Morgunblaðið - 25.04.2018, Síða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2018
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Eitt ár er nú liðið síðan Landsvirkjun
og TM hófu samstarf við ráðgjafar-
fyrirtækið Capacent, í þeim tilgangi að
efla jafnrétti innan fyrirtækjanna með
Jafnréttisvísinum svokallaða, aðferða-
fræði sem Capacent byrjaði að þróa
haustið 2016 en var ýtt úr vör haustið
2017. Í Jafnréttisvísinum skuldbinda
fyrirtæki sig til að vinna í þrjú ár að vel
skilgreindu verkefni
sem snýr að því að
efla jafnrétti innan
fyrirtækjanna með
því að horfa á menn-
ingu, skipulag,
fyrirmyndir, ráðn-
ingarferla og aðra
þætti í starfsemi
sinni. Að þeim tíma
loknum eiga raun-
verulegar breyting-
ar að vera búnar að
eiga sér stað, segir Þórey Vilhjálms-
dóttir, forsvarsmaður verkefnisins, í
samtali við Morgunblaðið. Hún segir
að í mörg horn sé að líta þessa dagana.
„Við finnum fyrir gríðarlega miklum
áhuga.“
Nú þegar eru þrjú fyrirtæki að inn-
leiða Jafnréttisvísinn og fleiri á leið-
inni. „Tvö sögulega nokkuð karllæg
fyrirtæki, Landsvirkjun og TM, voru
fyrst, og Landsbankinn fylgdi fljótlega
í kjölfarið. Hörður Arnarson, forstjóri
Landsvirkjunar, og Sigurður Viðars-
son, forstjóri TM, hafa báðir sagt að
þetta hafi breytt sýn þeirra á stöðu
kynjanna í fyrirtækjum sem þeir
stjórna,“ segir Þórey.
Hún segir að þegar hafi verið geng-
ið frá samkomulagi við fleiri fyrirtæki
um að fara í gegnum verkefnið. „Þar
sem þetta er að miklu leyti unnið með
eigindlegum aðferðum, viðtölum við
tugi starfsmanna í hverju fyrirtæki og
vettvangsheimsóknum, þá er hvert
verkefni nokkuð umfangsmikið og
tímafrekt. Við vorum að bæta við okk-
ur tveimur starfsmönnum á dögunum
til að ráða við eftirspurnina. Lands-
bankaverkefnið er til dæmis mjög um-
fangsmikið, og það langstærsta til
þessa. Þar vinna 1.000 manns, en til
samanburðar eru 200 hjá Landsvirkj-
un og 70 hjá TM.“
Konur taki fullan þátt
Þórey segir að sér finnist gaman að
sjá að jafnréttismálin séu orðin
„bisness“ í þeim skilningi að fyrirtæki
sjái sér mikinn viðskiptalegan hag í því
að taka þau föstum tökum. „Þau eiga
að vera „bisness“. Samfélagið er að
verða af hæfileikum kvenna. Það hlýt-
ur að hafa áhrif á verðmætasköpun að
hæfileikar þeirra séu ekki nýttir til
jafns við hæfileika karla í atvinnulíf-
inu. Þar með erum við ekki að nýta
hæfustu einstaklingana okkar.“
Að sögn Þóreyjar er staðan þannig í
jafnréttismálum í atvinnulífinu að eng-
in kona stjórnar fyrirtæki sem skráð
er í Kauphöllina, og eftir því sem ofar
er farið í stjórnendalög 100 stærstu
fyrirtækja landsins, því færri konur er
þar að finna. 8% forstjóra 400 stærstu
fyrirtækja landsins eru konur.
Þórey segir að viðtöl starfsmanna
Capacent við starfsmenn fyrirtækj-
anna hafi leitt í ljós ýmsar athyglis-
verðar niðurstöður. „Við erum að
reyna að koma auga á ómeðvitaða
kynbundna fordóma. Þar reynum við
að birta þessa hegðun eða samskipti í
menningunni sem er oft talin ein
helsta fyrirstaða þess að konur fái
framgang innan fyrirtækja. Konur
nefna t.d. að þær verði oft fyrir því að
komast ekki að á fundum og að ekki sé
hlustað á þeirra hugmyndir eða at-
hugasemdir fyrr en karl hefur endur-
tekið þær.“ Eins kemur fram að sögn
Þóreyjar að mörgum körlum líði illa í
karllægu umhverfi.
