Morgunblaðið - 25.04.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2018
Sigurður Ingólfsson, fram-kvæmdastjóri verkfræðistof-
unnar Hannars, benti hér í blaðinu
í gær á áhugaverðar tölur um þró-
un íbúðabygginga í Reykjavík.
Sigurður skrif-aði: „Árið 2007
voru íbúðir í
Reykjavík 49.190
og árið 2017 voru
þær 52.115, sam-
kvæmt Þjóðskrá.
Sem hlutfalli af
heildarfjölda íbúða
á landinu hafði þeim fækkað í
Reykjavík úr 39,1% í 37,7% á þess-
um árum. Hefði hlutfallið haldist
óbreytt þá væru nú tæplega 5.000
fleiri íbúðir í Reykjavík. Þetta
slagar hátt upp í þann íbúðafjölda
sem við [verkfræðistofan Hannar]
teljum skortinn vera í heild í land-
inu.
Þetta hlutfall var um 42% framað aldamótunum síðustu og ef
miðað er við það hlutfall þá ættu
íbúðir í Reykjavík að vera 6.500
fleiri og væri þá íbúðaskorturinn
enginn í landinu.“
Af þessu má draga þá ályktun aðsú stefna vinstri meirihlutans
í Reykjavík að draga úr uppbygg-
ingu Reykjavíkur, keyra upp lóða-
verð og takmarka lóðaframboð ut-
an þéttingarsvæða, skýri að öllu
leyti íbúðaskort og hátt húsnæð-
isverð.
Ef Reykjavík hefði haldið uppieðlilegu framboði á lóðum
væru borgarbúar og nærsveit-
armenn, einkum þeir sem yngri
eru, ekki í þeirri stöðu sem nú blas-
ir við.
En þýðir þetta að borgarstjórn-armeirihlutinn ætlar að
breyta um stefnu? Nei, hann boðar
meira af því sama.
Sigurður
Ingólfsson
Áhugaverðar tölur
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 24.4., kl. 18.00
Reykjavík 7 rigning
Bolungarvík 0 skýjað
Akureyri 1 alskýjað
Nuuk -3 snjókoma
Þórshöfn 7 léttskýjað
Ósló 8 skýjað
Kaupmannahöfn 11 skýjað
Stokkhólmur 12 skýjað
Helsinki 8 skýjað
Lúxemborg 18 heiðskírt
Brussel 15 heiðskírt
Dublin 10 skýjað
Glasgow 11 rigning
London 13 súld
París 20 heiðskírt
Amsterdam 11 súld
Hamborg 12 léttskýjað
Berlín 14 léttskýjað
Vín 23 heiðskírt
Moskva 11 heiðskírt
Algarve 20 heiðskírt
Madríd 24 heiðskírt
Barcelona 22 heiðskírt
Mallorca 23 heiðskírt
Róm 22 heiðskírt
Aþena 25 heiðskírt
Winnipeg 3 heiðskírt
Montreal 16 skýjað
New York 8 heiðskírt
Chicago 10 léttskýjað
Orlando 24 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
25. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:20 21:32
ÍSAFJÖRÐUR 5:12 21:50
SIGLUFJÖRÐUR 4:55 21:34
DJÚPIVOGUR 4:47 21:05
Atvinna
Framboð Frambjóðendur Héraðs-
listans á Fljótsdalshéraði.
Steinar Ingi Þorsteinsson fram-
kvæmdastjóri leiðir framboðslista
Samtaka félagshyggjufólks á Fljóts-
dalshéraði - Héraðslistann, fyrir
sveitarstjórnarkosningarnar í maí.
Í öðru sæti er Kristjana Sigurðar-
dóttir verkefnastjóri og í þriðja sæti
Björg Björnsdóttir mannauðsstjóri.
Aðalsteinn Ásmundarson vélsmiður
er í 4. sæti og Sigrún Blöndal, grunn-
skólakennari og bæjarfulltrúi, er í 5,
sæti.
Héraðslistinn fékk tvo bæjarfull-
trúa kjörna af 9 í síðustu kosningum
og myndaði meirihluta með D- og Á-
lista. Í tilkynningu frá framboðinu
segir að mikil endurnýjun sé á listan-
um nú og ungt fólk sé áberandi.
Áhersla sé lögð á áframhaldandi
ábyrga fjármálastjórn, að opna
stjórnsýslu sveitarfélagsins og ein-
falda og starfa af heilum hug að sam-
starfi og sameiningu sveitarfélaga á
Austurlandi.
Endurnýjun hjá Héraðslistanum
Ingþór Guðmunds-
son, stöðvarstjóri
og forseti bæjar-
stjórnar Sveitarfé-
lagsins Voga, leiðir
lista framboðs-
félags E-listans
fyrir sveitarstjórn-
arkosningarnar í
maí.
Í öðru sæti er
Bergur B. Álfþórsson, leiðsögumaður
og formaður bæjarráðs, í þriðja sæti
Áshildur Linnet verkefnastjóri, Birg-
ir Örn Ólafsson, deildarstjóri og bæj-
arfulltrúi, er í 4. sæti og Inga Rut
Hlöðversdóttir, gull- og silfursmíða-
meistari og bæjarfulltrúi, í 5. sæti.
Sjö bæjarfulltrúar eru í Vogum og
fékk E-listinn fjóra fulltrúa og hrein-
an meirihluta í kosningunum árið
2014. Ingþór segir í tilkynningu að
mikilvægt sé að halda áfram upp-
byggingarstarfinu í bæjarfélaginu. E-
listinn vilji halda því góða starfi áfram
til heilla fyrir alla íbúa í Vogum.
Ingþór leiðir framboð E-lista í Vogum
Ingþór
Guðmundsson
2018
Óli Halldórsson, for-
maður byggðarráðs
Norðurþings, leiðir
framboð V-lista
Vinstri grænna og
óháðra í Norðurþingi
fyrir sveitarstjórn-
arkosningarnar í maí.
Í öðru sæti er Kol-
brún Ada Gunn-
arsdóttir, kennari og
deildarstjóri, Berglind Hauksdóttir
leikskólakennari er í þriðja sæti, Sif
Jóhannesdóttir, þjóðfræðingur og
sveitarstjórnarmaður, í fjórða sæti
og Guðmundur H. Halldórsson mál-
arameistari er í 5. sæti.
Í tilkynningu segir að V-listi hafi
nokkra sérstöðu meðal annarra
framboða í Norðurþingi og víðar að
því leyti að konur séu þar í afgerandi
meirihluta. Með þessu vilji V-listinn
sýna í verki að tímbært sé að auka
hlut kvenna í sveitarstjórnarmálum
og draga fram þau áherslumál sem
konum séu hugleikin í almannaþjón-
ustu og forgangsröðun almennt.
Óli efstur á V-lista í Norðurþingi
Í framboði Frambjóðendur V-listans í Norðurþingi.
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratuga
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Einnig mikið úrval varahluta
í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum,
ásamt úrvals viðgerðarþjónustu.
Kerrur
frá Ifor Williams
í öllum stærðum
og útfærslum