Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.04.2018, Side 16
Þ
angað til flautað verður til leiks
Íslands og Argentínu á Otkritie-
leikvanginum í Moskvu 16. júní
næstkomandi verður Paragvæ fá-
mennasta þjóðin til að hafa tekið
þátt í lokakeppni Heimsmeistaramóts (HM)
karla í knattspyrnu. Það var strax á fyrsta
mótinu, í Úrúgvæ árið 1930, en þjóðin taldi
aðeins 860.000 manns á þeim tíma. Allar aðr-
ar þjóðir sem spreytt hafa sig á HM hafa að
lágmarki verið með eina milljón íbúa.
Paragvæjar þurftu að hafa talsvert minna
fyrir þátttöku sinni fyrir 88 árum en við Ís-
lendingar nú. Engin undankeppni fór fram
fyrir þetta fyrsta mót; Alþjóðaknattspyrnu-
sambandið (FIFA) ákvað bara að mótið færi
fram í Úrúgvæ og lýsti svo eftir áhugasöm-
um þátttakendum. Stutt var fyrir Paragvæ
að fara og fyrir vikið slógu sparkyfirvöld þar
í landi til. Dýrt og tímafrekt var að ferðast á
þessum árum og þess vegna sátu flest Evr-
ópuríki heima; til að mynda England, Ítalía,
Þýskaland og Spánn. Af þátttökuríkjunum
þrettán komu sjö frá Suður-Ameríku. Þarna
voru líka Bandaríkin og Mexíkó.
Þrátt fyrir smæðina sigldu Paragvæjar inn
á mótið á til þess að gera sveru orðspori;
höfðu hafnað í öðru sæti í Suður-Am-
eríkukeppninni árinu áður. Þess vegna kom
ósigur Paragvæ gegn Bandaríkjunum í fyrsta
leik mörgum í opna skjöldu, og það 3:0.
Bandaríkjamenn hafa, þrátt fyrir fjölmenni,
aldrei verið háttskrifaðir í knattspynu karla;
þannig svíður Englendingum til dæmis enn
að hafa lotið í gras gegn þeim á HM í Bras-
ilíu 1950. Til þessa dags er það annað stór-
slysið í sögu enska landsliðsins. Við Íslend-
ingar vitum allt um hitt.
Aðeins voru þrjú lið í riðli Paragvæja 1930
og þar sem Bandaríkin höfðu áður lagt Belg-
íu var útséð um að smáþjóðin kæmist áfram í
undanúrslit þegar tapliðin tvö mættust í loka-
leik riðilsins. Paragvæ vann þó leikinn, 1:0,
með marki fyrirliðans og útherjans, Luis
Vargas Peña. Eins og gefur að skilja er
Paragvæ því ennþá, 88 árum síðar, fámenn-
asta þjóðin til að vinna leik á lokamóti HM.
Það met getum við Íslendingar slegið í sum-
ar.
Paragvæ hefur verið reglulegur gestur á
HM gegnum tíðina; verið með alls átta sinn-
um, síðast 2010 í Suður-Afríku. Í landinu búa
í dag tæpar sjö milljónir manna.
Unnu þegar þeir mættu
Úrúgvæjar, sem unnu þetta fyrsta HM-mót á
heimavelli, heyrðu sjálfir sannarlega ekki til
flokki stórþjóða; voru aðeins um 1,9 milljónir
á þeim tíma sem skilar þeim í sjöunda sæti
yfir fámennustu þjóðir til að keppa á HM.
Úrúgvæ er vitaskuld langminnsta þjóðin til
að vinna HM. Liðið vann alla fjóra leiki sína
á mótinu; Rúmeníu og Perú í riðlinum, Júgó-
slavíu í undanúrslitum og Argentínu í úrslita-
leik, 4:2.
Úrúgvæjar harðneituðu að taka þátt í HM
1934 á Ítalíu og vildu með þeim hætti mót-
mæla fjarveru Evrópuríkjanna 1930. Enn
sátu þeir heima 1938, vegna þess að Frakk-
land varð fyrir valinu sem keppnisstaður en
ekki ríki í Suður-Ameríku, eins og Úrú-
gvæjar töldu FIFA hafa lofað.
Úrúgvæjar mættu ferskir til leiks í Bras-
ilíu eftir stríð, 1950. Og urðu aftur heims-
meistarar, eftir frækinn sigur á heimamönn-
um í úrslitaleik. Tap sem Brasilíumenn mega
ekki heyra á minnst.
