Morgunblaðið - 04.05.2018, Page 24

Morgunblaðið - 04.05.2018, Page 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2018 bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar Enn einn dagur í Paradís Bez t á nau tið Nú líður að knatt- spyrnukeppnunum miklu í Rússlandi, og margir Íslendingar hyggjast fara að sækja landið það heim. Þá verður þeim víst ekki bara skylt að halda með okkar merkilega góða fót- boltaliði; heldur líka í leiðinni að hugleiða hvernig lýðræðismálin líta út gagn- vart Íslandi; í íþróttum, hermálum, jafnréttismálum, kynjamálum, og jafnvel í sjávarútvegsmálum; að kaldastríðsarfleifð Sovétríkjanna ógleymdri. Enda er Rússland víst orðið sem fastur landfræðilegur fylgifiskur fyrir okkur Íslendinga; líkt og Esjan er Reykvíkingum; síðustu öldina; en þó ólíkt skeinuhættara. Þátttaka í pólitískum skrípaleik? Það sem hæst ber nú, er þó ekki hinn óvænti glæsileiki okkar sem knattspyrnuþjóðar á alþjóðavett- vangi, heldur íþróttasiðferðið í vest- rænu samhengi; hversu langt eigi að leyfa lýðræðislegum þjóðum að draga fjöður yfir augu vestræns al- mennings varðandi þversagnirnar og hagsmunaárekstrana við gest- gjafalandið, undir yfirvarpi lýðræð- islegrar afþreyingarþrár og bræðra- lags. Líkt og er með reynslu heimkom- inna ferðalanga okkar til fyrrver- andi einræðisríkja, sem komast ekki hjá að hugsa sitt um þá fortíð lengi síðan. Skemmst er og að minnast þess er Rúss- land naut Vetraról- ympíuleikanna sinna í Sochi um árið, til að ráðast síðan inn í Krím- skaga Úkraínu, meðan heimsbyggðin var enn í hrifningarvímu við íþróttahald þeirra. (Og ekki má gleyma hér andlýðræðislegu árekstrunum um árið, er fyrrverandi Sovét- lýðveldið Hvíta-Rússland vistaði knattspyrnuleikana; við mikinn var- hug Vesturlanda!). Talað er nú um tækifæri Íslend- inga til að kynna land sitt og þjóð fyrir milljónum rússneskra fótbolta- aðdáenda þar; sem munu þó að miklu leyti vera í hópi þeirra kjós- enda Pútíns sem nú sætta sig við óbreytta fámennisstjórn Rússlands í fjölflokkamálum, hermálum; og kjarnorkuflaugaógn við NATÓ og Ísland. Og ekki má gleyma lyfjaspillinga- málum Rússa sem leiddu til jað- arsetningar á nýloknu Vetrarólymp- íuleikunum í Suður-Kóreu. - Sem voru aftur leifarnar af lyfja- blekkingahefðinni frá Sovétríkj- unum sálugu, í heimsveldisáróð- urstilburðum þeirra í kalda stríðinu. (Og jafnvel einræðisstjórnin í Norður-Kóreu er nú að nýta sér þátttöku sína í nýafstöðnu Ólympíu- leikunum í Suður-Kóreu, til að styrkja samningsstöðu sína sem kjarnorkuvopnaógnarveldis!). Nú ætla Bretar að láta ríkisstjórn sína sniðganga þessa leika vegna meints stórveldisyfirgangs Rússa, í njósnamálum, hryðjuverkamálum og hermálum; og fleiri þjóðir hyggj- ast ganga í kjölfarið. Knattspyrnan óeðlilega karl- rembuleg íþróttagrein? Þær íslensku konur sem ætla nú til Rússlands, ættu að hugleiða hvort rétt sé að HM sé að verða of ein- strengingsleg karlaíþrótt, þar eð undirliggjandi túlkun sveimar þar um og yfir, um að karlar séu í krafti sinna meðfæddu eiginleika, fremri íþróttamenn; þar, sem í flestum öðr- um íþróttum; en konur. Á móti gætu konurnar t.d. krafist þess að kvennafótbolti færi þar sam- tímis fram jafnrétthátt, eða þá að jöfn kynjahlutföll yrðu meðal íþróttaliða