Morgunblaðið - 25.04.2018, Page 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2018
✝ Ingibjörg Unn-ur Ingólfsdóttir
fæddist í Efri-Gröf í
Villingaholtshreppi
í Flóa 5. ágúst 1941.
Hún lést á hjúkrun-
arheimilinu Skjóli
14. apríl 2018.
Foreldrar henn-
ar sem þar bjuggu
þá voru hjónin Gróa
Jónasdóttir hús-
freyja frá Hlíð á
Vatnsnesi í Vestur-Húnavatns-
sýslu og Ingólfur Gísli Brynjólfs-
son bóndi, sem fæddur var á Eyr-
arbakka en fór ungur í fóstur að
Vælugerðiskoti í Flóa og ólst þar
upp. Þar hófu þau hjón búskap
sinn og bjuggu þar uns þau flutt-
ust að Efri-Gröf. Unnur ólst upp
í stórum systkinahópi, var átt-
unda í aldursröð tíu systkina, og
eru sex þeirra á lífi. Elst þeirra
systkina er sammæðra hálf-
systir, Hulda Jósefsdóttir, en hin
Sunna Lind býr með Anders
Andersen, f. 13.6. 1979, og eiga
þau tvo syni, Arnar, f. 24.4. 2014,
og Dag, f. 17.2. 2016. Í miðið er
Margrét Gróa, f. 29.5. 1965. Eig-
inmaður hennar er Egill Þor-
steinsson, f. 5.8. 1965, og eiga
þau þrjú börn: Arnar, f. 9.5.
1989, Sandra, f. 19.1. 1992, og
Atli Freyr, f. 7.1. 1995. Arnar
býr með Guðbjörgu Ásu Hrólfs-
dóttur, f. 15.5. 1992. Sandra er
gift Guðmundi Viktorssyni, f.
28.2. 1988. Sambýliskona Atla
Freys er Hjördís Þóra Elíasdótt-
ir, f. 10.4. 1996. Yngst barna
Unnar og Björns er Hjördís, f.
23.7. 1966. Dóttir hennar er Ey-
rún Rakel Agnarsdóttir, f. 26.8.
1991, sambýlismaður hennar er
Elvar Páll Sigurðsson, f. 30.7.
1991, og eiga þau soninn Elís
Arnar, f. 3.3. 2018.
Útför Unnar fer fram frá Ás-
kirkju í dag, 25. apríl 2018, kl.
13.
eru, auk hennar;
Ragnheiður, Mar-
grét, sem lést 2016,
Sigurður Jónas,
sem lést 2012, Ein-
ar, sem dó sama ár,
Brynjólfur, Garðar,
Sigurbjörn og Ey-
þór. Unnur missti
föður sinn 11 ára
gömul árið 1952, en
Gróa móðir hennar
bjó áfram næstu
þrjú árin, uns fjölskyldan fluttist
til Keflavíkur. Þar átti Gróa
heima til æviloka, en hún lést ár-
ið 1975. Börn Unnar Ingólfs-
dóttur og Björns Svavarssonar
eru þrjú. Elstur þeirra er Svavar
Bergsteinn, f. 29.10. 1962. Kona
hans er Eva-Marie Björnsson, f.
15.12. 1960. Börn Svavars af
fyrra sambandi eru tvíburarnir
Sunna Lind og Sindri, f. 20.2.
1987. Móðir þeirra er Anna Pál-
mey Hjartardóttir, f. 7.7. 1963.
Í dag kveðjum við elskulegu
móður okkar eftir löng veikindi.
Efst í huga okkar er þakklæti fyr-
ir þá umhyggju og alúð sem hún
sýndi okkur systkinunum. Því vilj-
um við minnast hennar í fáeinum
orðum. Mamma var mikill dugn-
aðarforkur og með mikið jafnað-
argeð. Hún vann oft langan vinnu-
dag samhliða því að sinna
heimilinu, en hún og pabbi voru
ávallt mjög samstiga og skiptu
verkefnum eins og við átti.
Mamma var einstaklega snyrtileg
og smekkleg. Hún hafði mikla
ánægju af hvers kyns handverki
og var mjög listræn og flink í
höndunum. Allt sem hún gerði var
unnið af alúð og ávallt vandað vel
til verks. Þá lagði mamma mikið
upp úr klæðnaði sínum og útliti.
