Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.04.2018, Side 27
fléttan kemur líka sterk inn en hún má vera
laus og frjálsleg og best er að notast við litla,
ósýnilega teygju í þeirri greiðslu.“
Þá segir Hildur að við eigum eftir að sjá
mun meira af mjög stuttum klippingum þegar
kemur að herrunum.
„Um er að ræða klippingar sem er auðvelt
að greiða og munum við sjá hárið frekar greitt
fram í toppnum heldur en aftur.
Sólarvörn fyrir hárið
Hitabreytingar hafa vissulega áhrif á hárið,
líkt og húðina og segir Hildur mikilvægt að
huga rétt að hárumhirðu á sumrin.
„Það er nauðsynlegt að næra hárið vel á
sumrin og gefa því raka. Einnig er mjög mik-
ilvægt að nota hita- og sólarvörn fyrir hárið,“
segir hún og bætir við að ef fólk er í mikilli sól
sé upplagt að verja hárið vel með flottum hatti.
„Það er úrval af vörum með sólarvörn og
fólk þarf að vera duglegt að næra hárið á
sumrin. Þá er mjög sniðugt að eiga næringar-
bombur í sturtunni yfir sumarið.“
Fylgihlutir ómissandi í sumar
Aðspurð hvaða tískuhús hafi, að mati Hildar,
staðið upp úr hvað varðar hártísku í sumar,
svarar hún: „Mér fannst Dolce & Gabbana,
Versace og Erdem vera að gera skemmtilega
hluti. Þessi tískuhús notuðu mikið af spennum
og allskonar fylgihlutum sem mér finnst
skemmtilegt og sumarlegt.
Það er alltaf partur af sumrinu að leika sér
meira með fylgihluti til þess að djassa hárið
upp.“
Sýnikennsla
Hildur sýndi skref fyrir skref sumarlega
greiðslu sem hefur verið vinsæl með vorinu.
„Pipe Braid“ eða pípufléttan er svokölluð sum-
arhátíðar- eða festival-flétta sumarsins.
„Hugmyndasmiður hennar heitir Nicci
Welsh, hún er mikið í því að búa til nýjar flétt-
ur og er algjör listamaður í því,“ útskýrir Hild-
ur sem fer með okkur yfir helstu skref þess-
arar skemmtilegu fléttu.
Hildur segir fléttur
meðal þess sem er
hvað vinsælast í sumar.
Á Instagram-síðu Barbarella, instagram.com/barbarellahairsalon, má
sjá fjöldann allan af hugmyndum að skemmtilegri hárgreiðslu. Auk
þess er hægt að panta tíma hjá Hildi á Facebook-síðu stofunnar.
Þessi skref eru svo endurtekin alla leið niður.
Fjórða skref Þá tekur þú endann á lokk 2, býrð til lykkju og vefur utan
um - sama með lokk 3. Að lokum sameinast þeir miðjulokknum (lokk 1).
Fyrsta skref Þú tekur einn þykkan lokk í miðjunni (köllum hann lokk 1).
Þriðja skref Þriðja skref er eins og annað skref nema þú tekur
lokk frá hinn hliðinni (lokkur 3).
Gylltir og hlýir
tónar eru mál-
ið í sumar.
FLÉTTAN SAMANSTENDUR AF FJÓRUM SKREFUM
Annað skref Þú tekur lokk frá hliðinni (lokkur 2) og leggur undir
miðjulokkinn og býrð til lykkju. Að lokum vefur þú svo lokknum
yfir og ofan í lykkjuna og herðir.
Ein vinsælasta
hárgreiðsla sum-
arsins er skóla-
stelpu-fléttan.
Hún má bæði
vera laus og
frjálsleg.
29.4. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
Geysir
24.800 kr.
Falleg peysa frá
Anecdote.
Vero Moda
6.590 kr.
Grófar galla-
buxur í töff sniði.
Net-a-Porter.com
37.000 kr.
Gullhúðaðir eyrnalokkar
frá Jennifer Fisher.
Asos.com
4.300 kr.
Þessa skó var ég að panta mér
fyrir sumarið frá Monki.
Í þessari viku...
Sigurborg Selma
sigurborg@mbl.is
Ég var að panta mér æðislega hvíta, opna
skó fyrir sumarið með svokölluðum
„kitten“-hæl sem er stór partur af sumar-
tískunni. „Kitten“-hælar passa bæði við
sæta sumarkjóla og hressa upp á hvers-
dagslegri samsetningar eins og til að
mynda grófar gallabuxur og stuttermabol.
Yeoman
19.900 kr.
Töff sundbolur
frá Lovestories.
Céline
380.000 kr.
Draumataskan mín er þessi fallega
taska úr kálfaskinni frá Céline.
Madison
5.900 kr.
Reverence Aromatique frá
Aesop er eftirlætishandsápan
mín með fíngerðum kornum
sem veita milda djúphreinsun.