Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.04.2018, Síða 35
29.4. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
BÓKSALA 18.-24. APRÍL
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Dagar höfnunarElena Ferrante
2 Týnda systirinB A Paris
3 BlóðengillÓskar Guðmundsson
4 Í nafni sannleikansViveca Sten
5 FléttanLaetitia Colombani
6 ÞorstiJo Nesbø
7 Mið-AusturlöndMagnús Þorkell Bernharðsson
8 Allt sundrastChinua Achebe
9 UppruniDan Brown
10 Englar HammúrabísMax Seeck
1 Kormákur krummafóturJóna V. Árnadóttir/Elsa Nielsen
2
Stóra bókin um
Hvolpasveitina
Mary Tillworth
3
Risasyrpa – Sögufrægar
endur
Walt Disney
4
Hulduheimar 4
– Hafmeyjarif
Rosie Banks
5 Veröld MíuMargrét Ýr Ingimarsdóttir
6 Lói þú flýgur aldrei einnStyrmir G./Sigmundur Þ.
7 Skafmyndalist SpiroSetberg
8 Víti í VestmannaeyjumGunnar Helgason
9 Gilitrutt barnaóperaSalka/Hildigunnur/Heiða
10 FuglarHjörleifur H./Rán Flygenring
Allar bækur
Barnabækur
Ég er að klára að kenna Gísla
sögu Súrssonar og í miðjum klíð-
um í Kjalnesinga sögu og er því
með þær á nátt-
borðinu, það er gott
að rifja aðeins upp.
Svo býður hver lest-
ur alltaf upp á ein-
hverjar nýjar vanga-
veltur, maður sér
alltaf einhverja nýja
vinkla. Eitt það skemmtilegasta
við að vera að kenna er líka að
maður fær inn nýja og ólíka ein-
staklinga og þeir sjá oft eitthvað
sem maður hafði sjálfur ekki tekið
eftir. Nemendurnir eru líka alltaf
að kenna mér.
Yndislesturinn minn núna er
Saga þernunnar eftir Margaret
Atwood. Ég byrjaði
að horfa á þættina á
Netflix, en hætti svo
að horfa því vinkon-
ur mínar mæltu
mjög með því að
lesa bókina fyrst.
Ætli ég taki ekki
bara þættina þegar ég er búin
með bókina. Undirtónninn í bók-
inni er óhuggulegur og vekur líka
spurningar. Það er svo margt sem
við lítum á sem sjálfsagða hluti
sem geta breyst skyndilega og þá
er spurningin hvernig við bregð-
umst við.
ÉG ER AÐ LESA
Sigurrós
Eiðsdóttir
Sigurrós Eiðsdóttir er framhalds-
skólakennari.
Blóðengill heitir önnur saga Óskars Guð-
mundssonar um rannsóknarlögreglukonuna
Hilmu, en fyrri bókin hlaut Blóðdropann árið
2016 sem besta glæpasagan og var tilnefnd til
Glerlykilsins sem besta glæpasaga á Norður-
löndum. Í bókinni segir frá því er stúlka hringir í
Neyðarlínuna og tilkynnir að móðir hennar sé
látin. Þegar lögreglan kemur á staðinn er þar
ekkert að finna nema blóðbletti. Hilma er köll-
uð á staðinn og hefst þá kapphlaup við tímann
um að finna stúlkuna og móður hennar. Bjartur
gefur út.
Keisarakokteillinn eftir Ragnar Arnalds,
fyrrverandi þingmann og ráðherra, gerist í fjár-
málahruninu haustið 2008 og segir frá vinunum
Friðriki stórkaupmanni og Bjarti Bláfells sem
fjárfest hafa af miklum dugnaði í hlutabréfum
bankanna undanfarin ár. Skjótt skipast veður í
lofti og þegar við þeim blasir að bankarnir séu
komnir í þrot og hlutaféð verðlaust ákveða þeir
að bjarga fjárhagnum með því að senda unga
stúlku til Parísar til að sækja mikið magn af
fíkniefnum. Í fyrstu gengur allt að óskum. Tind-
ur gefur út.
Jan-Erik Fjell fékk norsku bóksalaverðlaunin
fyrir fyrstu skádsögu sína um rannsóknarlög-
reglumanninn Anton Brekke. Lukkuriddarinn,
sem kom nýverið út í íslenskri þýðingu Atla
Steins Guðmundssonar, er fimmta og nýjasta
bókin um Brekke og glímu hans við glæpi. Í bók-
inni segir frá því er bifvélavirki finnur bein úr
mannshendi í undirvagninum á gömlum Cadill-
ac og Anton Brekke heldur til Fredrikstad til að
rannsaka manndráp þar sem miðaldra kona er
fórnarlambið. Bókabeitan gefur út.
