Morgunblaðið - 04.05.2018, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 04.05.2018, Qupperneq 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2018 ✝ Halla IngibjörgSvavarsdóttir fæddist á Akureyri 21. júní 1941. Hún lést á heimili sínu 23. apríl 2018. Foreldar hennar voru Aðalbjörg Benediktsdóttir, fædd 28.3. 1904, d. 24.9. 1973, og Svav- ar Zóphóníasson, f. 15.8. 1913, d. 9.10. 1972. Hálfsystir sammæðra er Helga Þórisdóttir f. 1929, d. 2000. Halla giftist 26.10. 1961 eftir- lifandi maka sínum Hallgrími Kristni Gíslasyni, f. 10.12. 1936. Foreldar hans voru Gísli Kristinn Magnússon, f. 9.7. 1909, d. 25.12.1995, og Elinóra Hólm Samúelsdóttir, f. 26.10. 1911, d. 13.6. 2011. Börn Höllu og Hallgríms eru: 1) Gísli Hallgrímsson, f. 30.3. 1957. Kona hans er Anna Sigríð- ur Pétursdóttir, f. 14.7. 1957. Bjarney, f. 29.3. 1994, í sambúð með Bjarna Hafsteini Kristins- syni. c) Birgir, f. 16.11. 1996. d) Kara Marín, f. 29.8. 1998. 3) Garðar, f. 27.2. 1964. Börn hans eru: a) Linda Sif, f. 28.11. 1983. Synir hennar eru Símon Dreki og Daníel Dreki. b) Bjarki, f. 17.9. 1988, í sambúð með Þorbjörgu Matthíasdóttur. c) Íris Hrönn, f. 15.1. 1997. 4) Haukur, fæddur 19.12. 1965, sambýliskona hans er Aðalheiður Guðmundsdóttir, f. 6.8. 1968. Börn þeirra eru: a) Berglind, f. 6.11. 1995, sambýlis- maður hennar er Brynjar Þór Friðleifsson og eiga þau dæt- urnar Arneyju Emelíu og Sunn- evu Lind. b) Guðmundur Heiðar, f. 4.12. 1999. c) Ásdís Karen, f. 14.2. 2002. 5) Erla Björg, f. 20.8. 1971. Dóttir hennar er Halla Rut, f. 23.10. 2002. Halla bjó mestalla ævi sína á Akureyri en dvaldi nokkur ár sem barn hjá ættingjum sínum að Stóru-Tjörnum í Ljósavatns- skarði. Sem ung kona starfaði hún við saumaskap en seinna meir vann hún við ýmiss konar störf, m.a. í barnafataverslun. Aðalstarf hennar var þó húsmóð- urstarfið. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 4. maí 2018, klukkan 13.30. Börn þeirra eru: a) Hallgrímur, f. 4.11. 1978, d. 6.11. 1978. b) Jónína, f. 23.10. 1980, í sambúð með Wallas Eshun en þau eiga dótturina Victoríu Ronju, fyr- ir á Jónína Reyni Franz og Töru Sól. c) Sigrún Halla, f. 15.4. 1985, gift Guð- mundi Magnússyni og eiga þau dæturnar Önnu Mar- íu og Marý Sól. Guðmundur á soninn Aron Bjarka. d) Guðrún Anna, f. 20.12. 1990, í sambúð með Hróari Jónassyni. e) Hall- grímur Kristján, f. 15.9. 1992, dóttir hans er Auðbjörg Lilja. Gísli á dótturina Önnu Maríu, f. 26.8. 1975, gift Þresti Guðmunds- syni, f. 20.10. 1966, og eiga þau börnin Evu Dís og Einar Mána. 2) Bjarni, f. 5.6. 1961. Kona hans er Sigurlína Arna Þorsteinsdóttir, f. 26.10. 1963. Börn þeirra eru: a) Sólrún Björg, f. 30.7. 1989. b) Elsku Halla, kona og amma sem alltaf fannst svo gaman að djamma. Hún hló svo oft, það fannst henni gott. Þessi heiðurskona, hún fallega mamma. Í grænum garði, hún undi sér best. Að brasa í blómum, gat hún flest. Með kröfsu í hendi hún arfann sendi langt í burtu eins og örgustu pest. Þrjú lög af farða á andlit sitt festi hafði sig til, í jakka eða vesti. Að hekla og prjóna, sauma eða þjóna, tók vel á móti hverjum einasta gesti. Að búa til mat og góða sósu gat hún vel og þurfti enga glósu. Svo setti hún á disk kjöt eða fisk og hátíðarmat handa henni Rósu. (Kisu) Halla og Hallgrímur gerðu sem þeim þótti skemmtilegt; og fólk þau heimsóttu. Svo fór hún í háttinn og Hallgrímur sá þáttinn sem var í imba, langt fram á nóttu. Hárið uppsett og varirnar rauðar, hlýtt er inni meðan vindurinn gnauðar. Veisluglöð – og heit böð. Dagsverkin endalausu, aldrei tóm eða stundir auðar. Hún gerði sitt besta fyrir alla konur og krakka og kalla með skalla. Kaffi hér, kaffi þar kaffi alls staðar handa þeim sem eru eitthvað að bralla. Við kveðjum nú fallega og góða konu, kjarkaða, sterka og hugrakka konu. Sem stóð sína plikt og þótti það slíkt að hann sótti hana heim, þessa myndarkonu. Blómin voru hennar líf og yndi. Nú, í blóma breiðu hún ávallt syndi í hvítum, gulum; við alltaf skulum minnast hennar innan um stjörnu- stirni. Elsku mamma, tengdó og amma, við söknum þín og minn- umst þín gegnum góðar minning- ar og sjáumst seinna. Takk fyrir allt, Bjarni, Arna, Sólrún Björg, Bjarney, Birgir og Kara Marín. Mamma, ó elsku mamma mín. Margs er að minnast og svo mik- ils að sakna. Minningarnar streyma inn í hugsa mér á þess- ari stundu, þú fórst svo snöggt, þetta er allt svo óraunverulegt. Ég og þú gerðum svo margt og þú kenndir mér svo margt og mikið, við töluðum um allt enda varstu mín besta vinkona líka. Þú og pabbi voruð saman í 62 ár og stundum varstu að rifja það upp þegar þú sást pabba fyrst, sæt- asti strákurinn í bænum sagðir þú stolt og brostir. Alltaf þegar ég keyrði upp að húsinu, sem var daglega og stundum oft á dag, varstu iðulega í eldhúsgluggan- um eitthvað að brasa við mat eða bakstur með góða tónlist til að hlusta á og sönglaðir með, áttir alltaf nýlagað kaffi því þú varst mikill kaffimanneskja. Á sumrin varstu þó alltaf að dekstra við garðinn þinn og blómin þín sem voru svo einstaklega falleg eins og þú. En elsku mamma mín, tím- inn hljóp allt í einu frá okkur, en ég var þér við hlið allan tímann, æðruleysi þitt var ótrúlegt og ég er svo þakklát fyrir þann tíma sem ég fékk með þér, hann er mér svo ómetanlegur í dag. Þú sterka duglega glæsilega mamma mín með stóra fallega hjartað og brosið bjarta sást að- eins það besta í öllum og trúðir aldrei neinu slæmu um neinn, alltaf jákvæð sama hvað. Þú varst svo stolt af öllum þínum afkom- endum, sem eru ansi margir, og umburðarlyndi þitt var aðdáun- arvert því stundum vorum við ekki sammála enda ekki neinn smá hópur sem þú áttir af afkom- endum, en þú fylgdist vel með okkur öllum. Allir voru velkomnir í þitt eldhús sem vildu koma í spjall um hvað sem var, um gleði og sorg eða bara daginn og veg- inn. Fyrir tæplega 16 árum eign- aðist ég mína dóttur og þú varst viðstödd þennan mikla gleðidag og fékk hún nafnið þitt Halla og ég bætti við Rut. Upp frá því urð- um við þú og ég enn nánari, næst- um eins og samlokur, og Halla litla var áleggið okkar sem gerði allt ennþá betra og okkur enn nánari. Stundum fórum við sam- an í ferðalag, þá sátuð þið tvær aftur í bílnum og sunguð saman litla sæta ljúfan góða með ljósa hárið, þið voruð svo glaðar saman og brosmildar báðar tvær. Þú varst svo glæsileg, tignarleg og yndisleg, ég mun hugsa til þín alla daga og sakna þín alla daga og geyma þig og allt sem við átt- um saman í hjarta mínu, alltaf elsku mamma mín. Takk fyrir allt og allt mamma. Yndislega mamma mín, ég man þig þegar sólin skín, ég man þig þegar dropar falla, ég