Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.04.2018, Side 21
Við erum með frekar einfaldan stíl en viljum samt hafa hlut-ina aðeins öðruvísi en aðrir. Okkur finnst gaman að hafafallegt í kringum okkur en leggjum mikla áherslu á þæg-
indi og notagildi. Við erum hrifin af því að blanda saman nýjum og
notuðum hlutum,“ útskýrir Unnur og bætir við að stíllinn snúist
líka mikið um rétt litaval hverju sinni og fallega lýsingu.
Parið fékk íbúðina afhenta í maí 2017 og flutti inn í september
sama ár.
Þau fóru í miklar framkvæmdir og tóku alla íbúðina í gegn án
þess þó að breyta upphaflegu skipulagi. „Við tókum aðra íbúð í
gegn fyrir tveimur árum með aðstoð pabba hans Sindra og vissum
því hvað við vorum að fara út í,“ útskýrir Unnur en faðir Sindra,
Tryggvi Tryggvason, er arkitekt og mjög handlaginn. „Hann
hannaði fyrir okkur eldhúsið ásamt því að hanna og smíða stofu-
borð, hljóðvegg, rúmgafl og fleira,“ segja þau og gætu ekki verið
ánægðari með útkomuna.
Unnur og Sindri leggja áherslu á að heimilið sé einfalt og tíma-
laust. „Þægindi skipta okkur einnig miklu máli. Við vöndum vel
valið og hugsum okkur vel um áður en við kaupum nýja hluti inn á
heimilið. Við erum líka bæði mjög skipulögð og viljum að allir hlut-
ir eigi sinn stað á heimilinu,“ segir Sindri aðspurður hvað sé mikil-
vægast við innréttingu heimilisins.
Parið segist versla helst inn á heimilið í Epal og Lumex. „Þær
búðir eru í miklu uppáhaldi, við getum alltaf fundið okkur eitthvað
þar. Einnig höfum við verslað mikið í Ilvu og IKEA. Eldhús-
innréttingin er til dæmis úr IKEA en við létum svo sérsmíða í
kringum hana og fengum okkur vandaða borðplötu úr corian-efni.
Síðan höfum við verslað heilmikið erlendis í gegnum tíðina.“
Unnur og Sindri bjuggu í Svíþjóð fyrir nokkrum árum og segj-
ast þar af leiðandi sækja innblástur í skandinavíska hönnun. „Við
ólumst bæði upp á fallegum heimilum og höfum alltaf kunnað að
meta fallega hluti og hönnun. Unnur er síðan dugleg að skoða
instagram,“ útskýrir Sindri, sem er bara nýbúinn að ná í smáfor-
ritið og kann voða lítið á það.
Aðspurð hvað sé eftirlætisrými fjölskyldunnar á heimilinu eru
Unnur og Sindri sammála um að eldhúsið sé í uppáhaldi, „við eyð-
um miklum tíma þar og þaðan er líka æðislegt útsýni út á sjó“.
Morgunblaðið/Valli
Unnur Skúladóttir og Sindri
Tryggvason hafa gaman af að
gera fallegt í kringum sig.
Heimili fagurkera í Vesturbænum
Unnur Skúladóttir, flugfreyja hjá Iceland-
air, og Sindri Tryggvason, sem starfar hjá
flutningastýringardeild Samskipa, búa í
smekklega innréttaðri íbúð í Vesturbænum
ásamt tveggja ára syni sínum, Bjarti.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Eldhúsinnréttingin er úr IKEA en
parið lét sérsmíða í kringum hana.
Borðplatan er úr corian.
Einstakt stofuborðið er hönn-
un Tryggva Tryggvasonar.
Bekkur úr línu Ilse
Crawford fyrir Ikea.
Áhugi parsins á skandin-
avískri hönnun leynir sér
ekki á heimilinu.
String-hillan sem geymir
fágaða hönnunarmuni.
Smart eldhúsmunir
setja skemmtilegan
svip á eldhúsið.
29.4. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21