Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.04.2018, Side 8
Smám saman rennur upp fyrirokkur sú kreppa sem heim-urinn er í; hve vanmegna
hann er frammi fyrir stríðsátökum
og ofbeldi. Árás þriggja NATÓ-ríkja
á Sýrland minnir á þetta og þá ekki
síður yfirlýsingar stjórnmálamanna
í kjölfarið, hér á landi sem annars
staðar. „Alþjóðasamfélagið brást því
Öryggisráðið náði ekki sam-
komulagi“, segir einn, „þetta var
viðbúið“, segir forsætisráðherra, og
„skiljanlegt“ segir utanríkisráðherr-
ann, „því miður erum við ekki komin
með nýja stjórnarskrá, annars hefði
Alþingi rætt málið“, segir stjórn-
arandstaðan … En um eitt eru all-
ir sammála, nú þurfi „alþjóða-
samfélagið“ að semja.
Um hvað á að semja? Væntanlega
framtíð Sýrlands. Og hvaða „al-
þjóðasamfélag“? Eflaust hið sama og
náði ekki saman í Öryggisráði Sam-
einuðu þjóðanna. Þar er sérstaklega
horft til Rússa, Bandaríkjamanna,
Breta og Frakka og svo náttúrlega
til viðbótar Írans, Sádi-Arabíu, Ísr-
aels og Tyrklands en öll þessi ríki
koma með beinum og óbeinum hætti
að stríðinu í Sýrlandi, eru þátttak-
endur í því. Og ekki má gleyma ISIS,
sem farið hefur með framkvæmdina.
Eflaust þykir eðlilegt að stjórnvöld í
Sýrlandi fái einnig sæti við samn-
ingaborðið en varla Kúrdar eða
fulltrúar búsá-
haldamótmæl-
enda sem and-
mæltu Assad
forseta fyrir tæp-
um áratug en var
sópað til hliðar
þegar ISIS og
aðrir ámóta
mættu með skrið-
dreka, sprengju-
vörpur og sveðj-
ur.
Og þá höfum
við það. Krafan
er sem sagt að
þetta „alþjóða-
samfélag“ skuli
ráða örlögum
Sýrlendinga. Það er þarna sem
nítjánda öldin kemur upp í hugann.
Við hana kennum við nýlendutím-
ann. Þegar herveldi, einkum í okkar
heimshluta, réðu lögum og lofum um
örlög þjóða í drjúgum hluta jarð-
arkringlunnar. Ráðsmennska þeirra
birtist okkur enn þann dag í dag í
landamærum ríkja allt frá Indlands-
kaga og vestur og suður úr. Mið-
Austurlönd og nánast öll Afríka er
með einföld og þráðbein landamæri;
ljóst að hvorki fjöll né fljót, hvað þá
menning eða tunga og alls ekki lif-
andi fólk með óskir og vilja hefur
truflað við gerð heimskortsins.
Frægt að endemum í þessu sam-
hengi er Sykes-Pycot-samkomulagið
frá 1916 þar sem gömlu nýlendu-
veldin, Bretland og Frakkland, með
samþykki Rússakeisara, bútuðu nið-
ur Ottómanaveldið undir kristal-
ljósakrónunum í London og París.
Þaðan séð var veruleikinn svo ein-
faldur að reglustika nægði sem
vinnutæki til að móta heiminn að
vild.
En síðan kom í ljós að heimurinn
er ekki alveg svona einfaldur, hin
fjarlægu fjöll eru ekki blá þegar nær
er komið. Þótt Gaddafi Líbíuforseti
hafi án efa verið brjálaður harðstjóri
er álitamál hvort hann kemst í hálf-
kvisti við þá sem „alþjóðasam-
félagið“ setti til valda í hans stað eft-
ir tíu þúsund loftárásir á Líbíu um
árið. Newsweek segir að Líbíustjórn
láti gott heita að fram fari þrælasala
þar sem flóttafólk sunnar úr Afríku
sé falboðið hæstbjóðendum til eignar
á uppboðsmörkuðum. Það hefði
Gadafi þó aldrei leyft, segir News-
week.
En er þá ekkert hægt að gera? Jú,
heimurinn þarf
að hefja sig upp
úr gömlum hjól-
förum nýlendu-
hugsunarinnar.
Víetnamstríðinu
lauk á sínum
tíma þegar árás-
arherirnir höfðu
sig á brott úr
landinu. Af þessu
má draga lær-
dóma. Í öðru lagi
þarf að leggja
Öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna
niður, því það er
valdatæki hern-
aðarhyggjunnar,
reglustika samtímans. NATÓ á líka
heima á minjasafni um liðna tíð.
Síðan þarf að lýðræðisvæða Sam-
einuðu þjóðirnar. Það er hægara
sagt en gert en með einhverjum
hætti þarf á raunhæfan hátt að
mæta áskorun Kofi Annans frá því
um síðustu aldamót um að koma til
aðstoðar fólki sem níðst er á, hvort
sem er af hendi erlendra árásarherja
eða af eigin stjórnvöldum. Þessari
göfugu hugsun um ábyrgð til að
verja hinn veika, „responsibility to
protect“, eins og það heitir á ensku,
var umsvifalaust stolið og hún nýtt í
vopnabúri ráðsmanna heimsins og
beitt til að efla þeirra eigin völd,
setja andstæðinga sína af en halda
þeim við völd sem hliðhollir eru.
Það er þörf á byltingu í hugarfari
heimsins. Hann þarf að hefja sig upp
úr gömlum hjólförum og hugsa upp á
nýtt.
Í hjólförum nítjándu aldar
’Krafan er sem sagt aðþetta „alþjóða-samfélag“ skuli ráða ör-lögum Sýrlendinga. Það
er þarna sem nítjánda
öldin kemur upp í hug-
ann. Við hana kennum
við nýlendutímann. Þeg-
ar herveldi, einkum í okk-
ar heimshluta, réðu lög-
um og lofum um örlög
þjóða í drjúgum hluta
jarðarkringlunnar.
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@ogmundur.is
VETTVANGUR
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.4. 2018
Nanna Rögn-
valdardóttir
matargúru
með meiru
skrifaði á Face-
book: „Sá í
Vikunni að all-
ar konur ættu að eiga falleg nær-
föt til að auka sjálfstraustið. En
ég er nú bara komin á þann ald-
ur að ég held að sjálfstraustið
myndi ekkert styrkjast. Það var
kannski öðruvísi hér áður fyrr, á
þeim tíma þegar ég fjárfesti í
sveitarstjórabrókinni, sællar
minningar.“
Saga Garð-
arsdóttir leik-
kona tísti:
„Þegar insta-
gram tekur út
mynd hjá mér
vegna þess að
það vottar fyrir geirvörtu þá
langar mig svo að setja inn vídjó
sem sýnir ferðalagið frá ytri
börmum inn að eggjastokkum.
Vantar bara
kameru í það.“
Þórdís
Gísladóttir rit-
höfundur tísti:
„Spjallað í
barnadeildinni á
Borgarbókasafn-
inu um daginn.
Barn (ca. 3ja ára): Hvað heitir
mamma þín?
Ég: Theresía.
Barn: En pabbi þinn?
Ég: Gísli. En hvað heitir
mamma þín?
Barn: Gré … (hrópar á
mömmuna sem er að skoða
bækur í hillu) mamma, hvað heit-
irðu aftur?“
AF NETINU
BRÚÐARGJAFA
LISTINN Á
WWW.FAKO.IS
Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is
SPENNANDI
BRÚÐAR
GJAFIR