Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.04.2018, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.4. 2018
Við vissum að við værum að leita að nálí heystakki. Við fundum hana og þaðhér í Sacramento,“ sagði ríkis-
saksóknari Sacramento-héraðs, Anne Marie
Schubert, á blaðamannafundi á miðvikudag-
inn þegar hún tilkynnti handtöku morðingja
og nauðgara sem leitað hafði verið að í fjöru-
tíu ár.
Joseph James DeAngelo var handtekinn
síðastliðið þriðjudagskvöld í úthverfi Sacra-
mento og er talið að hann sé hinn alræmdi
Golden State Killer sem talinn er hafa myrt
tólf og nauðgað að minnsta kosti fimmtíu
konum í Kaliforníu á árunum 1976-1986.
Lögregla segir að gamalt DNA sýni passi
við sýni sem tekin voru á heimili DeAngelo
en vildi ekki tjá sig frekar um hvað það var
sem kom þeim á sporið.
DeAngelo var leiddur fyrir dómara á föstu-
dag og ákærður fyrir átta morð.
Rekinn úr lögreglunni
„Við gleymum of oft að tala um fórnarlömbin
en í dag stigum við fyrstu skrefin í átt að ein-
hvers konar uppgjöri fyrir fórnarlömb þess-
ara óhugnanlegu glæpa,“ segir Scott Jones,
lögreglustjóri í Sacramento.
Hinn ákærði er fyrrverandi lögreglumaður
í Auburn í Kalíforníu sem rekinn var úr lög-
reglunni árið 1979 fyrir búðarhnupl.
DeAngelo starfaði sem lögregluþjónn í sex
ár, frá 1973-1979.
„Það er mjög líklegt að hann hafi framið
glæpina á meðan hann var í lögreglunni og
við munum að sjálfsögðu kanna það,“ segir
Jones.
Nágrannar segja hann „öðruvísi“
Nágranni DeAngelo til tuttugu ára, Kevin
Tapia, segir að undanfarin ár hafi DeAngelo
haldið sig frá öðru fólki og átt það til að
öskra á nágrannana af minnsta tilefni.
„Hann var ekki beint ógnvekjandi mann-
eskja, en hélt sig til hlés og var dáldið öðru-
vísi,“ segir Tapia í viðtali við HLN, sjón-
varpsstöð sem sérhæfir sig í að skoða
sakamál.
Kona að nafni Jane Carson-Sandler sagði í
viðtali þar á miðvikudag að hún hefði búið í
Citrus Heights, þar sem DeAngelo bjó, þegar
henni var nauðgað á heimili sínu. Það var ár-
ið 1976 og er hún talin vera fyrsta nauðgun-
arfórnarlamb hans. Hún var sofandi heima
ásamt þriggja ára syni þegar maður braust
inn, batt þau og nauðgaði henni.
„Þegar ég hugsa um öll lífin sem hann hef-
ur eyðilagt og allt fólkið sem hann hefur haft
áhrif á verð ég reið. Mig langar að kýla
hann,“ segir Carson-Sandler. Yfirvöld hófu
strax leit að nauðgara hennar sem átti eftir
að nauðga og drepa fólk í heilan áratug eftir
þessa fyrstu árás.
Fleiri nauðganir voru tilkynntar og í upp-
hafi voru það konur sem voru einar heima
með börn sín. Síðar réðst hann inn hjá pörum
og árið 1978 er hann sagður hafa elt og drep-
ið hjónin Katie og Brian Maggiore. Talið er
að þau hafi verið þau fyrstu sem hann myrti.
DNA sýni leiddu til handtöku
DeAngelo er þá talinn hafa flutt sig um set
því svipaðir glæpir voru tilkynntir í Santa
Barbara-héraði og þótt lögregla hafi ekki átt-
að sig á því á þeim tíma, þá svipaði þessum
glæpum til hinna sem framdir voru í Sacra-
mento. Ýmis nöfn voru notuð yfir þennan
morðingja og nauðgara, eins og East Area
Rapist og Original Night Stalker, en hann
réðst á konur og pör í Suður-Kaliforníu frá
1970-1986. Lögreglan hafði sínar grunsemdir
um að þetta væri einn og sami maðurinn en
hann skildi aldrei eftir fingraför og á þeim
tíma voru DNA rannsóknir ekki komnar til
sögunnar.
Árið 2001, þegar DNA próf voru gerð, kom
í ljós að um sama manninn var um að ræða
en ekki tókst að hafa hendur í hári hans. Árið
2016 bauð Alríkislögreglan verðlaunafé
hverjum þeim sem gæti varpað ljósi á hver
ódæðismaðurinn væri.