á stærri landsmótum íþróttamanna yfirleitt! Ég skora því á utanríkisráðherra okkar, forsætisráðherra, forseta, og formenn Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar, að tjá sig um þessi mál, auk Kvenréttindafélags Íslands, Mannréttindastofu, jafn- réttisráðs; og Íþróttasambandsins! Við megum ekki styðja lengur við þá árþúsundagömlu brellu að nota íþróttagleðina til að slæva alvarlega undirliggjandi ágreiningsáherslu úr hófi fram! ... Nýlega orti ég ljóð sem kallast Pútíns ríma II. En þar þóknast mér að kveða m. a. svo um Rússlands- pólitík síðustu ára: ... Pútín nú til Ólympsleika platar; praktar sig þar konungsfortíð í. Meðan núna heimsbyggðin með hjalar, Krímskagans hann yfirtekur þý. Sprengjuþotur Sýrland sá, splundra meintum öfgaöflum: veröld núna skýrt má sjá virði Rússlands hers við söltun. HM í Rússlandi: hryssings- legur hræsnileikur? Eftir Tryggva V. Líndal. »Hversu langt á að leyfa lýðræðislegum þjóðum að draga fjöður yfir augu vestræns al- mennings varðandi þversagnirnar og hags- munaárekstrana við gestgjafalandið? Tryggvi V. Líndal Höfundur er skáld og menningar- mannfræðingur. Smá inngangur: Þegar loftárásunum á Sýrland lauk um dag- inn var haldinn blaða- mannafundur í Penta- gon. Þar var sagt að ráðist hefði verið á þrjár efnavopnaverk- smiðjur og þær eyði- lagðar. Ekki nóg með það. Það var líka sagt að mörg hundruð tonn af efnavopnum hefðu verið eyðilögð. Hér kemur svo spurning: Hvernig stendur á því að engin mengun hefur mælst þar sem verksmiðjurnar voru? Væru þetta efnavopnaverksmiðjur sem framleiddu alvöru efnavopn ætti allt að vera gjörsamlega dautt á fleiri hundruð ferkílómetra svæði! En ég sá ekki betur en að fólk væri að spássera um rústirnar og taka vídeó. Hér er augljóslega eitthvað sem ekki stemmir. Hér er önnur spurning: Hvar eru sannanirnar fyrir því að Sýrlands- stjórn hafi staðið fyrir efnavopnaárás í Douma? Varnarmálaráðherra Bandaríkj- anna hefur lýst því yfir að Bandaríkin hafi engar sannanir fyrir því að Sýr- landsstjórn hafi nokkurn tíma beitt efnavopnum. Það var ekki einu sinni gerð tilraun til þess að rannsaka hvað hefði átt sér stað í Douma. Fyrst var okkur sagt að óyggjandi sannanir lægju fyrir um að Sýrlands- stjórn hefði staðið að baki efnavop- naárás í Douma. Í dag er ekkert minnst á sannanir. Nú er staðan sú að það er uppi mikill efi um að efnavop- naárás hafi yfirleitt átt sér stað í Douma og að allt hafi verið sviðsett fyrir vestræna fjölmiðla. Spólum til baka nokkur ár. Það var árið 2012 að Obama Bandaríkjaforseti lýsti því yfir að notkun efna- vopna í Sýrlandi væri rauð strik fyrir Banda- ríkin og að notkun þeirra gæti leitt til þess að Bandaríkin gripu til hernaðaraðgerða gegn Sýrlendingum. Það er ekki með nokkru móti hægt að túlka þessa yfirlýsingu á annan hátt en þann að hún sé loforð um að Bandaríkin grípi til að- gerða (loftárása) verði efnavopnum beitt í Sýrlandi. Við hvaða afleiðingum má búast þegar forseti Bandaríkjanna gefur svona yfirlýsingu? Eru einhverjir sem halda að hryðjuverkamenn komi ekki til með að nýta sér þessi hrika- legu mistök sem þessi yfirlýsing var? Það sem gerðist í framhaldinu er vel þekkt. Yfirlýsingin setti af stað skriðu efnavopnaárása í Sýrlandi. Og alltaf var