Morgunblaðið - 25.04.2018, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2018
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Eftir rúmlega 30 daga siglingu lögð-
ust nýju togararnir Páll Pálsson ÍS
og Breki VE að bryggju á Valetta á
Möltu í gærmorgun. Þar átti að taka
vatn, vistir og olíu og var reiknað
með að skipin legðu aftur af stað síð-
degis í gær. „Við erum ekki hérna til
að fara í frí þótt það sé 25 stiga hiti
og fallegt. Við erum í vinnunni og
höldum áfram seinni partinn,“ sagði
Páll Halldórsson, skipstjóri á Páli,
um hádegi í gær.
Systurskipin lögðu af stað frá
borginni Shidaho í Rongcheng-
héraði í Kína 22. mars áleiðis til Ís-
lands. Vistir, olía og vopnaðir örygg-
isverðir voru tekin í Colombo, en þar
var ekki farið upp að bryggju. Sigl-
ingin hefur gengið vel að sögn Páls
og eru skipin eitthvað á undan áætl-
un. Miðað hefði verið við að sigla á
11 sjómílum, en oft hefði hraðinn
verið meiri.
„Það þarf lítið afl til að rúlla þess-
um bátum á 12 mílum,“ segir Páll.
Spurður hvort þeir séu ekki frekir á
olíu þegar siglt er á 12 mílum svarar
hann: „Þeir eru algerir sparibaukar
þessir bátar.“
Menn þekkja langa útiveru
Páll lætur vel af nýja skipinu og
segir að siglt hafi verið í góðu veðri
til þessa og skipið hafi varla hreyfst.
Ferðin í gegnum Súes áður en komið
var inn í Miðjarðarhafið hafi gengið
vel. Páll gerir ekki mikið úr því að
sums staðar hafi þurft að borga
aukalega með kartonum af sígar-
ettum og menn hafi verið búnir und-
ir það. „Er það ekki bara reglan hjá
öllum sem fara um skurðinn að þurfa
að borga eitthvað aukalega fyrir
þjónustuna, án þess að það þurfi að
ræða það eitthvað sérstaklega?“
Hann segir að andrúmsloftið um
borð sé gott og menn vinni sína 12
tíma á sólarhring. Margir hafi verið
á frystiskipum og þekki langa úti-
veru. Hann segist vona að systur-
skipin verði komin heim viku af maí,
en það fari eðlilega eftir veðri þegar
Miðjarðarhafið verður að baki og
komið verður út á Atlantshafið.
„Algerir sparibaukar“
Nýju togararnir
á Möltu Tóku
vatn, vistir og olíu
Á heimleið Systurskipin Páll Pálsson og Breki lögðu af stað frá Kína 23. mars.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Hvalfjarðargöngin verða lokuð í
fimm nætur í þessari viku. Þetta er
óvenju langur tími því auk vorhrein-
gerningar og reglulegs viðhalds
verður gerð allsherjarúttekt á
ástandi mannvirkisins. Úttektin
tengist eigendaskiptunum í haust,
þ.e. þegar ríkið tekur við rekstri
ganganna af Speli. Fimmta og síð-
asta lokun verður aðfaranótt föstu-
dags næstkomandi.
Sérfræðingar verkfræðistofunnar
Mannvits gera úttekt á göngunum í
samræmi við samning ríkisins og
Spalar. Mannvitsmenn skoða og
skrá sprungur í múrklæðningum,
slit malbiks á akbrautum, ástand
tæknibúnaðar og sitthvað fleira, seg-
ir í frétt á heimasíðu Spalar.
Inni í göngunum hafa múrarar frá
Akranesi lagfært stóra skemmd í
múrklæðningunni. Bílstjóri á ferð að
næturþeli sofnaði undir stýri og ók á
vegg ganganna. Hann meiddist sem
betur fer ekki en bíllinn skemmdist
mikið og gangaveggurinn sömuleið-
is.
Í norðurhluta ganganna stóðu yfir
í fyrrinótt stórfelldar hreingern-
ingar með þrýstivatni og vélsópum.
Rykið sem myndast og berst inn er
meira að umfangi en margir trúa.
Afraksturinn var gámur fullur af
fínu ryki, minnst átta tonn. Rykinu
var sópað saman og það fjarlægt ein-
ungis fjórum sólarhringum eftir að
síðast var farið um göngin með vél-
sópi.
Úti fyrir suðurmunna unnu menn
að því að koma fyrir öryggisslá ofan
við akbrautina. Sláin hefur það hlut-
verk að sýna ökumönnum flutn-
ingabíla hve hár farmurinn megi
vera svo löglegur sé í göngunum.
Flutningsgámur rakst í slána dög-
unum og skemmdi hana, enn einu
sinni.
„Skagamaðurinn knái hjá ÞÞÞ,
Ólafur Þórðarson, kom með slána úr
viðgerð og sá um að hífa hana í rétt-
ar skorður í nótt ásamt starfs-
mönnum Meitils á Grundartanga.
Ákveðið og fumlaust gengið til
verka. Ekkert væl af nokkru tagi,“
segir í frétt Spalar.
Staðbundið heitt vatn
Þegar bergið undir Hvalfirði var
sprengt á framkvæmdatímanum
1997 kom í ljós leki á heitu vatni.
Bormönnum leist ekki á blikuna en
jarðhitinn reyndist staðbundinn á
nokkurra metra kafla og innrennslið
tiltölulega lítið. Dúk var komið fyrir
svo vatnið læki ekki á akbrautina.
Vatnið var mælt og reyndist hitinn
57 gráður. Dr. Gísli Guðmundsson
hjá Mannviti mældi það á nýjan leik
í fyrrinótt. Reyndist það vera ná-
kvæmlega 46,7 gráða heitt „eða álíka
og í heitustu pottum sundlauga“.
Ljósmynd/Spölur
Sláin á sinn stað Ólafur Þórðarson, knattspyrnukappi og vörubílstjóri,
kemur slánni í réttar skorður ásamt Jónasi Þorkelssyni, starfsmanni Meitils.
Allsherjarúttekt
gerð á göngunum
Hvalfjarðargöngin lokuð í fimm
nætur Yfirtaka ríkisins undirbúin
LISTHÚSINU
Fallegar gjafavörur
Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl. 11-15Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050
105.000
10.70034.700
34.700 34.700
32.900
39.700
12.900
18.900
JÓN BERGSSON EHF
Kletthálsi 15 | 110 Reykjavík | Sími 588 8881 | www.jonbergsson.is | jon@jonbergsson.is
GARÐSKÁLAR Á HJÓLUM
Hentar þetta þínum garði, svölum,
rekstri eða sumarbústað?