Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.04.2018, Page 29
29.4. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Hægt er að fara í dagsferð í
þjóðgarðinn Krka frá Split.
Hann nær frá Adríahafinu til
fjalla 73 km leið meðfram ánni
Krka. Þarna eru heillandi fossar
og djúp gil.
Það er þó ekki aðeins nátt-
úrufegurðin sem dregur ferða-
fólk í þjóðgarðinn heldur einnig
manngerðar byggingar en þarna
er að finna gömul munka-
klaustur.
Skradinski Buk-fossinn er vin-
sælasti staðurinn í þjóðgarð-
inum en fyrir neðan hann er
hægt að baða sig.
Þar nærri eru gömul þorp þar
sem húsunum hefur verið
breytt í listasmiðjur, minjaversl-
anir og veitingastaði. Ferða-
menn flykkjast á þetta svæði og
eru þeir mjög margir yfir há-
sumarið.
Í Króatíu eru alls átta þjóð-
garðar þar sem hægt er að njóta
náttúru og menningar landsins.
Skradinski Buk-fossarnir í Krka laða marga ferðamenn til sín.
KRÓATÍA
Þjóðgarðurinn Krka
en hægt er að fara upp í klukku-
turninn en þaðan er einstakt útsýni
yfir gamla bæinn í Split.
Baðströnd í borginni
Split er ein af þessum borgum þar
sem vel er hægt að fá sér sund-
sprett fyrir morgunmat ef maður
vill. Aðalbaðströnd borgarinnar er í
grunnri vík sem ber nafnið Bacvice
og hefur þar verið opinber bað-
staður frá árinu 1891. Ströndin ligg-
ur vel við sól og þar sem víkin er
frekar lokuð og vatnið grunnt er
vatnið nógu heitt til að synda í stór-
an hluta ársins. Ströndin er hrein
og er með bláa fánann því til stað-
festingar.
Kaffi við sjávarsíðuna
Kaffihús eru fjölmörg í Split og allt-
af vel sótt. Helsti staðurinn er Riva,
breiðgatan við Adríahafið sem
prýdd er pálmatrjám. Þar er nógu
sólríkt til þess að hægt sé að sitja
úti nærri allan ársins hring. Sjáv-
arbreiðgatan liggur meðfram öllum
gamla bænum og þykir einhver sú
fallegasta í Evrópu.
Það er ekki bara kaffi sem hægt
er að drekka í Split, því að heilmikil
vínrækt er í héraðinu svo víða er
hægt að fara í vínsmakkanir til að
smakka vín frá svæðinu.
Þarna er líka nóg að gera fyrir
menningarunnendur en vel er hægt
að mæla með heimsókn í Gallery of
Fine Arts í Split. Þar eru til sýnis
nærri 400 verk frá um 700 ára tíma-
bili en safnið er til húsa þar sem
eitt sinn var fyrsta sjúkrahús borg-
arinnar.
Heimild: Lonely Planet,
Telegraph Travel, Wikipedia.
Útsýni yfir gamla bæinn.
GettyImages/iStockphoto
’Split er ein af þessumborgum þar sem vel erhægt að fá sér sundsprettfyrir morgunmat ef mað-
ur vill.
Þ
að eru margir kostir
sem fylgja því að
ferðast aðeins með
handfarangur á flug-
ferðalagi; til dæmis
þarf ekki að tékka hann inn og þar
af leiðandi ekki bíða eftir honum á
áfangastað. Líkurnar á því að hann
týnist ættu líka að minnka. Önnur
ástæða til að ferðast bara með
handfarangur er að þannig er hægt
að fá ódýrari flugmiða.
Það er vel hægt að koma öllu
sem þarf í litla tösku fyrir stutt
ferðalag en það þarf að eyða aðeins
meiri tíma í að pakka. Margir
kannast áreiðanlega við að hafa
einhvern tímann tekið óþarflega
mikið af fötum í ferðalagið. Það er
einhvern veginn þannig að maður
er mest í því sem manni finnst
þægilegast. Það er um að gera að
vera í þægilegustu skónum og
þyngstu yfirhöfninni í flugvélinni ef
þarf en það segir sig sjálft að það
er einfaldara að pakka litlu ef för-
inni er heitið á sólarströnd. Til að
koma öllu betur fyrir er gott ráð að
rúlla upp fötunum en þannig taka
þau minna pláss og krumpast síður.
Það er nauðsynlegt að átta sig á
því hvað má og hvað ekki. Ef för-
inni er heitið á gott hótel þá er ef
til vill óþarfi að pakka hársápu og
hárnæringu heldur er hægt að nota
það sem hótelið býður uppá. Aðrar
fljótandi snyrtivörur þurfa að vera
í réttri stærð, litlum flöskum og
glærum poka, eins og flestir
þekkja.
Mikilvægt er líka að vera með
tösku í réttri stærð; reglurnar eru
mismunandi eftir flugfélögum en
algeng stærð er 56x45x25cm. Það
þarf líka að passa að taskan sjálf sé
ekki þung svo meira komist fyrir.
Með allt
til taks
Það getur verið þægilegt að ferðast
aðeins með handfarangur en þá er
gott að vera snjall að pakka.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Fljótandi snyrtivörur í handfar-
angri þurfa að vera í litlum ílátum í
glærri tösku eða poka.
Það sparar pláss að rúlla fötunum og
þannig krumpast þau líka síður.
G
et
ty
Im
ag
es
/iS
to
ck
ph
ot
o
BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16
S V E F N S Ó F A R
TURI
kr. 149.800
frá Innovation Living Denmark