Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.04.2018, Page 2
Mikið lifandis skelfingar ósköp fór vel á með þeim EmmanuelMacron Frakklandsforseta og hinum bandaríska kollega hans,Donald Trump, í og við Hvíta húsið við upphaf opinberrar
heimsóknar þess fyrrnefnda í vikunni. Sáuð þið þessar myndir? Þeim virt-
ist lífsins ómögulegt að taka hendurnar hvor af öðrum. Uppákoman
minnti einna helst á turtildúfur úr stétt kóngafólks að opinbera trúlofun
sína. Og kannski rúmlega það, alltént var Harry Bretaprins hvergi nærri
eins fjölþreifinn þegar hann frumsýndi hana Meghan sína fyrir fáeinum
mánuðum. Var ást þeirra þó ósvik-
in.
Einu þjóðarleiðtogarnir sem slá
Macron og Trump mögulega við
eru Leoníd gamli Bréshnev og Er-
ich Honecker en sá sovéski smellti
sem frægt er einum rennblautum á
hinn austur-þýska starfsbróður
sinn um árið. Beint á munninn.
Enginn sem hana hefur séð losnar
við þá mynd úr kollinum.
Þeir koma, að því er virðist, hvor
úr sinni áttinni; Macron þessi blíði
nútímalegi metrósexúalmaður, og Trump svolítið hrjúfur, luralegur og
gamaldags, svo við orðum það bara pent. Eigi að síður eru þeir alveg
dæmalaust fleðulegir hvor í garð annars. Hver man ekki eftir því þegar
Macron ruddi hverjum þjóðarleiðtoganum af öðrum hér um bil um koll til
að geta staðið við hliðina á Trumpinum á ljósmynd sem til stóð að taka á
fundi Atlantshafsbandalagsins, helstu iðnríkja heims eða einhverra slíkra
höfðingjaklúbba. Man ekki nákvæmlega hverjum. Svo virðist sem Macron
tilbiðji manninn; nema þá hann vilji bara halda óvininum þétt að sér. Það
er kunn herkænska.
Núna þegar Donald Trump hefur sýnt á sér þessa alúðlegu kossa- og
knúshlið lofar það tvímælalaust góðu þegar hann loksins hittir ólík-
indatólið Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu. Maður sér strax fyrir sér
tilhlaup í anda Cathy og Heathcliff í Fýkur yfir hæðir. Báðir eru þeir
mjúkir menn á línurnar og vel má ímynda sér kappana skella saman, líða
út af og velta sér í urrandi alsælu upp úr Móður jörð. Rjóða í vöngum.
Þeirrar stundar myndu allir menn njóta; nema mögulega aumingja
Emmanuel Macron. Hann yrði ugglaust ofurlítið abbó.
AFP
Alúðlegir þjóð-
höfðingjar
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.iis
’Maður sér strax fyrirsér tilhlaup í andaCathy og Heathcliff íFýkur yfir hæðir.
Hvað er að frétta?
„Útgáfa nýju plötunnar minnar og undirbúningar
myndlistarsýningarinnar sem hófst á fimmtudag hef-
ur yfirtekið allt. Það verður gott, þegar þetta er búið,
að fara að hugsa um náttúrulegri hluti eins og garð-
yrkju og vorverk.“
Hvernig er hljómurinn á nýju plötunni?
„Að sumu leyti er hann svipaður og á fyrri plötunum,
kannski að einhverju leyti þyngri, aðeins dekkri litir.
Alltaf er þó verið að tala um hversdagslegar glímur.“
Hvaðan kemur titill plötunnar, Þriðja
kryddið?
„Þegar ég hlustaði á plötuna þegar hún var tilbúin fattaði
ég að það var eitthvert leiðarstef þarna, eins og að velja ein-
faldar leiðir í lífinu. Þá varð þessi titill til í kjölfarið því þriðja
kryddið er einföld leið í matreiðslu og ákveðin lífsspeki – ef þú
ferð þriðja krydds leiðina í lífinu þá ertu að velja einföldu leiðina en
ekki þá flóknu.“
Hvernig verk ertu með á myndlistarsýningunni?
„Þemað á sýningunni er líka þriðja kryddið en eitt lag á plötunni, „Er
of seint að fá sér kaffi núna?“, hefur heltekið mig. Ég tengi þá spurn-
ingu við svo margt annað sem maður veltir fyrir sér; Er of seint að
gera eitthvað ákveðið í lífinu núna? Er ég of gamall fyrir þetta núna?
Ég bjó til nokkur skilti út frá þessum lagatitli, grafísk verk, og svo
sýni ég ljósmyndir af hringtorgunum á Reykjanesbrautinni sem hafa
verið mér hugleikin í mörg ár.“
Hvað er framundan eftir útgáfutónleikana?
„Túr um landið. Ég tek mér smá hlé meðan Íslendingar njóta að
hlusta á Eurovision og ég geri það líka sjálfur, en það er ekki hægt
að halda uppi annarri skemmtidagskrá á meðan. Maí fer í tónleika-
ferðalög og svo fer maður í Havaríið fyrir austan í lok maí, þá byrjar
tónleikadagskrá í Berufirði sem stendur fram í ágúst en við kynnum
þá dagskrá 2. maí.“
Hvernig leggst sumarið í þig og hver verða
sveitaverkin?
„Reyni að koma fræjum og útsæði ofan í jörðina í maí. Sumarið
leggst mjög vel í mig, ég vona að tíðin verði góð og það er komin smá
reynsla á þetta hjá okkur fyrir austan, maður er ekki að gera allt í
fyrsta skipti núna. Það er öryggi sem fylgir því og smá rútína, mað-
ur gerir hlutina betur og það er skemmtilegt.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
PRINS PÓLÓ
SITUR FYRIR SVÖRUM
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.4. 2018
Ritstjórn
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Sara Matthíasdóttir
Já, ég geri það. Mér finnst nafnið á
prinsinum krúttlegt. Ég hélt samt
að það yrði Albert.
SPURNING
DAGSINS
Fylgist þú
með fréttum
af bresku
konungs-
fjölskyld-
unni?
Liam Hewitt
Ég geri það stundum; ég er þaðan.
Ég veit samt ekki hvað litli prinsinn
heitir.
Jens Arnljótsson
Nei, það geri ég ekki, ekki neitt.
Ragnhildur Anna Þorgeirsdóttir
Nei, ekki nema það sem dúkkar upp
á Facebook og jú, ég les mikið um
þau á mbl.is.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndin er af
Getty Images/
iStockphoto
Svavar Pétur Eysteinsson, betur þekktur sem tónlistarmaðurinn Prins
Póló, gaf út sína þriðju plötu í vikunni, Þriðja kryddið. Myndlistarsýning
með verkum eftir hann var líka opnuð í Gallerí Port á Laugavegi og
stendur til 1. maí. Svavar og eiginkona hans, Berglind Häsler, reka gisti-
heimili og menningarstarfsemi í Berufirði sem kallast Havarí.
Spurningin
um kaffið
heltók hann