Morgunblaðið - 25.04.2018, Side 36
MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 115. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. „Ég var bara rekinn“
2. „Ég sé ógeðslega eftir þessu“
3. Slökkt á öndunarvél í kjölfar dóms
4. Andar enn án öndunarvélar
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Richard Andersson NOR tríó kemur
fram á tónleikum Jazzklúbbsins Múl-
ans á Björtuloftum í Hörpu í kvöld kl.
21. Tríóið skipa bassaleikarinn og
tónskáldið Richard Andersson, saxó-
fónleikarinn Óskar Guðjónsson og
trommuleikarinn Matthías M.D. Hem-
stock. Tríóið hefur haldið fjölda tón-
leika á Íslandi, í Danmörku og Fær-
eyjum með efnisskrá sem saman-
stendur af frumsömdu efni. Í kvöld
mun tríóið leika nýtt efni sem verður
gefið út í haust.
Leika nýtt efni
Harpa Ófelíu,
örhljóðverk Sverr-
is Guðjónssonar
sem hann samdi
árið 2016 fyrir ör-
hljóðverkakeppni
Rásar 1, Shake-
speare á fimm
mínútum, hlaut
fyrstu verðlaun í
flokki örverka á útvarpsverkahátíð-
inni UK International Radio Drama
Festival sem fór fram 19.-24. mars í
Herne Bay í Kent á Englandi. Verkið
hefur einnig verið valið á hátíðina Int-
ernational Radio Drama sem haldin
verður á eyjunni Hvar 19.-25. maí.
Hlaut fyrstu verðlaun
Sópransöngkonan Hrund Ósk og
píanóleikarinn Kristinn Örn Krist-
insson halda tónleika í Salnum í
Kópavogi annað kvöld kl. 20 og eru
þeir helgaðir minningu óperusöng-
konunnar Mariu Callas. Hrund syngur
þekktustu aríur
Callas sem og sér-
valin ljóð eftir
Strauss. Á laugar-
daginn halda
Hrund og Kristinn
svo tónleika í
Hömrum á Ísafirði
kl. 15.
Í minningu Callas
Á fimmtudag Austlæg átt, 3-10 m/s, en norðlæg átt 3-10 A-lands.
Rigning á láglendi á S- og SA-landi, en slydda eða snjókoma til
fjalla. Hiti 0 til 8 stig að deginum, hlýjast á SV-landi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Svipað veður í dag og var í gær en þó él fyrir
norðan. Hiti 0 til 10 stig að deginum, hlýjast S-lands, en frystir víða
um nóttina, einkum norðantil.
VEÐUR
Íslandsmeistarar Þórs/KA
unnu Stjörnuna í víta-
spyrnukeppni í úrslitaleik
Lengjubikars kvenna í
knattspyrnu á Akureyri í
gærkvöld. Staðan að lokn-
um venjulegum leiktíma var
2:2 en þá hafði Þór/KA
misst aðalmarkvörð sinn
meiddan af velli og Bianca
Sierra fengið rautt spjald.
Varamarkvörður Þórs/KA
var svo hetja liðsins í víta-
spyrnukeppninni. »2
Varamarkvörður
hetja meistaranna
Eyjamenn unnu fyrsta leik sinn við
Hauka í undanúrslitum Íslandsmóts
karla í handbolta í Vestmannaeyjum í
gærkvöld. Mikil spenna var í leiknum
en ÍBV vann að lokum sigur, 24:22,
þrátt fyrir að leika án fyrirliðans
Magnúsar Stefánssonar á lokakafl-
anum. Magnús fékk
beint rautt spjald fyrir
högg í andlit eins
leikmanna
Haukaliðsins.
»2
Fyrirliðinn sá rautt en
ÍBV komst í 1:0
Haukar komust í 2:1 í einvígi sínu við
Val í úrslitum Íslandsmóts kvenna í
körfubolta í gærkvöld með nokkuð
öruggum sigri á heimavelli sínum í
Hafnarfirði, 96:85. Haukakonur hittu
sérstaklega vel utan þriggja stiga lín-
unnar í gær eða úr rétt tæplega
helmingi skota sinna þaðan. Þær
geta orðið Íslandsmeistarar með
sigri á Hlíðarenda á morgun. »2
Haukakonur eru sigri
frá Íslandsmeistaratitli
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
Norræna nemakeppnin í matreiðslu
og framreiðslu fór fram í Hótel- og
veitingaskólanum í Kaupmannahöfn
um síðastliðna helgi. Þar unnu ís-
lensku framreiðslunemarnir til gull-
verðlauna og matreiðslunemarnir
fengu silfurverðlaun.
