Morgunblaðið - 25.04.2018, Qupperneq 26
Það verður mega-partí í kvöld, égheld upp á afmælið
mitt á hverju ári. Ég er
yfirleitt bara með stelpu-
partí en þegar það er
stórafmæli þá mega
strákarnir koma líka,“
segir Gígja Birgisdóttir
sem á 50 ára afmæli í
dag. „Foreldrar mínir,
systir og margir vinir
mínir koma frá Íslandi í
afmælið og einnig nokkr-
ir frá París, en ég er
mikið þar.“
Gígja hefur búið í Lúx-
emborg frá 1994, en hún
flutti frá Íslandi árið 1989
þegar hún fór í viðskipta-
fræðinám í Bandaríkj-
unum. Hún rekur fyrir-
tækið Gia in Style.
„Þetta eru eiginlega tvö fyrirtæki, í fyrsta lagi ráðgjafafyrirtæki
þar sem við ráðleggjum fólki bæði um útlit og mannasiði, hvernig á
að undirbúa sig fyrir atvinnuviðtöl og hvernig á að hegða sér á
fundum og að virða kollega sína. Við erum reglulega með fyrirlestra
í Háskólanum í Lúxemborg og líka fyrir fyrirtæki. Í öðru lagi erum
við með módelskrifstofu, bæði fyrir tískuviðburði og t.d. auglýsingar
og tískusýningar en svo erum við líka með fólk á okkar snærum til
að vinna í móttökum fyrir ýmsa viðburði. Það er mikið að gera í því
og við höfum verið mjög heppin með viðskiptavini og höfum verið
að vinna með þeim aftur og aftur, eins og til dæmis Christian Dior
og Chanel.“
Sjálf er Gígja ekki óvön módelstörfum, en hún varð fegurðar-
drottning Íslands árið 1986 og vann aðeins við það eftir keppnina,
þótt hún hafi síðan farið fljótlega í nám.
„Það er æðislegt að vera með eigin rekstur, ég stofnaði fyrirtækið
2012 og það er farið að reka sig mikið sjálfkrafa. Ég vinn mikið með
sama fólkinu og get unnið hvar sem er, frá Íslandi eða hvar sem er í
heiminum. Það er aðallega ef það koma nýir viðskiptavinir sem ég
þarf sjálf að vera á staðnum. Ég ferðast mikið, var t.d. að koma til
baka frá Taílandi þar sem ég var á heilsuhóteli til að vera í góðu
formi og fín fyrir fimmtugsafmælið.“
Synir Gígju eru Leó Þór 17 ára og Viktor Týr 10 ára. „Svo á ég
eina prinsessu, hundinn minn sem heitir Tosca.
Með blómlegt fyrir-
tæki í Lúxemborg
Gígja Birgisdóttir er fimmtug í dag
Sumarleg Gígja Birgisdóttir.
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2018
Þ
órólfur Ágústsson fædd-
ist 25. apríl 1928 í Stykk-
ishólmi og ólst þar upp.
Þórólfur lauk barna-
skólanámi 1941 og var
tvo vetur við nám í Héraðsskólanum
á Laugarvatni og lauk þaðan lands-
prófi 1947. Hann stundaði nám í
Loftskeytaskólanum í Reykjavík og
lauk prófi vorið 1948.
Þórólfur var um tíma loftskeyta-
maður á togara og stundaði ýmis
störf til sjós og lands. Hann var
gjaldkeri og fulltrúi kaupfélags-
stjóra hjá Kaupfélagi Stykkishólms
1963-65 og rak útgerð og fiskverkun
í félagi við aðra í Stykkishólmi 1965-
69.
Þórólfur flutti með fjölskyldu
sinni frá Stykkishólmi til Þorláks-
hafnar 1970 þar sem hann gerðist
útibússtjóri KÁ. Því starfi gegndi
hann í tvö ár en tók þá við starfi úti-
bússtjóra við kaupfélagsbúð KBB á
Akranesi sem hann gegndi í fimm ár.
Hann flutti með fjölskyldu sinni til
Hafnarfjarðar 1977 þar sem fjöl-
skyldan rak um tíma tvær kjörbúðir.
Árið 1984 fluttu hjónin til Suður-
eyrar í Súgandafirði þar sem Þór-
ólfur starfaði sem útibússtjóri hjá
Kaupfélagi Ísfirðinga 1984-85. Þá
fluttu þau til Reykjavíkur þar sem
hann starfaði hjá Goða á Kirkjusandi
um tíma. Snemma árs 1986 tók hann
Þórólfur Ágústsson, fyrrverandi verslunarstjóri – 90 ára
Fjórir ættliðir Þröstur Þór Ágústsson, Þórólfur og Ágúst með óskírðan son Þrastar á sumardaginn fyrsta sl.
Ávallt virkur í kórstarfi
Systkinin Samankomin árið 1996 á ættarmóti en þá var Guðmundur, elsti
bróðirinn, látinn og Hrafnhildur sem býr í Bandaríkjunum komst ekki.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða
mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í
einn mánuð.
Hægt er að senda mynd
og texta af slóðinnimbl.
is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Á „Íslendinga“ síðum
Morgunblaðsins er
meðal annars sagt frá
merkum viðburðum
í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum,
barnsfæðingum
eða öðrum
tímamótum.