Morgunblaðið - 04.05.2018, Side 25

Morgunblaðið - 04.05.2018, Side 25
stjórn hafi komið að árásunum á nokkurn hátt. Annað sem gerðist í kjölfarið var að Bandaríkjamenn og Rússar gerðu með sér samkomulag um að Sýrland setti öll sín efnavopn undir alþjóðleg eftirlit. Það er ekki vitað annað en að Sýrlendingar staðið við allar sínar skuldbindingar og að þeir hafi afhent til eyðingar allt sem þeir áttu af efna- vopnum. Það að Bandaríkjamenn nú haldi því fram að allt í einu séu þrjár starf- andi efnavopnaverksmiðjur á vegum Sýrlandsstjórnar stenst ekki skoðun. Þriðja atriðið sem vert er að velta fyrir sér og er sennilega það sem skiptir mestu máli í hinu stóra sam- hengi. Það er sú einfalda staðreynd að Bandaríkjamenn gerðu ekki árásir á Sýrland í framhaldi árásarinnar í Ghouta. Hver skyldi skýringin á því vera? Það blasir við að álykta að þeir hafi ekki haft neinar sannanir fyrir því að Sýrlandsstjórn hafi staðið að baki árásinni. En það merkilega er að ekkert breyttist í framhaldinu. Árásir með eiturefnum héldu áfram. Og alltaf var kallað eftir því að Obama stæði við loforð sín um að gera loftárásir á Sýr- land. En hann lét ekki undan og Bandaríkin gerðu ekki loftárásir á Sýrland í forsetatíð hans. En Sýrlandsstjórn er sek um ann- að og miklu verra. Hún hefur í mörg ár staðið uppi í hárinu á vesturveld- unum og virðist vera að vinna. Hér verður að hafa í huga að vesturveldin hafa varið ógrynni fjár á und- anförnum árum til að kynda undir ófriðarbálinu í Sýrlandi. Þetta kallar á eftirfarandi spurn- ingu: Af hverju skyldu Sýrlendingar stöðugt vera að ögra vesturveldunum með eiturvopnaárásum sem eru hern- aðarlega algjörlega tilgangslausar og skila minna en engu þegar þeir eru að ná tökum á ástandinu heima fyrir? Ef Sýrlandsstjórn hagnast ekki á þessum árásum, hver hagnast þá? Förum yfir það. Skýringin er ein- faldlega sú að í hvert skipti sem eitur- efnaatvik átti sér stað í Sýrlandi fór áróðursmaskína vesturveldanna á fullt þar sem hamrað var á því að Sýr- landsstjórn væri að fremja glæpi gegn mannkyni. Og haldið ykkur nú. Hér kemur rúsínan. Allir þessir glæpir voru framdir með aðstoð og á ábyrgð Rússa! Þetta var gjöf sem hefur haldið áfram að gefa alveg fram á þennan dag. Það er þess vegna ekki mikil von til þess að vesturveldin vilji í alvöru komast að því hverjir standa á bakvið þessa glæpi í raun og þannig eyði- leggja þetta frábæra áróðursvopn gegn óvininum mikla í austri. Það er til nafn yfir þetta og það er áróð- ursstríð. Það er líka stríð. Og vest- urveldunum hefur gengið vel í því stríði á undanförnum árum. Það að Donald Trump hafi í tví- gang gefið skipun um að gera loft- árásir á Sýrland hefur ekkert að gera með efnavopn. Hann var bara að sýna heimsbyggðinni hvað hann hefur stóran takka. Pólitíska undrabarnið sem nú er Frakklandsforseti lét hafa eftir sér á dögunum að lögmæti loftárásanna fælist í því að þrjú aðildarríki örygg- isráðs Sameinuðu þjóðanna hefðu komið sé saman um að framkvæma þær! Hann bætti síðar um betur og sagði að hin þrjú fræknu hefðu verið að verja heiður alþjóðasamfélagsins! Þetta bull skýrir sig sjálft. Allir sjá hvert það leiðir ef þessi vinnubrögð verða ráðandi í samskiptum ríkja í framtíðinni. Okkar eigin utanríkisráðherra hef- ur líka látið til sín taka í umræðunni. Hér er lítill gullmoli úr viðtali við hann sem birtist á mbl.is: „Öryggisráðið hefur brugðist hvað þetta varðar, fyrst og fremst út af því að Rússar hafa beitt neitunarvaldi sínu.