„Þessir glæpir voru þeir allra verstu sem
ég hef þurft að rannsaka,“ segir Erika
Hutchcraft, sem rannsakaði málið fyrir sak-
sóknara Orange County. „Þetta eru ekki
ástríðuglæpir heldur eru þetta algjörlega til-
finningalausir glæpir. Mjög kaldrifjaðir, mjög
ofbeldisfullir.“
Það var svo loks í vikunni að lögregla gat
sannað að DeAngelo væri maðurinn sem leit-
að hafði verið að öll þessi ár.
Bruce Harrington, bróðir fórnarlambanna
Keith og Patrice Harrington, gaf út yfirlýs-
ingu á blaðamannafundinum sem lögreglan
hélt á miðvikudag. Hann þakkaði lögreglu
fyrir þrautseigju í málinu. „Það er kominn
tími fyrir fórnarlömbin að finna frið. Hann er
nú í fangelsi, hann er búinn að vera.“
Fjörutíu ára leit lokið
Lögregla í Bandaríkjunum
handtók í vikunni 72 ára gaml-
an fyrrverandi lögregluþjón
sem myrti tólf manns og
nauðgaði um fimmtíu konum
á áttunda og níunda áratug
síðustu aldar. Ný DNA-rann-
sókn kom lögreglu á sporið.
AFP
Fjörutíu ára leit Alríkislögreglu Bandaríkjanna
lauk á þriðjudag þegar maður var handtekinn.
AFP PHOTO / FBI/HANDOUT
Á blaðamannafundi tilkynnti lögregla
að Joseph James DeAngelo hefði verið
handtekinn. Hann er 72 ára í dag en
framdi glæpi sína á árunum 1976-1986.
’
Þetta eru ekki ástríðuglæpir heldur eru þetta
algjörlega tilfinningalausir glæpir. Mjög
kaldrifjaðir, mjög ofbeldisfullir.
Erika Hutchcraft, rannsakandi fyrir Orange County.
ERLENT
ÁSDÍS ÁSGEIRSDÓTTIR
asdis@mbl.is
PERÚ
Fyrrverandi forseti Perú, Alberto
Fujimori, hefur verið ákærður fyrir
að hafa gert fi mm konur ófrjóar gegn
þeirra vilja á meðan hann var forseti.
Þrír fyrrverandi heilbrigðisráðherrar
verða líka kærðir. Þrjú hundruð þúsund
konur gengust undir ófrjósemisað-
gerðir á meðan hann var forseti á ár-
unum 1990-2000. Aðgerðirnar áttu að
vera gerðar með samþykki kvennanna
en þúsundir gáfu ekki samþykki. Talið
er að margar hafa verið þvingaðar í
ófrjósemisaðgerð en fl estar voru þær
fátækar konur af landsbyggðinni. Fleiri
en tvö þúsund konur hafa lagt fram
kærur. Átján konur létust í þessum
aðgerðum. Ákærurnar fi mm eru vegna
kvenna sem létust.
SPÁNN
Þúsundir manna mótmæltu víða um
Spán á fi mmtudag eftir að dómur
féll í máli fi mm manna sem ákærðir
höfðu verið fyrir nauðgun. Reiðir
mótmælendur fylltu miðborg Madrid
og annarra borga. Fimmmenningarnir
fengu níu ára fangelsisdóm en mörgum
fannst dómurinn of vægur. Bæði fórnarlambið og þeir ákærðu hyggjast
áfrýja dómnum. Mennirnir fi mm tilheyra WhatsApp hópi sem kallar sig La
manada, (wolf pack) en þeir tóku nauðgunina upp á myndband. Árásin átti
sér stað á San Fermin hátíðinni í Pamplona í júlí 2016.
NÍGERÍA
Rúmlega 160 börnum var bjargað úr „barnaverksmiðju“
og úr tveimur ólöglegum munaðarleysingjahælum í Lagos,
Nígeríu, að sögn þarlendra embættismanna. Sum barn-
anna höfðu verið beitt kynferðisofbeldi. Börn á þessum
heimilum eru stundum seld til ættleiðingar, í barnaþrælk-
un, í vændi eða fórnað í trúarathöfnum.
ÍSRAEL
Tíu sautján og átján ára ungmenni létu lífi ð
eftir að fl óð hreif þau með sér í Nahal Tzafi t
í Suður-Ísrael á fi mmtudag. Ungmennin voru í
25 manna hópi fólks sem var á æfi ngu á vegum
hersins. Fimmtán var bjargað. Hópurinn hafði
verið á gangi nálægt ánni Tzafi t sem er nálægt
Dauðahafi nu.
Tveir yfi rmenn
skóla ung-
mennanna hafa
verið handteknir
fyrir vanrækslu
en varað hafði
verið við fl óðum
á þessu svæði.