man þig þegar lækurinn hjalar, og blómin opnast ég man þig þegar börn brosa, ég man þig þegar fuglar syngja og golan strýkur kinn, ég man þig þegar vindurinn gnauðar og þegar húmar að kveldi, þegar ég leggst á koddann og hvísla út í nóttina: góða nótt elsku mamma mín, Guð gefi þér góða nótt mamma mín. Þín dóttir Erla. Elsku amma mín. Ég sakna þín svo sárt Þú varst alltaf mín og ég var þín Ég trúi varla að þú sért farin Það er ekki langt síðan ég hélt í hönd þína og sagði þér hversu mikið ég elska þig. Þú varst alltaf svo hress og kát og gerðir alla daga betri Þú gerðir mig að gleðigjafa allra þegar þú vissir hvað koma myndi. Nú þegar fegursta blómið er farið er hjartað mitt kramið. Þú fylltir það með ást og gleði sem ég mun alltaf geyma. Þú fylltir huga minn að jákvæðni og umhyggju sem ég er svo þakklát fyrir. Í huga mínum mynd af þér ætíð lifir minning um faðmlag og brosið þitt bjarta lifir allar liðnar stundir ég varðveiti og geymi. Einu sinni var ég engillinn þinn núna ert þú minn. Ég elska þig svo ótrúlega mikið Þú verður alltaf elsku besta amma mín. Ætíð verður þú fyrirmynd mín Þar til ég kem til þín. Halla Rut Ákadóttir. Elsku amma mín, það er eitt sem er alveg víst í lífinu og það er að við munum öll kveðja, mér finnst það samt svo óraunveru- legt að ég muni aldrei fá að sjá þig aftur. Ég veit samt að þú ert komin á góðan stað þar sem allt er í blómum og fallegum litum eins og þú elskaðir. Þú varst ein- stök í alla staði og mér finnst ég ótrúlega heppin að hafa fengið þig sem ömmu mína. Mínar fyrstu minningar með þér eru þegar þú varst að setja í þig car- men-rúllurnar og mála þig, ég horfði á þig með aðdáun og fannst þú svo falleg og ætlaði sko að verða eins og amma þegar ég yrði stór. Þú sagðir mér að maður ætti alltaf að hafa sig til og vera fín. Enda ef ég hef farið út ótil- höfð hef ég alltaf hugsað eins gott að amma sjái mig sko ekki núna. Þú kenndir mér svo margt og við vorum bestu vinkonur og ég leit svo upp til þín alltaf. Þegar kom að eldhúsinu varstu snillingur og ég var bara pínulítil þegar ég var farin að grúska með þér í eldhús- inu og þá sérstaklega sósugerð- inni, enda hafði enginn roð við þér þegar kom að sósugerðinni. Þú kenndir mér leynitrix með sósugerðina sem ég hef bara milli okkar. Ég fékk áhugann á matargerð og bakstri beint frá þér og ófáar stundirnar sem ég eyddi með þér í eldhúsinu í Áshlíðinni að tala um uppskriftir og hvað væri best að gera og hvað ætti ekki að gera. Þetta eru dýrmætar minning- ar sem ég mun alltaf muna. Svo garðurinn þinn, hann var æðis- legur og þú nostraðir við hann af alúð allt þitt líf og hann var þér svo dýrmætur og ég lofa að við munum hjálpa elsku afa að passa upp á garðinn þinn og dekstra við öll fallegu blómin þín. Ég gæti skrifað endalaust en ég mun eiga allar þessar dýrmætu minningar í hjartanu mínu. Það verður skrýtið að koma í Áshlíðina og engin amma Halla í eldhúsglugg- anum en afi verður þar og við munum öll passa upp á hann. Takk fyrir allt, elsku amma mín, allt sem þú kenndir mér og allar spjallstundirnar sem við áttum, þær eru mér dýrmætar. Eins er ég ótrúlega þakklát fyrir að hafa fengið að vera með þér hinstu stundina þína. Þú varst elskuð af svo mörgum og það verður tóm- legt án þín. Lifið verður öðruvísi þegar engin amma Halla verður til að spjalla við. Ég elska þig alltaf og þú varst mín fyrirmynd í svo mörgu. Mér langar að kveðja þig í hinsta sinn með bæninni sem þú kenndir mér þegar ég var pínu- lítil og ég hef svo kennt börnun- um mínum. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson frá Presthólum) Ástar og saknaðarkveðjur. Þín Jónína. Sæl, krakkar. Viljið þið kaffi? Svona var gjarnan tekið á móti þeim sem í Áshlíðina komu. Og alltaf var bakkelsi með, nær und- antekningarlaust eitthvað góm- sætt og gott sem Halla tengda- mamma hafði bakað. Halla Ingibjörg Svavarsdóttir fæddist 21. júní 1942. Hún var dóttir Svavars Zóphóníassonar og Aðalbjargar Benediktsdóttur. 15 ára gömul eignaðist hún sitt fyrsta barn, sem seinna varð eig- inmaður minn. Það hlýtur að hafa verið svo ungri konu talsverð áskorun að eignast barn svona ung árið 1957 þegar félagslegur og fjarhagslegur stuðningur þjóðfélagsins var lítill sem eng- inn. Ekkert var fæðingarorlofið né barnabætur sem okkur þykir sjálfsagt mál í dag. Fjórum árum seinna eignaðist hún næsta barn. Þrítug var hún svo orðin fimm barna móðir, synirnir eru fjórir og dóttirin ein og er hún yngst. Hún lagði líf og sál í heimilishald- ið og til þess var tekið hversu flink hún var bæði í að elda góðan mat og fjölbreytilegan og baka fínar kökur. Alltaf var opið hús í Áshlíðinni, margar voru og oft heitar um- ræðurnar sem áttu sér stað í eld- húsinu. Alltaf var þar heitt á könnunni og alltaf hlustaði Halla. En eitt var það áhugamál sem sameinaði okkur og það var áhugi okkar á garðplöntum, bæði fjöl- ærum og sumarblómum. Mikið væri nú gaman að geta mynd- skreytt þessi minningarorð með fallegum ljósmyndum úr garðin- um hennar. Hún hafði einstakt og skemmtilegt lag á að setja saman falleg litbrigði blóma og tegunda. Garðurinn bar af mörgum falleg- um görðum Akureyrarbæjar. Hann var fjölskrúðugur með rós- um, runnum, fjölærum blómum og sumarblómum. Halla hugsaði um garðinn sinn af sömu natni og heimilið. Ég var bara 19 ára stelpuskott þegar kærastinn kynnti mig fyrir tengdamömmu. Kunni ekkert til eldhúsverka né margra annarra heimilisverka. Halla var bara ör- lítið eldra stelpuskott, 16 árum eldri, en kunni allt í eldhúsinu fannst mér og lífsreynd kona. Af henni lærði ég ansi margt í elda- mennsku og heimilishaldi sem ég kann og fyrir það vil ég nú þakka. En nú skilja leiðir og það snögglega. Engan hefði órað fyr- ir því um áramót að Halla myndi hverfa svo skjótt úr lífi okkar sem raun varð á. Hún háði harða baráttu við krabbamein á einung- is fimm vikum. Þrátt fyrir þetta var glettnin og spaugyrði til stað- ar. Nánast fram á síðasta dag. Að lokum vil ég færa starfs- fólki Heimahlynningar kærar þakkir fyrir framúrskarandi vel unnin störf. Og öllum þeim sem komu að hjúkrun hennar síðustu vikuna sem hún var heima. Aðstandendum öllum sendi ég mínar allra innilegustu samúðar- kveðjur. Guð gefi hinum látnu ró og hin- um líkn sem lifa. Blessuð sé minning þín, tengdamamma. Ég læt lokaorð minningar- greinar minnar vera fyrra vers Jónasar Hallgrímssonar úr sálm- inum Allt eins og blómstrið eina. Allt eins og blómstrið eina upp vex á sléttri grund fagurt með frjóvgun hreina fyrst um dags morgunstund, á snöggu augabragði af skorið verður fljótt lit og blöð niður lagði líf mannlegt