Hún gat setið heilu kvöldin og
hlustað á útvarpið og snyrt negl-
urnar sínar, sem voru alltaf mjög
fallegar og óaðfinnanlegar. Á
þessum tímamótum leitar hugur
okkar til æskuáranna en undir-
búningur jólanna var alltaf
skemmtilegur tími enda nóg að
gera og sýsla. Oft sast þú við
saumavélina langt fram eftir nóttu
við saumaskap að klára jólafötin á
okkur systkinin. Einnig minnumst
við spilakvöldanna því alltaf var
mikið spilað á frídögum, það voru
skemmtilegir tímar. Spila-
mennskan var líka stór þáttur í
ófáum sumarbústaðaferðum þar
sem við nutum þess að vera sam-
an. Þú hefur ávallt notið þess að
ferðast en þið pabbi gátuð ferðast
töluvert á seinni árum og var alltaf
skemmtilegt að heyra ferðasög-
urnar. Þó svo að veikindi undan-
farinna ára hafi tekið mikið frá þér
minnumst við oft góðra stunda
með þér. Við gátum spjallað sam-
an og þú brostir og kinkaðir kolli.
Elsku mamma, takk fyrir allt.
Hvíldu í friði.
Svavar, Margrét og Hjördís.
Ingibjörg Unnur Ingólfsdóttir
✝ Ása SigríðurÓlafsdóttir
fæddist á Akranesi
28. september 1937.
Hún andaðist á
Hjúkrunar- og dval-
arheimilinu Höfða á
Akranesi 16. apríl
2018.
Foreldrar hennar
voru Ólafur Helgi
Sigurðsson ráðs-
maður, f. 25. október
1902, d. 3. desember 1984, og
Ólafína Ólafsdóttir húsmóðir, f.
11. október 1902, d. 12. október
1995. Systkin Ásu voru ellefu: Jó-
hann Grétar, Hörður Ragnar,
Ólafur, Sigurður, Guðrún Diljá,
Margrét, Ingibjörg, Jóna Kol-
brún, Freymóður Heiðar, Ólafína
Sigrún og Svanhildur. Ólafína
meyju Baldursdóttur, börn
þeirra eru Móeiður Ása, Að-
alheiður Hekla, Valur Kár og
Baldur Kár. Fyrir átti Ása tvö
börn, Jóhönnu Margréti, f. 21.
ágúst 1958, börn hennar eru
Hjörtur Líndal, Bjarki Hlífar og
Katrín, og Björn, f. 9. maí 1960,
kvæntur Guðríði Þórðardóttur,
börn þeirra eru Guðni, Hilmar og
Aðalsteinn.
Ása og Valur hófu búskap á
Akranesi 1964. Ása vann hin
ýmsu störf en stærsta hluta
starfsævi sinnar var hún hús-
móðir. Ása Sigríður var vistmað-
ur á Hjúkrunar- og dvalarheim-
ilinu Höfða síðustu árin.
Ása Sigríður verður jarð-
sungin frá Akraneskirkju í dag,
25. apríl 2018, og hefst athöfnin
klukkan 13.
Sigrún og Svanhildur
eru eftirlifandi.
Ása giftist Vali
Gunnarsyni 23. októ-
ber 1965 og eignaðist
með honum fjögur
börn: Auðunn Sól-
berg, f. 8. mars 1964,
kvæntur Brynju
Guðnadóttur, börn
þeirra eru Guðni Val-
ur, Salka Margrét og
Óliver Tumi. Auðunn
átti Jökul Sólberg fyrir. Saga, f.
7. apríl 1966, í sambúð með Sig-
urði Arnfjörð. Saga á þrjú börn,
Auði Maríu, Ásu Bergmann og
Örn Bergmann. Hekla, f. 1. ágúst
1968, gift Guðmundi Björnssyni
og eiga þau tvö börn, Auði og
Þórunni Birnu. Valur Ásberg, f.
15. mars 1971, kvæntur Frið-
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni.
Sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sigurður Jónsson)
Þessi bæn kemur upp í hugann
þegar við setjumst niður og minn-
umst þín. Þú kenndir okkur öllum
þessa bæn. Það er svo mikilvæg
minning. Þú varst svo góð móðir.
Þú tókst alltaf okkar málstað í öllu
sem kom upp. Þú kenndir okkur
að breyta rétt. Við áttum líka allt-
af stað í hálsakoti þínu okkur til
huggunar þegar á bjátaði. Heim-
ilið var alltaf hreint og fínt. Krakk-
arnir á Vesturgötunni sóttu í að
komast í hlaðborðið í „drekkutím-
anum“. Heimilið var alltaf til fyr-
irmyndar. Þú kunnir listina að
halda almennilegt heimili og að
elda góðan mat. Sjómannskona
varð að vera úrræðagóð á öllum
sviðum heimilishaldsins þó að lítið
væri til í buddunni. En núna ertu
farin frá okkur og við söknum þín
óendanlega mikið. En á sama tíma
erum við þakklát fyrir að þú hafir
fengið hvíldina. Þú varst ekki
gömul þegar ógæfan dundi yfir.
