Morgunblaðið - 04.05.2018, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 04.05.2018, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2018 Lítill drengur gengur grátandi í svörtum sandbyl yfir Hafnarsand með hest í taumi rétt sex ára. Sendur í búðina að sækja björg fyrir heimilið um þó nokkuð langan veg eða nokkra kílómetra leið. Hann fær um- beðið á listanum afgreitt og er spurður hvort hann ætli ekki bíða af sér veðrið en honum var uppálagt að sækja vörurnar og koma um hæl til baka af móður sinni sem var ein heima með lítil börn, vanfær að auki svo litli drengurinn barðist hágrát- andi til baka. Móðir hans hafði ekki sent Björn Guðmundsson ✝ Björn Guð-mundsson fæddist 24. ágúst 1926. Hann lést 11. apríl 2018. Útför hans fór fram 2. maí 2018. hann út í sandbyl heldur hafði brost- ið á rok sem reif upp sandinn og þeytti honum í loft upp og þeir sem hafa reynt vita hversu sársauka- fullt það er að fá fínan sandinn í andlitið. Leiðin lá frá heimili hans Hlíðarenda í Ölfusi yfir eyðisand að Þorlákshöfn og aftur til baka. Nú gróið land að mestu en í þá daga bara svartur sandur megnið af leiðinni. Ellefu ára ljómar af gleði þegar Jón gamli frá Hlíð réttir honum pakka og segir: Það held ég þú hafir not fyr- ir þetta væni minn. Þetta voru fyrstu gúmmístígvélin hans og fram til þess hafði hann hlaupið um á skinnskóm og alltaf blaut- ur í fæturna ef blautt var á. Þá fluttur árið áður 1936 að Hlíð í Grafningi þar sem for- eldrar hans bjuggu þangað til þau brugðu búi vorið 1963 og fluttu til Reykjavíkur. Jón gamli var fráfarandi bóndinn á bænum og fékk að vera í horn- inu hjá þeim. Pabbi var sendur með hestvagn suður að Alviðru í veg fyrir hálfkassabílinn sem Ólafur Ketilsson átti. Óli skammaðist yfir því að börn væru send til að sækja vörurn- ar en hlóð þeim þó á vagninn en ef bílstjóri Óla var á bílnum var vörunum hent á jörðina og ekið á brott. Þá þurfti pjakk- urinn að spenna hestinn frá og velta vörunum upp kjálkana því í þá daga voru kornsekkir 200 pund „enginn euro staðall í den“. Vinna um leið og hægt var að vera til gagns eins og sagan sýnir. Farið á skauta á vetrum og hestbak um sumur ef hestar voru tiltækir í þeim fáu frí- stundum sem gáfust. Faðir minn var ríflegur meðalmaður á hæð, grannur, herðabreiður og umtalaður í nærsveitum fyr- ir fráleik sinn, fríður sýnum með hrafnsvart hár sem grán- aði afar seint. Sögumaður af guðs náð, kunni ógrynni af þulum og kvæðum utanbókar sem móðir hans hafði kennt honum á barnsaldri, minnið brást honum aldrei. Afar hjálpsamur þeim sem á þurftu að halda og ótelj- andi ferðirnar sem farnar voru til að draga upp sveitunga og ferðamenn. Hann átti barnaláni að fagna, eignaðist átta börn með móður minni, Bergþóru, sem öll komust til manns. Það er ekki lítið að koma svona mörgum börnum til manns, sinna þeim veikum, skipta um bleyjur, elda mat og þrífa húsið. Sitja með þeim við eldhúsborðið og hjálpa við heimalærdóm eftir langan vinnudag. Hann var ótrúlega góður í stærðfræði, gat kennt okkur nánast allt skyldunámið sem var 9 ár en hann í skóla sam- anlagt í 9 mánuði í farskóla, held hann hafi kennt sér sjálfur þegar hann var að kenna okk- ur. Takk, elsku pabbi, fyrir sam- ferðina og alla ómetanlegu hjálpina. Fyrir börnin mín sem áttu ófáar stundir undir