Morgunblaðið - 25.04.2018, Síða 2
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Dekkjaverkstæði Mikið var að
gera á verkstæðum í gær við hjól-
barðaskipti, enda komið sumar.
Mikið annríki hefur verið á dekkja-
verkstæðum síðustu daga enda er
orðið tímabært fyrir bílstjóra að láta
skipta yfir á sumardekkin. Lögum
samkvæmt eiga allir bílar að vera
komnir af vetrardekkjunum 15. apríl
en jafnan er veittur nokkurra daga
frestur til að skipta yfir. Það getur
til dæmis átt við úti á landi, en þar
getur verið allra veðra von langt
fram á vorið – og stundum hreinlega
vetrarfæri eins og verið hefur austur
á landi síðustu daga.
Hinn 1. maí tekur gildi ný reglu-
gerð og samkvæmt henni hækka
sektir fyrir umferðarlagabrot veru-
lega. Í dag þurfa ökumenn bíla sem
eru á nagladekkjum að sumri að
greiða 5.000 krónur í sekt fyrir
hvern hjólbarða, en frá mánaða-
mótunum verður upphæð þessi
20.000 krónur.
„Ég finn á ökumönnum að þeir
vilja ekki lenda í vandræðum vegna
hærri sekta. Sekt upp á alls 80 þús-
und krónur fyrir að vera á negldum
dekkjum eftir að fresturinn er úti er
ansi há upphæð, þú færð nýjan
dekkjaumgang fyrir þann pening,“
sagði Ásgrímur Stefán Reisenhus á
verkstæði N1 á Réttarhálsi í
Reykjavík í samtali við Morgun-
blaðið. Þar og á öðrum verkstæðum
hefur verið mikið að gera síðustu
daga og oft nokkur bið eftir þjón-
ustu. sbs@mbl.is
Hækkun
sekta ýtir
á ökumenn
Annríki á hjól-
barðaverkstæðum
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Finna ekki samningsvilja
Ljósmæðrafélag Íslands og samninganefnd ríkisins funda á fimmtudaginn
Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, formað-
ur kjaranefndar Ljósmæðrafélags
Íslands, segist ekki finna fyrir
samningsvilja frá samninganefnd
ríkisins í yfirstandandi kjaradeilu
félagsins. „Við höfum ekki fengið
neitt nýtt frá samninganefnd rík-
isins og manni finnst maður ekki
einu sinni hafa fundið fyrir samn-
ingsvilja,“ segir Katrín í samtali við
mbl.is. Samninganefnd ríkisins hef-
ur boðað Ljósmæðrafélagið á fund
klukkan 9:00 á fimmtudaginn í húsa-
kynnum ríkissáttasemjara en ekk-
ert hefur verið fundað síðan á
mánudaginn fyrir viku. „Fundurinn
með samninganefnd ríkisins á
fimmtudaginn er það eina sem er í
gangi, því miður,“ segir Katrín.
Aðspurð segir hún að fulltrúar
ljósmæðra mæti til fundarins, sem
boðaður er af ríkissáttasemjara, í
von um að einhver skref verði tekin
þar í þá átt að finna lausn á kjara-
deilunni en hún er ekki bjartsýn.
„Ekki miðað við það sem á undan
er gengið og vanvirðinguna sem hef-
ur verið hingað til við þau störf sem
við sinnum, þá reynir maður að gera
sér ekki of miklar vonir en manni
hættir auðvitað til að gera það og
verða síðan fyrir sömu vonbrigðun-
um. Við förum hins vegar vitanlega
á fundinn í þeirri von að það komi
fram einhver samningsvilji og virð-
ingarvottur við okkar störf. Það er
ótrúlegt hvað þetta hefur gengið
langt án þess að okkur sé einu sinni
sýnd sú virðing að veita okkur al-
mennilegt samtal.“
Allar 95 ljósmæður í heimaþjón-
ustu lögðu niður störf í fyrradag og
munu ekki mæta til starfa aftur fyrr
en nýr samningur verður undirrit-
aður. „Staðan hjá okkur er sú
sama,“ segir Ellen Bára Valgerð-
ardóttir, ljósmóðir á Landspítala og
sjálfstætt starfandi ljósmóðir í
heimaþjónustu. „Það er enga heima-
þjónustu að fá og við vitum ekki
hvort eða hvað er að gerast hjá
stjórnvöldum,“ segir Ellen og bætir
við að hjúkrunarfræðingar í heima-
þjónustu geti ekki gengið í öll störf
ljósmæðranna. „Þær geta kannski
tekið að sér að vigta nýburana og
tekið blóðprufu úr hælnum á þeim
en öðru geta þær ekki sinnt. Þær
vinna þá bara undir heilsugæslu,
fara á dagvinnutíma og geta ekki
sinnt þessum fjölskyldum fyrir utan
það eins og við gerum, um kvöld,
helgar og jafnvel á nóttunni.“
mhj@mbl.is
Karlmaður, sem sóttur var af þyrlu frá Land-
helgisgæslunni í Heimaklett í Vestmannaeyjum
snemma í gærkvöldi eftir að hann hneig með-
vitundarlaus niður, er látinn. Þetta staðfesti
lögreglan í Eyjum, í samtali við Morgunblaðið.