Sjúklingur langt um aldur fram.
Allt breyttist í einni svipan. Það
voru erfiðir tímar fyrir okkur
börnin og föður okkar. En í veik-
indunum reyndist hann þér vel og
sambandið ykkar varð enn inni-
legra og fallegra. Hann var þín
stoð og stytta. Veikindi þín mót-
uðu okkur á jákvæðan máta. Við
höfðum unun af að heimsækja þig
og umgangast. Þú varst svo létt,
hnyttin og gamansöm við alla.
Söngur, gleði og knús. Rútuhvell-
urinn tekinn. Elvis og Raggi
Bjarna í spilaranum. Allt svo
ómetanlegt og skemmtilegt. Ást
og umhyggja, mjúka kinn og koss-
ar. Svo var gripið í spil. Manni eða
rúberta. Herbergið þitt var alltaf
eins, engu mátti breyta. Allt á sín-
um stað. Lucky Strike á kantinum
með kveikjarann kláran. Áttu síg-
arettu?, eina eða tvær. Svo var
kímt og hlegið. Það var svo gam-
an. En nú ert þú farin og herberg-
ið tómt. En minningarnar eru á
sínum stað. Þær eigum við nægar
og góðar. Elsku mamma mín, við
sjáumst síðar. Vertu klár með
spilastokkinn, því við tökum slag.
Blessuð sé minning góðrar móður.
Takk fyrir allt.
Kveðja frá börnum,
Jóhanna Margrét, Björn,
Auðunn Sólberg, Saga,
Hekla og Valur Ásberg.
Í dag kveð ég elskulega tengda-
móður mína sem ég var svo hepp-
in að eignast fyrir 28 árum. Fram
streyma minningar um einstaka
konu og þær stundir sem við átt-
um saman.
Ég gleymi því aldrei þegar ég
dvaldi í hálfan mánuð hjá henni á
Vesturgötunni. Við elduðum og
bökuðum saman, tókum í spil og
undir ómaði söngurinn frá Elvis
Presley og Ragga Bjarna sem
voru hennar uppáhaldstónlistar-
menn. Hún tók alltaf undir og
söng af mikilli innlifun. Það var
svo gaman að vera með henni.
Hún sagði oft þessa gullnu setn-
ingu: „Okkur leiðist ekki saman,
Frikku Möller og Dúddí Frans.“
Þar var hún að vísa í okkur tvær.
Svo dásamlega lýsandi fyrir henn-
ar frábæra húmor. Hún var nátt-
úrlega engin venjuleg tengdamóð-
ir – einfaldlega bara best.
Ég man þegar við fórum saman
sveitarúnt á fallegum sumardegi
fyrir nokkrum árum. Fórum í laut-
arferð undir Hafnarfjalli og hún
fékk uppáhaldið sitt, appelsín og
súkkulaði. Tók svo eina ljúfa
„lukku“ í ferska sveitaloftinu. Við
fengum okkur að borða á fínum
veitingastað og á meðan aðrir
pöntuðu sér steik og rauðvín fékk
hún sér hamborgara og mjólkur-
glas.
Hún var hjá okkur fjölskyldunni
sín síðustu jól. Það var dásamlegt
að hafa hana og Val hjá okkur. All-
ar reglur voru brotnar fyrir ein-
staka konu og hún fékk að reykja
inni. Það fannt henni æðislegt.
Hún bjó á Dvalarheimilinu
Höfða sín síðustu ár þar sem henni
leið vel. Þangað var gaman að
koma og taka í spil með henni og
færa henni nýbakaðan snúð.
Nú kveður Frikka Möller
Dúddí Frans í hinsta sinn. Ég mun
aldrei gleyma þér, elsku Ása. Takk
fyrir allt!
Þín
Friðmey.
Amma Ása var einstök kona og
með sanni er hægt að segja að það
var og verður engin henni lík.
Gleði er það fyrsta sem kemur upp
í hugann þegar ég hugsa til henn-
ar. Gleði, söngvar og hlátur er
stærsti parturinn af öllum þeim
stundum sem ég átti með ömmu
Ásu og fyrir það er ég þakklát.
Hún hefur veitt mér svo mikla
gleði allt mitt líf og mun ég því
ávallt minnast hennar með gleði í
hjarta.
Þegar ég hugsa til baka eru svo
margar góðar minningar sem
skjóta upp kollinum. Ein af mín-
um uppáhaldsminningum um
ömmu Ásu er þó þegar við
mamma og Þórunn Birna fórum
upp á Skaga á mjög fallegum sum-
ardegi. Veðrið var svo gott og
amma í sérstaklega góðu skapi.
