Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.04.2018, Qupperneq 37
29.4. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
SJÓNVARP Fyrir þá sem vilja aðeins horfa á gæðaefni
má benda á að IMDb tekur saman ýmsa lista yfir efni
sem skorar hátt hjá gagnrýnendum. Til dæmis er hægt
að nálgast lista yfir sjónvarpsseríur sem hafa fengið 9
og yfir í einkunn en þótt ótrúlegt megi hljóma eru að-
eins 24 seríur í sjónvarpssögunni sem hafa náð slíkri
toppeinkunn. Þar í efsta sæti trónir önnur þáttasería af
Planet Earth. Í öðru sæti eru Band of Brothers frá 2001.
Af nýjustu seríunum er True Detective frá 2014 á topp-
listanum og Game of Thrones. Athygli vekur að margir
heimildamyndaflokkar um jörðina og geiminn eru á list-
anum og er David Attenborough stjarna margra þeirra.
Þetta eru þættir svo sem The Blue Planet, Human Plan-
et, Cosmos: A Spacetime Odyssey, Cosmos og Life.
Yfir níu á IMDb
David Attenborough trónir í efsta
sæti með Planet Earth.
SJÓNVARP Sömuleiðis er hægt að finna á
IMBd lista yfir versta sjónvarpsefni allra
tíma, sem lægstu einkunnir hafa hlotið.
Jóban rosszban, eða Í blíðu og stríðu, þykir
samkvæmt IMDb, sé miðað við þætti sem að
minnsta kosti 1.000 manns hafa gagnrýnt,
allra versta sjónvarp fyrr og síðar. Þættirnir
voru þó í gangi í heimalandinu, Ungverja-
landi, í fjölmörg ár og urðu þættirnir yfir 100
talsins. Á IMDb fær í Blíðu og stríðu 1,4 í ein-
kunn. Efni þáttanna er ungverskur læknir
sem segir skilið við glæstan feril í Bandaríkj-
unum til að byggja upp spítala í Ungverja-
landi.
Og það versta
Henriett Novak fer með aðalhlutverkið í
verstu sjónvarpsþáttunum.
Hvor er hvað? André Benjamin (t.h.) tókst
sérstaklega vel upp í túlkun sinni á rokkgoð-
sögninni Jimi Hendrix í kvikmyndinni Jimi: All
Is by My Side (2013). Benjamin er þekkur sem
helmingur hipp hopp tvíeykisins Outcast.
Gina Gershon minnti mjög á fyrirmyndina Donatellu Versace í sjónvarps-
myndinni House of Versace (2013) sem fjallaði um litríka og viðburðaríka ævi
þessarar ítölsku tískudrottningar.
Athygli vakti
hversu vel
Sverri Guðna-
syni tókst að
líkja eftir Björn
Borg í íþrótta-
dramanu Borg
vs. McEnroe
(2017) en hér
má sjá Borg
með spaða í
hönd og svipað
ennisband og
Sverrir er með.
Ashton Kutcher
var sérstaklega lík-
ur Steve Jobs í
kvikmyndinni Jobs
(2013) eins og
sést þegar gömul,
svarthvít mynd af
frumkvöðlinum er
skoðuð.
Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is
Veldu betri málningu
PALLAOLÍA
• Allround olían er efnisrík gæðaolía sem endist lengur
• Margir fallegir litir*
* Litur á palli EJLINGE