Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.04.2018, Blaðsíða 31
öllum fjölmiðlum vestra, enda eftirsóknarvert efni á
ferð. Fjölmiðlar hafa réttilega rakið að hann hafi líkt
Trump við glæpaforingja, líkastur verstu mafíósum
Bandaríkjanna, siðlausum manni og siðblindum og al-
gjörlega vita óhæfum til að gegna embætti forseta, og
sem bæri að svipta embætti af þinginu eða ef annað
þryti að kjósa í burtu við fyrsta tækifæri. Comey kann-
ast við það allt og bætir jafnvel í. Þá er oftast spurt sem
svo: Þetta segir þú eftir að forsetinn rak þig úr starfi.
Hefði hann ekki rekið þig hefðir þú þá hafa starfað
áfram fyrir forsetann? Comey svarar því efnislega á
þessa leið: Já, það hefði ég gert. Ég hafði ætíð ætlað mér
að starfa í 6 ár í viðbót. Og þá er næst spurt, með mis-
jöfnu orðalagi þó: Þú veist að lögin og stjórnskipunin
gera ráð fyrir því að forseti Bandaríkjanna, æðsti yf-
irmaður stjórnsýslunnar, verður að geta treyst hátt-
settum embættismönnum ríkisins fullkomlega. Gat hann
treyst manni eins og þér, sem lýsir honum með þeim
hætti sem þú gerir? Og hvernig gast þú treyst þér til að
starfa svo náið með manni, sem hafði ekki hugmynd um
þá óbeit og fyrirlitningu sem þú hafðir á honum. Ekkert
af þessu flækist fyrir Comey: Já, segir hann því að ég
hefði verið þarna til þess að gæta hagsmuna alríkislög-
reglunnar!
Það er skrítið svar. Forstjórinn burt rekni virðist hafa
gleymt því að lögreglan er ekki þar fyrir sjálfa sig. Hún
skal gæta hagsmuna ríkisins, og almennings og öryggis
beggja. Þess sama ríkis sem lýtur að lögum forystu lýð-
kjörins forseta í ríkara mæli en tíðkast í flestum lýðræð-
islöndum. Misfari forseti með valdið á forstjóri FBI að
segja honum það mat sitt. Ef það breytir engu hlýtur
hann að segja af sér og gera þingi og þjóð grein fyrir
ástæðum þess. Hafi fyrrverandi forstjóri haft þá hömlu-
lausu skoðun á réttkjörnum forseta Bandaríkjanna að
þar fari dómgreindarlaus, ótíndur glæpamaður, óhæfur,
óalandi og óferjandi, hlýtur honum hafa verið rétt að
segja af sér. Ella hljóta allir, þing sem þjóð að mega
álykta að forstjóri FBI hafi ekki neitt út á hann að setja.
Og síst það að hann fari á svig við lög landsins. Hver get-
ur ímyndað sér að „ótíndur glæpamaður, mafíósi, óal-
andi siðleysingi og vanhæfur vitleysingur“ geti farið
með embætti sitt löglega í næstu 3 ár eða 7, bara af því
að maður með Messíasarkomplex sé forstjóri FBI?
Það hefur láðst að segja Comey að hann var í starfi til
að tryggja öryggi Bandaríkjanna og Bandaríkjamanna
en ekki aðeins FBI sem stofnunar. Sú spurning hlýtur
hins vegar að vakna hvort FBI hafi verið óhætt þegar
svo mikið vald hafði safnast á hendur forystu sem hefur
sýnt af sér aðra eins siðferðisbresti og James Comey,
varaforstjórinn Andrew McCabe, gagnnjósnarinn valda-
mikli Peter Strzok, ástleitni lögfræðingurinn háttsetti
Angela Page og allir þeir andlitslausu forystumenn sem
ekki hefur frést af að hafi gert hina minnstu athugasemd
við stjórnlausa pólitíska spillingu á efstu hæð alríkislög-
reglunnar.
Reykur úr hlaupi
Í 16 mánuði hafa allir helstu fjölmiðlar Bandaríkjanna,
sem hafa að eigin sögn aðgang að míglekandi mönnum í
stjórnkerfinu og rannsóknardómarinn Mueller með
mikið lið, í nánu samstarfi við gamla félaga í FBI, flesta
hatursmenn Trumps, leitað að leyndarmálinu sem muni
afhjúpa allt svínaríið. Það er kallað að finna „The smok-
ing gun“ þar vestra. Stormy Daniels segir að Trump hafi
átt eina nótt með sér fyrir 10 árum. Hvað sem um hana
má segja þá er hún ekki smoking gun í hefðbundnum
skilningi.
En það er þó ekki endilega víst að öll von sé úti. Komi
á daginn að skömmu fyrir kosningar hafi Donald Trump
ekki vitað að gleymst hefði að slökkva á míkrófón á
jakkaboðungi og vakandi fréttamaður náð sprengju inn
á band: Samtali um varnarflaugar sem lofað hafði verið
að setja upp í Austur-Evrópu, en nú væri gælt við að
svíkja:
Candidate Trump: „On all these issues, but particul-
arly missile defense, this, this can be solved but it’s im-
portant for him to give me space.“
Prime minister Medvedev: „Yeah, I understand. I
understand your message about space. Space for you…“
Candidate Trump: „xxxxxx . After my election I have
more flexibility.“
Prime minister Medvedev: „I understand. I will trans-
mit this information to Vladimir.“
Ef slíkt samtal yrði grafið upp væri Trump örugglega
búinn að vera og það jafnvel þótt hann hefði ekki verið
orðinn forseti og ekki í þeim skilningi farið á bak við þjóð
sína.
En vandinn er sá að þetta samtal fór fram. Og það er
til á bandi en það hljómar svona:
President Medvedev: Yeah, I understand. I under-
stand your message about space. Space for you…
President Obama: This is my last election. After my
election I have more flexibility.
President Medvedev: I understand. I will transmit
this information to Vladimir.“
Þessu eru menn líklega búnir að gleyma. Eða er það
eins og vant er að það gildir annað um Obama en
Trump?
Hafa menn líka gleymt því að New York Times upp-
lýsti í mars 2009 að Obama hefði skrifað þeim í Kreml í
janúar sama ár, nýbakaður forseti, „leynilegt bréf“ um
að hann gæti hætt við loforð um varnarflaugar í Austur-
Evrópu ef Pútín myndi hjálpa sér við að ná samningi um
kjarnorkutilraunir við klerkastjórnina í Íran.
Fyndist sambærilegt bréf frá Trump þyrfti Mueller
hinn sérstaki ekki að hlaupa um svona hokinn eins og
hann birtist á myndum nú.
En meðal annarra orða: Var ekki Obama örugglega
settur af þegar upp komst um þessi „landráðasamtöl“ í
hans tíð?
Jú, hvernig spyrðu.
Morgunblaðið/Hari
’Þótt Comey sé þráspurður í fjölmiðlumheldur hann því fram að ekki hafi falistleki í þeirri gjörð. Jafnvel fjölmiðlarnir vestrasem eru kallaðir „the mainstream media“ og
hömuðust með demókrötum alla kosninga-
baráttuna og kunna sér ekki hóf eftir að
Trump var svo ósvífinn að vinna samt, kaupa
þó ekki þetta tal fyrrverandi forstjóra FBI
enda dómgreindarlaust.
29.4. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31