Úrúgvæ hefur verið fastagestur á HM
gegnum tíðina og tekur þátt í þrettánda sinn
í sumar með sjálfan Luis Suárez í broddi
fylkingar. Í dag búa tæplega þrjár og hálf
milljón manna í landinu.
Á téðum smæðarlista er þriðja Suður-
Ameríkuþjóðin, Bólivía, í níunda sæti en hún
bjó aðeins að tveimur milljónum íbúa árið
1930. Liðið tapaði báðum leikjum sínum;
gegn Brasilíu og Júgóslavíu.
Hataðasti Englendingurinn
Í þriðja sæti á listanum, á eftir Íslandi og
Paragvæ, er Trínidad og Tóbagó en eyjan í
Karíbahafinu fóstraði 1,3 milljónir manna
þegar landslið hennar tók þátt á HM í Þýska-
landi árið 2006. Sannkallað Öskubusku-
ævintýri en liðið samanstóð að mestu af leik-
mönnum úr neðri deildum á Englandi.
Kunnuglegt stef, eða hvað?
Trínidad og Tóbagó vann strax hug og
hjarta heimsbyggðarinnar með því að gera
markalaust jafntefli gegn stjörnum prýddu
liði Svía, með Zlatan Ibrahimović, Henrik
Larsson og Fredrik Ljungberg innanborðs.
Lengi vel héldu þeir líka jöfnu gegn stóra
bróður, Englendingum, og komið var fram á
83. mínútu þegar Peter „spóaleggur“ Crouch
sveif yfir Brent Sancho, núverandi íþrótta-
málaráðherra T&T, og hamraði sendingu
Davids Beckhams í netið með enninu. Ein-
hverjir vildu fá dæmt brot; sögðu Crouch
hafa þrifið í dreddlokkana á Sancho á leiðinni
upp, eins og óknyttastrákur í sandkassa, en
sá málstaður hvíldi á veikum grunni. Það
breytti hins vegar ekki því að vinsældir langa
mannsins voru lengi vel óverulegar í Kar-
íbahafinu og Sancho greindi frá því síðar í
viðtali við breska ríkisútvarpið, BBC, að Cro-
uch væri „hataðasti Englendingurinn í sögu
Trínidad og Tóbagó“ og er þó af ófáum að
taka.
Crouch svaraði með eftirfarandi hætti á
Twitter: „Ég fer þá annað í sumarfrí að
þessu sinni.“
Steven Gerrard stráði salti í sárin með
öðru marki í uppbótartíma og Trínidadar
voru sigraðir. Þeir töpuðu svo lokaleiknum
með sömu markatölu gegn vinum okkar frá
Paragvæ og héldu heim án sigurs og marks
og hafa ekki sést á HM síðan.
Írafár í Svíþjóð
Fræknasta afrek fámennrar Evrópuþjóðar á
HM, alla vega þangað til í sumar, unnu án
Smá Emm í
knattspyrnu
Ísland er sem kunnugt er langfámennasta þjóðin til að senda lið
á lokamót HM í knattspyrnu karla. Í 88 ára sögu mótsins hafa þó
ýmsir Davíðar freistað þess að velgja Golíötunum undir uggum,
þeirra á meðal Paragvæ, Trínidad og Tóbagó, Norður-Írland og
Kúveit. Gengi þessara þjóða hefur verið misjafnt á mótinu en
flestar hafa þær heillað heimsbyggðina upp úr skónum.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Harry Gregg var hetja Norður-Íra á HM í Svíþjóð sumarið 1958, aðeins nokkrum mánuðum eftir
að hann lifði af flugslysið í München, þar sem margir samherja hans úr Manchester United létust.
Colorsport/REX/Shutterstock
Milenko Acimovic skoraði fyrir Slóveníu á HM
2002; þriðju minnstu þjóðina til að tryggja sér
þátttökurétt á HM. Slóvenar snéru aftur 2010.
’Formaður kúveiska knatt-spyrnusambandsins, sjeikFahad Al-Ahmed Al-Jaber Al-Sabah, var ekki á því að
kyngja markinu. Baðaði út öll-
um öngum í stúkunni og tók
strauið niður á grasflötina.
Upphófst þar mikil rekistefna.
Delfín Benítez Cáceres var í liði Paragvæ á HM í
Úrúgvæ 1930; fámennustu þjóðarinnar til að
taka þátt í lokakeppni HM. Þangað til í sumar.
FÓTBOLTI
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.4. 2018