Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.04.2018, Qupperneq 23
29.4. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
Ískaffi fer vel með
bæði beyglum og
kleinuhringjum, ekki
síst á sólríkum sum-
ardegi.
ÍSKAFFI
135 g grófmalað kaffi
1,2 l kalt vatn
Hrærið saman og látið
standa í ísskáp í 16
klukkutíma. Sigtið
kaffið frá og látið leka
í gegnum kaffisíu. Svo
er hægt að deyfa
kaffið með vatni ef
fólki finnst það of
sterkt eða láta það
liggja í styttri tíma.
Blandið með sykur-
sírópi, mjólk og klaka.
SYKURSÍRÓP
100 g sykur
100 g vatn
Hitið saman þangað
til sykurinn er bráðn-
aður.
Kald-
bruggað
kaffi
um við með hugmyndina að Le Kock. Deig
byrjaði þar inni en við vildum alltaf opna sjálf-
stæðan stað síðar,“ segir hann en á Le Kock
eru hugvitssamlegar samlokur og hamborg-
arar í fyrirrúmi.
Bandarísk áhrif
Deig var síðan opnað um miðjan mars og hafa
viðtökurnar verið góðar. Hann segir að úrvalið
hafi reyndar ruglað suma svolítið í ríminu í
fyrstu.
„Sumir hafa reyndar orðið svolítið ringlaðir
og spurt: Af hverju eruð þið ekki með vín-
arbrauð? Hvar er snúðurinn með glassúr? Það
er næstum eins og það sé ekki hægt að opna
bakarí án þess að bjóða upp á þetta,“ segir
hann en það er réttmæt ábending að bakarí
hér séu mörg lík þó ein-
hver skeri sig úr og þá
síðast Brauð&co. Mark-
ús og félagar bjóða þó
upp á súrdeigsbrauð í
takmörkuðu upplagi
dag hvern.
„Knútur er hönn-
uðurinn, Kalli er kokkurinn og ég er bakarinn.
Við erum auðvitað allir kokkar en svona má
lýsa okkar sterku hliðum í sam-
vinnunni,“ segir Markús.
Bandarískt uppeldi
hans hefur því eitthvað
að segja um úrvalið í
Deigi enda eru
kleinuhringir og
beyglur í fyrirrúmi
en hingað til hefur
ekki verið gott úrval
af beyglum á Íslandi.
„Þetta hefur gengið
mjög vel í fólk, ekki síst
kleinuhringirnir. Sumir
eru reyndar hissa á sam-
setninguninni beyglur og
rjómaostur,“ segir hann en Deig
selur líka rjómaostablöndur sem passa
vel sem álegg á beyglurnar.
Vildu vera lókal
Af hverju að opna bakarí í Breiðholti en ekki
niður í bæ?
„Við hefðum getað bara opnað stað niður í
bæ, það hefði kannski verið kostur sem blasir
við því þar eru ferðamennir. Helsta ástæðan er
samt sú að við vildum að Íslendingar myndu
fyrst kaupa vörurnar okkar og síðan fara líka
niður í bæ. Ef við getum gert Íslendinga
ánægða þá ættum við að geta fleiri ánægða.
Við vildum vera lókal. Við vorum að taka
áhættu með að opna Le Kock í Ármála og svo
Deig hér,“ segir hann en þetta virðist hafa
borgað sig.
„Þegar við fyrst opnuðum Le Kock þá var
bara rólegt því það eru svo fáir á þessu svæði á
kvöldin en núna keyrir maður niður Ármúlann
á kvöldin og það eru tuttugu bílar fyrir utan
veitingastaðinn. Þetta er ótrúlegt hvað Íslend-
ingar hafa tekið okkur vel,“ segir hann.
Bandaríkjamenn á Íslandi hafa tekið beygl-
unum á Deigi vel ef eitthvað er að marka um-
sagnir á Facebook. Markús segir samt að þeir
hafi þróað sína eigin beygluuppskrift. „Við er-
um ekki að búa til hefðbundnar beyglur sem
eru mjúkar en alveg seigar undir tönn, eins og
frá New York. Okkar er með harðri skorpu og
er síðan mjúk að innan.
Okkur langaði að búa til
eitthvað sem okkur lík-
aði vel,“ útskýrir Mark-
ús.
Sköpunargleðin ræð-
ur líka ríkjum hvað
kleinuhringina varðar.
„Við reyndum að vera eins villtir og við gátum.
Hver einasta kleinuhringjabúð býður uppá
einhvern alveg sérstakan kleinuhring en
fólk er gjarnan að apa upp hvert eftir
öðru,“ segir Markús og þeir fé-
lagar hugsuðu mikið með sér
hvernig þeir gætu gert
eitthvað öðruvísi. Á end-
anum ákváðu þeir að
leika sér með ís-
lenskar hefðir og
bjóða til dæmis uppá
einn sem byggist á
hefðbundinni kleinu
og annan sem minnir á
skúffuköku með kókos
en er auðvitað samt
kleinuhringur. Einnig er
boðið uppá skemmtilega kleinu-
hringi á borð við morgunverðar kleinu-
hring með morgunkornshringjum „og einn
sem er með hlynsírópi og beikoni,“ segir
Markús en hann segir þá síðastnefndu vera
nokkuð algenga sjón þar sem hann ólst upp á
Nýja Englandi.
Þremenningarnir Markús, Knútur og Karl
ætla ekki að láta hér staðar numið en næst á
dagskrá er að opna stað í miðbænum en ekki
er komin dagsetning á opnun. Staðurinn verð-
ur við Tryggvagötu, á Naustareit, en þar verð-
ur að finna á einum stað Le Kock, Deig og líka
bar. Það er boðið uppá súrdeigsbrauð í takmörkuðu upplagi.
Beyglur með parmesanhúð, öllu og sesam.
Skúffukökukleinuhringur er á
meðal þess sem er í boði.
’
Sumir hafa reyndar orðið
svolítið ringlaðir og
spurt: Af hverju eruð þið ekki
með vínarbrauð? Hvar er
snúðurinn með glassúr?
Rjómaostur
með graslauk
Þessi er mjög góður ofan á
beyglur.
GRASLAUKSRJÓMAOSTUR
250 g rjómaostur
1 búnt graslaukur, saxaður
1stk. skalottlaukur, saxaður
1stk. hvítlauksgeiri, kraminn
Blandið saman í hrærivél með
spaðanum í eina mínútu.