Morgunblaðið - 25.04.2018, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2018
Líffræðingurinn Hrafnhildur á náttúruverndarsvæði fyrir Kempur-eðlur, en þar ganga þær frjálsar.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég vildi fá smá menning-arsjokk og mig langaðitil að fara í algerleganýtt umhverfi, svo þessi
heimshluti hentaði vel,“ segir líf-
fræðingurinn Hrafnhildur Agnars-
dóttir, sem er nýkomin heim úr sjö
vikna ferðalagi til Mið-Ameríku þar
sem hún dvaldi í Kosta Ríka og
Hondúras.
„Fyrstu vikuna slakaði ég á í
strandbænum Jaco í Kosta Ríka, en
síðan hélt ég til fjalla til að starfa
sem sjálfboðaliði á kaffibýli í tvær
vikur. Að því loknu skellti ég mér til
Hondúras í fjórar vikur, í heimsókn
til frænku minnar sem þar býr.“
Hrafnhildur segist hafa viljað
ferðast ein til að geta haft hlutina
algerlega eftir sínu höfði.
„Ég hef aldrei áður ferðast
svona lengi ein og mér fannst
áhugavert að takast á við þessa ein-
veru. Ég er líka á ákveðnum tíma-
mótum í lífinu, ég er að fara í meist-
aranám í lífupplýsingafræði í haust
til Danmerkur, svo það er nokkuð
stór pakki framundan hjá mér. Mig
langaði í þessu ferðalagi að fara í
sjálfsskoðun, eins klisjulega og það
hljómar. Og ég komst að ýmsu um
sjálfa mig. Ég var meðvitað að
reyna að fara út fyrir þæginda-
rammann.“
Hrafnhildur segist ekkert hafa
vitað út í hvað hún væri að fara
þegar hún skráði sig hjá sjálf-
boðaliðasamtökunum IVHQ.
„Þar er hægt að velja ólíka
flokka og lönd og ég skráði mig í
vistfræði og umhverfisvernd, enda
tengist það mínu fagi. Mig langaði
til Kosta Ríka af því ég hafði heyrt
margt gott um það land, en þarna
er líka líffræðilega mesta fjöl-
breytni í náttúrunni í heiminum, og
það heillaði mig. Ég ætlaði upp-
haflega í skjaldbökubjörgunarstörf,
en það var ekki í boði í tvær vikur,
svo ég skellti mér til kaffibónda,“
segir Hrafnhildur sem náði svo
mikilli slökun í strandbænum Jaco
að hún gleymdi að taka vegabréfið
Nú á ég erfitt með
að drekka vont kaffi
„Ég fór ekki í þessa ferð til að djamma og ég vildi ekki vera í einhverjum lúxus, ég
vildi hafa þetta hrátt og frumstætt. Ég er af þeirri kynslóð þar sem samfélags-
miðlar stjórna lífi manns og mig langaði til að kúpla mig út úr því. Netsamband
var sem betur fer takmarkað svo ég lagðist í bóklestur, hafði loksins tíma til að
lesa bækur sem mig hafði lengi langað að lesa, en aldrei gefið mér tíma,“ segir
Hrafnhildur Agnarsdóttir sem gerðist kaffibóndi um hríð og skoðaði undirdjúpin.
Ó, blessuð birtan og hlýnandi dagar
sem bera með sér meira líf utandyra.