“ Hvað er ráðherrann að segja? Er ástæðan fyrir loftárásunum ekki lengur sú að Sýrlandsstjórn hafi beitt eiturvopnum? Er ráðherrann að segja að ástæðan sé að Rússar beittu neitunarvaldi í öryggisráðinu? Þetta er algjörlega nýr flötur á málinu. Hvað ætlar ráðherrann að gera þegar Rússar beita næst neit- unarvaldi í öryggisráðinu? Kalla rússneska sendiherrann inn á teppið og tilkynna honum að hann sé enn einu sinni hættur við að fara á HM í Rússlandi? Ef þetta er einhverskonar vísbend- ing um hvað er að baki íslenskri utan- ríkisstefnu er ástæða til að hafa veru- legar áhyggjur. » Allir þessir glæpir voru framdir með aðstoð og á ábyrgð Rússa! Þetta var gjöf sem hefur haldið áfram að gefa alveg fram á þennan dag. Höfundur er verkfræðingur. UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2018 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Erum flutt í nýja glæsilega verslun Skútuvogi 2 Verið velkomin! Borgartúni 22 og Skútuvogi 2, Reykjavík, sími 588 8000 • Dalshrauni 11, 220 Hafnarfirði, sími 565 0385 Hafnargötu 54, Reykjanesbæ, sími 421 2720 • Gleráreyrum 2, Akureyri, sími 461 2760 Opið 8.00–18.00 alla virka daga og 10.00–14.00 alla laugardaga Árið 2016 var lagt fram á Alþingi laga- frumvarp um almanna- tryggingar. Þar var gert ráð fyrir að af- nema svokallaða krónu á móti krónu skerð- ingu, sem aldraðir og öryrkjar höfðu sætt í kerfi almannatrygg- inga. Þessi skerðing olli öldruðum og ör- yrkjum mikilli kjara- skerðingu, ef um einhverjar tekjur aðrar en lífeyri var að ræða. Á síð- ustu stundu, áður en frumvarpið var tekið til afgreiðslu, var sú breyting gerð á þvíað strikað var út, að ör- yrkjar skyldu njóta afnáms krónu á móti krónu skerðingar. Hvers vegna? Jú, vegna þess að Ör- yrkjabandalagið var ekki tilbúið til þess að samþykkja tillögu ríkis- stjórnarinnar um starfsgetumat í stað læknisfræðilegs örorkumat- s.Öryrkjabandalagið taldi sig þurfa lengri tíma til þess að kynna sér starfsgetumat. Misjöfn reynsla er af slíku mati erlendis. Reynt að þvinga ÖBÍ til hlýðni! Lykilmenn í ríkisstjórn á þessum tíma voru Sigurður Ingi forsætis- ráðherra, Bjarni Benediktsson fjár- málaráðherra og Eygló Harð- ardóttir félagsmálaráðherra. Þeir brugðust ókvæða við þegar Ör- yrkjabandalagið neitaði að sam- þykkja starfsgetumatið. Reynt var að þvinga öryrkja til hlýðni. En þeg- ar það gekk ekki var gripið til starfsaðferða, sem tíðkuðust í Sov- étríkjum kommúnismans: Öryrkjum var stillt upp við vegg og sagt við þá: Ef þið samþykkið ekki starfsget- umatið fáið þið ekki sömu kjarabæt- ur og aldraðir. Króna á móti krónu skerðingin verður þá ekki afnumin hjá ykkur, öryrkjum. Og við þetta stóð ríkisstjórn Sigurðar Inga og Bjarna Ben. Afnám krónu á móti krónu skerðingarinnar var strikað út. Því var að vísu lofað, að það yrði leiðrétt fljótlega aftur. En það var svikið. Allir stjórnmálaflokkar hafa lofað að leiðrétta þetta en það hefur verið svikið. Þessi svik, þessi níðingsskapur hefur nú staðið í tæpa 14 mán- uði gagnvart ör- yrkjum. Furðulegt hvað hljótt