verndar- væng þínum og mömmu. Minn- ingin lifir! Snæbjörn (Snæi). Það sem er mér efst í huga þessa dagana þegar ég hugsa til afa míns er þakklæti, fyrst og fremst. Ég er þakklátur fyrir að afi vildi vera í mínu lífi þegar ég var lítill strákur og það sem hann kenndi mér mun fylgja mér alla tíð. Allra fyrsta minningin sem ég á um afa er rauður Bronco- jeppi, ísilagt skautasvellið hjá Hörðuvöllum og jeppinn dans- aði og öskraði á svellinu, meðan ég hló mig máttlausan, nær því að gera í mig af gleði og hræðslu. Afi var skemmtilegur og hann átti oft súkkulaðirúsínur Kristján Jónsson ✝ Kristján Jóns-son fæddist 24. mars 1931. Hann lést 27. mars 2018. Útför Kristjáns fór fram 9. apríl 2018. sem ég átti greiðan aðgang að. Seinna, þegar ég fór aðeins að vitk- ast, voru kominn skíði undir lappirn- ar á mér. Ég var 6 ára og þessi skíði voru svolítið fram- andi en þau og Blá- fjöllin áttu eftir að tengja okkur afa saman órjúfanleg- um böndum. Í minningunni var meiri snjór en nú í dag og drógu fjöllin afa eins oft og veður leyfði. Við bræðurnir voru alltaf velkomnir með. Vel fyrir birt- ingu voru amma og afi mætt fyrir utan, afi flautaði (vel fyrir kl. 9 að laugardagsmorgni) og þá var eins gott að koma sér út með græjurnar og nestaðir fyr- ir tvo daga af mömmu, áður en bílflautan vekti alla í götunni. Svo var þeyst upp í Bláfjöll vel yfir löglegum hraða, enda varð að komast upp í skála áður en birti. Þetta eru minningar sem ég geymi eins og gull, dýrmætur tími með afa og ömmu þar sem áherslan var að leika sér, njóta dagsins og hlæja. Svona gekk þetta fram á vor en þá var víst kominn tími fyrir annað áhuga- mál en afi var mikill stang- veiðimaður, þar sem „veiða- sleppa“ hugtakið var ansi fjarri honum. Veiðistangir græjaðar á okkur bræðurna og við fórum með alveg þangað til haustaði en þá var stönginni skipt út fyrir annað veiðafæri. Villibráð smakkaði ég fyrst hjá afa. Ekki þótti mér hún mér góð í fyrstu en að labba með afa til rjúpna á Reykjanes- inu kveikti lítið bál sem logar enn í mér. Svona ganga gaf okkur tíma til að spjalla, eða öllu frekar að afi talaði og kenndi mér á náttúruna og ég hlustaði – þá var lífið einfalt og ungur drengur naut nærveru og visku afa síns. Best samt af öllu var að koma í heimsókn til afa og ömmu, kúra hjá afa meðan hann hraut yfir fréttunum og glaðvaknaði svo þegar „Westr- in“ byrjaði upp úr kl. 9. Það tekur mann oft tíma að átta sig á hversu dýrmætt það var að dyrnar voru alltaf opnar hjá afa og ömmu, hjartað alltaf opið og að því virtist endalaus tími til að hlusta og spjalla, eða bara sitja saman án þess segja nokk- urn skapaðan hlut. Ég er viss um að afi er kom- inn á betri stað, en langvinn veikindi höfðu rænt hann orkunni. Við fórum síðast sam- an á skíði fyrir nokkrum árum, þegar hann var ekki lengur hæfur til að keyra bíl né að rata um hverfið sitt, og það var eins og hann hefði aldrei gert neitt annað; hann renndi sér niður gilið trekk í trekk án þess að blása úr nös. Sumarlandið hans afa, sem ég er viss um að er endalaus sólbökuð skíða- brekka, hefur nú kallað hann til sín. Ég sakna hans og ég er þakklátur fyrir það sem hann gaf mér af sér. Hvíl í friði, Krilli afi. Kári Ibsen Árnason, afastrákur. ✝ Kristjón Grét-arsson frá Hellissandi fæddist 21. júlí 1963. Hann lést