Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.04.2018, Qupperneq 40
SUNNUDAGUR 29. APRÍL 2018
Árið 1963 færðu Íslendingar Atl-
antshafsbandalaginu (NATO) fund-
arhamar að gjöf. Ásmundur Sveins-
son hannaði hamarinn og var hann
sömu gerðar og fundarhamar sem
gefinn var Sameinuðu þjóðunum í
New York, en munurinn þó að
NATO stjarnan/merkið er grafin
aftan á hamarinn. Samkvæmt frétt-
um í Morgunblaðinu 30. maí 1975
frá leiðtogafundi NATO í Brussel,
talaði Joseph Luns, þáverandi
framkvæmdastjóri NATO, um að
hamarinn hefði brotnað á átaka-
fundi, en þá þegar höfðu Íslend-
ingar gefið NATO annan samskon-
ar fundarhamar, sem var sterkari.
Meira spurðist ekki til þessa
hamars fyrr en nýlega að hann
kom í ljós við undirbúning flutnings
framkvæmdastjóra NATO og skrif-
stofu hans yfir í nýjar höf-
uðstöðvar. Framkvæmdastjórinn
notaði hamarinn í síðustu lotu fund-
ar utanríkisráðherra NATO í
gömlu húsakynnunum í gær og vís-
aði í sögu hamarsins og gjöf Ís-
lands. Reiknað er með að fram-
kvæmdastjórinn noti einnig
hamarinn á fyrsta ráðsfundi í nýj-
um höfuðstöðvum sem fram fer 8.
maí næstkomandi.
Anna Jóhannsdóttir, fastafulltrúi
Íslands hjá NATO, segir mjög
ánægjulegt að hamarinn hafi komið
fram en tilvist hans hefur ekki farið
hátt í utanríkisþjónustunni í seinni
tíð. „Sjálf hafði ég aldrei heyrt á
hamarinn minnst en við eft-
irgrennslan kom í ljós að þetta er
nákvæm eftirlíking af upprunalega
hamrinum sem greinilega hefur
skemmst, eins og Luns upplýsti í
Morgunblaðinu 1975. Þetta er
ágætasti hamar og norska fram-
kvæmdastjóranum þótti ekki leið-
inlegt að handleika hann en þema
Ásmundar mun hafa verið „bæn
víkingsins fyrir friði“.“
Fundarhamar fundinn
Forláta fundarhamar eftir Ásmund Sveinsson sem Íslendingar gáfu NATO
fyrir áratugum og talinn var glataður kom óvænt í leitirnar á dögunum.
Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, og Guðlaugur Þór Þórðarson ut-
anríkisráðherra með fundarhamarinn góða í höfuðstöðvum NATO í gærdag.
Ljósmynd/NATO
Jónas Jónsson frá Hriflu var
gjarnan milli tannanna á fólki
meðan hann hafði afskipti af
þjóðmálum og pólitík í þessu
landi. Í lok apríl 1928, þegar
Jónas gegndi embætti
dómsmálaráðherra í ríkis-
stjórn Tryggva Þórhallssonar,
var Morgunblaðinu nóg boðið.
„Þegar aðfarir Jónasar
dómsmálaráðherra berast í tal
manna á milli, heyrist stund-
um það viðkvæði að þrátt fyrir
alt og alt, þá megi hann eiga
það, að hann sje duglegur, og
er ekki laust við að þessi eig-
inleiki mannsins sje skoðaður
til þess fallinn að vega upp
gallana,“ segir blaðið í pistli
undir yfirskriftinni Duglegur
maður.
„Æfiferill þessa manns er
augljóst dæmi þess, að lítt
stoðar að meta manngildi
manna á mælikvarða dugn-
aðar. Þá fyrst er dugnaður
lofsverður, þegar honum er
beitt á rjettan hátt. En þó ís-
lenskur ráðherra sýni dugnað í
að kúga bændaþingmenn,
rægja landsmenn í eyru út-
lendinga, svívirða Hæstarjett
og rjettarfar landsins, hilma yf-
ir afbrot flokksbræðra í föls-
unum (Vestur-Skaftafellssýslu),
reka stjórnmálaandstæðinga
úr embættum, til þess að veita
þau fylgifiskum sínum, teyma
bændur í erindisrekstur fyrir
sósíalista, er annað veifið lifa á
erlendum fjárgjöfum, þá sjer
hver heilvita maður, að sá
dugnaður er eigi til þess að
fegra ráðherrann.“
GAMLA FRÉTTIN
Dugnaður Jónasar frá Hriflu
Jónas Jónsson frá Hriflu var um-
deildur stjórnmálamaður á sinni tíð.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Anders W. Berthelsen
danskur leikari
Steinþór Hróar Steinþórsson
spéfugl og leikari
Ari Matthíasson
þjóðleikhússtjóri
Afgreiðslutími Rvk
Mánudaga til föstudaga kl. 10–18
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi)
www.dorma.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
DORMA KYNNIR
Eftir áralanga þróun og prófanir
höfum við náð markmiði okkar.
Við höfum búið til eina
þróuðustu dýnu heims
Simba tvinndýnan er gerð úr einstakri
samsetningu 2500 keilulaga gorma
og móttækilegs minnissvamps.
Fáðu betri svefn
– sama hvert svefnmynstur þitt er.
80 x 200 cm 64.900 kr.
90 x 200 cm 74.990 kr.
100 x 200 cm 79.900 kr.
120 x 200 cm 89.990 kr.
140 x 200 cm 99.990 kr.
160 x 200 cm 114.990 kr.
180 x 200 cm 129.990 kr.
Simba dýnurnar eru fáan-
legar í eftirtöldum stærðum
Komdu og
kynntu þér Simba
í næstu Dormaverslun eða á
www.simba.is
V
A
RA
ÁRSINS 2018
B
R
E T L A N
D
HEILSUDÝNUR
Kjörin heilsudýna ársins á
meðal 10.637 þátttakenda í
neytendakönnun KANTAR
TNS í Bretlandi
SIMBA
dýnurnar henta
einstaklega vel í
stillanleg
rúm