Morgunblaðið - 25.04.2018, Qupperneq 25
Við vinkonurnar sendum Hilm-
ari, sonum, systur og bróður og
fjölskyldum þeirra innilegar sam-
úðarkveðjur. Blessuð sé minning
Ólafar.
María, Margrét, Edda,
Vigdís, Anna og Guðrún.
Fáein orð til að minnast góðrar
vinkonu, Ólafar Magnúsdóttur,
sem nú hefur kvatt. Heimsóttum
síðast í janúar þau hjón og minn-
umst hennar eins og hún kvaddi
okkur þá, hlý og brosandi. Sam-
eiginlegar minningar okkar eru
ótalmargar, þær elstu frá ung-
lingsárunum þegar við sátum
samkomur KFUM og KFUK við
Amtmannstíg 2b og tókum öll þátt
í skólamótum í Vatnaskógi og
Vindáshlíð syngjandi fullum
hálsi hressilega og skemmtilega
söngva. Ólöf lét ekki þar við sitja
hvað sönginn varðar heldur sótti
sér kennslu og söng einsöng með-
fram söngtímunum. Einnig tók
hún árum saman þátt í kórastarfi.
Hilmar, maður hennar, studdi
hana dyggilega, enda traustur og
góður píanóleikari sem aldrei lá á
liði sínu.
Við urðum sérlega góðir vinir
og hittumst oft til skiptis á heim-
ilum okkar bæði árin sem börnin
okkar og drengirnir þeirra uxu úr
grasi og einnig síðar. Alla tíð hefur
sambandið verið gott og aldrei
borið skugga á vináttuna. Þau
hjón voru Seltirningar í nokkur
ár, fluttu sig svo í Garðabæ þar
sem þau bjuggu lengi og loks á
Hellu hin síðari ár. Þar voru þau í
essinu sínu og fylgdust með hest-
um í girðingu skammt frá heim-
ilinu. Við heimsóttum Ólöfu og
Hilmar með millibilum á heimilum
þeirra á öllum þessum stöðum og
nutum góðrar samveru. Einnig
höfum við notið samvista nokkr-
um sinnum eftir að þau fluttu á
Eir, hjúkrunarheimili.
Sterk eru andans bönd,
sem eru í Guði knýtt.
Þau laða og tengja sál við sál
í samband lífsins nýtt.
Í Kristi Jesú knýtt
his kristna bræðralag.
Það felur í sér fyrirheit
um friðar sælan hag.
(Friðrik Friðriksson)
Erfitt hefur verið undanfarin ár
að fylgjast með veikindum þeirra
hjóna. Og nú er komið að kveðju-
stund. Við þökkum innilega sam-
fylgdina og allar góðu minning-
arnar. Hilmari, Magnúsi, Hauki
og fjölskyldum þeirra flytjum við
innilegar samúðarkveðjur okkar.
Blessuð sé minning Ólafar Magn-
úsdóttur.
Rúna Gísladóttir og
Þórir S. Guðbergsson.
Kveðja frá Kvennadeild
Gideonfélagsins á Íslandi
Ólöf Magnúsdóttir var ein af
stofnfélögum Kvennadeildar Gi-
deonfélagsins árið 1977. Hennar
er minnst með þakklæti fyrir störf
hennar og trúmennsku við félagið.
Hún sótti reglulega fundi hjá
Garðabæjardeildinni eða þar til
hún flutti á Hellu fyrir nokkrum
árum. Minnisstæð er ferð deildar-
innar til Ólafar á fallegum vordegi
þar sem hún tók á móti okkur af
miklum rausnarskap á sinu nýja
heimili. Þessi dagur, 21. maí 2011,
varð síðan eftirminnilegur því síð-
ar þennan dag hófst gosið í Gríms-
vötnum.
Við kveðjum Ólöfu með söknuði
og sendum Hilmari og ástvinum
hennar okkar innilegustu samúð-
arkveðjur og biðjum góðan Guð að
styrkja þau, hugga og umvefja
með kærleika sínum.
F.h. kvennadeilda Gideon-
félagsins,
Anna Jóhanna
Guðmundsdóttir,
varaforseti KGÍ.
Fleiri minningargreinar
um Ólöfu Magnúsdóttur bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2018
Atvinnuauglýsingar
Rafhitun
Rafvirki óskast
Óskum eftir rafvirkja í viðgerðir
og afgreiðslu
Umsóknir sendist á
rafhitun@rafhitun.is
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
- berum ábyrgð á eigin heilsuwww.hollvinirhnlfi.is
Heilsustofnun
Náttúrulækningafélags
Íslands
Aðalfundur Hollvinasamtaka Heilsustofnunar NLFÍ í Hveragerði
verður haldinn á Heilsustofnun í Kapellunni kl. 20.00 í kvöld,
miðvikudaginn 25. apríl 2018.