Við ákváðum að fara í bíltúr með
nesti og teppi og fundum þennan
dásamlega stað rétt fyrir utan
Akranes. Þar var falleg laut, lítill
lækur og mjúkt gras. Sólin skein
og það sást ekki ský á himni. Við
settumst í lautina með teppi og
gæddum okkur á nestinu okkar.
Amma fór á brjóstahaldarann og
lét sólina baka sig. Henni leið
dásamlega í sólinni og við
skemmtum okkur vel. Amma var
alsæl með daginn, hló mikið og
söng. Á leiðinni heim ákváðum við
að nefna lautina Ömmulaut og
skrifuðum það á miða fyrir ömmu
svo hún myndi ekki gleyma nafn-
inu eða minningunni um góðan
dag. Hún geymdi miðann lengi vel
undir sígarettuboxinu sínu sem
margir kannast við og var alltaf á
borðinu hennar. Við fundum þessa
laut aldrei aftur en minningin lifir
svo sterkt um frábæran dag. Nú
þegar ég hugsa um ömmu eftir að
hún kvaddi okkur ímynda ég mér
að hún sé búin að finna lautina
okkar. Ömmulaut. Og situr þar al-
sæl á brjóstahaldaranum, baðar
sig í sólinni og syngur rútuhvell-
inn hástöfum. Hamingjusöm og
líður vel. Komin á betri stað. Ég
elska þig elsku fallega amma mín.
Drottningin sjálf. Með mýkstu
kinnar í heimi sem er svo gott að
kyssa. Sofðu rótt elsku amma. Ég
mun sakna þín.
Auður Guðmundsdóttir.
Ása Sigríður Ólafsdóttir HINSTA KVEÐJA
Láttu mig, drottinn, lofa þig,
með lofi þínu hvíla mig,
ljósið í þínu ljósi sjá,
lofa þig strax sem vakna má.
(Hallgrímur Pétursson)
Takk fyrir allt, elsku Ása
mín.
Þú varst ljósið í lífi mínu.
Þinn
Valur.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, dóttir,
systir og amma,
GUÐNÝ LINDA ÓLADÓTTIR,
Eskivöllum 21b,
lést á Landspítalanum á Hringbraut
17. apríl.
Útför hennar fer fram frá Neskirkju föstudaginn
27. apríl klukkan 13. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hennar er bent á Samtök lungnasjúklinga.
Markús Hallgrímsson
Hallgrímur Markússon
Magnea Sif Markúsdóttir
fjölskylda og barnabörn
Ástkær sonur minn, bróðir og mágur,
SVEINN GUÐBRANDSSON,
Unhól,
lést á heimili sínu mánudaginn 16. apríl.
Útför hans fer fram laugardaginn 28. apríl
klukkan 13.00 í Þykkvabæjarkirkju.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeir sem vilja
minnast hans láti Krabbameinsfélagið njóta þess.
Sigurfinna Pálmarsdóttir
Pálína Svanhvít Guðbrandsdóttir, Birgir Óskarsson
Pálmar Hörður Guðbrandsson, Jóna Sverrisdóttir
Heiðrún Björk Guðbrandsdóttir, Kristján Hilmarsson
Sigríður Guðbrandsdóttir
Elskulegur sambýlismaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi, langafi og
langalangafi,
HALLDÓR GUNNAR PÁLSSON
frá Hnífsdal,
lést miðvikudaginn 18. apríl.
Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju föstudaginn 11. maí kl. 13.
Birna Sigurðardóttir
Ingimar Halldórsson Kristín Karlsdóttir
Páll Halldórsson Jóhanna Hafsteinsdóttir
Guðrún G. Halldórsdóttir Stefán Jónsson
Dagmar Halldórsdóttir
og fjölskyldur
Elskuleg eiginkona mín og móðir okkar,
IÐUNN GEIRSDÓTTIR,
Hjallavegi 4,
Reyðarfirði,
lést á heimili sínu laugardaginn 21. apríl.
Útför hennar fer fram frá Reyðarfjarðarkirkju
laugardaginn 28. apríl klukkan 14.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Brakkasamtökin.
Rn. 331-26-2356. Kt. 571215-2250.
Ásgeir Jón Ásgeirsson
Berglind Eir Heiðdís Sara
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GARÐAR GUÐJÓNSSON,
Tröllakór 2-4, Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
21. apríl. Jarðsett verður frá Lindakirkju
mánudaginn 30. apríl klukkan 13.
Guðlaug Sigríður Haraldsdóttir
Þóra Björg Garðarsdóttir
Guðjón Garðarsson Guðrún Friðþjófsdóttir
Jón Sigurður Garðarsson Anna S. Ásgeirsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn