Morgunblaðið - 30.05.2018, Side 8

Morgunblaðið - 30.05.2018, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2018 Einn þeirra sem lögðu mat ástöðuna eftir borgarstjórn- arkosningarnar var Stefán Pálsson, sem skrifaði: „Ég var svo sem tilbú- inn að afsaka það ef meirihlutinn félli með því að einn aðildarflokk- anna hefði verið lagður niður … en það skýrir ekki að hinir þrír tapi samanlagt talsverðu fylgi.    Kosningabaráttan leiddi í ljósað meirihlutinn var mun óvinsælli en ég hafði áttað mig á. Jafnvel stuðningsmenn meiri- hlutaflokkanna gátu tekið undir margt í gagnrýni andstæðing- anna á stjórnina. Það var hægt að fá fólk til að lýsa yfir ánægju með einstaklinga í meirihlut- anum, en réttlætingin fyrir sam- starfinu sem slíku var helst sú að allt væri skárra en helvítin þau Eyþór og Vigdís. Slíkt upplegg er ekki vænlegt í pólitík.    Þannig að ég er mjög skept-ískur á það ef fólk dregur þá ályktun af þessum kosningaúr- slitum að best sé að reyna að endurskapa gamla meirihlutann í sem óbreyttastri mynd – t.d. með því að ímynda sér að Viðreisn sé jafngildi Bjartrar framtíðar. Í fyrsta lagi er það ekki rétt. Í öðru lagi væri það óskynsamlegt.    Ég held að fólk hljóti að horfatil árangurs bæði Sósíal- istaflokksins og Flokks fólksins, ef á annað borð er ætlunin að reyna að halda lífi í gamla partí- inu.“    Það er mikið til í þessu, og at-hyglisvert að jafnvel vinstri- maðurinn Stefán Pálsson hafi efa- semdir um að rétt sé að vekja upp fallna vinstri meirihlutann. Stefán Pálsson Efasemdir um uppvakning STAKSTEINAR Veður víða um heim 29.5., kl. 18.00 Reykjavík 10 súld Bolungarvík 8 rigning Akureyri 20 léttskýjað Nuuk 3 skýjað Þórshöfn 12 léttskýjað Ósló 26 heiðskírt Kaupmannahöfn 26 léttskýjað Stokkhólmur 27 heiðskírt Helsinki 26 heiðskírt Lúxemborg 21 léttskýjað Brussel 21 skúrir Dublin 20 léttskýjað Glasgow 17 þoka London 16 skúrir París 22 alskýjað Amsterdam 21 skúrir Hamborg 30 heiðskírt Berlín 31 heiðskírt Vín 27 skýjað Moskva 21 heiðskírt Algarve 18 léttskýjað Madríd 14 skúrir Barcelona 24 léttskýjað Mallorca 20 skúrir Róm 27 heiðskírt Aþena 26 léttskýjað Winnipeg 27 léttskýjað Montreal 21 léttskýjað New York 27 heiðskírt Chicago 23 heiðskírt Orlando 29 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 30. maí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:27 23:24 ÍSAFJÖRÐUR 2:49 24:12 SIGLUFJÖRÐUR 2:30 23:57 DJÚPIVOGUR 2:47 23:03 Færeyski kútterinn Westward Ho er væntanlegur til landsins um sjó- mannadagshelgina. Sú hefð hefur skapast að kútterinn komi hingað á þessum árstíma, þriðja hvert ár. Kútterinn hefur fengið góðan byr síðan hann lagði af stað frá Færeyj- um og er hann væntanlegur til Vest- mannaeyja í dag, miðvikudag. Hann mun svo koma til Akraness á fimmtudag og síðan kemur hann til Reykjavíkur á Hátíð hafsins á laug- ardaginn kemur. Í áhöfn eru 14 manns, sjö Færeyingar og sjö Ís- lendingar. Hann mun svo sigla til baka í næstu viku og sem fyrr verða Fær- eyingar og Íslendingar í áhöfn. Almenningi gefst tækifæri til að skoða kútterinn þegar hann er í höfn. Hann hefur ætíð vakið mikla athygli þegar hann hefur komið hingað til lands. Kútterinn Westward Ho var smíð- aður í Grimsby árið 1884 og er í eigu Þórshafnar, en rekinn af félagi sem nefnist Sluppvinir. Koma skipsins hingað til lands byggist á samkomu- lagi Þórshafnar í Færeyjum og Faxaflóahafna um að auka samstarf milli Íslands og Færeyja á sviði menningar- og ferðamála. sisi@mbl.is Færeyski kútterinn er kominn  Westward Ho kemur þriðja hvert ár hingað  Alltaf um sjómannadagshelgi Morgunblaðið/Ernir Westward Ho Kútterinn vekur ætíð mikla athygli þegar hann kemur. Hæsta verð fékkst fyrir mál- verk eftir Jó- hannes S. Kjarval á listmunaupp- boði hjá Galleríi Fold í fyrrakvöld. Blómakörfumynd Kjarvals var sleg- in hæstbjóðanda á 3,5 milljónir sem er lægra verð en aðrar blómakörfumyndir Kjarvals á uppboðum Foldar. Blómakörfumyndin er talin eitt af lykilverkum Jóhannesar S. Kjarvals, að mati uppboðshaldara. Myndin var metin á 6 til 7 milljónir króna. Gall- eríið hefur boðið upp tvær blóma- körfumyndir Kjarvals. Sú fyrri fór á 4,5 milljónir og sú sem síðast var seld fór á 6 milljónir. „Fyrirfram veit maður ekkert hvað gerist,“ segir Jóhann Ágúst Hansen, framkvæmdastjóri og upp- boðshaldari Gallerís Foldar um verðið nú. Hann telur að þótt mynd- in hafi farið á lægra verði á uppboð- inu nú en vonast var til hafi verðið verið yfir lágmarksverði seljandans og verðið sé í hærra lagi miðað við verk Kjarvals. helgi@mbl.is Slegið Uppstoppað svartbjarnarhöfuð var boðið upp. Verk á 3,5 milljónir  Blómakörfumynd á hálfu matsverði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.