NÝJAR BÆKUR
Mér hefur alltaf fundist gaman að skrifa og þaðhefur alltaf blundað í mér að skrifa barnabók.Ég segi mikið við börnin sem ég kenni og við
börnin mín að maður eigi að fylgja draumum sínum og
hlusta á innri rödd,“ segir Margrét Ýr Ingimarsdóttir
sem skrifaði og gaf út nýlega barnabókina Veröld Míu.
Lét gamlan draum rætast
„Það var einn nemandi hjá mér sem spurði mig að því
hvaða draum ég hefði. Ég svaraði að mig hefði alltaf
langað til að skrifa barnabók. Og ertu búin að því? spurði
hann. Ég gat ekki játað því. Mér fannst þetta gott hjá
honum og ég ákvað að láta minn draum rætast,“ segir
Margrét og hlær.
„Ég hef mikla trú á þessari bók og finnst boðskapurinn
góður. Hún er nýkomin í búðir og það er þegar búið að
panta meira, þannig að það er jákvætt,“ segir Margrét.
Hún hefur að sjálfsögðu lesið bókina fyrir bekkinn
sinn en hún kennir öðrum bekk í Hvaleyrarskóla.
„Ég myndi segja að bókin væri fyrir þriggja til átta,
níu ára,“ segir Margrét, en hún myndskreytti sjálf bók-
ina.
„Ég elska að föndra. Dýrin eru teiknuð og síðan er
bakgrunnurinn föndraður og svo var það útfært í tölvu,“
útskýrir Margrét.
Finnst hann heldur litlaus
Aðalpersóna bókarinnar er lítill hvítur fugl sem er afar
ósáttur við útlit sitt og finnst hann vera heldur litlaus.
Fuglinn Mía kemst svo að því að allir hafa sína kosti og
betra sé að einblína á kostina en gallana.
„Mig langaði að hafa boðskap og að börn gætu lært
eitthvað af henni. Ég vil að börn ýti undir styrkleika sína
í stað þess að horfa á náungann. Það er mjög mikilvægt
þótt auðvitað þurfi þau líka að fá uppbyggilega gagnrýni.
Það stendur í skólastofunni minni: það er enginn góður í
öllu en allir eru góðir í einhverju. Mér finnst að börn
skorti sjálfstraust,“ segir Margrét.
„Foreldrar geta rætt við börnin sín um boðskap bók-
arinnar og ein kona benti á að þetta væri ekki síður góð-
ur boðskapur fyrir okkur fullorðna fólkið,“ segir Mar-
grét og hlær.
„Við erum öll svo miklum kostum gædd, það hafa allir
eitthvað til að bera. Það er alltaf hægt að finna eitthvað
jákvætt við alla.“
Að finna styrkleika sína
Margrét á tvær dætur, Sölku tíu ára og Kötlu sex ára
sem eru stoltar af mömmu sinni.
„Ég vona að þetta veiti þeim hugrekki til að elta sína
drauma. Ég skrifaði bókina til að opna augu barna fyrir
eiginleikum sínum og verða ánægð með sig. Það er gott
að samgleðjast hinum en ekki að bera sig saman við
aðra. Börn þurfa að finna sína styrkleika og leyfa þeim
að njóta sín og dafna.“
Allir góðir í einhverju
Margrét Ýr Ingimarsdóttir kennari lét draum sinn rætast og skrifaði barnabók-
ina Veröld Míu. Hún vill að börn finni sína styrkleika og öðlist meira sjálfstraust.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Katla og Salka eru ánægðar með bók móður sinnar, Ver-
öld Míu. Margrét bæði skrifaði bókina og myndskreytti.
Morgunblaðið/Ásdís
Vertu velkomin!
...til dæmis
eldhúsinu, með
litlum tilkostnaði.
Eina sem þarf eru efni
og ráðleggingar frá
Slippfélaginu.
Það er auðvelt að breyta...
Borgartúni 22 og Dugguvogi 4, Reykjavík, sími 588 8000 • Dalshrauni 11, 220 Hafnarfirði, sími 565 0385
Hafnargötu 54, Reykjanesbæ, sími 421 2720 • Gleráreyrum 2, Akureyri, sími 461 2760
Opið 8.00–18.00 alla virka daga og 10.00–14.00 alla laugardaga
Hér má sjá eldhús sem gert var upp
af Söru Dögg innanhússarkitekt,
(femme.is), lakkað matt svart.