Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.04.2018, Side 18
VIÐTAL
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.4. 2018
Það er ekki á hverjum degi sem maður ástefnumót við konu sem prýtt hefur for-síður helstu tískublaða heims og er í
sambúð með dönskum prinsi sem býr í kastala.
Á kaffihúsið mætir falleg dökkhærð kona
með skemmtilegt frekjuskarð. Carina Axelsson
er hálfmexíkósk og hálfsænsk, fædd og uppalin
í Kaliforníu. Hún verður fimmtug á árinu en lít-
ur ekki út fyrir að vera deginum eldri en fertug,
jafnvel þrítug!
Við erum samt ekkert að fara að ræða um út-
lit, danska prinsa eða demanstskórónur því hér
er á ferð rithöfundur sem hefur frá mörgu að
segja. Nú geta íslenskar unglingsstúlkur lesið
eftir hana bókina Glæpi í tískuheiminum sem
kom út í vikunni hjá bókaútgáfunni Tindi í þýð-
ingu Svövu Jónsdóttur. Er það fyrsta bók henn-
ar sem kemur út á íslensku.
Gagntekin af bóklestri
Foreldrar hennar voru dugleg að halda bókum
að börnum sínum og sökkti Carina sér ofan í
ævintýraheim bóka á unga aldri.
„Ég hef alltaf elskað bækur og að lesa; hef
eiginlega verið gagntekin af lestri. Ég hafði
samt ekki hugmynd um hvernig maður yrði rit-
höfundur á mínum yngri árum.“
Þegar Carina var um tvítugt flutti hún til
New York-borgar þar sem hún starfaði sem
fyrirsæta og þaðan lá leiðin í frekari fyr-
irsætustörf í París þar sem hún bjó í rúman ára-
tug. Í starfi sínu sem fyrirsæta vann hún fyrir
Vogue, Elle og fleiri þekkt tímarit og þeyttist á
milli heimshorna í endalausum myndatökum.
Er líf fyrirsætunnar jafn glæst og
ævintýralegt og maður ímyndar sér?
„Ég fæ mjög oft þessa spurningu. Og margir
spyrja mig hvað hafi verið það besta við fyr-
irsætustarfið. Ég svara alltaf: Þú getur aldrei
giskað á það. Og þú, Ásdís, getur ekki giskað á
það!“
Blaðamaður giskar eitthvað út í loftið en
gefst svo upp. Carina ljóstrar því upp:
„Besti hlutinn við starfið var öll biðin; biðin á
milli ljósmyndataka, bið eftir flugvélum, bið eft-
ir réttu birtunni eða bið eftir leigubílum, því þá
gafst tími til að lesa. Ég las stöðugt þegar ég
vann sem módel. Svo voru launin ágæt þannig
að ég gat keypt allar þær bækur sem mig lang-
aði í,“ segir Carina.
Þannig að á meðan þú lifðir glæstu lífi fyr-
irsætunnar varstu líka bókanörd?
„Já,“ segir Carina og brosir breitt.
Barnabók um lítinn dreka
Á Parísarárunum, þegar Carina sá fyrir endann
á fyrirsætustarfinu, ákvað hún að setjast við
skriftir. „Vinir mínir ýttu mér út í það, vinir
sem sáu hvað ég las mikið. En ég hafði aldrei
verið nógu sjálfsörugg til að skrifa sjálf. Ég
lærði ekki ritlist en ég tók myndlistarkúrsa á
kvöldin í París. Allan tímann sem ég var fyr-
irsæta hafði ég engan áhuga á tísku og hugsaði
oft um að mig langaði einhvern tímann að gera
eitthvað sem stóð hjarta mínu nær. Ég naut
þess að vera í myndlistarskólanum og þegar ég
lauk náminu eftir tvö ár bað einn vinur minn
mig að teikna fyrir sig lógó á sjampólínu sem
hann hafði þróað, en ég hafði verið mikið í því að
hanna alls kyns boðskort og merkimiða á vín-
flöskur. Hann bað mig að teikna lítið dýr sem
hann ætlaði að nota á miða á barnasjampó. Ég
teiknaði nokkur dýr og hann valdi kanínu en ég
hafði líka teiknað lítinn dreka sem honum leist
vel á. Hann stakk upp á því að ég skrifaði
barnabók um drekann. Og þegar hann sagði
þetta var eins og kviknaði á peru í höfðinu á
mér!“ segir Carina sem settist niður og skrifaði
barnabók um drekann.
Þar með var hún orðin rithöfundur.
Agatha Christie og Scooby Doo
Hún lagði fyrirsætuskóna á hilluna og hóf að
starfa hjá Christian Dior þar sem hún vann sem
aðstoðarmaður tískuhönnuðar.
„Ég vann þar í hálft ár og þetta var mjög gef-
andi tími því nú var ég bak við tjöldin, bak við
myndavélina en ekki fyrir framan hana. Og
þegar ég fór heim á kvöldin í íbúðina mína í
París byrjaði ég að skrifa um unglingsstúlku
sem leysti glæpi innan tískuheimsins. Og þar
með var ég byrjuð á þessari seríu!“ segir
Carina.
„Ég hafði alltaf haft mikinn áhuga á einka-
spæjarasögum og hafði mikið dálæti á Agöthu
Christie og horfði mikið á Scooby Doo sem
krakki. Ég elska Scooby en teiknimyndin
kynnti mig fyrir leynilögreglusögum á unga
aldri. Síðan var það Nancy Drew,“ segir Carina
og segir að síðan í barnæsku hafi glæpasögur
átt hug hennar allan.