á Landspítal- anum við Hring- braut 21. apríl 2018. Kristjón bjó lengst af á Hellis- sandi og stundaði þar sjómennsku en síðustu árin bjó hann í Grindavík þar sem hann vann við eigið fyrirtæki. Krist- jón var sonur hjónanna Guð- nýjar Sigfúsdóttur og Krist- jóns Grétarssonar. Bróðir hans er Jóhann Grétars- son kerfisfræð- ingur. Eftirlifandi börn hans og Áslaugar Sigmarsdóttur eru Gerða Arndal Kristjónsdóttir, Grétar Arndal Kristjónsson og Óskar Freyr Arn- dal Kristjónsson. Sambýliskona hans er Laufey Þorgrímsdóttir frá Ólafsvík. Kristjón verður jarðsunginn frá Lindakirkju í dag, 4. maí 2018, klukkan 13. Hann Kiddi, þessi káti fjör- ugi strákur sem allt vildi gera fyrir alla, fæddist á Sólvangi í Hafnarfirði á fyrstu Skál- holtshátíðinni. Það var fullt tungl og allt fullt á fæðingar- deildinni. Hann var þar eini strákurinn með átta stelpum. Á fyrsta ári hans fluttum við á Hellissand, þar sem hann bjó lengst af. Kiddi var mjög kátur krakki, alltaf brosandi, stríðinn prakk- ari. Hann var orkumikið úti- barn. Jóhann var innibarn og reyndi Kiddi stundum að fá hann með sér út í fótbolta, sem var ekki auðvelt. Kiddi tók því til sinna ráða og keypti bróður sinn með Matchbox-bílum og átti Jóhann stórt safn af bílum. Snemma kom í ljós áhugi Kidda á sjónum og fór hann ungur með pabba sínum á sjó eða var mættur á bryggjuna þegar hann kom í land að hjálpa hon- um að landa. Hann stundaði sjóinn lengst af og var bæði skipstjóri og stýrimaður. Kiddi var vinamikill og kynntist ungur Áslaugu Sig- marsdóttur, en hún var ein úr vinahópnum. Þau giftu sig og voru saman í tuttugu og tvö ár. Þau eignuðust saman þrjú börn, Gerðu sem er gift Mána Ing- ólfssyni og eiga þau þrjú börn, Reyni, Irmu Júlíu og Marin Leu. Grétar er í sambúð með Brynhildi Guðmundsdóttir og Óskar Freyr er í sambúð með Nönnu Birtu Pétursdóttir. Kiddi var mikill tónlistarunn- andi og þegar hann hlustaði á uppáhaldshljómsveitir sínar sat hann eins og meðvitundarlaus, þá var oft erfitt að ná sambandi við hann. Hann fór snemma að glamra á gítar og þeir bræðurnir. Kiddi samdi bæði ljóð og texta og einnig samdi hann lög við ljóð eftir pabba sinn. Þeir bræður hafa síðan spilað mikið saman tveir og einnig ásamt fleirum. Kiddi var alla tíð trúaður en Bakkus tók sinn toll, Kiddi fór í meðferð hjá SÁÁ og Samhjálp og átti löng edrútímabil. Kiddi var mikið fyrir skepnur og átti í mörg ár hesta. Börnin eiga margar góðar minningar frá þeim tíma með pabba sínum. Hundurinn hans, hann Rocky, lifir hann en þeir hafa verið óaðskiljanlegir síð- astliðin átta ár. Kiddi var nátt- úrubarn og hjálpaði Kidda afa sínum oft í trjágarði sem hann ræktaði, Tröð, og einnig eftir að afi hans lést og meðan hann bjó á Hellissandi. Kiddi átt alltaf lifandi blóm og hann elskaði friðarlilju. Kiddi kynntist Berg- þóru Fjölnisdóttir í meðferð á Hlaðgerðarkoti og giftu þau sig og bjuggu þau saman í nokkur ár. Þau stofnuðu saman hrein- gerningafyrirtæki sem Kiddi vann við í um fimm ár, eða þar til hann tók árið 2013 við fyr- irtæki föður síns, sem sá um viðgerðir á fiskikörum, sem hann vann við til dauðadags. Síðastliðið ár var Kiddi í sam- búð með Laufeyju Þorgríms- dóttur frá Ólafsvík. Kiddi var mikið ömmubarn bæði hjá Jó- hönnu ömmu sinni í Fossvog- inum, en þar var alltaf gist í