilvægur hluti af lífi mínu. Árið 2008 keyptum við hús í Hafnar- firði, okkur vantaði leigutaka og þú fluttir til okkar í Ásbergið. Það var mikið gæfuspor fyrir okkur öll. Hafnarfjörður var langt frá 101 Reykjavík sem þú fannst þig best í á kaffihúsum borgarinnar en þér hlýtur að hafa liðið vel hjá okkur því við náðum að hafa þig hjá okk- ur í næstum tíu ár áður en þú yf- irgafst þetta líf. Það bar aldrei skugga á sambúðina enda meiri ljúflingur vandfundinn. Þegar þú fluttir til okkar breyttist vináttan í fjölskyldu, þú varðst einn af okkur. Þú fékkst nýtt en mjög mikilvægt hlutverk í lífi okkar allra, þú gerð- ist afi Þórunnar Bríetar, og þú blómstraðir í því hlutverki. Þegar ég sagði öðrum frá þér, þá kallaði ég þig ættleidda afann sem bjó hjá okkur og við vorum svo heppin að eignast því okkur vantaði einmitt einn slíkan. Tóta átti sérstakan stað í hjarta þínu og það var svo gagnkvæmt. Svo þegar Karólína Helga fæddist 2013 eignaðist hún líka besta afa í heimi. Þær fóru oft niður til þín og alltaf velkomnar. Karólínu fannst sérstaklega gott að koma til þín og fá ís eftir anna- saman dag í leikskólanum og vera hjá þér. Þú hlýddir henni líka í einu og öllu og það fannst henni ekki verra enda skemmtilega stjórnsöm eins og leikskólabörn geta oft verið. Þú varst alltaf til staðar fyrir afastelpurnar þínar með ómældri þolinmæði, tíma og ást. Þú varst líka til staðar fyrir mig. Alltaf. Ég er þakklát fyrir all- ar stundirnar sem við áttum sam- an. Við drukkum saman ómælt magn af kaffinu mínu og spjölluð- um um daginn og veginn. Við átt- um marga yndislega sólardaga í garðinum þar sem þú lékst við afastelpurnar þínar. Ég sakna þess að vita af þér heima í kjall- aranum, Ásbergið er tómlegt án þín. Við eyddum síðustu jólum saman og héldum sænsku hefðinni á föstudaginn langa. Ég hafði allt- af á tilfinningunni að þú yrðir ekki langlífur þar sem heilsufarið var ekki með besta móti en þú varst samt tekinn of snemma frá okkur, aðeins sjötugur að aldri. Þú áttir of margt eftir ólokið og kaffibollinn bíður eftir þér hjá mér. Þú áttir bókaða ferð með afastelpunum þínum og Kjartani í Legoland í Danmörku í sumar. Tóta þurfti lengur á þér að halda eftir erfitt ár, þú varst ein af mikilvægustu manneskjunum í hennar lífi og þið eydduð miklum tíma saman. Kar- ólína missir af dýrmætum tíma með eina afanum sem hún hefur kynnst. Hún sagðist vera glöð að Klara, hænan sem þú áttir og dó líka í vetur, hefði tekið á móti þér á himninum og væri með þér og hin- um englunum. Vonandi hefur hún rétt fyrir sér og þú ert þar. Ég mun aldrei gleyma öllu sem þú gerðir fyrir mig og fjölskylduna og þakka fyrir tímann sem við feng- um með þér í þessu lífi. Hvíl í friði, kæri Percy. Halla Thoroddsen. Elsku vinur minn Percy er lát- inn. Það var mér mikil harmafregn og um leið hugsunin um hvernig vinátta virkar. Það er nefnilega þannig með vináttu að það er ótrú- legt hvað hún getur lifið lengi. Á tímabili sáumst við nærri daglega en síðar leið tíminn á milli svo ár- um skipti. Við Percy vorum Akureyringar og enda þótt áhugamálin lægju ekki saman auðnaðist okkur að halda vináttunni þannig að við vorum saman