Dagskrá:
• Venjuleg aðalfundarstörf
• Önnur mál
Hvetjum hollvini og áhugasama um Heilsustofnun til að mæta.
Aðalfundur Hollvina
í kvöld 25. apríl 2018
Aðalfundur
Eflingar - stéttarfélags
2018
Aðalfundur Eflingar-stéttarfélags 2018 verður
haldinn á Grand Hótel fimmtudaginn
26. apríl 2018. Fundurinn hefst kl. 20.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál
Endurskoðaðir reikningar félagsins liggja
frammi á skrifstofunni að Sætúni 1 /
Guðrúnartúni 1 Reykjavík frá og með
miðvikudeginum 18. apríl nk.
Félagar mætið vel og stundvíslega.
Stjórn Eflingar - stéttarfélags
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9 og foreldramorgnar eru kl.
10.30, prjónahópur hittist kl. 13 í sófunum hjá okkur og söngstund við
píanóið er kl. 13.45. Hrafn Jökulsson kemur til okkar með bókaspjallið
góða kl. 15. Hlökkum til að sjá ykkur!
Árskógar Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-16, smíðastofan er
lokuð. Stóladans með Þóreyju kl. 10, söngstund með Helgu, opið hús,
t.d. vist og brids kl. 13-16, opið fyrir innipútt, hádegismatur kl. 11.40-
12.45. Kaffisala kl. 15-15.45, heitt á könnunni. Sími 535-2700.
Boðinn Handavinnustofa opin frá kl. 9-15, vatnsleikfimi kl. 14.30.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16, myndlist kl. 9-12,
morgunkaffi kl. 10-10.30, botsía kl. 10.40-11.20, börn frá leikskólanum
Stakkaborg koma í heimsókn kl. 13, glerlist kl. 13-16. Spiladagur, frjáls
spilamennska kl. 12.30-15.50, opið kaffihús kl. 14.30-15.15.
Bústaðakirkja Almenn samverustund í félagsstarfinu miðvikudag kl.
13, spil og handavinna, framhaldssaga, sóknarprestur verður með
hugleiðingu og bæn og að sjálfsögðu kaffið góða frá Sigurbjörgu
húsmóður. Stundin er í umsjá Hólmfríðar djákna.
Dalbraut 18-20 Verslunarferð í Bónus kl. 14.45
Fella- og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12, eftir stundina kveðjum við
veturinn og fögnum sumardeginum fyrsta með að bjóða upp á kjöt-
súpu á vægu verði, félagsstarfið byrjar kl. 13, við spilum, spjöllum og
eigum góða samveru saman. Allir velkomnir.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Upplestur kl. 10.20, botsía kl. 13.30,
kaffiveitingar kl. 14.30, allir velkomnir!
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Bókband kl. 9-13, handavinna kl. 9-12,
tölvu- og snjallsímakennsla fellur niður í dag! Bókband kl. 13-17, frjáls
spilamennska kl. 13-16.30, myndlist kl. 13.30-16.30, dansleikur með
Vitatorgsbandinu frá kl. 14-15, kaffiveitingar kl. 14.30-15.30. Verið öll
velkomin til okkar í dag, síminn er 411-9450.
Furugerði 1 Vinnustofa opin frá kl. 10-16, sitjandi leikfimi og öndun-
aræfingar kl. 11, ganga kl. 13 og botsía kl. 14.
Garðabær Jónshúsi / félags- og íþróttastarf: 512-1501, opið í Jóns-
húsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 9.30-16, vatnsleikfimi
Sjálandi kl. 7.40/15.15, kvennaleikfimi í Sjálandi kl. 9.30, kvennaleik-
fimi í Ásgarði kl. 10.40, gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10, brids í
Jónshúsi kl. 13, zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.15.
Gerðuberg Opin handavinnustofan kl. 8.30-16, útskurður með leið-
beinanda kl. 9-12, útskurður / pappamódel með leiðbeinanda kl. 13-
16, félagsvist kl. 13-16, leikfimi Helgu Ben kl. 11.15-11.45, velkomin!
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.10 byrjenda-botsía, kl. 9.30 glerlist,
kl. 13 félagsvist, kl. 13 postulínsmálun.
