Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.2017, Síða 24

Læknablaðið - 01.12.2017, Síða 24
544 LÆKNAblaðið 2017/103 árinu 725. Á hana eru ristar rúnir sem ákalla „Úlf og Óðinn og há-Tý“ gegn „sársauka af dvergi unninn“.6 Á 11. aldar töfragrip sem fannst í Sigtúnum í Svíþjóð er einnig að finna áletrun þar sem sóttin er kennd við „þurs“ og „úlf“ og klykkt út með óskinni „njót lyfja“.7 Ljóð og lækning Augljósustu tengsl töfra og læknisdóma má sjá í heimildum um fæðingarhjálp fyrri alda. Sigurdrífumál4,5 geta um bjargrúnir þær sem „leysa kind frá konu“. ... á lófa þær skal rísta og um liðu spenna og biðja þá dísir duga. (vísa 9) Í sama ljóði er einnig getið um limrúnar sem ristar skulu á trjágrein ... ... ef þú vilt læknir vera, og kunna sár að sjá: á berki skal þær rísta og á baðmi viðar, þeim er lúta austur limar. (vísa 11) Í Oddrúnargráti4,5 kemur Oddrún til bjargar Borgnýju sem er í barnsnauð og yfirkomin af sorg og þjáningu þegar Oddný geng- ur „mild fyrir kné / meyju að sitja“. Eins og ljósmæður allra alda hafa gert, situr hún fyrir knjám konunnar og aðstoðar hana í fæðingunni. Hún kveður Borgnýju galdra þá sem leysa hana frá þrautum sínum. Síðan upphefur Borgný raunasögu sína og verður það tregróf henni til hugarhægðar (vísur 14-34). Sjáum við þar eitt elsta dæmi fornra frásagna um geðlækningu eða sálfræðiaðstoð sem veitir lausn frá hugarangri. Sú geðlausn gerist þó ekki átaka- laust ef marka má Oddrúnargrát, því ... ... ríkt gól Oddrún, rammt gól Oddrún, bitra galdra að Borgnýju. (vísa 7) Galdrar og lækningar tengjast mjög kveðskap og skáldgáfu. Hug- takið ljóð í fornum kvæðum hefur yfir sér kynngimagnaðan kraft og virðist oft vera samheiti við galdur, eins og glöggt má ráða af Ljóðatali Hávamála.4,5 „Ljóð eg þau kann“ segir þar „er þurfu ýta synir er vilja læknar lifa“ (vísur 146 og 147). Í Sigurdrífumálum er kennt hvernig veita skuli nábjargir og fara með lík: Það ræð eg þér ið níunda, að þú náum bjargir, hvar er þú á foldu finnur, hvort eru sóttdauðir eða eru sædauðir eða eru vopndauðir verar. (vísa 33) Laug skal gera, þeim er liðnir eru, þvo hendur og höfuð, kemba og þerra, áður í kistu fari, og biðja sælan sofa. (vísa 34) Segja má að Sigurdrífumál – ekki síst þessi síðasttöldu tvö erindi – séu á vissan hátt elsti vísirinn að heilbrigðisreglugerð sem við eigum í fornum heimildum. Þau votta að heiðnir menn hafa borið skynbragð á þýðingu hreinlegrar umgengni við lík og að sýna því verki alúð og virðingu að veita nábjargir. Frá kristnum tíma eru mýmörg dæmi um töfraþulur, rúnir og bænir í tengslum við lækningar, sérstaklega eftir að kemur fram á 15. og 16. öld og allt fram á 19. öld. Í Kristinna laga þætti Grágásar8 er sérstaklega tekið fram hvað við liggi ef framin er fjölkynngi og má af lagaákvæðinu ráða að fjölkynngi fornmanna tengdist mjög lækningaviðleitni þeirra: Þá fer [maður] með fjölkynngi, ef hann kveður það eða kennir, eða lætur kveða að sér eða að fé sínu [...] Menn skulu eigi fara með steina eða magna þá til þess að binda á menn eða á fé manna. Ef menn trúa á steina, til heilindis sér eða fé, og varðar fjörbaugsgarð. (s. 22)8 Þrátt fyrir þetta bann Grágásar má víða sjá í heimildum dæmi um notkun lausnar-, lyf-, hulinshjálms-, óska-, og lífsteina.9 Hólm- göngu-Bersi hafði lyfstein um háls sér í Kormáks sögu.10 Steinninn var rifinn af honum í bardaga og eftir það greru sár hans seint. Þórður Arndísarson færir honum steininn aftur og græðir síðan sár hans (kafli 12). Má af samhenginu ráða að lyfsteinninn hafi ráðið miklu um batavon Bersa. Trú á náttúrusteina til lækninga var viðurkennd og viðtekin langt fram eftir öldum. Lútherska kirkjan leit á lausnarsteininn sem náttúrulegt og kristilegt meðal til þeirra nota eins og sjá má af lýsingum í steinabók Jóns lærða sem er kafli í riti hans „Nokkrar fáar greinar um jörð vora og hennar undarlegu náttúrur“.11 Er þar vísað til meðferðar íslenskra presta á steininum, til dæmis Odds Einarssonar biskups í Skálholti (1589-1639) og Sigfúsar Sigurðsson- ar (d. 1639) á Refsstað í Vopnafirði. Í skrá yfir eigur Hóladómkirkju árin 1525 og 1550 er getið um arnarstein (achitis) sem nefndur er lausnarsteinn og talinn til eigna kirkjunnar.12 Hefur steinninn sá væntanlega verið notaður í kristilegum og lögmætum tilgangi. Jörð tekur við öldri en eldur við sóttum Í þeim nýaldarfræðum sem vinsæl urðu á Vesturlöndum á síðari hluta 20. aldar má sjá lífseigar, ævafornar hugmyndir um áhrif náttúrunnar á líf og heilsu. Hreinsunaröflin eru jörð, eldur, loft og vatn, eins og lýst er í ræðu Óðins í Loddfáfnismálum Hávamála.5 [...] því að jörð tekur við öldri, öldri = öli en eldur við sóttum; eik við abbindi, abbindi = harðlífi/gyllinæð ax við fjölkynngi, Y F I R L I T S G R E I N

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.