Morgunblaðið - 25.04.2018, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2018
13:00
13:05 - 13:15
13:15 - 13:25
13:25 - 14:10
14:10 - 14: 25
14:25 - 14:40
14:40 - 14:55
14:55 - 15:15
15:15 - 15:45
15:45 - 16:00
16:00 - 16:15
16:15 - 16:30
16:30 - 16:45
16:45 - 17:00
Setning ráðstefnunnar
Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður SLFÍ
Ávarp
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra
Ávarp
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
Future care - Quality Reform for the elderly
Line Miriam Sandberg, ráðuneytisstjóri í nýju ráðuneyti Norðmanna
sem sinnir öldruðum og lýðheilsu
Hver er stefna Dana og Svía í öldrunarþjónustu?
Hanna Lára Steinsson, félagsráðgjafi
Að hvaða marki er til mótuð stefna í öldrunarmálum á Íslandi?
Hver mótar stefnuna?
Bryndís Þorvaldsdóttir, sérfræðingur í Velferðarráðuneyti.
Kynning á stefnu Velferðarráðs Reykjavíkurborgar
Elín Oddný Sigurðardóttir formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar
Kaffi
Er stefnu fylgt? Hver hefur eftirlit? og hver veitir aðhald?
Laura Sch. Thorsteinsson Embætti landlæknis
Mikilvægt úrræði í þjónustu við eldra fólk? Öldrunargeðdeild
Pálmi V. Jónsson, öldrunarlæknir
Er þörf á sértækri líknardeild fyrir aldraðra?
Ólafur Samúelsson, öldrunarlæknir
Er heima best?
Margrét Guðnadóttir, hjúkrunarfræðingur og doktorsnemi og
Guðmunda Steingrímsdóttir, sjúkraliði með sérnám í hjúkrun aldraðra
Samantekt
Ögmundur Jónasson
Ráðstefnuslit
Þórdís S. Hannesdóttir, formaður sérdeildar Sjúkraliðafélags Íslands
Dagskrá
Icelandair Hótel Natura
fimmtudaginn 26. apríl kl. 13.00 – 17.00
Ráðstefnustjóri Ögmundur Jónasson
Ráðstefna
á vegum Sjúkraliðafélags Íslands um
réttindi aldraðra með áherslu á þjónustu
Kópavogsbær ætlar að reisa sam-
rekinn leik- og grunnskóla upp í
4. bekk við Skólagerði í Kópavogi
í staðinn fyrir skólabyggingu
Kársnesskóla sem þar hefur staðið
allt frá árinu 1957. Til stendur að
rífa bygginguna sem þar stendur
eftir að mikil mygla fannst í byrj-
un árs 2017. Ákvörðun um niður-
rif var tekin í ágúst í fyrra.
Á vef Kópavogsbæjar kemur
fram að hönnun og bygging verði
boðin út á næstu vikum.
„Starfshópur skipaður fulltrú-
um nemenda, skólans, stjórnsýsl-
unnar og flokka í bæjarstjórn
Kópavogs leggur til að ný bygg-
ing verði sveigjanleg þannig að
hægt verði að breyta húsnæðinu
með fyrirhafnarlitlum hætti í takt
við breytingar á starfinu. Þá taki
hönnun byggingarinnar mið af
áherslu á útinám og auðvelt sé að
byggja við hana ef íbúaþróun á
Kársnesi kallar á það. Hópurinn
var við störf í vetur og skilaði af
sér skýrslu sem höfð verður til
hliðsjónar við útboð verksins,“
segir enn fremur á vef bæjarfé-
lagsins.
Niðurrif líklegast í haust
Kópavogsbær tekur einnig fram
að ekki liggi fyrir nákvæmlega
hvenær gamli skólinn verði rifinn
en stefnt sé að því að fara í niður-
rif eftir sumarið og verður því
lokið í september. Þá segir að
Kársnesskóli standi fyrir kveðju-
athöfn við gamla skólahúsið í
tengslum við vorhátíð skólans 5.
júní.
Leik- og grunnskóli saman
Morgunblaðið/Eggert
Kárnesskóli Niðurrif gamla Kársnesskóla verður lokið í september.
Kópavogsbær kynnir áætlanir fyrir nýjan Kársnsesskóla
Héraðsdómari í
Amsterdam mun í
dag taka ákvörðun
um hvort Sindri
Þór Stefánsson,
fanginn sem strauk
úr fangelsinu að
Sogni, verður úr-
skurðaður í gæslu-
varðhald í 19 daga
til viðbótar. Sindri
var úrskurðaður í
sólarhrings gæsluvarðhald í gær.
Franklin Wattimena, fjölmiðlafulltrúi
héraðssaksóknaraembættisins í
Amsterdam, staðfesti við mbl.is að
Sindri Þór hefði verið handtekin í
kjölfar ábendingar vegfarenda. Hafði
einstaklingur tekið mynd á símann
sinn af Sindra úti á götu í miðborg
Amsterdam og farið á næstu lög-
reglustöð.Tveir lögregluþjónar voru
sendir til þess að leita að Sindra og
fannst hann í miðborginni þar sem
hann var handtekinn.
Sindri Þór fyr-
ir hollenskan
dómara í dag
Sindri Þór
Stefánsson
Sigríður Andersen dómsmálaráð-
herra mun leggja áherslu á að fram-
lög vegna sálfræðinga og félags-
fræðinga í fullnustukerfinu verði
aukin. „Nauðsynlegt sé að efla þessa
þjónustu við fanga til að stuðla að
markmiði laga um fullnustu refsinga
um að draga úr líkum á ítrekun
brota og stuðla að farsælli aðlögun
dómþola að samfélaginu“.
Þetta kemur fram í svari við
spurningu mbl.is um hvort fjár-
framlög til fangelsismála verði auk-
in á næstunni. Dómsmálaráðuneytið
tilkynnti að fjárframlög til fangles-
ismála yrðu aukin á næstunni. Meðal
annars til þess að hægt yrði að full-
nýta fangelsið á Hólmsheiði og
koma á aukinni aðstoð við fanga, svo
sem sálfræðiþjónustu. Gert er ráð
fyrir óskiptu framlagi til löggæslu,
landhelgisgæslu, fangelsismála o.fl.
upp á 7,5 milljarða króna á árunum
2019-2023 en útfærsla og frekari
ráðstöfun þess fjár verður mótuð í
fjárlögum næsta árs.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hólmsheiði Fangelsið á að vera
fullnýtt og auka á þjónustu.
Auka sál-
fræðiþjón-
ustu fanga
Fjárframlög
aukast samhliða