Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.04.2018, Síða 26
TÍSKA
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.4. 2018
Laugardaginn 28. apríl verður haldið upp á þriggja ára afmæli
Hertex við Vínlandsleið á milli kl. 12:00 og 17:00. Þar verður
boðið upp á ýmis tilboð og uppákomur og því upplagt fyrir þá
sem kunna að meta notaðan fatnað og endurnýtingu að líta inn.
Afmælishátíð Hertex við Vínlandsleið
Hildur Sumarliðadóttir er menntuð hár-greiðslukona og fatahönnuður ogstarfar á hárgreiðslustofunni Barba-
rella coiffeur. Hildur, sem er nýflutt heim eftir
að hafa verið búsett um nokkurra ára skeið í
Kaupmannahöfn, fylgist vel með straumum og
stefnum í hártískunni.
„Í sumar munum við sjá mikið af svoköll-
uðum „Bob“-klippingum með toppi, en ekki
þessum þungu skörpu toppum heldur meira af
mjúkum toppum í 70’s-stíl; svolítið síður og
nær niður fyrir augabrún. Toppurinn má alveg
vera nokkuð frjálslegur þannig að útlitið sé af-
slappað,“ útskýrir Hildur og segir
að ef fólk fíli ekki lengur topp-
inn að þá megi bara taka
hann til hliðar og færa á
bakvið eyrun.
Aðpurð við hverju
megi búast í hártísk-
unni í sumar, svarar Hildur: „Í fyrra vorum við
svolítið upptekin af gráu hári og pastellitum.
Núna bætum við smá lúxus við og höfum það
meira „metallic“ og mjög glansandi. Silfurlitað
er hinn nýi grái tónn og er „metallic“ mjög
mikið inni núna,“ útskýrir hún og bætir við að í
fyrra hafi málið svolítið verið að fá hárið
hvítara en hvítt en núna má það vera örlítið
dekkra með rót og endarnir mega þess vegna
vera út í gyllt. „Gylltir og hlýir tónar eru mál-
ið.“
Hvað varðar hárgreiðslu segir Hildur hár-
bönd hafi til að mynda verið áberandi á sýn-
ingum hönnuða fyrir sumarið 2018.
„Breið hárbönd voru mikið á tísku-
pöllunum og það er mjög flott að
vera með hárbönd við til dæmis
toppa og lág tögl. Skólastelpu-
Þriðja skref. Þriðja
skref er eins og annað
skref nema þú tekur
lokk frá hinn hliðinni
(lokkur 3).
Morgunblaðið/Eggert
Frjálsleg hár-
tíska í sumar
Hárgreiðslukonan Hildur Sumarliðadóttir hjá Barbarella coif-
feur fer yfir hártískuna í sumar. Hildur segir mikilvægt að
vernda hárið fyrir hitanum og sýnir hvernig hægt er að gera
fallega fléttu sem er ein vinsælasta greiðsla sumarsins.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Pipe Braid eða pípufléttan er svo-
kölluð sumarhátíðar- eða festival-
flétta sumarsins. Einstaklega flott
og skemmtileg greiðsla.
Hildur Sumarliðadóttir hjá hár-
greiðslustofunni Barbarella segir
fylgihluti og frjálslega greiðslu
einkenna sumarið 2018.
Úr sumarlínu tískuhússins Versace.
Hárið er styttra hjá herrunum í sumar
og vinsælt er að greiða toppinn niður.
Hin svokallaða
„Bob“-klipping í
frjálslegum dúr.
AFP
AFP
Skjáskot/pinterest.com