bæjarferðum, og var einnig í miklu uppáhaldi Helgu ömmu sinnar á Gilsbakka. Sjálfur Guð ákvað að leyfa þér að sofna og hvílir þú nú hjá englunum. Við hittumst á himn- um þegar Jesú kemur og sækir okkur öll. Það verður fagnaðar- fundur. Kristjón verður jarðsunginn í Lindakirkju í dag, þann 4. maí, og jarðsettur í Ingjaldshóls- kirkjugarði þann 6. maí við hlið Helgu ömmu sinnar. Ástar- og saknaðarkveðjur, mamma og pabbi. Meira: mbl.is/minningar Kristjón Grétarsson Það er alltaf sárt þegar kemur að kveðjustund ætt- ingja og góðs vinar þótt vitað hafi verið um nokkurt skeið að hverju stefndi. Svo var það um bróður okkar Guðmund Helga Sigurðsson, Mumma, eins og við systurnar kölluðum hann alltaf. Við ólumst upp í stórum systk- inahóp á Freyjugötu 10a. Hús- næðið var ekki stórt, en þar var alltaf nóg pláss fyrir alla; ömmu og afa, öll systkinin sjö, mömmu og pabba, svo ekki sé talað um alla ættingjana utan af landi sem komu og dvöldu hjá okkur á Freyjugötunni. Oft var þröng á þingi og mikill hávaði. Glaðværð- in og ánægjan eru þær minningar sem eru okkur efst í huga frá þessum tíma. En tregablandnar hugsanir hverfa fljótt þegar minningarnar fara að hrannast upp og þær fjöl- mörgu ánægjustundir, sem við höfum átt með Mumma og Dísu Guðmundur Helgi Sigurðsson ✝ GuðmundurHelgi Sigurðs- son fæddist 15. maí 1932. Hann lést 29. mars 2018. Útför hans fór fram 6. apríl 2018. yfirskyggja allt annað. Þar má til dæmis nefna ferða- lögin bæði innan- lands og utan og má kannski segja að ferðin til Egypta- lands sé algjörlega ógleymanleg. Dísa og Mummi voru einstaklega samhent hjón og miklir vinir. Þau voru höfðingjar heim að sækja, þær voru ófáar stundirnar sem við nutum á heimili þeirra. Mummi var einstaklega heil- steyptur og hjartahlýr maður. Hann var hægur í fasi og lét ekki mikið fyrir sér fara en lagði ætíð gott til málanna. Viðmótið var blítt og hann var stöðugt boðinn og búinn að rétta hjálparhönd ef á þurfti að halda. Hann naut þess sýnilega sjálfur að geta orðið öðr- um að liði. Söknuðurinn er vissulega mik- ill en eftir standa góðu minning- arnar og sú hlýja og gleði sem þeim fylgir. Elsku Dísa og fjölskylda, við sendum okkar innilegustu sam- úðarkveðjur á þessum erfiðu tím- um, megi góður Guð vernda ykk- ur og styrkja. Sigurrós, Pálína Matthildur, Árný og Guðný. Okkar ástkæra móðir, amma og tengdamóðir, ARNHEIÐUR MAGNÚSDÓTTIR, Frumskógum 7, Hveragerði, lést laugardaginn 21. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Innilegar þakkir til allra starfsmanna á Ási sem önnuðust hana af mikilli alúð í veikindum hennar. Ragnheiður María Björgvinsdóttir Friðrik Björgvin Guðbjörnssson Björg Anna Björgvinsdóttir Einar Guðmundsson Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra SVEINS GUÐBRANDSSONAR, Unhól. Sigurfinna Pálmarsdóttir Pálína Svanhvít Guðbrandsdóttir Birgir Óskarsson Pálmar Hörður Guðbrandsson Jóna Elísabet Sverrisdóttir Heiðrún Björk Guðbrandsdóttir Kristján Hilmarsson Sigríður Guðbrandsdóttir Elsku Bogga. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Takk fyrir allt, mín kæra. Þín Katharina. Kristbjörg Þórhallsdóttir ✝ Kristbjörg Þórhallsdóttir fæddist 22.október 1938. Hún lést 28. mars 2018. Útför hennar fór fram 11. apríl 2018. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.