á kvöldin og oftar en ekki fórum við í útilegur saman. Percy hafði aðgang að bíl pabba síns og ég var með flugpróf, þannig að ferða- mátinn var mismunandi. Það er svo undarlegt að enda þótt lífsvegir okkar hafi ekki legið saman frá unglingsárum urðu allt- af fagnaðarfundir þegar við hitt- umst. Þá var spjallað og hlegið að gömlum axarsköftum. Foreldrar Percys, þau Maybritt og Sigtryggur, tóku mér nánast sem syni og maturinn sem May- britt bar ofan í okkur sísvanga var alltaf ljúffengur. Nú ert þú farinn yfir móðuna miklu og get ég því aðeins hlakkað til endurfundanna þegar þar að kemur. Hvíl þú í friði vinur minn. Gunnar Þorvaldsson. Percy kynntist ég fyrst og fremst í og með störfum mínum fyrir Alnæmissamtökin – nú HIV- Ísland. Percy var mikill ljúflingur og af- ar þægilegur í allri umgengni og samstarfi – og samstarf okkar varð talsvert. Haustið 2002 hófst fræðsluverk- efni Alnæmissamtakanna sem fól í sér að heimsækja öll skólabörn í 9. og 10. bekk. Stuðningur til þessa umfangsmikla verkefnis fékkst í upphafi frá Landlæknisembættinu og Hjálparstarfi kirkjunnar. Verkefnið var skipulagt á þann máta að unnt yrði að hefja það ann- að hvert ár. Percy tók þátt í þessu starfi – og það svo um munaði. Í fyrsta áfanga tók hann tvær vikur samfellt og hitti um 770 börn í 26 grunnskólum á Norðurlandi eystra. Sums staðar komu nemendur úr 8. bekk einnig á fundi, um það tóku skólastjórn- endur ákvörðun. Snemma árs 2005 var Percy aft- ur kominn af stað, ásamt öðrum, en verkfall grunnskólakennara haust- ið 2004 kom í veg fyrir að unnt yrði að hefjast handa að hausti. Veturinn 2006-07 var enn haldið af stað og Percy með að vanda. Ég kveð góðan vin og félaga. Birna Þórðardóttir. Percy B. Stefánsson ✝ DraupnirGestsson fæddist á Land- spítalanum í Reykjavík 18. jan- úar 1980. Hann lést á gjörgæslu- deild Landspít- alans 13. apríl 2018. Draupnir var sonur hjónanna Gests Breiðfjörð Gestssonar og El- ísabetar Hauks- dóttir og var yngst- ur systkinanna Sigurðar Hauks Gestssonar, Eyrún- ar Sigríðar Gests- dóttur og Gests Breiðfjörð Gests- sonar. Útför Draupnis fer fram frá Hafn- arfjarðarkirkju í dag, 25. apríl 2018, klukkan 15. Elsku Draupnir, fallegi, góði bróðir minn. Mér þykir svo sárt að horfa á eftir þér, litli bróðir minn sem mér þykir svo vænt um. Það sem ég hefði mikið viljað breyta svo mörgu og vildi að ég hefði getað gripið inn í til þess að hjálpa þér að finna betri stað í líf- inu. Ég man svo vel eftir því hversu sár og reiður ég varð þegar ein- hver gerði eitthvað á þinn hlut og brást ég alltaf illa við, því enginn mátti snerta litla bróður minn sem mér þótti svo vænt um. Þú varst alltaf svo hjálpsamur og alltaf boðinn og búinn til þess að koma og stýra framkvæmdum hjá okkur. Þú passaðir alltaf upp á að allt væri svo nákvæmt og þoldir ekki ef vinnubrögðin voru ekki í lagi. Í dag hugsa ég svo mikið um þegar við fórum saman í veiði og eins þegar við vorum saman í Kaupmannahöfn. Frændsystkin- um þínum þykir svo vænt um þig enda varstu þeim alltaf svo góður. Gestur segir alltaf Draupnir er vin- ur minn og allar þessar minningar lifa í mínu hjarta, elsku bróðir. Það er svo erfitt