Forstjórinn gaf öllum bók
Hörður Arnarson tók Jafnréttisvís-
inn föstum tökum innan Landsvirkj-
unar og lét meðal annars dreifa bók-
inni „Allir eiga að vera feministar“ til
allra starfsmanna. Þá var „Gula
spjaldinu“ dreift í öll fundarherbergi.
Ennfremur lét hann setja límmiða
með áletruninni: „Finnst þér að konur
ættu bara að vera duglegri“ á alla
spegla í fyrirtækinu.
„Þetta hefur verið áhugaverð að-
ferðafræði,“ segir Hörður í samtali við
Morgunblaðið. „Við höfum haft áhuga
á að ná árangri í jafnréttismálum í
mjög langan tíma, og svo vildum við að
hlutirnir gerðust hraðar, og tókum þá
upp þetta samstarf um Jafnréttisvís-
inn. Það hefur hentað okkur mjög vel í
því ferðalagi sem við erum í. Það er
ekki bara að við séum að bæta þessa
hefðbundnu mælikvarða eins og að
jafna kynjahlutföll í ákveðnum störf-
um, hvort sem það eru stjórnendastörf
eða sérfræðingastörf, heldur erum við
að vinna mikið í að breyta menning-
unni.“
Hafa komið upp óþægileg atvik í
þessari vinnu?
„Jú, það er verið að tala um hluti
sem fólk er óvant að ræða, og sumt er
óþægilegt, en við reynum að hafa þetta
á léttu nótunun og fetum okkur saman
áfram í þessum málum, með það að
markmiði að gera vinnustaðinn enn
betri.“
Eru breytingar farnar að eiga sér
stað?
„Já, ég held að það hafi breyst ým-
islegt nú þegar. Við gerum ráð fyrir að
þetta sé 2-3 ára vegferð. Okkur hefur
tekist að fá mjög breiða samstöðu.“
Viðskiptatækifæri í jafnrétti
Morgunblaðið/Elín Arnórsdóttir
Jafnrétti Þórey segir að fjárfesta þurfi í jafnrétti til að ná árangri.
Mikill áhugi erlendis Mörgum körlum líður illa í karllægu umhverfi Sam-
félagið að verða af hæfileikum kvenna 8% forstjóra 400 stærstu eru konur
Gula spjaldið!
» Men(n)durtekning: Þegar
karl endurtekur á fundi hug-
mynd frá konu sem enginn
hafði tekið undir áður en vekur
mikla aðdáun þegar hann segir
það sama.
» Hrútskýring: Þegar einhver
útskýrir eitthvað á niðrandi eða
lítillækkandi hátt, yfirleitt karl
fyrir konu, og gerir ráð fyrir að
hann hafi meira vit á hlutunum.
Þórey
Vilhjálmsdóttir
25. apríl 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 100.64 101.12 100.88
Sterlingspund 140.33 141.01 140.67
Kanadadalur 78.31 78.77 78.54
Dönsk króna 16.497 16.593 16.545
Norsk króna 12.752 12.828 12.79
Sænsk króna 11.833 11.903 11.868
Svissn. franki 102.86 103.44 103.15
Japanskt jen 0.9242 0.9296 0.9269
SDR 145.39 146.25 145.82
Evra 122.89 123.57 123.23
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 148.9823
Hrávöruverð
Gull 1328.0 ($/únsa)
Ál 2451.5 ($/tonn) LME
Hráolía 73.77 ($/fatið) Brent
● Sænski bankinn Swedbank hefur fjárfest fyrir 3 milljónir
evra, jafngildi liðlega 370 milljóna króna, í íslenska fjártækni-
fyrirtækinu Meniga, að því er fram kemur í tilkynningu. Jafn-
framt hefur Swedbank hafið innleiðingu á snjallsíma- og net-
bankalausnum fyrirtækisins.
