Morgunblaðið - 25.04.2018, Blaðsíða 27
við starfi útibússtjóra á Tálknafirði
hjá KVB. Er sá rekstur var aflagður
tók hann við starfi verslunarstjóra í
aðalbúð KVB á Patreksfirði. Árið
1987 fluttu hjónin á Akranes þar sem
þau ráku lítið fyrirtæki sem þau svo
seldu árið 1994 af heilsufarsástæðum
og fluttu til Reykjavíkur.
Þórólfur gegndi mörgum trún-
aðarstörfum þegar hann bjó í Stykk-
ishólmi. Hann sat í stjórnum hinna
ýmsu félaga og í hreppsnefnd ásamt
því að syngja í karlakór og kirkju-
kór. Hann tók jafnan þátt í kórstarfi
þar sem hann bjó. Á meðan þau
bjuggu á Akranesi starfaði Þórólfur
með kirkjukór Akraneskirkju og
með þeim kór fór hann m.a. í söngför
til Ísraels og Ítalíu um jólin 1977.
Eftir að þau hjón fluttu til Reykja-
víkur tóku þau þátt í söngstarfi Kórs
átthagafélags Strandamanna en þá
var þar kórstjóri Erla dóttir þeirra.
Þá tók hann þátt í starfi Kórs Bú-
staðakirkju og síðar jafnframt í Kór
Árbæjarkirkju.
Þórólfur tók mjög mikið af mynd-
um alla tíð af mannlífi og umhverf-
inu. „Ljósmyndasafnið á Akranesi
hafði samband við okkur fyrir
nokkrum árum til að falast eftir
myndum og við feðgar fórum með
nokkur þúsund myndir til þeirra,“
segir Ágúst, sonur Þórólfs.
Þórólfur bjó í Hafnarfirði á ár-
unum 1998-2016 en hefur verið bú-
settur í Hjúkrunarheimilinu Sunnu-
hlíð í Kópavogi síðan þá.
Fjölskylda
Þórólfur kvæntist 16. júní 1951
Huldu Þórðardóttur frá Miðhrauni í
Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi, f.
20.6. 1932, d. 14.2. 1997, en þann dag
giftu sig fjögur börn hjónanna á Mið-
hrauni. Foreldrar Huldu voru Ingi-
björg Guðmundsdóttir, f. 16. 5. 1893,
d. 3. 9. 1975, húsfreyja frá Mið-
hrauni, og Þórður Kristjánsson frá
Hjarðarfelli, f. 17.10.1889, d. 31.1.
1969, af Hjarðarfellsætt er þá
bjuggu á Miðhrauni. Þórólfur og
Hulda hófu sinn búskap í Stykkis-
hólmi.
Börn Þórólfs og Huldu eru Ágúst
Magni, f. 10.3. 1961, bifvélavirki í
Reykjavík, hann á fjögur börn og
þrjú barnabörn; Erla, f. 10.12. 1963,
söng- og píanókennari, kórstjóri og
organisti í Danmörku. Árið 1954
tóku þau hjón að sér tíu mánaða
gamla stúlku, Valgerði Kristjáns-
dóttur, f. 1.9. 1953, hún ólst upp hjá
þeim allt til fullorðinsára og á hún
sex börn.
Systkini Þórólfs eru Guðmundur
Kristján, f. 4.12. 1918, d. 3.12. 1978,
vann hjá Áburðarverksmiðjunni í
Gufunesi, Ásgeir Páll, f. 2.1. 1921, d.
11.12. 2003, starfsmaður Brunabót-
ar, Jón Dalbú, f. 16.9. 1922, d. 7.2.
2002, skipstjóri á Baldri, Sigurður, f.
23.9. 1925, d. 22.12. 2010, vegaverk-
stjóri í Stykkishólmi, Dagbjört Elsa,
f. 27.8. 1926, d. 29.8. 2011, hjúkr-
unarfræðingur í Reykjavík, Þóra, f.
30.4. 1935, d. 17.8. 1996, skrif-
stofustjóri hjá Búnaðarbanka í
Stykkishólmi og Reykjavík, Hrafn-
hildur, f. 18.9. 1938, húsfreyja í
Bandaríkjunum.
Foreldrar hans voru hjónin
Magðalena Níelsdóttir, f. 16.6. 1897,
d. 21.5. 1975, húsmóðir frá Sellátri á
Breiðafirði, og Ágúst Pálsson, f. 26.8.
1896, d. 14.7. 1959, skipstjóri frá
Höskuldsey á Breiðafirði, en þau
bjuggu lengst af í Stykkishólmi.