að hugsa til þess að sjá þig ekki en ég veit að þú vakir yfir okkur og þá sérstak- lega mömmu. Ég veit að þú ert núna kominn út úr myrkrinu og farinn á betri stað þar sem pabbi, Árni Freyr, Kolla okkar og Vallý taka á móti þér opnum örmum. Ég sakna þín, elsku bróðir minn. Ástar- og saknaðarkveðjur. Þinn bróðir, Gestur. Draupnir, litli elskulegi, hæg- láti og brosmildi drengurinn sem svo oft kom í heimsókn er við bjuggum í Hafnarfirði, er látinn, langt fyrir aldur fram. „Guð gefi dánum ró og hinum líkn sem lifa.“ Skömmu eftir að við fluttum til Hafnarfjarðar tókst mikil vinátta með Gesti, bróður Draupnis, og Elvari syni okkar. Í gegnum þá vináttu tengdust við foreldrum Draupnis, þeim Elsu og Gesti – einstaklega elskulegu fólki sem al- laf var hægt að leita til. Hús okkar og heimili stóðu opin; gagnkvæm boð í afmæli, fermingar, útskriftir; áramótum fagnað, dansað á sjó- mannadegi, farið í útilegu og litið við í kaffi og spjall. Þótt nokkur aldursmunur væri á börnum okk- ar leiddu þessi kynni til einlægrar vináttu þeirra á milli sem stendur óröskuð. Oft kom Draupnir með Gesti bróður sínum og þótt Helgi sonur okkar væri nokkrum árum yngri en hann tókst með þeim vin- átta – og ekkert jafnaðist á við að fá að vera heima hjá Draupni og skoða og fá að leika sér með leik- föngin hans. Þetta voru yndislegir tímar og verða seint fullþakkaðir af okkar hálfu. Farsæl framtíð virtist blasa við og Gestur fagnaði 60 ára afmæli sínu. Rúmu ári síðar hrundi tilver- an. Gestur, skipstjóri á togaranum Þór, varð bráðkvaddur um borð. Draupnir var þá einn af áhöfninni og sterki strákurinn sleppti ekki taki á pabba sínum fyrr en í land var komið. Áfallið var gífurlegt og markaði mjög djúp spor í sálarlíf Draupnis, sem án efa átti sinn þátt í þeim erfiðleikum sem Draupnir þurfti við að fást – allt til enda. Eftir stóðu Elsa og börnin; þau elstu að hverfa úr hreiðrinu en Draupnir bjó áfram hjá móður sinni, sem allt vildi fyrir hann gera. Tíminn leið og báðar fjölskyld- urnar fluttu og lengra varð á milli. Alltaf var samt haft samband eða leitað frétta og fylgst með hvað var að gerast. Börnin stækkuðu, luku sínum prófum og við blasti heimurinn með sínum tækifærum og hættum. Draupnir stundaði sjóinn – harðduglegur og sterkur umfram aðra og þar átti hann trausta félaga. Við vissum samt að Draupni leið ekki alltaf vel og margt hrjáði þennan dugmikla og brosmilda dreng. Okkur fannst fyllilega nóg á hann lagt og ekki síður móður hans. Skyndilega veiktist Draupnir alvarlega og var vart hugað líf. Vinir hans fengu dýrmæta stund til að kveðja og þakka vini sínum og fjölskyldan vék ekki frá dán- arbeði. Yfir móðuna miklu fylgdu hon- um bænir um frið og upprisu í ríki Guðs, eins og kristin trú boðar okkur öllum. Sú trú og einlæg vissa um að á móti honum taki fað- ir hans og aðrir vinir sem á undan eru gengnir léttir sorgina. Elsku Elsa. Við biðjum Guð að styrkja þig og systkini Draupnis, svo og aðra sem syrgja þennan góða dreng. Við þökkum Draupni vináttuna og þann hlýhug sem hann bar til okkar fjölskyldu. Megi algóður Guð blessa og varðveita Draupni okkar um eilífð alla. Kristjana Benediktsdóttir