Þá fara krakkar gjarnan af stað með
einkaframtak sitt, tombólurnar, þar
sem þau koma sér fyrir með teppi
nánast hvar sem þeim dettur í hug,
og bjóða fólki að kaupa allskonar dót-
arí fyrir smápening. Og safna í leið-
inni fyrir góðu málefni. Borgarbóka-
safnið mætti þessum skemmtilega
tombóludugnaði barna í fyrra með
því að opna söfn sín fyrir þeim og
bjóða þeim að vera þar með tombólur
og safna fyrir Róhingja. Þetta tókst
vel og því var ákveðið að endurtaka
leikinn, en núna er ætlunin að safna
fyrir Rauða krossinn. Næstkomandi
laugardag, 28. apríl, er öllum börnum
boðið að koma og halda tombólu á
bókasöfnunum. Þeir sem hafa áhuga
þurfa að skrá sig í viðeigandi bóka-
safni á heimasíðu: bokasafn.is og þá
útvegar safnið aðstöðu innandyra og
sér um undirbúning, en krakkarnir
koma með tombóluhluti. Tomból-
urnar verða kl. 13-15 í Grófinni,
Spönginni, Gerðubergi og Kringlunni,
en kl. 12-14 í Sólheimum. Allur ágóði
rennur til Rauða krossins. Vert er að
hvetja krakka til að taka þátt og fólk
á öllum aldri til að mæta og kaupa af
krökkunum.
Börnum boðið að halda tombólur á bókasöfnum á laugardag
Morgunblaðið/Eggert
Tombóla Þessar stúlkur, Freyja Guðrún Mikelsdóttir og Ísabella Ronja Bene-
diktsdóttir, söfnuðu fyrir Rauða krossinn með tombólu árið 2011. Þær buðu
m.a. tígrísdýr, Barbí, nashyrning, strigaskó og stígvél til sölu fyrir vegfarendur.
Tombólukrakkar fara á stjá
„Í Gróttu er brimasöm klettafjara sem
býður upp á fjölbreytilegt dýra-, fugla-
og plöntulíf. Við erum svo heppin að
vera að fara í þessa ferð á stór-
straumsfjöru og þá er enn meiri fjöl-
breytileiki sem kemur í ljós,“ segir
Hildur Magnúsdóttir, doktorsnemi við
líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla
Íslands, en hún ætlar að leiða göngu
um Gróttu nk. laugardag, 28. apríl.
Hildur mun segja göngufólki frá líf-
verum sjávarins og fjörunnar. Gangan
er í röðinni „Með fróðleik í fararnesti“
sem fór af stað 2011. Um er að ræða
samstarfsverkefni Háskóla Íslands og
Ferðafélags Íslands og er áherslan á
að uppfræða börn og ungmenni í
þessum gönguferðum. Ferðafélag
barnanna, sproti innan FÍ, sér um
framkvæmd göngunnar með Háskóla
Íslands. Í tilkynningu kemur fram að
varptími sé í nánd og því síðustu for-
vöð að fara í Gróttu þetta vorið því
svæðið er lokað fyrir mannaumferð
frá 1. maí fram í miðjan júlí.
Mæting er kl. 10:30 á bílastæðinu
við Gróttu á Seltjarnarnesi. Hér er
gullið tækifæri á góðri skemmtun fyrir
alla fjölskylduna. Þátttaka er ókeypis
og allir velkomnir.
Fjölskylduvæn fjöruferð næsta laugardag: Með fróðleik í fararnesti
Lífverur sjávar
og fjörunnar
skoðaðar
Morgunblaðið/Eggert
Gaman Þessir krakkar skemmtu sér vel í fjöruferð fyrir nokkrum árum.
Á morgun 26. apríl gefur Pósturinn út þrjú frímerki til
að minnast merkisafmæla þ.e. 50 ára afmælis Norræna
hússins, 100 ára kaupstaðarafmælis Siglufjarðarbæjar og
250 ára dánarafmælis Eggerts Ólafssonar. Einnig koma
út ferðamannafrímerki og frímerki tileinkuð íslensku
húsdýrunum og þátttöku Íslands á HM í fótbolta í sumar,
en frímerkið er óður til stuðningsmanna landsliðsins og
víkingaklappsins. Þá kemur út smáörk í tilefni norrænnar
frímerkjasýningar, Nordia 2018, sem haldin verður í
íþróttamiðstöðinni Mýrinni í Garðabæ 8.-10. júní n.k.
Fyrstadagsumslög fást á helstu pósthúsum.
Einnig er hægt að panta þau hjá
Frímerkjasölunni. Sími: 580 1050.
Netfang: stamps@stamps.is
Heimasíða: www.stamps.is
facebook.com/icelandicstamps
Safnaðu litlum listaverkum