Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.04.2018, Qupperneq 28
FERÐALÖG Það eru nokkrir hlutir sem hægt er að taka með sér tilað gera flugferðina þægilegri en þar ber hæst sjal, helst
úr þunnri ull, eyrnatappa, augnhvílu og hvíldarkraga.
Þægilegt ferðalag
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.4. 2018
K
róatía var ekki á lista
margra ferðamanna í
nærri áratug eftir
stríðið sem stóð yfir
1991-1995 en þá var
Júgóslavíu skipt upp. Núna er land-
ið hinsvegar komið rækilega á dag-
skrá á ný en þar er falleg strand-
lengja, óspillt náttúra og fallegir
gamlir hafnarbæir. Einn slíkur er
Split, næststærsta borg Króatíu og
sú stærsta í héraðinu sem kennt er
við Dalmatíu. Borgin var stofnuð
sem grísk nýlenda á 3. og 2. öld fyr-
ir Krist en hún varð mikilvæg og
styrktist í sessi í kringum árið 650.
Heimafólk sem kallað er „Splicani“
lýsir gjarnan borg sinni sem þeirri
fallegustu í heimi. Í borginni búa
innan við 200.000 manns en nærri
350.000 á borgarsvæðinu öllu þegar
nærliggjandi bæir eru taldir með.
Höll Díókletíanusar
Borgin þykir lífleg og vera góð
blanda af hinu forna og nýja.
Í borginni er að finna glæsilega
höll Díókletíanusar sem byggð var
300 árum eftir Krist þegar þessi
rómverski keisari settist í helgan
stein. Höllin er á heimsminjaskrá
UNESCO og þykir vera með
áhrifameiri rómverskum minjum í
heiminum. Samhliða þessum forn-
minjum þrífast nútímalegir barir,
veitingastaðir og verslanir. Hall-
armúrarnir faðma gamla bæinn í
Split en þar er miðjan stórt torg
með einkennandi marmarasúlum,
sem ber nafnið Peristil. Þar hefur
Díókletíanus komið fram og ávarp-
að almenning. Á svæðinu er kirkja
GettyImages/iStockphoto
Bacvice-baðströndin þar sem hægt er að synda í hreinum sjó.
Blanda af hinu
forna og nýja
Split er heillandi borg í Króatíu þar sem hægt er að njóta afslappaðs lífs við
sjávarsíðuna með kaffibolla eða vín úr héraði í hendi. Þar eru rómverskar
fornminjar við hlið nútímalegra veitingastaða.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Steinlagðar götur miðborgarinnar.
Prokurative, litríka
lýðveldistorgið, vestur af
sjávarbreiðgötunni Riva.
SÍGILDIR SUNNUDAGAR
Fyrsta flokks
kammertónlist
Sígildir sunnudagar eru klassísk
tónleikaröð þar sem boðið er upp
á fjölbreytt úrval kammertónleika.
Sunnudaga
kl. 17:00 í Hörpu