Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.04.2018, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.4. 2018
LESBÓK
HOLLYWOOD Leikarinn Matthew McConaughey óttast nú
að March for Our Lives-hreyfingin verði yfirtekin af þeim sem
eru alfarið á móti byssueign í Bandaríkjunum í stað þess að
hvetja löggjafann til að herða reglur eins og lagt hafi verið upp
með. McConaughey ræddi um hreyfinguna, sem vaknaði í kjöl-
far skotárásar í skóla í Flórída í febrúar, þegar hann var að
kynna mynd sína White Boy Rick í Los Angeles á dögunum.
McConaughey hefur léð March for Our Lives rödd sína og
talað fyrir strangara eftirliti, m.a. á heimaslóðum í Texas. „Ég
ólst upp við veiðar og að maður ætti að umgangast skotvopn af
ábyrgð og virðingu. Þessi herferð má ekki snúast upp í að vera
á móti allri skotvopnaeign heldur á March for Our Lives að
snúast um að tala fyrir því að herða reglur og mótmæla alfarið
almennri eign á vélbyssum og sjálfvirkum vopnum.“
Vill ábyrga byssueign
Matthew McConaughey ólst
upp við að byssueigendur
þyrftu að taka ábyrgð.
SJÓNVARP Nú þegar fjórtánda þáttaröðin af
Grey’s Anatomy er senn á enda hefur verið til-
kynnt að sú fimmtánda verði gerð, aðdáendum
til mikils léttis. Tvær stjörnur stökkva þó frá
borði í millitíðinni. Þær Jessica Capshaw sem
leikur Arizonu Robbins og Sarah Drew sem
fer með hlutverk April Kepner hafa tilkynnt
að þær hafi verið skrifaðar út úr þáttunum.
Höfuðpaurinn, sjálf Ellen Pompeo sem leik-
ur Meredith Grey, fer hins vegar hvergi því
hún hefur skrifað undir samning um að leika
bæði í fimmtándu og sextándu þáttaröðinni,
verði hún gerð. Aðeins sjö dramaþættir í
bandarískri sjónvarpssögu hafa lifað lengur.
Langlíft læknadrama
Ellen Pompeo heldur áfram að bjarga
mannslífum á skjánum sem Meredith Grey.
Nýtt á Netflix
SJÓNVARP Fyrir þá sem nýta efn-
isveituna Netflix til að horfa á sjón-
varpsþætti, bíómyndir eða heimild-
armyndir er gott að vita að á
vefnum www.whats-on-netflix.com
er að finna allar upplýsingar um
nýtt efni sem bætist við á Netflix og
einnig það efni sem hættir.
Það getur verið gagnlegt að hafa
á einum stað yfirlit yfir það sem er
að gerast hverju sinni og vera með
nýjungarnar á hreinu.
RÚV Á sunnu-
dagskvöld hefst
tíu þátta leikin
dönsk þáttaröð
byggð á sannsögu-
legum atburðum
um stofnun fyrstu
ólöglegu útvarps-
stöðvarinnar í Danmörku, Radio
Mercur, árið 1958. Á tíma einok-
unar ríkisútvarpsins fann hópur
tónlistaráhugamanna smugu í
dönskum lögum sem gerði það að
verkum að leyfilegt var að senda
útvarpsbylgjur af hafi úti. Í kjölfar-
ið stofnaði hópurinn sína eigin út-
varpsstöð og segja þættirnir frá
upphafi hennar, risi og falli.
Ólöglegt
útvarp
SJÓNVARP SÍMANS Þættir um ís-
lenska hönnun og hönnuði í umsjón
Berglindar Berndsen innanhúss-
arkitekts eru á dagskrá á miðviku-
dagskvöldum. Berglind heimsækir
hönnuði úr öllum greinum á vinnu-
stofur þeirra og heimili, rýnir í og
spjallar við þá um verk þeirra, feril
og hugmyndafræði, í persónulegum
og skemmtilegum viðtölum. Berg-
lind ræðir að auki við álitsgjafa úr
öllum greinum um stöðu hönnunar
á Íslandi.
Hönnun rædd
Natalie Portman
tókst á við hlutverk
hinnar dáðu for-
setafrúar Jacqueline
Kennedy í kvikmynd-
inni Jackie (2016) en
myndin segir frá tím-
anum í kjölfar þess að
eiginmaður hennar
John F. Kennedy var
skotinn til bana.
Eins og
fyrirmyndin
Vel gerðar kvikmyndir gerðar eftir ævi frægra
einstaklinga njóta jafnan mikilla vinsælda.
Þannig fær áhorfandinn innsýn í líf manneskj-
unnar sem oftar en ekki hefur áorkað meiru en
venja er og þess vegna veita svona myndir
gjarnan mikinn innblástur. Síðan skemmir ekki
fyrir þegar leikarinn nær að verða svona líkur
fyrirmyndinni eins og hér er raunin.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Meryl Streep lék hinn
þekkta breska stjórn-
málaleiðtoga Margaret
Thatcher í kvikmynd-
inni The Iron Lady
(2011). Streep fékk
Óskarsverðlaunin fyrir
túlkun sína á járnfrúnni.