Grensáskirkja Síðasta síðdegissamvera eldri borgara í Grensás-
kirkju í bili er í dag kl. 17.30, hefst hún með helgistund, Stofukórinn
syngur og Brynja Baldursdóttir, fyrrv. framhaldsskólakennari, segir
frá nokkrum vel völdum þáttum úr Njálu á sinn lifandi og skemmti-
lega hátt, kvöldverður kr. 1.000. Skráningu lauk sl. mánudag, upp-
lýsingar í síma 528-4410.
Gullsmári Myndlist kl. 9, ganga kl. 10, postulínsmálun / kvennabrids
/ silfursmíði kl. 13.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Botsía kl. 10–11, útskurður með leiðbeinanda kl. 9-12, 500 kr. skiptið,
allir velkomnir, opin handavinna kl. 9–14, hádegismatur kl. 11.30.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, zumbadans og
líkamsrækt kl. 9 hjá Carynu, morgunleikfimi kl. 9.45, jóga kl. 10 hjá
Carynu, samverustund kl. 10.30, lestur og spjall, hádegismatur kl.
11.30, handavinnuhópur kl. 13, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50, við hringborðið kl.
8.50, upplestrarhópur Soffíu kl. 9.45, ganga kl. 10, línudans með Ingu
kl. 10, zumba dans-leikfimi með Auði kl. 13, tálgun í ferskan við með
Valdóri kl. 14.30, síðdegiskaffi kl. 14.30, allir velkomnir óháð aldri,
upplýsingar í síma 411-2790.
Korpúlfar Ganga kl. 10 í dag frá Borgum og inni í Egilshöll, félags-
fundur Korpúlfa í Borgum kl. 13 í dag, vonumst til að sjá ykkur sem
flest. Qigong með Þóru Halldórsdóttir kl. 16.30 í dag, síðasti tími fyrir
sumarfrí.
Norðubrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, morgunleikfimi
kl. 9.45, viðtalstími hjúkrunarfræðings kl. 10-12, upplestur kl. 11,
félagsvist kl. 14, ganga með starfsmanni kl. 14, Bónusbíllinn kl. 14.40,
heimildarmyndasýning kl. 16.
Selið, Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-16 og upp úr kl. 10 er
boðið upp á kaffi þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin,
hádegisverður er kl. 11.30-12.15 og handavinnuhópurinn kemur
saman kl. 13, kaffi og meðlæti er selt á vægu verði kl. 14.30–15.30.
Allir eru hjartanlega velkomnir í Selið. Nánari upplýsingar hjá Maríu
Helenu í síma 568-2586.
Seltjarnarnes Gler neðri hæð Félagsheimilisins kl. 9. og 13, leir
Skólabraut kl. 9, botsía Skólabraut kl. 10.30, kyrrðarstund í kirkjunni
kl. 12, timburmenn Valhúsaskóla kl. 13, handavinna Skólabraut kl. 13
vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Ath. á morgun fimmtudaginn
26. apríl verður auka-spiladagur, félagsvist í salnum á Skólabraut kl.
13.30. Allir velkomnir.
Stangarhylur 4, Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði Stangarhyl 4, kl.
10, söngfélag FEB kóræfing kl. 16.30, stjórnandi Gylfi Gunnarsson.
Bókmenntahópur vor 2018, síðasta samveran í Stangarhylnum á
þessum vetri, fimmtudaginn 26. apríl kl. 14–16, umsjón Jónína Guð-
mundsdóttir. Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur kemur í heimsókn.
Félagslíf
Bænasamkoma kl. 20
í Kristniboðssalnum.
Ræðumaður Ólafur Jón
Magnússon. Allir velkomnir.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl 20.00.
HELGAFELL 6018011019 VI
Smáauglýsingar
Atvinnuhúsnæði
Til Leigu atvinnuhúsnæði
100 fm atvinnuhúsnæði á Granda
(Fiskislóð 31) til leigu. Sérinngangur á
jarðhæð með 5,5 metra lofthæð og
mikla möguleika fyrir verslun, skrif-
stofur, lager eða aðra starfsemi. Lítið
eldhús og klósett innan rýmis.
Björn, sími 897-084
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
ÝmislegtBílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
Atvinnublað
alla laugardaga
Sendu pöntun á
augl@mbl.is
eða hafðu
samband í síma
569-1100
Allar auglýsingar
birtast bæði í
Mogganum og
á mbl.is
ER AUGLÝSINGIN
ÞÍN Á BESTA STAÐ?