Morgunblaðið - 25.04.2018, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2018
WOW air fékk í gær afhenta glænýja
farþegaþotu af gerðinni Airbus
A321ceo, en vélinni var flogið hingað
til lands beint frá verksmiðju Airbus
í Hamborg í Þýskalandi. Skömmu
áður en þotan lenti í Keflavík var
henni flogið yfir höfuðborgarsvæðið
og fer hún, samkvæmt upplýsingum
frá félaginu, strax í áætlunarflug. Er
þetta 19. farþegaþota félagsins.
Í nýju vélinni, sem ber einkennis-
stafina TF-DOG, má finna 208 sæti
fyrir farþega og þar af eru átta svo-
kölluð „big seat“, en þau sæti eru
breiðari og njóta þeir sem þar sitja
einnig meira sætabils. Vélinni er ætl-
að að fljúga til áfangastaða WOW air
í Evrópu og Bandaríkjunum.
„Við tökum spennt á móti þessari
nýju viðbót í flota WOW air. Það er
ánægjulegt að geta boðið farþegum
okkar upp á nýjasta flugflotann á Ís-
landi og á sama tíma haldið áfram að
lækka flugverð,“ er haft eftir Skúla
Mogensen, stofnanda og forstjóra
WOW air, í tilkynningu.
Breiðþotur á leiðinni
Í gær birti Airbus ljósmynd af
fyrstu A330-900neo-breiðþotu WOW
air, en félagið hefur gengið frá kaup-
um á fjórum slíkum vélum. Er breið-
þotan nú stödd í verksmiðju Airbus í
Toulouse í Frakklandi og komin í
einkennisliti WOW air. Hún verður
afhent síðar á þessu ári.
WOW air á í dag þrjár breiðþotur
af gerðinni A330 og kom sú fyrsta
hingað til lands árið 2016. A330-
900neo-breiðþoturnar verða með
Trent 7000-hreyflum frá Rolls-
Royce og eiga þeir að gera þoturnar
um 14% sparneytnari en venjulegar
A330-vélar.
Í lok þessa árs verða alls 24 Air-
bus-farþegaþotur í flugflota WOW
air, sem er einn sá yngsti sem þekk-
ist í heiminum, en meðalaldur flug-
véla félagsins er 2,9 ár. khj@mbl.is
Ljósmynd/Airbus
Risi Breiðþotan, sem stödd er í verksmiðju Airbus, er nú komin í liti WOW air. Kemur hún hingað síðar á árinu.
Fjölgar í flotanum
Glæný Airbus A321ceo kom til landsins í gær Ný A330-
900neo-breiðþota komin í liti WOW air 24 vélar í lok árs
Ljósmynd/WOW air
Skömmu fyrir heimferð Á myndinni eru þeir Einar Valur Bárðarson flug-
stjóri, Már Þórarinsson tæknistjóri og Reynald Hinriksson flugmaður.
Guerlain kynning í Snyrtivöruversluninni
Glæsibæ 25.–28. apríl
Við kynnum til leiks nýtt sólarpúður frá Guerlain, TERRACOTTA LIGHT.
Sólkysst húð með heilbrigðum ljóma.
Guerlain-sérfræðingur verður á staðnum
og aðstoðar þig við að finna þinn fullkomna lit.
20%
afsláttur
af öllum vörum
frá Guerlain
kristalhofid.is • dancecenter.is
Sumarið er tíminn!
Upplifðu DansGleðina!
Öll skráning fer fram á
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast með því að senda tölvupóst á
kristalhofid@gmail.com eða í síma 777 3658
Fylgstu með okkur á Facebook!
dancecenter.reykjavik kristalhofid
VORnámskeið 30.
apríl
& Sumarnámskeið
11. júní!
FjölListanámskeið
:
Fagfólkmeð árala
nga reynslu.
Commercial Hip h
op
DívuDansGleði!
Colombian Rhythm
s
BollyWoodFitness
DanzaModerna
Mæðgina- & feðg
inaDansGleði!
ZumbaGold 60+
dancecenter.felog.is
Takmarkaður fjöldi!
KRISTALHOFIÐ
Háteigsvegi 27-29
105 RVK
Gengið var frá samkomulagi í gær
um breytingar á kjarasamningi Al-
þýðusambands Íslands og Samtaka
atvinnulífsins um lífeyrismál frá 12.
desember 1995. Samningurinn á
uppruna sinn í samkomulagi frá
árinu 1969.
Í samkomulaginu felst breyting á
stjórnkerfiskafla kjarasamningsins
sem fjallar um ársfundi, fulltrúaráð
og stjórnir lífeyrissjóðanna á samn-
ingssviði aðila, auk skipan formlegs
samráðsvettvangs samningsaðila um
lífeyrismál.
Helstu nýmæli samkomulagsins
varða skipan og samsetningu stjórn-
armanna, uppstillingarnefndir til-
nefningaraðila, hámarkssetu í
stjórn, hæfisreglur og hagsmuna-
árekstur.
Þá var einnig undirritaður kjara-
samningur um lífeyrismál milli VR
annars vegar og Samtaka atvinnu-
lífsins og Félags atvinnurekenda
hins vegar, sem lýtur einvörðungu
að Lífeyrissjóði verzlunarmanna
(LÍVE) og kemur í stað kjarasamn-
ings aðila frá 30. desember 1996.
Samningurinn er samhljóða kjara-
samningi ASÍ og SA að öðru leyti en
því að að stjórn LÍVE skal skipuð
átta fulltrúum sem skipaðir eru til
tveggja eða fjögurra ára í senn að
vali hvers samningsaðila. VR skipar
fjóra, Samtök atvinnulífsins þrjá og
Félag atvinnurekenda einn.
Samkomulag
um lífeyrismál
Uppruni samkomulags frá 1969
Lífeyrismál Halldór B. Þorbergs-
son frá SA og Gylfi Arnbjörnsson
frá ASÍ undirrita samkomulagið.