og Níels Árni Lund. Elsku besti vinur, það voru þung skref fyrir okkur félagana að kveðja þig á spítalanum. Minning- arnar sem við eigum með þér eru okkur dýrmætar og þegar við leið- um hugann að þér finnum við fyrir gleði í hjarta og eru minningarnar margar. Það var brallað ansi mikið sam- an og misvitrar hugmyndirnar sem við fengum og framkvæmdum. Það var alltaf svo gott að leita til þín þar sem þú varst svo traustur vinur og stóðst ávallt við bakið á okkur, þú varst algjör demantur. Við vitum að þú ert kominn á góðan stað og hittir hann Árna okkar þar. Söknuðurinn er okkur mikill þar sem góður drengur er farinn frá okkur. Þú munt ávallt lifa í hjörtum okkar. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni (Bubbi Morthens) Hvíldu í friði, elsku Draupnir okkar. 220 að eilífu. Þínir vinir, Orri Freyr, Daníel og Ármann. Elsku vinur minn Draupnir. Það er svo skrýtið að vera að skrifa þessi orð til þín, ég átti ekki von á því að þú myndir hverfa frá svona snemma. Ég hugsa um allar góðu stundirnar sem við áttum saman, fyrst frá því ég var lítill og var að stelast heiman frá mér yfir til þín í næsta botnlanga á Vest- urvanginum. Það var alltaf svo spennandi að fá að koma heim til þín og skoða og leika með allt dótið sem þú áttir. Þú áttir meira af dóti en meðal leikfangaverslun. Ef mömmu og pabba vantaði pössun fyrir mig var það alltaf fyrsta val mitt að fá að fara í pössun til foreldra þinna Elsu og Gests. Hvergi var betra að vera og á ég margar svo góðar minningar alveg frá Vesturvang- inum yfir í Suðurvanginn heim til ykkar. Svo liðu árin og aldursbilið fór að minnka á milli okkar. Ég var ekki lengur Helgi litli og fór þá vinátta okkar að verða sterkari. Ég fann myndir um dag- inn frá því að við vorum saman á Hróarskeldu, mikið var ég glaður yfir að eiga og finna þessar mynd- ir. Við skemmtum okkur svo vel. En núna ertu farinn, elsku vin- ur, og alveg er ég viss um að hann pabbi þinn er búinn að taka vel á móti þér og passar upp á þig. Við eigum eftir að hittast aftur seinna. Elsku Elsa, Siggi, Gestur og Eyrún. Ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Helgi Þór Lund. Draupnir Gestsson ✝ Árni Edwins,fyrrverandi framkvæmdastjóri, fæddist 23. desem- ber 1933. Hann lést á hjúkrunarheim- ilinu Skógarbæ 5. apríl 2018. Hann var sonur hjónanna Edwins Árnasonar, f. 15. júlí 1909, d. 19. febr- úar 1985, og El- ínborgar Kristjánsdóttur, f. 20. maí 1908, d. 1. desember 1978. Árni gekk að eiga Vildísi Kristmannsdóttur Guðmundsson þann 17. nóvember 1956. For- eldrar hennar voru hjónin Krist- mann Guðmundsson rithöf- undur, f. 23. október 1901, d. 20. nóvember 1983, og Ingibjörg maka, Önnu Maríu Jónsdóttur, f. 5. september 1967, eru: a) Ísarr, f. 25. febrúar 1998, b) Vildís, f. 25. júlí 2001. 