Tveir framreiðslunemar og tveir
matreiðslunemar, 23 ára og yngri,
kepptu frá hverju landi. Keppnin
stóð yfir í tvo daga, verkefnin voru
fjölbreytt og nemarnir þreyttu fag-
próf.
Nemar frá Danmörku, Finnlandi,
Íslandi, Noregi og Svíþjóð kepptu
um titilinn matreiðslu- og fram-
reiðslunemi Norðurlanda.
Í framreiðslu fyrir Ísland kepptu
Sigurður Borgar Ólafsson, nemi á
Radisson SAS Blu, og Axel Árni
Herbertsson, nemi hjá Bláa lóninu.
Þjálfari var Tinna Óðinsdóttir.
Létt lund og góð samvinna
„Mér finnst eins og við höfum
sigrað á góða skapinu,“ segir Axel
Árni sem segir létta lund og góða
samvinnu hafa haldist út keppnina
sem hafi verið krefjandi. „Það var
heiður fyrir okkur að fá að keppa
fyrir Ísland og koma heim með gull-
ið.“ Undir það tekur Sigurður Borg-
ar, en hann er að fara að keppa í
Euroskills í Búdapest í haust. Hann
þakkar jafnframt góðri þjálfun og
miklum undirbúningi nemanna.
Íslensku keppendurnir í mat-
reiðslu voru Steinbjörn Björnsson,
nemi í Hörpu, og Hinrik Lárusson,
nemi á Radisson SAS Blu. Þjálfari
var Georg Arnar Halldórsson.
„Danir fengu gullið, sem kom pínu
á óvart, Svíar voru metnir mjög
sterkir en voru svo á eftir okkur,“
segir Hinrik en hann hlaut nýlega
silfur á Nordic Chef Junior.
Matreiðslunemarnir matreiddu
klassíska aspassúpu, lystauka,
„Amuse-bouches“, úr nautaskanka
og Jerúsalem-ætiþistlum, og heitan
grænmetisrétt. Hluti hráefnisins
kom úr ræktun skólans.
Á laugardeginum unnu kepp-
endur í framreiðslu og matreiðslu
saman að verkefnum dagsins. Þau
fengu svokallaða leyndarkörfu og
áttu að mat- og framreiða fimm
rétta máltíð. Hráefnin voru kjúk-
lingur, kjúklingalifur, bleikja, hum-
ar, möndlur, hvítt súkkulaði og rab-
arbari.
Framreiðslunemarnir kepptu í
vínfræðum, fyrirskurði, uppdekkn-
ingu á borðum og borðskreytingum,
pöruðu vín með matseðlum, blönd-
uðu hanastél, kepptu í mismunandi
framreiðsluaðferðum og faglegri
framreiðslu.
Góða skapið er gulls ígildi
Framreiðslu-
nemar sigruðu í
norrænni keppni
Ljósmynd/Ólafur Jónsson
Gull- og silfurverðlaunahafarnir Frá vinstri á myndinni eru Hinrik Lárusson matreiðslunemi, Axel Árni Herberts-
son framreiðslunemi, Sigurður Borgar Ólafsson matreiðslunemi og Steinbjörn Björnsson matreiðslunemi.
„Keppnin hefur verið haldin í um
30 ár. Okkur hefur í gegnum tíðina
gengið betur í matreiðslu. Þjálf-
unin á veitingastöðunum og
kennslan í skólanum hefur náð að
spila vel saman,“ segir Ólafur
Jónsson, sviðsstjóri matvæla- og
veitingasviðs hjá IÐAN.
„En nú hrepptum við gullið í
framreiðslu, sem er stór áfangi því
Danir hafa verið mjög sterkir í
framreiðslu og þarna voru þeir á
heimavelli,“ segir Ólafur og kveðst
ánægður með frábæran árangur
nemanna.
Að nema matreiðslu og fram-
reiðslu njóti vaxandi vinsælda, sér-
staklega matreiðslan og keppnir
séu eitt af því sem geri námið
áhugavert og skemmtilegt.
„Það er mikil lyftistöng fyrir
nema að fá að spreyta sig í keppni
og mikill áhugi á að taka þátt og
spreyta sig á meðal jafningja.“
Keppni er nemum lyftistöng
SIGURINN Í FRAMREIÐSLU SÉRSTAKLEGA ÁNÆGJULEGUR