Þórólfur Ágústsson
Margrét Andrésdóttir
húsfreyja í Saurlátrum
Jón Bjarnasson
vinnumaður og síðar bóndi í Saurlátrum
Dagbjört Hannsína Jónsdóttir
húsfreyja í Sellátri og síðar í Stykkishólmi
Níels Breiðfjörð Jónsson
bóndi og sjómaður í
Sellátri og Stykkishólmi
Magðalena Níelsdóttir
húsfreyja og verkakona í
Vík við Stykkishólm
Rósa Bárðardóttir
húsfreyja í Akureyjum og síðar í Kanada
Jón Jónsson
bóndi í Akureyjum
Ástríður Þorsteinsdóttir
húsfreyja á Helgafelli
Jónas Sigurðsson
bóndi á Helgafelli
Ástríður Helga Jónasdóttir
húsfreyja í Höskuldsey
Metúsalen Páll Guðmundsson
bóndi og formaður í Höskuldsey
Katrín Andrésdóttir
húsfreyja á Neðri-Arnarstöðum
Guðmundur Illugason
bóndi á Neðri-Arnarstöðum í Helgafellssveit
Úr frændgarði Þórólfs Ágústssonar
Hannes Ágúst Pálsson
skipstjóri og útgerðarmaður í
Vík við Stykkishólm
Afmælisbarnið Þórólfur Ágústsson.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2018
100 ára
Guðrún Glúmsdóttir
90 ára
Björg Ólöf Berndsen
Þórólfur Ágústsson
85 ára
Sigrún Ingunn
Þorsteinsdóttir
Svanhildur Árnadóttir
80 ára
Gunnar Sverrir Ragnars
Sigurlaug Júlíusdóttir
Þorsteinn Hermannsson
75 ára
Eðvald Jóhannsson
Inga I. Svala Vilhjálmsdóttir
Kristján Páll Sigurpálsson
Rannveig Aðalbjörg
Jónsdóttir
Sólveig Margrét
Óskarsdóttir
Þrúður Sigríður
Guðnadóttir
70 ára
Ásthildur Magna
Kristjánsdóttir
Helga Ólafsdóttir
Ingólfur Helgason
Jón Ágúst Jóhannsson
Kristján Gunnarsson
Rannveig Sverrisdóttir
Rebekka Gústavsdóttir
Sigurþóra Stefánsdóttir
60 ára
Björgvin Ómar
Hrafnkelsson
Czeslaw Cyrek
Hannes Elfar Hartmannss.
Ingibjörg Ásgeirsdóttir
Ingibjörg Loftsdóttir
Jakobína Aðalbjörnsdóttir
Jólín Lilja Brynjólfsdóttir
Karl Jóhannsson
Kristjana Óladóttir
Marek Krzysztof Nowicki
Páll Karlsson
Sigrún Björg Ásmundsd.
Þuríður Jónbjörg Halldórsd.
50 ára
Anna Karlsdóttir Taylor
Bergdís Sveinjónsdóttir
Cesar B. Goncalves
Finnlaugur Pétur Helgason
Friðrik Sverrisson
Haukur Parelius Finnsson
Jóhannes Gylfi Ólafsson
Kristinn Jóhann Hjartarson
Kristján Indriðason
Krzysztof Jarmuz
Ólafur Már Hjartarson
Óskar Helgason
Sigríður Guðný Guðnadóttir
Sigrún Birgitte Pálsdóttir
40 ára
Arturas Pronskus
Eva Björk Bragadóttir
Georges-Jorj Gheorghiu
Gyða Thorlacius Guðjónsd.
Harpa Sigurbjörnsdóttir
Hildur Eir Bolladóttir
Ragnheiður Hjartardóttir
Sigurlaug Anna Kristinsd.
Stefán Jóhann Svansson
Sunna Lind Smáradóttir
30 ára
Arna Dalrós Guðjónsdóttir
Ásgeir Guðjónsson
Björg Halldórsdóttir
Eva Margrét Pétursdóttir
Ewelina Zyznowska
Heiða Björg Jónasdóttir
Heimir Stefánsson
Lilja Guðmundsdóttir
Þórarinn Valmundsson
Til hamingju með daginn
40 ára Ragnheiður er frá
Helgafelli á Snæfellsnesi en
býr í Reykjavík. Hún er
hjúkrunarfr. á LSH.
Maki: Sigurður Hreiðars-
son, f. 1977, bóndi á Narf-
eyri á Skógarströnd.
Systkini: Jóhanna Kristín,
Ástríður, Guðmundur, Hin-
rik, Óskar og Ósk.
Foreldrar: Hjörtur Hinriks-
son, f. 1944, bóndi á Helga-
felli, og Kristrún Guð-
mundsdóttir, f. 1945, d.
1993, húsmóðir á Helgafelli.
Ragnheiður
Hjartardóttir
30 ára Lilja er Reykvík-
ingur og er félagsliði að
mennt.
Maki: Orri Snævar Stef-
ánsson, f. 1990, sölu-
maður hjá Brimborg.
