Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.04.2018, Blaðsíða 17
efa Norður-Írar árið 1958 en þjóðin stóð
saman af 1,4 milljónum manna þegar mótið
fór fram í Svíþjóð.
Fyrir það fyrsta áttu Norður-Írar aldrei að
komast í lokakeppnina enda í riðli með tvö-
földum heimsmeisturum Ítala, Portúgal og
fleiri hærra skrifuðum þjóðum. En gerðu það
samt. Í Svíþjóð beið þeirra annar þrítugur
hamar; ríkjandi heimsmeistarar Vestur-
Þjóðverjar, Argentínumenn og Tékkar.
Öllum að óvörum lögðu Norður-Írar Tékka
í fyrsta leiknum með marki frá hinum fjöl-
hæfa Wilbur Cush. Eftir það kom skellur
gegn Argentínu, 1:3. Jafntefli gegn Vestur-
Þjóðverjum í lokaleiknum, 2:2, þýddi að
Norður-Írar og Tékkar þurftu að leika auka-
leik til að skera úr um það hvor þjóð fylgdi
Vestur-Þjóðverjum í átta liða úrslit. Hvorki
tíðkaðist að styðjast við niðurstöðu í innbyrð-
isviðureignum né markatölu liða á þessum
tíma.
Þegar hér var komið móts voru Norður-
Írar orðnir býsna vígmóðir og enginn eins og
markvörðurinn Harry Gregg sem mættur var
til Svíþjóðar eftir að hafa lifað af flugslysið
hörmulega í München fyrr á árinu, þar sem
margir félagar hans í Manchester United
týndu lífi. Sjálfur vann Gregg mikið björg-
unarafrek þegar hann dró nokkra farþega út
úr brennandi braki vélarinnar; þeirra á meðal
Bobby Charlton, Dennis Viollet og stórslas-
aðan sir Matt Busby.
Gregg treysti sér ekki til að leika aukaleik-
inn í Málmey vegna meiðsla og enn syrti í ál-
inn þegar staðgengill hans, Norman Uprich-
ard, sneri sig á ökkla og handarbrotnaði
snemma í leiknum. Ekki var þó um annað að
ræða en að halda áfram enda varamenn
óþekkt stærð á þessum árum.
Norður-Írar lentu undir í fyrri hálfleik en
Peter McParland jafnaði. Framlengja þurfti
leikinn og á 97. mínútu skoraði McParland
annað mark eftir að hver tékkneska sóknar-
aldan af annarri hafði brotnað á skeri. Hann
gerði alls fimm mörk á HM 1958 og var ein
af hetjum mótsins. Með einhverjum ráðum
tókst Norður-Írum að verja forystuna til
enda, jafnvel þótt aðeins átta menn af ellefu
hafi gengið óhaltir í leikslok.
Gregg beit í skjaldarrendurnar fyrir viður-
eignina við Frakka í átta liða úrslitum og tók
sér stöðu milli stanganna enda þótt hann
staulaðist um með staf utan vallar. Loks
mætti spútnikliðið, sem eignast hafði aðdá-
endur vítt og breitt um heiminn, ofjörlum
sínum og tapaði, 4:0. Just Fontaine, marka-
kóngur HM 1958, gerði tvö markanna.
Sú niðurstaða breytti ekki því að Harry
Gregg var valinn markvörður mótsins og
munaði þar mest um frammistöðu hans gegn
Vestur-Þjóðverjum, sem þykir ein sú besta
sem sögur fara af á HM. Þess má geta að
Gregg er enn á lífi, orðinn 85 ára gamall.
Norður-Írar sneru aftur á HM á Spáni
1982 og léku þá afrekið eftir; komust upp úr
frumriðlinum en féllu úr leik í milliriðli. Það
sumar tefldu Norður-Írar fram yngsta leik-
manninum í sögu lokakeppni HM, Norman
Whiteside, sem var aðeins 17 ára og 41 dags
gamall í fyrsta leiknum. Skaut þar með sjálf-
um Pelé ref fyrir rass. Enn voru þeir grænu
með á HM í Mexíkó 1986 en héldu heim að
riðlakeppni lokinni, með aðeins eitt stig í far-
teskinu.
Allt í sjeik
Það eru ýmsar leiðir til að tryggja sér varan-
legan sess í sögu HM í knattspyrnu; sú auð-
veldasta er líklega að vinna mótið, næla í
gullskóinn eða heilla heiminn með almennum
töfrum á vellinum.
Landslið Kúveit, arabaþjóðar sem státaði
af aðeins 1,5 milljónum íbúa, gerði ekkert af
þessu á HM á Spáni 1982 – en samt eiga
sparkunnendur erfitt með að gleyma liðinu.
Þökk sé atviki sem hlýtur að vera með þeim
kostulegri í sögu mótsins.
Kúveitar lentu í snúnum riðli með stórveld-
unum Englandi og Frakklandi og eftir að
hafa aðeins náð jafntefli í opnunarleiknum
gegn Tékkum sáu stuðningsmenn liðsins
sæng sína upp reidda. Enda fór það svo að
Frakkar léku sér að þeim; voru komnir í 3:0 í
byrjun seinni hálfleiks. Þá byrjaði ballið. Ala-
in Giresse, miðvellingurinn knái, gerði fjórða
markið með bylmingsskoti. Markið var dæmt
gott og gilt en Kúveitar hreyfðu andmælum;
töldu sig hafa heyrt dómarann flauta og þess
vegna lagt niður vopnin. Mögulega var þar
einhver æringi á áhorfendapöllunum að verki.
Mögulega ekki. Alltént. Formaður kúveiska
knattspyrnusambandsins, sjeik Fahad Al-
Ahmed Al-Jaber Al-Sabah, var ekki á því að
kyngja markinu. Baðaði út öllum öngum í
stúkunni og tók strauið niður á grasflötina.