Endurlífgunartilraunir voru gerðar á mann-
inum á staðnum en þær reyndust árangurs-
lausar. Maðurinn var svo fluttur á sjúkrahúsið í
Vestmannaeyjum þar sem hann var úrskurð-
aður látinn. Þyrlunni var lent á syllu í Heima-
kletti en þannig varð aðkoman auðveldust.
Maðurinn var í gönguferð með fleira fólki
þegar hann hneig niður. Ekki er hægt að
greina frá nafni hins látna, sem var heimamað-
ur í Eyjum.
Lést í göngu á Heimakletti í Eyjum
Fjölmenni var á svonefndu Há-
fjallakvöldi sem Vinir Vatnajökuls
og Ferðafélag Íslands stóðu fyrir í
gærkvöldi í Háskólabíói í samvinnu
við Félag íslenskra fjallalækna.
„Vatnajökull er undraveröld,“ segir
Tómas Guðbjartsson hjartaskurð-
læknir sem með Ólafi Má Björnssyni
sýndi myndir úr Vatnajökuls-
þjóðgarði, svo sem úr Vonarskarði,
af Hvannadalshnjúki og Snæfelli. Þá
sýndi Ragnar Axelsson ljósmyndari
Morgunblaðsins myndir af Vatna-
jökli, en hann vinnur nú að ljós-
myndabók um jökla og saman hafa
þeir Tómas farið víða um Vatnajök-
ulsslóðir.
Margt hefur að undanförnu sett
Vatnajökul í kastljós athyglinnar.
Má þar nefna hræringar í Öræfajökli
og Bárðarbungu og umsókn um
skráningu Vatnajökulsþjóðgarðs á
heimsminjaskrá UNESCO. Þykir
svæðið eiga þangað fullt erindi, enda
er jarðfræði þess einstök, eins og
fram kom í máli Magnúsar Tuma
Guðmundssonar jarðeðlisfræðings
sem talaði á Háfjallakvöldi.
Frásagnir úr einstökum undraheimi
Morgunblaðið/Eggert
Fundað var í gærkvöldi í kjaradeilu
flugvirkja hjá Landhelgisgæslunni
og samninganefndar ríkisins, hjá
ríkissáttasemjara. Ef ekki semst
átti vinnustöðvun flugvirkjanna að
hefjst kl. 7:30 nú í morgun. „Þetta
er ekki búið og við eigum eftir að
sitja hér eitthvað áfram,“ sagði
Gunnar Rúnar Jónson, talsmaður
flugvirkja, í samtali við Morg-
unblaðið á ellefta tímanum.
„Við erum vel settir í augnablik-
inu því þyrlan sem við höfum til-
tæka núna í útköll er í góðu standi
og flugvirki í áhöfn má sinna ýmsu
minniháttar viðhaldi á þyrlunum þó
komi til vinnustöðvunar,“ segir
Auðunn Kristinsson, verkefnisstjóri
aðgerðasviðs hjá LHG. „Það segir
sig hins vegar sjálft að við lendum
fljótt í vandræðum komi til vinnu-
stöðvunar og því vona ég að menn
nái samningum. Ef ekki þurfum við
að bregðast við með einhverju móti,
svo við getum sinnt okkar skyld-
um.“ sbs@mbl.is
Fundað stíft í kjara-
deilu flugvirkja hjá
Landhelgisgæslu