Sýrlandsstjórn kennt um. En það er fyrst í ágúst 2013 að hlutirnir taka á sig alvarlega mynd. Þá var gerð efnavopnaárás í Ghouta þar sem fleiri hundruð manns fórust. Þrennt gerðist í kjölfar árás- arinnar í Ghouta sem vert er að gefa gaum. Það fyrsta er að utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna hélt blaða- mannafund og kenndi Sýrlandsstjórn um árásina. Hann hefur sannanir. Hleruð samtöl sýrlenskra herforingja þar sem þeir skipuleggja árásina. Óyggjandi sannanir. Hann lofar að birta öll gögnin þannig að allir geti séð svart á hvítu að Sýrlandsstjórn er á bakvið árásirnar. Ekkert hefur verið birt af þessum gögnum sem ráðherrann talaði um á þessum fundi. Engin alvöru sönn- unargögn hafa verið birt sem sýna með óyggjandi hætti að Sýrlands- Hvar eru sannanirnar? Eftir Þorstein Bergmann Einarsson Þorsteinn Bergmann Einarsson Allt um sjávarútveg Nýlega var umfjöll- un hjá fréttastofu RÚV um ungan mann, 34 ára, sem var til- nefndur til að koma í laust pláss í Mörkinni á venjulegt heimili þar sem meðalaldur heim- ilismanna var 83 ár. Þessi ungi maður hafði fengið heilablóð- fall nokkrum mán- uðum fyrr, var að ljúka endurhæf- ingu á Grensás og eftir því sem ég best veit var ekki hægt að gera neitt meira fyrir hann varðandi endurhæfingu. Vegna heilablóðfalls- ins er hann allsendis ófær um að sjá um sig sjálfur og vantaði því var- anlegan samastað. Nú er það svo að þegar losnar pláss á öldrunarheimili þá tilnefnir viðkomandi færni- og heilsumats- nefnd tvo einstaklinga sem stjórn- endum heimilisins er síðan gert að velja úr. Í þetta skiptið tilnefndi nefndin á höfuðborgarsvæðinu tvo einstaklinga, annan 34 ára og hinn 35 ára, til að koma í pláss á heimili hjá okkur í Mörkinni þar sem með- alaldur er 83 ár. Í alla staði óvið- unandi fyrir viðkomandi einstakl- inga, aðstandendur þeirra og aðra sem að málinu koma. Ég man sem ungur drengur, upp úr 1970, eftir tveimur einstaklingum á Grund sem fóru þangað mjög ung- ir og dvöldu þar ævilangt, Gesti og Önnu. Þau eru látin fyrir ein- hverjum áratugum. Bæði áttu við fötlun að stríða og á þeim tíma þeg- ar þau komu inn á Grund, líklega upp úr 1960, fór ekki mikið fyrir sambýlum í ís- lensku þjóðfélagi. Þetta þótti ef til vill ekkert óeðlilegt á þeim tíma. Sennilega voru þeir fötluðu heima við í um- sjón ættingja ef þeir komust ekki inn á öldr- unarheimili. Ef til vill á sjúkrahúsum. Síðan þá hefur mjög mikið vatn runnið til sjávar og í raun óskilj- anlegt að ofangreind staða með þessa tvo ungu menn skuli vera komin upp í okkar annars ágæta samfélagi. Stjórnendur heilbrigðismála, bæði hjá ríki og sveitarfélögum, já málefni fatlaðra heyra nefnilega undir sveitarfélögin, verða að bregðast við hinni miklu húsnæðis- og umönnunarþörf þeirra sem lenda í áföllum sem heilablóðfalli og tengdum sjúkdómum. Það er ekki boðlegt að bjóða ungu fólki pláss á öldrunarheimili, hugsanlega til ára- tuga dvalar. Við hljótum að geta gert betur en þetta. Ungir á öldrunar- heimilum Eftir Gísla Pál Pálsson Gísli Páll Pálsson » Það er ekki boðlegt að bjóða ungu fólki pláss á öldrunarheimili, hugsanlega til áratuga dvalar. Höfundur er forstjóri hjúkr- unarheimilisins Merkur. gisli@grund.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.