3) Árni Geir, f. 10. september 1972, gjaldkeri Hús- næðisfélags SEM. Dóttir hans með fyrrverandi maka, Agötu Michele, er Elin, f. 18. febrúar 2010. Árni stundaði nám í Verslun- arskóla Íslands og stutt fram- haldsnám í London. Hann nam einnig píanóleik. Hann stundaði ýmis verslunarstörf og rak fyrir- tækið Sólargluggatjöld um ára- tuga skeið, fyrst í félagi með föð- ur sínum og síðar eiginkonu og sonum. Árni var mikill íþrótta- maður á yngri árum. Hann var félagi í Flugbjörgunarsveit Ís- lands. Hann var einnig virkur fé- lagi í Jöklarannsóknarfélagi Ís- lands um áratuga skeið. Árni verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, 25. apríl 2018, klukkan 13. Guðmundsdóttir, húsfreyja og sauma- kona, f. 8. mars, 1916, d. 9. sept- ember 1968. Synir þeirra Árna eru: 1) Kristmann, f. 18. ágúst 1957, smiður. Sonur Kristmanns með Helgu Sig- urjónsdóttur er Sig- urjón Árni, f. 1. des- ember 1976. Synir hans og fyrrverandi maka, Stellu Kristinsdóttur, f. 4. janúar 1962, eru: a) Viktor, f. 1. júlí 1984, hans barn er Viktoría Stella, f. 19.10. 2016, b) Róbert, f. 21. júlí 1987, c) Benedikt, f. 23. október 1993, d) Arnór, f. 5. mars 1996. 2) Edwin, f. 7. desember 1965, fasteigna- sali. Börn hans og fyrrverandi Addi mágur minn hefur nú haldið til móts við systur mína, sem kvaddi þennan heim fyrir réttum tveimur árum. Þau ár hafa reynst Adda erfið, enda þau hjón búin að haldast í hendur í 60 ár og styðja hvort annað í blíðu og stríðu. Ég var 12 ára þegar þau gengu í hjónaband og æ síðan hef ég átt stoð og styttu og stórabróður- ímynd í Adda. Ungu hjónin stofn- uðu heimili á Lindargötunni og þar var gjarnan fjör og gleði og gaman að koma í heimsókn. Krist- mann litli frændi kom svo í heim- inn níu mánuðum eftir giftinguna og ég fékk stundum að passa hann. Árin liðu og börnin þeirra og mín fæddust og við áttum alltaf mjög góðar samverustundir og ég sem yngri systir naut alltaf hjálp- semi og aðstoðar umfram það sem ég veitti. Ég minnist með ánægju ferða með Adda og Vildísi, m.a. á Arn- arstapa á Snæfellsnesi þar sem við heimsóttum pabba sem þar dvaldi við skriftir og litla Kristmann sem var þar í sveit. Addi var ávallt mjög hjálpsamur og bóngóður og alltaf þegar ég þurfti einhverja að- stoð var hann boðinn og búinn. Ósjaldan fórum við einnig saman að huga að pabba á hans seinni ár- um þegar eitthvað bjátaði á. Í rúm 20 ár áttum við Axel sumarbústað í Húsafelli í næsta nágrenni við Adda og Vildísi og áttum þar góð- ar samverustundir. Það fyrsta sem við gerðum eftir að Vildís dó var að fara í nokkra daga í Húsa- fell með Adda til að jafna okkur. Síðar fórum við tvisvar saman þangað, borðuðum vel og drukk- um eðalrauðvín, en því miður leyfði heilsa Adda ekki að hann færi með okkur þangað síðasta ár- ið sem hann lifði. Í næstsíðasta skiptið sem við hittumst komum við Axel í heim- sókn með litla barnabarnið okkar og Addi hélt í höndina á henni og talaði um hvað það væri gaman að fá heimsókn af svona fallegri lítilli stúlku. Svo fengum við okkur lögg af rauðvíni og Addi sagði „en hvað þetta er gott“ og ljómaði, hló og gerði að gamni sínu. Ég hitti Adda í síðasta skiptið daginn sem hann dó og náðum við Ninja systir mín að kveðja á meðan hann hafði nokkra meðvitund, en ljóst var að aðeins nokkrar klukkustundir voru í brottför hans úr jarðlífinu. Það var falleg stund sem ég þakka fyrir. Við Axel kveðjum Adda mág minn og biðjum fjölskyldu hans blessunar. Hrefna Kristmannsdóttir. Árni Edwins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.