Börn: Alexandra Líf, f.
2011, og Embla Nótt, f.
2012.
Foreldrar: Guðmundur
Ragnarsson, f. 1954, vinn-
ur hjá Malbikunarstöðinni
Höfða, og Sigríður Giss-
urardóttir, f. 1955. Þau
eru búsett í Reykjavík.
Lilja Guðmunds-
dóttir
30 ára Þórarinn er frá
Eystra-Hrauni í Landbroti,
V-Skaft. Hann býr í Reykja-
vík og er bifvélavirki hjá
Brimborg.
Maki: Hrafnhildur Magn-
úsdóttir, f. 1986, sjúkraliði.
Systkini: Jón Hilmar Jón-
asson, f. 1984, og Lína
Dögg, f. 2000.
Foreldrar: Valmundur
Guðmundsson, f. 1964, og
Una Kristín Jónsdóttir, f.
1966, bændur á Eystra-
Hrauni.
Þórarinn
Valmundsson
Laufey Hrólfsdóttir hefur varið dokt-
orsritgerð sína í næringarfræði við mat-
væla- og næringarfræðideild Háskóla
Íslands. Ritgerðin ber heitið: Rannsókn
á tengslum mataræðis á meðgöngu,
þyngdaraukningar og heilsu barna síðar
á ævinni (Examining the link between
maternal nutrition, gestational weight
gain, and later offspring health).
Umsjónarkennarar og leiðbeinendur
voru dr. Þórhallur Ingi Halldórsson og
dr. Bryndís Eva Birgisdóttir, prófessorar
við matvæla- og næringarfræðideild HÍ.
Markmið doktorsverkefnisins var að
bæta vísindalega þekkingu hvað varðar
tengsl næringar verðandi móður,
þyngdaraukningar á meðgöngu og
efnaskiptaþátta barna. Einnig var mark-
miðið að greina fæðuþætti sem hafa
forspárgildi þegar kemur að óhóflegri
þyngdaraukningu á meðgöngu. Notast
var við tvær ólíkar framvirkar ferilrann-
sóknir. Í fyrri hluta verkefnisins voru
gögn frá áhorfsrannsókninni Danish
Fetal Origins Cohort nýtt. Rannsóknin
hófst 1988-1989 í Árósum og var með
20 ára eftirfylgni. Seinni hlutinn var aft-
ur á móti byggður á nýlegum gögnum
frá íslensku þýði, þ.e. PREgnant Women
of ICEland. Niðurstöður frá danska þýð-
inu benda til þess
að næring kvenna
á meðgöngu og
þyngdaraukning
umfram ráðlegg-
ingar geti mögu-
lega haft áhrif á
gildi bólguþátta á
meðgöngu og
efnaskiptaþætti
barna snemma á fullorðinsaldri. Þrátt
fyrir að tengsl við langtímaútkomur
barna væru hófleg, er ekki hægt að úti-
loka að þessar lítilvægu breytingar geti
orðið greinilegri síðar á ævinni. Aðferðir
sem eru notaðar til að meta fæðuval í
áhorfsrannsóknum eru oft mjög ítar-
legar og tímafrekar. Upplýsingum um
mataræði í íslensku rannsókninni var
safnað með því að nota stuttan skim-
unarlista fyrir fæðuval sem gaf mynd af
almennu fæðuvali þátttakenda. Niður-
stöðurnar frá íslenska þýðinu benda til
þess að með því að spyrja einfaldra
spurninga um fæðuval í upphafi með-
göngu, sé mögulega unnt að finna kon-
ur sem þurfa aukinn stuðning og ráð-
gjöf til að þyngjast í samræmi við
ráðleggingar og finna konur í aukinni
áhættu á því að fæða þungbura.
Laufey Hrólfsdóttir er fædd á Akureyri árið 1984. Hún lauk stúdentsprófi af
náttúrufræðibraut Menntaskólans á Akureyri árið 2004, BS-prófi í líftækni frá
Háskólanum á Akureyri fjórum árum síðar og MS-prófi í næringarfræði frá
Háskóla Íslands árið 2013. Laufey er forstöðumaður deildar mennta, vísinda og
gæða við Sjúkrahúsið á Akureyri. Sambýlismaður hennar er Friðrik Ragnar
Friðriksson og synir þeirra heita Kristófer Kató og Franz Hrólfur.
Doktor
Laufey Hrólfsdóttir
Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is
Frábært
verð á glerjum
Einfókus gler
Verð frá kr. 16.900,-
Margskipt gler
Verð frá kr. 41.900,-
Vanni umgjarðir eru
hágæða ítölsk hönnun.
Handsmíði fagmanna
með áratuga kunnáttu
og þekkingu.
Vanni umgjörð
kr. 27.900,-