Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.04.2018, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.04.2018, Blaðsíða 8
Smám saman rennur upp fyrirokkur sú kreppa sem heim-urinn er í; hve vanmegna hann er frammi fyrir stríðsátökum og ofbeldi. Árás þriggja NATÓ-ríkja á Sýrland minnir á þetta og þá ekki síður yfirlýsingar stjórnmálamanna í kjölfarið, hér á landi sem annars staðar. „Alþjóðasamfélagið brást því Öryggisráðið náði ekki sam- komulagi“, segir einn, „þetta var viðbúið“, segir forsætisráðherra, og „skiljanlegt“ segir utanríkisráðherr- ann, „því miður erum við ekki komin með nýja stjórnarskrá, annars hefði Alþingi rætt málið“, segir stjórn- arandstaðan … En um eitt eru all- ir sammála, nú þurfi „alþjóða- samfélagið“ að semja. Um hvað á að semja? Væntanlega framtíð Sýrlands. Og hvaða „al- þjóðasamfélag“? Eflaust hið sama og náði ekki saman í Öryggisráði Sam- einuðu þjóðanna. Þar er sérstaklega horft til Rússa, Bandaríkjamanna, Breta og Frakka og svo náttúrlega til viðbótar Írans, Sádi-Arabíu, Ísr- aels og Tyrklands en öll þessi ríki koma með beinum og óbeinum hætti að stríðinu í Sýrlandi, eru þátttak- endur í því. Og ekki má gleyma ISIS, sem farið hefur með framkvæmdina. Eflaust þykir eðlilegt að stjórnvöld í Sýrlandi fái einnig sæti við samn- ingaborðið en varla Kúrdar eða fulltrúar búsá- haldamótmæl- enda sem and- mæltu Assad forseta fyrir tæp- um áratug en var sópað til hliðar þegar ISIS og aðrir ámóta mættu með skrið- dreka, sprengju- vörpur og sveðj- ur. Og þá höfum við það. Krafan er sem sagt að þetta „alþjóða- samfélag“ skuli ráða örlögum Sýrlendinga. Það er þarna sem nítjánda öldin kemur upp í hugann. Við hana kennum við nýlendutím- ann. Þegar herveldi, einkum í okkar heimshluta, réðu lögum og lofum um örlög þjóða í drjúgum hluta jarð- arkringlunnar. Ráðsmennska þeirra birtist okkur enn þann dag í dag í landamærum ríkja allt frá Indlands- kaga og vestur og suður úr. Mið- Austurlönd og nánast öll Afríka er með einföld og þráðbein landamæri; ljóst að hvorki fjöll né fljót, hvað þá menning eða tunga og alls ekki lif- andi fólk með óskir og vilja hefur truflað við gerð heimskortsins. Frægt að endemum í þessu sam- hengi er Sykes-Pycot-samkomulagið frá 1916 þar sem gömlu nýlendu- veldin, Bretland og Frakkland, með samþykki Rússakeisara, bútuðu nið- ur Ottómanaveldið undir kristal- ljósakrónunum í London og París. Þaðan séð var veruleikinn svo ein- faldur að reglustika nægði sem vinnutæki til að móta heiminn að vild. En síðan kom í ljós að heimurinn er ekki alveg svona einfaldur, hin fjarlægu fjöll eru ekki blá þegar nær er komið. Þótt Gaddafi Líbíuforseti hafi án efa verið brjálaður harðstjóri er álitamál hvort hann kemst í hálf- kvisti við þá sem „alþjóðasam- félagið“ setti til valda í hans stað eft- ir tíu þúsund loftárásir á Líbíu um árið. Newsweek segir að Líbíustjórn láti gott heita að fram fari þrælasala þar sem flóttafólk sunnar úr Afríku sé falboðið hæstbjóðendum til eignar á uppboðsmörkuðum. Það hefði Gadafi þó aldrei leyft, segir News- week. En er þá ekkert hægt að gera? Jú, heimurinn þarf að hefja sig upp úr gömlum hjól- förum nýlendu- hugsunarinnar. Víetnamstríðinu lauk á sínum tíma þegar árás- arherirnir höfðu sig á brott úr landinu. Af þessu má draga lær- dóma. Í öðru lagi þarf að leggja Öryggisráð Sam- einuðu þjóðanna niður, því það er valdatæki hern- aðarhyggjunnar, reglustika samtímans. NATÓ á líka heima á minjasafni um liðna tíð. Síðan þarf að lýðræðisvæða Sam- einuðu þjóðirnar. Það er hægara sagt en gert en með einhverjum hætti þarf á raunhæfan hátt að mæta áskorun Kofi Annans frá því um síðustu aldamót um að koma til aðstoðar fólki sem níðst er á, hvort sem er af hendi erlendra árásarherja eða af eigin stjórnvöldum. Þessari göfugu hugsun um ábyrgð til að verja hinn veika, „responsibility to protect“, eins og það heitir á ensku, var umsvifalaust stolið og hún nýtt í vopnabúri ráðsmanna heimsins og beitt til að efla þeirra eigin völd, setja andstæðinga sína af en halda þeim við völd sem hliðhollir eru. Það er þörf á byltingu í hugarfari heimsins. Hann þarf að hefja sig upp úr gömlum hjólförum og hugsa upp á nýtt. Í hjólförum nítjándu aldar ’Krafan er sem sagt aðþetta „alþjóða-samfélag“ skuli ráða ör-lögum Sýrlendinga. Það er þarna sem nítjánda öldin kemur upp í hug- ann. Við hana kennum við nýlendutímann. Þeg- ar herveldi, einkum í okk- ar heimshluta, réðu lög- um og lofum um örlög þjóða í drjúgum hluta jarðarkringlunnar. Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@ogmundur.is VETTVANGUR 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.4. 2018 Nanna Rögn- valdardóttir matargúru með meiru skrifaði á Face- book: „Sá í Vikunni að all- ar konur ættu að eiga falleg nær- föt til að auka sjálfstraustið. En ég er nú bara komin á þann ald- ur að ég held að sjálfstraustið myndi ekkert styrkjast. Það var kannski öðruvísi hér áður fyrr, á þeim tíma þegar ég fjárfesti í sveitarstjórabrókinni, sællar minningar.“ Saga Garð- arsdóttir leik- kona tísti: „Þegar insta- gram tekur út mynd hjá mér vegna þess að það vottar fyrir geirvörtu þá langar mig svo að setja inn vídjó sem sýnir ferðalagið frá ytri börmum inn að eggjastokkum. Vantar bara kameru í það.“ Þórdís Gísladóttir rit- höfundur tísti: „Spjallað í barnadeildinni á Borgarbókasafn- inu um daginn. Barn (ca. 3ja ára): Hvað heitir mamma þín? Ég: Theresía. Barn: En pabbi þinn? Ég: Gísli. En hvað heitir mamma þín? Barn: Gré … (hrópar á mömmuna sem er að skoða bækur í hillu) mamma, hvað heit- irðu aftur?“ AF NETINU BRÚÐARGJAFA­ LISTINN Á WWW.FAKO.IS Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is SPENNANDI BRÚÐAR­ GJAFIR

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.