Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.04.2018, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.04.2018, Blaðsíða 21
Við erum með frekar einfaldan stíl en viljum samt hafa hlut-ina aðeins öðruvísi en aðrir. Okkur finnst gaman að hafafallegt í kringum okkur en leggjum mikla áherslu á þæg- indi og notagildi. Við erum hrifin af því að blanda saman nýjum og notuðum hlutum,“ útskýrir Unnur og bætir við að stíllinn snúist líka mikið um rétt litaval hverju sinni og fallega lýsingu. Parið fékk íbúðina afhenta í maí 2017 og flutti inn í september sama ár. Þau fóru í miklar framkvæmdir og tóku alla íbúðina í gegn án þess þó að breyta upphaflegu skipulagi. „Við tókum aðra íbúð í gegn fyrir tveimur árum með aðstoð pabba hans Sindra og vissum því hvað við vorum að fara út í,“ útskýrir Unnur en faðir Sindra, Tryggvi Tryggvason, er arkitekt og mjög handlaginn. „Hann hannaði fyrir okkur eldhúsið ásamt því að hanna og smíða stofu- borð, hljóðvegg, rúmgafl og fleira,“ segja þau og gætu ekki verið ánægðari með útkomuna. Unnur og Sindri leggja áherslu á að heimilið sé einfalt og tíma- laust. „Þægindi skipta okkur einnig miklu máli. Við vöndum vel valið og hugsum okkur vel um áður en við kaupum nýja hluti inn á heimilið. Við erum líka bæði mjög skipulögð og viljum að allir hlut- ir eigi sinn stað á heimilinu,“ segir Sindri aðspurður hvað sé mikil- vægast við innréttingu heimilisins. Parið segist versla helst inn á heimilið í Epal og Lumex. „Þær búðir eru í miklu uppáhaldi, við getum alltaf fundið okkur eitthvað þar. Einnig höfum við verslað mikið í Ilvu og IKEA. Eldhús- innréttingin er til dæmis úr IKEA en við létum svo sérsmíða í kringum hana og fengum okkur vandaða borðplötu úr corian-efni. Síðan höfum við verslað heilmikið erlendis í gegnum tíðina.“ Unnur og Sindri bjuggu í Svíþjóð fyrir nokkrum árum og segj- ast þar af leiðandi sækja innblástur í skandinavíska hönnun. „Við ólumst bæði upp á fallegum heimilum og höfum alltaf kunnað að meta fallega hluti og hönnun. Unnur er síðan dugleg að skoða instagram,“ útskýrir Sindri, sem er bara nýbúinn að ná í smáfor- ritið og kann voða lítið á það. Aðspurð hvað sé eftirlætisrými fjölskyldunnar á heimilinu eru Unnur og Sindri sammála um að eldhúsið sé í uppáhaldi, „við eyð- um miklum tíma þar og þaðan er líka æðislegt útsýni út á sjó“. Morgunblaðið/Valli Unnur Skúladóttir og Sindri Tryggvason hafa gaman af að gera fallegt í kringum sig. Heimili fagurkera í Vesturbænum Unnur Skúladóttir, flugfreyja hjá Iceland- air, og Sindri Tryggvason, sem starfar hjá flutningastýringardeild Samskipa, búa í smekklega innréttaðri íbúð í Vesturbænum ásamt tveggja ára syni sínum, Bjarti. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Eldhúsinnréttingin er úr IKEA en parið lét sérsmíða í kringum hana. Borðplatan er úr corian. Einstakt stofuborðið er hönn- un Tryggva Tryggvasonar. Bekkur úr línu Ilse Crawford fyrir Ikea. Áhugi parsins á skandin- avískri hönnun leynir sér ekki á heimilinu. String-hillan sem geymir fágaða hönnunarmuni. Smart eldhúsmunir setja skemmtilegan svip á eldhúsið. 29.4. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.