Unglingsstúlka leysir sakamál
Bækurnar í röðinni Módel í dulargervi (Model
under cover) fjalla um hina sextán ára Axelle
sem gerist einkaspæjari og leysir dularfull
sakamál sem gerast innan tískuheimsins.
Carina segir bækurnar höfða vel til krakka á
aldrinum 9-13 ára, og e.t.v. frekar til stúlkna en
drengja þar sem viðfangsefnið er tíska og sögu-
hetjan stúlka.
„Axelle er sextán ára stelpa sem býr í Lond-
on og er heltekin af því að leysa glæpamál og er
sífellt að leita að týnd-
um gæludýrum eða
njósna um grannana.
Foreldrar hennar eru
ekki hrifnir af þessum
einkaspæjaradraumum
og senda hana til Parísar
þar sem hún á að verja
viku með frænku sinni
sem vinnur við tískuviku
þar í borg. Fyrir Axelle er
þetta refsing; hún hefur
engan áhuga á tísku, en
neyðist til að fara. Þegar
hún kemur þangað kemst hún að því að ungur
tískuhönnuður er horfinn. Þá hugsar hún með
sér að kannski verði þessi vika ekki svo slæm
eftir allt saman og ákveður að hún ætli sér að
komast til botns í þessu dularfulla mannshvarfi.
Þannig gæti hún líka sannað fyrir foreldrum
sínum að einkaspæjarahlutverkið væri tilvalið
fyrir hana. En til að leysa málið gerir hún sér
grein fyrir að hún þarf að dulbúast sem fyr-
irsæta,“ útskýrir Carina.
Persónan Axelle heldur svo áfram að leysa
dularfull mál í öðrum stórborgum í næstu
þremur bókum í seríunni en fyrsta bókin heitir
á íslensku Glæpur í tískuheiminum. „Hún er
mjög klár og dálítið töff nörd. Miklu klárari,
óhræddari og ákveðnari en ég var á hennar
aldri,“ segir hún og hlær.
Carina nýtir reynslu sína af tískuheiminum
og af því að hafa sjálf búið í þessum stórborgum
og sameinar það allt saman í bókunum. Að-
spurð hvort við fáum eina bók sem gerist í
Reykjavík skellihlær hún.
„Það gæti verið ansi skemmtilegt. Góð hug-
mynd!“ segir Carina.
„Nú er ég að vinna að seríu sem er allt öðru-
vísi en líka fyrir þennan aldurshóp. En að skrifa
sögur um ráðgátur er ansi flókið; hver bútur
þarf að passa og það mega ekki vera neinir laus-
ir endar,“ segir Carina.
Hún skrifar eina til tvær bækur á ári og vinn-
ur nú við skriftir í fullu starfi. „Það þarf líka að
kynna bækurnar á samfélagsmiðlum og ferðast
á milli landa til að kynna þær,“ segir Carina
sem segist setjast niður á hverjum degi og
skrifa. „Ég þarf líka oft að skila handritum á
réttum tíma þannig að stundum er pressa.“
Í sambúð með prinsi
Á netinu má lesa um að Carina búi með prinsi.
Kærastinn hennar, Gustav, er systursonur
Danadrottningar, sjöundi prins af Sayn-
Wittgenstein-Berleburg, elsta barn og eini son-
ur Benediktu prinsessu af Danmörku og Rich-
ards, sjötta prins af Sayn-Wittgenstein-
Berleburg. Carina er guðmóðir Aþenu prins-
essu af Danmörku, dóttur Jóakims prins og
Marie.
Carina og Gustav búa í kastala í Þýskalandi
ásamt fjórum hundum en Carina segist skipta
tíma sínum á milli London og þýsku sveitar-
innar. Blaðamanni gengur illa að fá krassandi
fréttir af prinsessulífinu því Carina segist lítið
tala um þennan hluta lífs síns. Augljóslega lifir
hún ekki alveg jafn dæmigerðu lífi og við hin en
hún vill mun frekar tala um starfsframa sinn og
bækurnar sem hún hefur gefið út og er afar
spennt yfir því að fyrsta bók hennar skuli nú
vera komin út á Íslandi.
Blaðamaður kveður rithöfundinn og fyrrver-
andi fyrirsætuna og segist bíða spenntur eftir
Reykjavíkurglæpasögu frá þessari næstum
prinsessu sem býr í kastala í þýskri sveit.
Guðmóðir danskrar prinsessu
Sakamál innan tískuheimsins
eru viðfangsefni unglinga-
bóka hinnar bandarísku
Carinu Axelsson en í vikunni
kom fyrsta bók seríunnar út á
Íslandi. Carina þekkir tísku-
heiminn vel enda starfaði
hún sem fyrirsæta í New
York og París. Í dag býr hún
með dönskum prinsi og skrif-
ar bækur í þýskum kastala.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
’Besti hlutinn við starfið varöll biðin; biðin á milli ljós-myndataka, bið eftir flugvélum,bið eftir réttu birtunni eða bið
eftir leigubílum, því þá gafst
tími til að lesa. Ég las stöðugt
þegar ég vann sem módel. Svo
voru launin ágæt þannig að ég
gat keypt allar þær bækur sem
mig langaði í.
Carina Axelsson skrifar um sakamál innan tísku-
heimsins en hún þekkir þann heim af eigin raun.
Bækurnar eiga að höfða til unglingsstúlkna.
Morgunblaðið/Ásdís