hefur verið um þessar aðfarir gegn öryrkjum. Gróf mismunun, þvingunaraðgerðir Hvað var hér að gerast? Hér var að gerast gróf mismunun. Aldraðir og öryrkjar höfðu setið við sama borð í þessu efni. Grunnlífeyrir þeirra var svipaður. Báðir aðilar- ,aldraðir og öryrkjar, sættu svo- nefndri krónu á móti krónu skerð- ingu, sem allir voru orðnir sammála um, að þyrfti að afnema. Þegar rík- isstjórn Sigurðar Inga ákvað að „refsa“ öryrkjum með því að láta þá áfram sæta krónu á móti krónu skerðingu var verið að fremja grófa mismunun gagnvart þeim, brjóta mannréttindi á þeim, brjóta stjórn- arskrána á þeim. Jafnframt var beitt þvingunaraðgerðum gagnvart öryrkjum; reynt að þvinga þá til hlýðni með því að stilla þeim upp við vegg og taka af þeim kjarabætur, ef þeir samþykktu ekki óskylt mál, starfsgetumat. Enda þótt ég sé ekki lögfræðingur tel ég líklegt, að þess- ar þvingunaraðgerðir hafi verið hreint lögbrot. Þessi gerræðis- vinnubrögð,þessar þvingunar- aðgerðir, sem minna á vinnubrögð í einræðisríkjum, hafa verið furðulítið gagnrýnd. Það er eins og Íslend- ingar láti allt yfir sig ganga! Sömu vinnubrögð hjá ríkisstjórn Katrínar! Nýlega tók nýr formaður við í Ör- yrkjabandalagi Íslands, Þuríður Harpa Sigurðardóttir. Fljótlega eft- ir að hún var kosin var hún í viðtali á Hringbraut, sjónvarpsstöð hjá Sigmundi Erni. Þar bar kjaramál öryrkja á góma. Þuríður Harpa sagði þá, að stjórnvöld vildu láta kjarabætur til öryrkja (afnám krónu á móti krónu skerðingar) sem eins konar skiptimynt gegn því að ör- yrkjar samþykktu starfsgetumat. Hér var um stórpólitíska yfirlýsingu að ræða. Þessi yfirlýsing þýðir það, að ríkisstjórn Katrínar Jabobs- dóttur beitir sömu vinnubrögðum, sömu þvingunaraðgerðum í þessu máli eins og ríkisstjórn Sigurðar Inga gerði. Það er dæmigert, að það þykir engin frétt, að ríkisstjórn VG, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar sé að reyna að þvinga Öryrkjabanda- lagið til hlýðni í þessu máli. Ríkis- stjórnin hefur setið í 3 mánuði og er ekki enn farin að afnema krónu á móti krónu skerðinguna gagnvart öryrkjum. Það er vegna þess, að ÖBÍ hefur ekki samþykkt starfsget- umatið. Ríkisstjórnin reynir nú að fara nýjar leiðir í þessu máli; talar um samfélagslega þátttöku öryrkja í stað þess að tala eingöngu um starfsgetumat. Það er reynt að slá ryki í augun á öryrkjum og almenn- ingi með slíkum orðaleppum. Krafan er þessi: Það á strax, eins og lofað hefur verið af öllum flokk- um, að afnema krónu á móti krónu skerðingu gagnvart öryrkjum. Það hefur dregist í 14 mánuði. Ríkis- stjórn Katrínar Jakobsdóttur á að leggja fram frumvarp um þetta mál strax og það á ekki að tengja málið við starfsgetumat eða samfélagslega þátttöku öryrkja. Það er annað mál og það á að fjalla um það sér- staklega. Ekki á að tengja þessi mál saman. Reykjavík, 22. febrúar 2018. Öryrkjum og öldruðum gróflega mismunað í kerfi TR Eftir Björgvin Guðmundsson » .....verið að brjóta mannréttindi á ör- yrkjum,brjóta stjórn- arskrána á þeim, þving- unaraðgerðum beitt gegn þeim og reynt að þvinga þá til hlýðni Björgvin Guðmundsson Höfundur er fyrrverandi borgarfullltrúi. Atvinnublað alla laugardaga mbl.is ER ATVINNUAUGLÝSINGIN ÞÍN Á BESTA STAÐ?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.