„Við sjáum Meniga sem rétta samstarfsaðilann til að veita
viðskiptavinum okkar persónulegri notendaupplifun og mun
betri yfirsýn yfir fjármálin sín,“ segir Lotta Lovén, fram-
kvæmdastjóri snjallsíma- og netbankalausna hjá Swedbank, í
tilkynningunni. Þá er haft eftir Georg Lúðvíkssyni, forstjóra
Meniga, að það sýni mikið traust á Meniga að Swedbank hafi
ákveðið að fjárfesta í fyrirtækinu og velji það sem réttu lausn-
ina fyrir bankann.
Margir stórbankar í Evrópu eru þegar á meðal viðskiptavina Meniga, þeirra á
meðal BPCE, Santander, Commerzbank, ING Direct og Intesa Sanpaolo.
Swedbank kaupir hlut í Meniga og innleiðir lausnir
Georg
Lúðvíksson
STUTT
● Deloitte hefur
ráðið Björgvin Inga
Ólafsson sem
sviðsstjóra á nýju
sviði fyrirtækisins,
Deloitte Consult-
ing. Hann verður
samhliða einn eig-
enda Deloitte.
Björgvin Ingi var
síðast fram-
kvæmdastjóri við-
skipta og þróunar hjá Íslandsbanka en
lét af því starfi í janúar á þessu ári.
Áður starfaði Björgvin hjá Meniga og
ráðgjafarfyrirtækinu McKinsey &
Company.
Deloitte Consulting er eitt af sex
sviðum Deloitte en hin eru endur-
skoðun, áhætturáðgjöf, fjármálaráð-
gjöf, skatta- og lögfræðisvið og við-
skiptalausnir. Áherslur sviðsins eru á
ráðgjöf í stefnumótun, rekstri og upp-
lýsingatækni.
Ráðinn til þess að stýra
Deloitte Consulting
Björgvin Ingi
Ólafsson
● Hagnaður Sím-
ans á fyrsta árs-
fjórðungi nam 887
milljónum króna,
samanborið við
774 milljónir króna
á sama tímabili í
fyrra.
Tekjur námu 6,9
milljörðum króna á
ársfjórðungnum,
en þær voru lið-
lega 6,7 milljarðar á fyrsta fjórðungi
síðasta árs og hækka því um 2,2% á
milli ára.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og
fjármagnsliði, EBITDA, nam rösklega
2,2 milljörðum króna. Á sama tímabili
í fyrra nam EBITDA tæplega 2,1 millj-
arði króna og hækkar því um 132 millj-
ónir eða 6,3% á milli ára. EBITDA-
hlutfallið var 32,5% en var til sam-
anburðar 31,2% á sama tímabili 2017.
Handbært fé frá rekstri án vaxta og
skatta nam tæplega 2,4 milljörðum
króna á fyrsta ársfjórðungi. Eigið fé
Símans var 37,2 milljarðar króna í lok
mars og eiginfjárhlutfallið var 61,4%.
Orri Hauksson forstjóri segir í af-
komutilkynningu til Kauphallar að árið
fari vel af stað, tekjur hafi aukist milli
ára og afkoma batnað. „Á næstunni
mun Síminn … kynna spennandi nýj-
ungar í sjónvarps- og afþreyingarþjón-
ustu sinni fyrir snjalltæki, auk þess
sem dreifing okkar helstu sjónvarps-
vara mun fara yfir fleiri net en fyrr. Við
lítum því með bjartsýni til næstu miss-
era, hvort sem er fyrir hönd við-
skiptavina okkar eða hluthafa.“
Hagnaður Símans 887 milljónir á fyrsta fjórðungi
Orri
Hauksson
STUTT
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
GÓÐ HEYRN
GLÆÐIR SAMSKIPTI!
Með þeim heyrist talmál sérstaklega vel
vegna þess að þau þekkja tal betur
en önnur tæki.
Tæknin sem
þekkir tal
Nýju ReSound LiNX 3D
eru framúrskarandi heyrnartæki
ReSound LiNX3