endar skjótt. Anna Sigríður Pétursdóttir. Halla Ingibjörg Svavarsdóttir Elsku hjartans frændi minn. Til- kynningin um frá- fall þitt kom eins og þruma úr heiðskíru lofti. Þú sem varst mín stærsta fyr- irmynd. Alltaf samkvæmur sjálf- um þér í skoðunum á samfélaginu og ávallt málsvari þeirra sem minna mega sín. Í mörg ár hitt- umst við um helgar á kaffihúsum miðborgarinnar, þar sem þú lést mig óhikað heyra réttmæta gagnrýni á það sem sannarlega var aðfinnsluvert í samfélaginu okkar. Þar menntaðir þú frænda þinn um mistök í húsnæðismála- stefnu landsins enda einn okkar helsti sérfræðingur um þau mál. Líka tókstu ómeðvitað að vera mótandi í minni eigin samvisku, hvað er rétt og hvað er rangt. Þeir sem meðhöndla almannafé skilja oft ekki hversu traustið skiptir miklu máli. Samfélag byggist á trausti og því að hér Percy B. Stefánsson ✝ Percy B. Stef-ánsson fæddist 21. september 1947. Hann lést 14. apríl 2018. Útför Percy fór fram 24. apríl 2018. geti allir blómstrað á eigin forsendum en ekki bara fyrir vina- og flokka- tengsl. Minn kæri frændi, þrátt fyrir skoðanir þínar á samfélaginu tókst þú öllum manneskj- um sem jafningjum. Það var auðvelt að vera maður sjálfur í kringum þig því þú dæmdir aldr- ei manneskjuna. Þú sem hafðir kynnst því af eigin raun að vera dæmdur af samfélaginu vegna kynhneigðar og síðar HIV. Ég harma þá baráttu sem þú varst látinn taka af dómhörðu og for- dómafullu samfélagi en fagna þínum sigri. Þú sem fyrir lífsins hörku varst dæmdur og útskúf- aður en tókst að þér að berjast fyrir aðra. Berjast fyrir ein- hverju sem þú fékkst aldrei að upplifa á æskuárunum, það vildir þú ekki að neinn þyrfti að upplifa. Það versta er, minn kæri frændi, að hafa ekki getað verið þér stoð og stytta á lífsins erfiðustu tím- um eins og þú varst fyrir mig og svo fjölmarga aðra. Þrátt fyrir lífsins hörku og ósanngirni mun gleði þín og léttleiki lifa með okkur. Þrátt fyrir allan sársauk- ann sem þú hafðir á herðum þín- um til æviloka, minnist ég gleði- stunda og geymi þær í hjarta mínu. Það er svo margt sem mig langar að segja, svo margar sög- ur af gleði, baráttu, sigrum og þrautagöngu en þær munu lifa áfram með okkur öllum sem þú snertir. Sögu þína finn ég krist- allast í ljóði Davíðs Stefánssonar „Í næturkyrrðinni“. Er nóttin lægir stormsins þunga þyt, og þreyttir hvílast eftir dagsins strit, er eins og lífið breyti allt um blæ og borgin fái annan svip og lit. Því alltaf geta mannshugir mæst, þó myrkur sé og öllum dyrum læst. Að týndum sonum leggur ástaryl, þó allt sé kalt, sem þeim er hendi næst. Þó augun sjái ekki handaskil, sér andinn gegnum fjöll og klettaþil. Þó lífið verði þúsundþætt, þá þráir allt að fá að vera til. Líf er ekki aðeins barátta um brauð né bardagi um ríka mannsins sauð. En sá, sem aldrei innri ljómann fann er einn að þjást - í veröld sem er dauð. En sá, sem tign og töfra lífsins fann og treystir á það ljós sem vermir hann, mun ganga út og góðum fræjum sá, en gleyma því, hver syngur hann í bann. Hann bendir þeim, sem vorsins veldi þrá og vilja allt í fegra ljósi sjá. Hann leiðir þá um fjöll og dal, uns loginn helgi skín - og frelsar þá. Hann boðar andans hulda háttatal, og hann er maðurinn - sem koma skal. Alex B. Stefánsson. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.