Upphófst þar mikil rekistefna, þar sem sjeik-
inn skipaði dómaranum, Myroslav Stupar frá
Sovétríkjunum, að dæma markið af, ellegar
kallaði hann lið sitt af velli.
Hvort sem það var sjeiknum að þakka eður
ei dæmdi dómarinn markið á endanum af,
frönsku leikmönnunum til ómældrar undr-
unar. Leikar hófust að nýju og Frakkar unnu
sigur, 4:1. Átta árum síðar bauð sjeik Fahad
Al-Ahmed Al-Jaber Al-Sabah fyrirliða
Frakka í leiknum, Michel Platini, í heimsókn,
þar sem hann baðst velvirðingar á hegðun
sinni. Fljótlega eftir það féll sjeikinn í átök-
um í heimalandi sínu. Blessuð sé minning
hans.
FIFA var ekki skemmt yfir uppákomunni.
Það sektaði sjeikinn um eina milljón króna,
eða svo, sem hann hefur sennilega hrist fram
úr kuflinum, og Stupar dæmdi aldrei aftur á
HM. Kúveitar töpuðu lokaleiknum fyrir Eng-
lendingum og hafa ekki átt afturkvæmt á
lokamót HM. Eru raunar í skammarkróknum
þessi misserin vegna afskipta yfirvalda af
málefnum FIFA.
Þú segir ekki?
Önnur fámenn arabaþjóð, Sameinuðu arab-
ísku furstadæmin, sendi lið í fyrsta og eina
sinn á HM á Ítalíu 1990. Þá bjuggu í ríkinu
1,9 milljónir manna. Það var engin Bjarma-
landsför; kapparnir töpuðu öllum leikjum sín-
um þremur, fyrir Kólumbíu, Vestur-
Þýskalandi og Júgóslavíu. Og enginn sjeik
reyndi að hrista upp í mannskapnum.
Taktuða sló, venur
Slóvenía er þriðja Evrópuríkið á topp tíu-
listanum yfir fámennustu ríkin til að vera
með á lokamóti HM. Slóvenar þreyttu frum-
raun sína á mótinu í Japan og Suður-Kóreu
árið 2002, aðeins áratug eftir að þjóðin tefldi
fyrst fram landsliði eftir viðskilnaðinn við
Júgóslavíu. Þá bjuggu í landinu tvær millj-
ónir manna.
Synd væri að segja að þeir hefðu riðið feit-
um hesti frá mótinu; töpuðu öllum leikjum
sínum í riðlakeppninni, fyrir Spáni, Suður-
Afríku og Paragvæ. Náðu þó að bora tuðr-
unni í tvígang í netið. Fyrra markið gerði
Sebastjan Cimirotić gegn Spánverjum og Mi-
lenko Acimovic það síðara gegn Paragvæjum.
Slóvenar snéru aftur á HM 2010 í Suður-
Afríku og vegnaði þá betur. Féllu naumlega
úr leik eftir að hafa lagt Alsír, gert jafntefli
við Bandaríkin og tapað hreinum úrslitaleik
um áframhaldandi þátttöku fyrir Englandi.
Slóvenum tókst hvorki að tryggja sér sæti
á HM 2014 né 2018.
Tap fyrir Króatíu og Argentínu
Tíunda fámennasta þjóðin til að taka þátt í
lokamóti HM, og sú síðasta til að fá umfjöll-
un hér, er Jamaíka sem sendi sveit sína í
fyrsta og eina skipti til Frakklands sumarið
1998. Þá bjuggu á eyjunni í Karíbahafinu um
2,6 milljónir manna.
Jamaíkumenn voru svo ólánsamir að drag-
ast í riðil með Króötum og Argentínumönn-
um (hmm?) og töpuðu báðum leikjum, 1:3 og
0:5. Vonandi er það enginn fyrirboði fyrir
næsta smáríki á HM!
Fyrsta mark Jamaíku á HM gerði gamli
refurinn Robbie Earle, sem lengi lék með
„nötturunum“ í Wimbledon í ensku úrvals-
deildinni.
Jamaíka kvaddi HM með stæl; lagði Japan
í lokaleiknum, 2:1, og gerði Theodore Whit-
more, núverandi landsliðsþjálfari þjóðarinnar,
bæði mörkin.
Það var og. Þetta var saga smáþjóðanna á
HM í knattspyrnu. Til þessa. Í sumar er
komið að okkur Íslendingum að eiga sviðið.
Nú, eða iðjagrænt grasið. Sagan er þarna til
að breyta henni!
Miðherjinn Peter Crouch var og er líklega ennþá hataðasti Englendingurinn á Trínidad og Tóbagó
eftir viðskipti sín við Brent Sancho á HM 2006. Hafði hann hag af því að þrífa í dreddlokkana?
Sjeik Fahad Al-Ahmed Al-
Jaber Al-Sabah, formaður
Knattspyrnusambands
Kúveit, saltvondur og hót-
ar að kalla lið sitt af velli
eftir að Frakkar skoruðu
umdeilt mark gegn Kúveit
á HM á Spáni 1982.
AP
Morgunblaðið/Eggert
Hvað gera Gylfi Þór Sigurðsson, Aron Ein-
ar Gunnarsson og félagar á HM í Rússlandi
í sumar? Fjölmörg tækifæri eru til að end-
urskrifa sögu þessa vinsæla móts.
Frá úrslitaleik Úrúgvæ og Argentínu á HM 1930. Úrúgvæ vann 4:2 á heimavelli og er langfámenn-
asta þjóðin til að lyfta heimsbikarnum. Endurtók raunar leikinn tuttugu árum síðar í Brasilíu.
AP
29.4. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17